Morgunblaðið - 11.02.1993, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993
H RAÐLESTRARSKOLIN N
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!_
ESZJ 1978-1993 CE
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
■* Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina?
★ Vilt þú verða mikið betri námsmaður og auðvelda þér nám-
ið með auknum lestrarhraða og bættri námstækni?
★ Vilt þú lesa meira af góðum bókum?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax. Næsta námskeið hefst
laugardaginn 20. febrúar. Skráning í síma 641091.
Ath.: Sérstakur námsmannaafsláttur. VR og flest önnur félög
styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum.
Frá sýningu íslenska dansflokksins í Ráðhúsinu sl. mánudag.
íslenski dansflokk-
urinn í Ráðhúsinu
Önnur sýning íslenska dans-
flokksins í Ráðhúsi Reykjavíkur,
verður í dag klukkan 12.15.
Sýnt verður verk eftir William
Soleau sem nefnist Bach-svítur.
Verkið er samið fyrir íslenska dans-
flokkinn og er hér um frumflutning
að ræða. Sjö dansarar taka þátt í
sýningunni sem tekur 20 mínútur.
Höfundur kom hingað til lands í
janúarmánuði og vann með dans-
flokknum að uppfærslu verksins.
Verkið er í nýklassískum stíl. Bún-
ingar í sýningunni eru eftir Helgu
Rún Pálsdóttur. Síðasta ráðhússýn-
ing ísleqska dansflokksins að þessu
sinni verður föstudaginn 12. febr-
úar, klukkan 20.30.
Fyrsta sýningin var síðastliðinn
mánudajg og að sögn forsvars-
manna Islenska dansflokksins tókst
hún vel og var aðsókn mjög góð.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - simi 17800
Beisli, taumur og múll
Kennari: Arndís Jóhannsdóttir.
23. feb. - 9. mars, þriðjudaga kl. 19.30-22.30.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
- fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
1 jr' m1 jr' m1 * m i _ i _
s.
í
í
. J
Austan vindar og vestan
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
SAGA. Tímarit Sögufélags.
XXX-1992. 402 bls. Ritstj. Gísli
Ágúst Gunnlaugsson, Sigurður
Ragnarsson. Reykjavík, 1992.
Saga hefst að þessu sinni á
langri og ýtarlegri ritgerð, Dórn-
hrínga saga. Grein um fornleifa-
skýringar, nefnist hún. Höfundar
eru tveir ungir fornleifafræðingar,
Adolf Friðriksson og Orri Vésteins-
son. Efnið er ekki sérlega spenn-
andi. En höfundarnir reifa það fjör-
lega, slá á létta strengi, minna t.d.
á barnaskap forfeðranna sem trúðu
á feðranna frægð og létu sér síst
til hugar koma að efast um sann-
fræði fornritanna. Um Sigurð Vig-
fússon segja þeir t.d. að hann hafi
verið »bókstafstrúarmaður á fornrit
og reyndi allt hvað hann gat að
finna í landslaginu áþreifanlegar
sannanir um atburði íslendinga-
sagna«. Það eru einkum dómhring-
ar, sem víða eiga að hafa fundist,
sem Adolf og Orri hafa rannsakað
og þá jafnframt borið saman við
athuganir fyrri tíma fræðimanna.
