Morgunblaðið - 11.02.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR. 11,; FEB.RQAR, ^19,93
Sænsk kvikmyndavika
Ballskákarmissir
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Paradís án billjarðs - Paradis
utan biljard.
Handrit og leikstjórn Carlo
Barsotti. Aðalleikendur Paolo
Migone, Gianluca Favilla, Carlo
Felicetti, Bjöm Granath, Carin
Ödquist, Görel Crona. Sænsk.
SFI 1991.
Um miðja öldina voru ítalir
Kvikmyndadagar
Hvíta tpaldsins
Viðkvæm
vinátta
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Vinátta í Alaska („Salmonberri-
es“). Sýnd í Regnboganum. Leik-
stjórn og handrit: Percy Adlon.
Aðalhlutverk: k.d. Lang, Rosel
Zeck, Chuck Connors, Jane Lind,
Oscar Kawagley.
Þýski leikstjórinn Percy Adlon
hefur vakið athygli fyrir allsérstæð-
ar og kímnar, litlar myndir er ger-
ast langt utan alfaraleiða og segja
á frumlegan og skemmtilegan hátt
frá ólíkum menningarheimum sem
rekast saman í gegnum persónur
af ólíkum kynþáttum.
Hann er enn við það heygarðs-
horn í nýjustu mynd sinni og gætir
nokkurrar endurtekningar í efnis-
tökum hans að því leyti en hann
hefur aldrei verið alvarlegri og
drungalegri en nú. Það kemur ekki
á óvart þótt myndin gerist á heil-
miklum útnára í Alaská og lýsi
stormasömu sambandi aðfluttrar
þýskrar konu, sem flúið hafði frá
A-Berlín og misst manninn sinn á
flóttanum, og eskimóastúlku, sem
leitar uppruna síns. Saman ferðast
þær til Berlínar og fornar slóðir en
hin nánu tengsl á milli þeirra fá
annan svip þegar í ljós kemur að
eskimóastúlkan er ástfangin af vin-
konu sinni.
Óvenju alvarlegt efni fyrir gríh-
arann Adlon, sem fæst öðrum þræði
við nýja heimsmynd eftir fall múrs-
ins og fortíð úr mannskemmandi
þjóðfélagskerfi. Hún er líka um
árekstur fólks sem kemur úr sitt-
hvorri áttinni og virðist ekki eiga
mikið sameiginlegt annað en firr-
ingu og einmanaleika í stöðugu
náttmyrkri og kulda Alaska.
Þannig er litill húmor í Adlon og
myndin hans verður æ þyngri og
drungalegri eftir því sem á líður
og nær hámarki í uppgjöri vin-
kvennanna á hótelherbergi í Berlín.
Eins og áður er tónlist k.d. Lang
mjög góð en þeir sem leita að létt-
leika og gamansemi Bagdadkaffis-
ins og Rósalind fer í búðir ganga
bónleiðir til búðar.
Leikhópurinn stendur sig ágæt-
lega og B-mynda-stjarnan Chuck
Connors er skondin eftirlíking af
Jack Palance, sem Aldon setti útí
rammsterkt Bagdadkaffið.
MEG frá ABET
UTAN Á HÚS
FYRIRLIGGJANDI
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
farnir að flykkjast til Svíþjóðar til
að gerast farandverkamenn í vel-
ferðarríkinu. Þeir sem komnir voru
á norðurslóðir undu flestir hag
sínum þokkalega á flestan hátt,
þó er það fyrst og fremst heimþrá-
in og einmannaleikinn sem knýr
Franco (Favella) til að lýsa dvöl
sinni sem fjálglegast í bréfum sín-
um heim til vinar síns Giuseppe
(Migone). Og hann fellur fyrir fag-
urgalanum, þreföldum launum,
sjálfvirkum launahækkunum, ljós-
hærðu og sprellfjörugu kvenfólki
og lætur sig hafa það að halda á
braut, jafnvel þó ekkert sé billjarð-
borðið að finna í þessari norðlægu
paradís á jörð.
En ekki er allt sem sýnist.
Skattarnir ruddalegir, ljóskumar
sýnd veiði en ekki gefin, útilokað
að fá ætt pasta, kaffíð skólp og
tæpast sást til sólar — á ítalskan
mælikvarða.
Þeir vinimií lagast misvel að
hinum fjarlægu lífsháttum og Bar-
sotti vill meina að menn kjósi út-
legðina eingöngu ef þeir hafí frá
litlu að hverfa. Lífshættir ítalanna
á sænskri gmnd em ekki ósvipað-
ir verbúðarlífí í sjávarplássi á ís-
landi, hálfgert neyðarbrauð flest-
um öðmm en þeim sem hafa ekki
í annað hús að venda. Hvað svo
sem rómantíkinni viðvíkur.
