Morgunblaðið - 11.02.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.02.1993, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993 Morgunblaðið/Þorkell Beyglurnar verða ~betur skornar í framtíðinni FYRIR nokkru komu á markað hérlendis brauðhringir sem í Bandaríkjunum ganga undir nafninu Bagels. Upprunalega eru hringimir sagðir koma frá gyðingum. Gyð- ingar, sem fluttu búferlum vestur um haf, tóku uppskriftina með sér og nú kenna menn brauðkringlurn- ar við Bandaríkin enda geysivin- sælar þar og heilu búðimar sem selja ekkert annað en Bagels með mismunandi bragðtegundum. j, Það er brauðgerðin hjá Mjólkur- samsölunni sem sér um framleiðsl- una hér á landi og þar á bæ hafa forsvarsmenn sótt um einkaleyfi á orðinu beyglur fyrir brauðhringina. Undanfarið hafa lesendur okkar kvartað yfír því við okkur á Dag- legu lífí að hringirnir séu illa skorn- ir og ómögulegt sé að koma helm- ingunum í brauðristina. Þegar við höfðum samband við forsvarsmenn hjá Mjólkursamsöl- unni könnuðust þeir vel við vand- ann og sögðu að verið væri að hanna sérstakan aukabúnað á brauðskurðarvélina svo að betur tækist til. Hann sagði þó þetta vandamál eiga helst við brauð- hringina með rúsínunum. Þá kom fram hjá Georg Hauks- syni hjá Mjólkursamsölunni að ver- ið væri að gera tilraunir með fleiri bragðtegundir af beyglum og að í framtíðinni mættu viðskiptavinir eiga von á nýjungum. ■ Morgunblaðið/Þorkell Öryggissæti fyrir börn á innkaupakörfurnar í Hagkaup "íþESSA dagana eru forsvars- menn hjá Hagkaup að láta setja sérstök öryggissæti fyrir ung- viðið á innkaupakörfur. Þá er einnig verið að setja upp sérstök belti á körfur fyrir börn. Til að byija með verða 3-7 stól- ar í hverri verslun Hagkaups og belti á um 15-20 grindum. Á næst- unni koma síðan til landsins sér- stakar innkaupakörfur sem eiga að gera foreldrum kleift að láta ungböm liggja í nokkurskonar burðarrúmi við hliðina á innkaupa- körfunni. ■ Hvað kostar að fara í nudd? Á LANDSBYGGÐINNI V /y'V Nuddstofa Aldísar, Munkaþverárstræti 35, Ak. Opiö mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 07-11 og 13-19 1 1.400 1.000 7í Tjnniþaíic 40 gigtarlampi ||R Nuddstofa Soffíu Zophaníasd., Rfumóa 3c, Keflavík, opið mánudaga til föstudaga kl. 10-19 1 1.600 1.000 2) innifaliö innifalið Nuddstofa Elínar, Sundlaugarhúsinu, Sauðárkróki, opið mánudaga til föstudaga kl. 13.30-20 1 1.600 120 9j ri| Toppsól, Tunguslðu 6, Akureyri. Opið mánudaga til laugardaga kl. 09-20 2 1.500-1,9503) innifalið 430 100 sundlaug Nudd- og Ijósastofa Ingu, K.A. heimilið, Akureyri, opið til stóptis eina viku ísenn 08-16 og 13-19 2 1.900 1.600 1.300 1.100 innifalið 430 lánuð ef þarf heitir pottar ÍREYKJAVÍK Nuddstofan,4) Hótel Loftleiðum, opið mánudaga til laugardaga kl. 17-20 1 1.800 3505) 400 innifalið sloppur og sjampó Nuddstofa Reykjavíkur, Hótel Sögu v/Hagatorg, opið mánudaga til föstudaga kl. 10-19 og laugardaga kl. 10-18 5 2.120 1.700 1.500 1.200 Innifalið 430 170 líkamsr,- salur og nuddpottur Nuddstofan Paradís, Laugamesvegi 82, opið mánudaga til föstudaga kl. 09-20 og laugardaga kl. 09-17 4 2.200 1.770 1.700 1.360 innifalið 150 þrek- taeki Nudd- og gufubaðsstofan Eygló, Langholtsvegi 17, opið mánudaga til föstudaga kl. 09-18 3-4 2.270 um 1) 1.800 1.820 1) innifalið 130 æflngatæki notuð I með- ferð ef þarf Sjúkranuddstofa Rafns Geirdal, Smiðshöfða 10, breytilegur opnunartími breyti legt 1.200-2.700?) 2.100 1.800 1.400 innifalið innifalið Nudd- og gufubaðsstofa Óla, Hamrahlið 17, opið mánudaga til föstudaga kl. 08-18 2 2.200 1.600 innifalið 100 1) Misjafnt verð eftlr meðferð, skv. fyrirmælum laaknis. 2) 30 mln. I gigtarlampa fyrlr nudd og 30 mln. á einföldum solarbekk eftir nudd. 3) Fer eftir nuddara. 4) Frá nk. mánaðamótum verður opið allan daginn. 5) Aðskilinn rekstur. Einnlg aðgangur að sundlaug, nuddpottl og andlitsljósum. 6) Aðskillnn rekstur. Einnig aðgangur að sundlaug og heitum pottum. 