Að sjálfsögðu vita svo hálærðir
menn að Sigurður Vigfússon var
alls enginn fornleifafræðingur
heldur réttur og sléttur gullsmiður
með eldlegan áhuga á fornum
fræðum eins og margur um hans
daga. Af skrifum Adolfs og Orra
mætti ætla að Sigurður hafi verið
hálfgerður einfeldningur. En bók-
stafstrú hans var ekkert einsdæmi,
síður en svo. Trúgirni sinni deildi
hann með alþýðu manna á sínum
tíma. Viðleitni hans var jafnlofs-
verð þótt fornleifaskýringar hans
hafi ekki staðist tímans próf. Valdi-
mar Ásmundsson sagði um Sigurð
látinn að hann hefði haft »mikla
andlega atgervi, enn naut sín ekki
að fullu fyrir þá sök, að hann hafði
ekki átt kost á að afla sér nægrar
menntunar«. Lærðir menn á Norð-
urlöndum voru um þær mundir
Bókmenntir í Lista-
safni Siguijóns
Listasafn Sigurjóns Ólafsson-
ar gengst fyrir bókmenntadag-
skrá næstkomandi laugardag,
13. febrúar, klukkan 16.00 í safn-
inu í Laugarnesi.
Fimm skáldkonur sem sendu frá
sér bækur fyrir jól munu lesa úr
nýjum bókum sínum, ásamt dönsku
skáldkonunni Susanne Jom, en á
síðasta ári voru gefin út ljóð, á
vegum safnsins, sem hún hefur ort
við nokkrar höggmyndir Siguijóns
Olafssonar.
Dagskráin hefst á því að Vilborg
Dagbjartsdóttir les úr ljóðabók
sinni, Klukkunni í turninum, og
Þórunn Valdimarsdóttir úr skáld-
sögu sinni, Júlíu. Kristín Ómars-
dóttir les úr bókinni Svörtum brúð-
arkjólum, Linda Vilhjálmsdóttir les
úr ljóðabókinni Klakabörnunum og
Vigdís Grímsdóttir les úr skáldsög-
unni Stúlkunni í skóginum.
Að lokum mun Susanne Jorn lesa
úr bók sinni „Tracks in Sand“ og
eru ljóðin fmmsamin á ensku.
Steinunn Sigurðardóttir hefur þýtt
nokkur ljóðanna á íslensku og mun
Helga Jónsdóttir, leikkona, flygja
þau. Jafnframt verða sýndar lit-
skyggnur af þeim verkum Sigur-
jóns, sem Susanne hefur ort ljóð
sín við.
I fréttatilkynningu segir:
Susanne Jorn er fædd í Danmörku,
stundaði nám í japönskum og kín-
verskum fræðum við Hafnarhá-
skóla, við Sorbonne í París og við
háskólann í Kyoto í Japan. Hún
hefur verið afkastamikill ljóðaþýð-
andi úr kínversku og japönsku og
í fmmsömdum ljóðum hefur hún
gert tilraunir með japönsk og kín-
versk ljóðform. Susanne er búsett
í Bandaríkjunum.
farnir að efast um sannleiksgildi
sagnanna og lágu þá ekki á skoðun
sinni. Sigurður ætlaði »að rita sér-
staka varnarritgerð móti ýmsum
höfundum, sem rengt hafa sögu-
legan áreiðileik ýmsra af sögum
vorum,« en lést áður en af því
gæti orðið.
Adolf og Orri hafa numið fræði
sín við erlenda háskóla. Því skal
ekki í efa dregið að rannsóknarað-
ferðir þeirra byggist á því nýjasta
í greininni. En niðurstaða þeirra er
í stuttu máli sú að »í stað þess að
vera minjar frá þjóðveldisöld eru
dómhringar samtíningur af rústum
frá ýmsum tímum og hafa gegnt
allskyns hlutverkum sem ekki
varða þing eða dóma.« Klárt og
kvitt. Ályktun þessi kemur ekki á
óvart. Þvert á móti samræmist hún
okkar hyggju að sama skapi sem
rannsóknir Sigurðar féllu að trú
íslendinga um aldamótin síðustu.
Þá treystu menn á þekking Sigurð-
ar, þeir sem ekki vissu betur. Eins
treystum við því nú að þessir ungu
menn hafi rétt fyrir sér; til þess
hafa þeir lært!