Það em ítalskir kvikmyndagerð-
arme'nn sem fjalla um þennan
norðurvíking landa sinna og
myndin sem þeir draga upp er
heldur óhijáleg, hálfgildings para-
dísarmissir. Þfeir em æ og sí út-
lendingar, jafnvel eftir 30 ára
þrældóm í grámyglulegum verk-
smiðjukumböldum. Betra að koma
sér sem fyrst heim í sólina, mok-
kakaffíð, blessaðan billjarðinn og
giftast elskunni sinni.
Þetta er afar látlaus og létt
mynd sem engu að síður var akk-
ur í að fá tækifæri að sjá því hún
segir snyrtilega og umbúðalaust
sína sögu. Og leikararnir mjög
frambærilegir og gagrýnin skyn-
samleg án nokkurra stóryrða.
Brids
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Torfa S. Gíslasonar hefír
örugga forystu í Sparisjóðsmótinu,
sem er aðalsveitakeppni félagsins.
Spilaðir em 28 spila leikir og er
lokið 5 umferðum af 9.
Staða efstu sveita:
Torfí S. Gíslason 119
Gunnar Guðbjörnsson 96
Ringulreið 83
Jóhannes Ellertsson 76+bið
Gunnar Siguijónsson 61 +bið
Óvænt niðurstaða varð í einu
spili á síðasta spilakvöldi. Þá henti
það einn spilarann að spila tvo tígla
„doblaða" og fá engan slag. Slysið
varð með þeim hætti að suðurspilar-
inn opnaði á einum tígli, vestur
sagði 2 tígla (hálitirnir), norður
„doblaði“ og það var passað út.
Sagnhafí fékk síðan engan slag
þrátt fyrir að eiga einn ás og and-
stæðingamir skrifuðu 2300 í sinn
dálk. Þess má geta að norður/suður
áttu hálfslemmu í spilinu.
Ekki verður spilað í mótinu nk.
mánudagskvöld vegna spila-
mennsku á Bridshátíð en nokkrar
sveitir af Suðurnesjum em meðal
þátttakenda.
Næsta spilakvöld er á bolludag-
inn. Hefst spilamennskan að venju
kl. 19.45. Spilað er í Hótel Kristínu
í Njarðvíkum.
Bridsdeild Barð-
strendingafélagsins
Þegar ein umferð er eftir í Aðal-
sveitakeppni deildarinnar er röð
efstu sveita eftirfarandi.
ÞórarinnÁmason 240
KristjánJóhannsson 217
ÁmiMagnússon 216
HannesGuðnason 212
VilhelmH.Lúðvíksson 202
Bridsfélag kvenna
Nú er átta umferðum lokið í
sveitakeppninni og staða efstu
sveita:
sv. Ingu L. Guðmundsdóttur 157
sv. Sigrúnar Pétursdóttur 152
sv. Ólínu Kjartansdóttur 146
sv. Bryndísar Þorsteinsdóttur 132
sv. Hrafnhildar Skúladóttur 129
sv. Gullveigar Sæmundsdóttur 129
RAÐSTEFNA
STÓRTÖLVUR
OG UMHVERFI ÞEIRRA
I NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ
NÝHERJI hf. mun gangast fyrír ráðstefnu fimmtudaginn 18. febrúar n.k. um
"Stórtölvur og umhverfi [seirra í nútíð og framtíð". Bæði innlendir og
erlendir fyrirlesarar verða með erindi. Erlendu fyrirlesaramir verða
Poul Bo Chrístiensen og Paul O'Neill, báðir sérfræðingar hjá IBM.
Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKÝRR, Þórður B. Sigurðsson,
forstjóri RB og Jakob Sigurðsson, forstöðumaður tölvudeildar
Flugleiða munu flytja stutt eríndi um sín tölvuumhverfi.
Á dagskrá verður m.a. eftirfarandi:
Kf. 13:15 - 16:30
- Stórlölvuumhverfið í nútíð og framtíð
- Hagkvæmnisútreikningar mismunandi tölvuumhverfa
- Helstu álcvörðunarjsættir við val á uppfysingakerfum fyrírtækja
- Nýjungarí "biðlarí/miðlari" umhverfi og "opnum kerfum".
- "Þróun stórtölvunnar í mínu umhverfi" (innlend eríndi).
- Umræður
RáSstefnan verður haldin í A-Sal á Hótel Sögu og verða fyrirlestramir á ensku. Hér er kjörið
tækifæri til áð kynnast því helsta sem er að gerast m.a. á sviði stórtölva og hlutverki þeirra í
framtíðinni.
Aðgangur er ókeypis en tilkynna þarf (rálttöku tíi Magneu Ragnarsdóttur hjá
Nýherja í sfma 69 77 48 fyrir 15. febrúar n.k.
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 - 8ÍMI 8Q 7T OO
AUtaf skrtfi á undan