7) 1.200 hjá nema, 2.100 hjá nuddfræðingi og 2.700 hjá meistara (Rafni Geirdal). Nudd er ódýrara úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu ÞAÐ er þó altént eitthvað sem er ódýrara úti á landi en á höfuð- borgarsvæðinu, en oft og einatt birtast okkur upplýsingar um mun hærra verð úti á landi. Mestur verðmunur á nuddi (125%) er á sömu nuddstofunni, en skýringin er augljós og sést neðan- máls í töflunni. Aðstaða á nuddstofum er afar misjöfn og hið sama verður að segja um menntun og hæfni nuddara. Eðlilega er ekkert mat lagt á slíkt hér, enda misjafnt eftir hverju fólk sækist er það fer í nudd. Gufubað er á flestum stofum og aðgangur að því oft- ast innifalinn í verðinu. I tveim tilfellum er nuddstofa rekin í samvinnu við sundlaug og þarf þá að greiða aðgangseyri í laug og gufubað. SJúkranudd Á sumum stofum eru starfandi löggiltir sjúkranuddarar og geta þeir annast sjúkranudd sam- kvæmt tilvísun frá lækni. Er virð- isaukaskattur þá felldur niður. Margir tala um „heilnudd" (45-60 mín.) og „partanudd“ (25-35 mín.) en hér var ákveðið að tala um „almennt nudd“ til aðgreiningar frá sjúkranuddi. Nudd hefur fylgt mannkyninu frá örófí alda, enda eru til meira en 5.000 ára gamlar skriflegar heimildir um nudd. Margir hafa þá venju að fara í nudd í hverri viku og fínnst það ómissandi þáttur í lífi sínu. Sé miðað við meðalverð á nuddi er álíka dýrt að fara í nudd einu sinni í viku og að reykja pakka af sígarettum á dag. ■ BT Morgunblaðið/Þorkell Síðustu reyfarakaupin VERSLANIR lækka þessa daga verðið enn, þó sums staðar viki nú útsöluvörur fyrir vorvörum. Það má enn gera reyfarakaup og víða hefur útsöluverð verið lækkað Jttin meira og nemur afsláttur allt að 80%. Það var handagangur í öskjunni hjá Toppskónum en þar hófst útsalan s.l. þriðjudag kl. átta árdegis og af- slátturinn nam allt að 80 %. Þar var hægt að gera góð kaup. Ein kona keypti 9 skópör á fjóra fjölskyldumeð- limi og reiknaðist til að þau hefðu kostað á fullu verði um 45 þús. en á f'tsölunni greiddi hún nálægt 16.500 r. fyrir skótauið. ■ Gómsæt kaka full af vítamínum ... og hitaeiningum ÞETTA er ein af þeim kökum sem hægt er að geyma í frysti og taka út þegar á þarf að halda. Hún er einstaklega Ijúffeng en hráefnið í hana er frekar dýrt og samvisku- laus væri ég ef ég segði að hún væri megrunarfæða. Vegna þess hversu ljúffeng mér finnst hún, hef ég aldrei lagt á mig að reikna út hvað hún kostar, hvorki í krónum né kaloríum. Hér eru notuð jarðarber, brómber og blæjuber ásamt kíví. Jarðarber eru nánast ómissandi á þessa köku. Á kökuna má setja hvers i kyns ávexti og vissulega eru þeir auðfáanlegri og ódýrari ZI á sumrin. Þeim mun fleiri BC ferskir ávextir þeim mun iS^ betri verður kakan, en einnig má bjarga sér með því að skreyta hana með súkkulaði- 2" spæni. Ekki er erfítt að gera kökuna, en til að baka hana þarf að nota mót með stórri laut, en slík mót eru til dæmis fáanleg í Húsasmiðjunni. Best er að setja ávexti á kökuna skömmu áður en hún er borin á borð og ef á að frysta hana er hún látin þiðna í 30-60 mínútur áður en ávextir eru settir á hana. Mun- ið að best er að leyfa eggjum að jafna sig við stofuhita í 1-2 klst. áður en þau eru notuð í bakstur og hið sama gildir um smjör. Ávaxfakaka Botn 250 g marsípan 250 g sykur 250 g smjör 3 egg 100 g hveiti ferskir óvextir eftir smekk Marsipan, sykur og smjör hrært á meðalhraða í nokkrar mínútur. Egg pískuð og þeim síðan bætt saman við. Hveiti hrært varlega saman við með sleif. Látið í form með djúpri laut og bakið við 150 gráðu hita í 30 mínútur. Krem 3 eggjarauður 2 msk sykur 2 blöð matarlím 3 msk Grand Marnier Eggjarauður og sykur þeytt í 5 mín. Matarlím lagt í vatn, vatnið kreist úr og blöðin síðan brædd yfir vatnsbaði. Grand Marnier blandað saman við eggjahræruna með sleif, síðan þeytta ijómanum og að lokum matarlími. Kreminu hellt yfír kökuna og lautin fyllt af kremi. Látið jafna sig um stund og skreytið síðan með ferskum ávöxtum. Gott er að gera hana daginn áður en hún er borðuð og án ávaxta geymist hún í margar vikur í frysti. ■ BT 1 peli þeyttur rjómi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.