Sveinbjöm Rafnsson er líka á
fornfræða slóðum með Sagnastef
í íslenskrí menningarsögu, beinir
þar sjónum að ritinu Disciplina
Clerícalis eftir Petrus Alfonsi og
rekur áhrif þess á íslenskar bók-
menntir, en þau sýnast hafa verið
bæði víðtæk og langæ. Tekin eru
dæmi úr ýmsum fyrri aMa textum.
Sum þeirra minna á hve íslending-
ar lögðu litla rækt við móðurmál
sitt frá því er sagnaritun lauk þar
til fornfræðaáhugi tók aftur að
glæðast, sem var nú raunar löngu
fyrir daga málhreinsunar. Meðal
annars örlar þar á notkun óákveð-
Nýjar bækur
Listaverkabók um
Hrein Friðfinnsson
Listasafn íslands og Mál og
menning hafa I sameiningu gefið
út bókina Hrein Friðfinnsson, í
tilefni af yfirlitssýningu lista-
mannsins sem nú stendur yfir í
Listasafni íslands.
í kynningu segir: Hreinn Frið-
finnsson er meðal þekktustu mynd-
listarmanna íslendinga af kynslóð-
inni sem kennd hefur verið við
SÚM. í meira en tvo áratugi hefur
hann verið búsettur í Hollandi og
sýnt verk sín um víða veröld. Mynd-
list hans er í senn ljóðræn, innileg
og heimspekileg könnunarferð um
hverfula hversdagstilveru.
í bókinni eru greinar eftir Beru
Nordal, Halldór Björn Runólfsson,
Kees van Gelder og viðtal við Hrein
eftir Meghan Ferrill. Allir þessir
textar eru einnig í enskri þýðingu
í bókinni og hafa Aðalsteinn Ing-
ólfsson og Bernadette Bout annast
það. Þá er í bókinni 41 mynd af
verkum Hreins frá 1965 til 1992,
flestar í litum. Aftast í bókinni er
æviferill listamannsins rakinn og
prentaðir listar yfir sýningar hans
og verk í stofnunum.
Ritsljóri bókarinnar er Bera
Hreinn Friðfinnsson
Nordal. Erlingur Páll Ingvarsson
hannaði bókina sem er 106 blað-
síður. Bókin var unnin í Prent-
smiðjunni Odda hf. Hún kostar
3.980 krónur.
liriMDAI I UK r
Ríkir félagafrelsi á Islandi?
Fundur um skylduaðild að verkalýðsfélögum
t u s
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, efnirtil fundar um félaga-
frelsi og skylduaðild að verkalýðsfélögum á Hótel Sögu, Ársal, laugardaginn
13. febrúar. Fundurinn hefst kl. 12.00 með hádegisverði og áformað er að hon-
um ljúki ekki síðar en kl. 15.30.
Erindi frummælenda:
Gunnar Jóhann Birgisson hdl.: Neikvætt félagafrelsi. Brýtur skylduaðild að verka-
lýósfélögum í bága við alþjóðlegar skuldbindingar íslendinga í mannréttindamálum?
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.: Leigubílstjóramálið og hugleiðingar í tilefni af því.
Lára V. Júlíusdóttir, frkvstj. Alþýðusambands íslands: Er skylduaðild að verkalýðs-
félögum?
Þórarinn V. Þórarinsson, frkvstj. Vinnuveitendasambands Islands: Er samkeppni
í félagsmálum óheilbrigð?
Jóhanna Siguröardóttir, félagsmálaráöherra: Skylduaðild frá sjónarhóli
stjórnvalda.
Að loknum erindum verður efnt til pallborðsumræðna sem ögmundur Jónasson,
formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, og Jónas Fr. Jónsson, lögfræðing-
ur Verzlunarráðs Islands, taka þátt í auk frummælenda.
Fundarstjóri: Kjartan Magnússon, formaður Heimdallar.
Stjórnandi pallborðsumræðna: Birgir Ármannsson, laganemi.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Hádegisverður kr. 1.100.