Morgunblaðið - 11.02.1993, Page 22

Morgunblaðið - 11.02.1993, Page 22
MORGUKBLAÐIÐ ITMMTUDAGUR 11. FKBRÚAR 1993 22 - Lífsbjörg í Norðurhöfum í sænska sjónvarpinu Utanríkis- ráðherra með í um- ræðum eft- ir sýningu HEIMILDARMYNDIN Lífsbjörg í Norðurhöfum verður sýnd á sænsku sjónvarpsstöðinni TV 2 í kvöld, fimmtudagskvöld. A eftir sýningu verður umræðurþáttur um efni myndarinnar í beinni útsendingu en meðal þátttakenda þar verða Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra og Jan Henry Olsen sjávarútvegsráð- herra Noregs. TV 2 er stærsta sjónvarpsstöð Svíþjóðar og send- ingar hennar nást í Noregi, Dan- mörku og hluta Finnlands. Að sögn Einars Þorsteinssonar umboðsaðila myndarinnar í Svíþjóð verður myndin og umræðumar á eftir í þætti sem heitir Svar direkt og nýtur mikilla vinsælda í Svíþjóð en í þessum þætti eru tekin fyrir og fjallað ítarlega um fréttatengd efni. Lífbjörg í Norðurhöfum verður sýnd svo til óstytt og síðan er reikn- að með um klukkustund í umræð- umar á eftir. Sex mæta frá hvoram aðila, það er hvalveiðisinnum og þeim sem eru á móti hvalveiðum. Auk ráðherrana tveggja munu m.a. Magnús Guðmundsson höfundur myndarinnar og Bjöm Ökem fyrr- um formaður Greenpeace í Noregi taka þátt í umræðunum. -----»■' ♦■■■♦-- Félag áhuga- ljósmyndara að hefja starf FÉLAG íslenskra áhugaljós- myndara, FIA, er um þessar mundir að hefja starfsemi sína. FÍA hefur tekið á leigu húsnæði í Síðumúla 31 (bakhús) og innréttað þar myrkraherbergi, lítið stúdíó, fundaraðstöðu auk geymsluað- stöðu. I dag verður fyrsti fímmtu- dagsfundur FÍA en hann hefst kl. 20. Á þessum fundum verða skyggnusýning, myndasýning og ýmis fræðsla. Áðgangur á fímmtu- dagsfundi er ókeypis og era allir velkomnir. (Úr fréttatilkytmingu) Fataðir upp hjá SKIPBROTSMENNIRNIR fjórtán af norska togaranum Svinoy sem sökk á Dohmbanka aðfaranótt þriðjudags effír að hann rakst á ísjaka, komu með togaranum Björg- vin Senior til Isafjarðar í fyrrinótt. Voru mennirnir mis- jafnlega á sig komnir, að sögn Gunnars Jónssonar um- boðsmanns útgerðarinnar, enda höfðu þeir orðið að yfír- Ljósmynd: Sigurjón J. Sigurðsson Jóni og Gunnu gefa skip sitt í flýti. Voru þeir drifnir beint í fataverslun- ina Jón og Gunnu sem opnuð var af þessu tilefni um miðja nótt og skipbrotsmennimri fataðir upp á kostnað útgerðarinnar. I gærmorgun flugu þeir frá Isafjarðarfiug- velli heim til Álasunds með leiguvél frá Flugfélagi Norð- urlands. Reykjanesbraut Viðbúnað- ur vegna árekstra Keflavík. LÖGREGLAN í Keflavík var með nokkurn viðbúnað vegna tilkynningar um 10 bifreiða árekstur á Reykjanesbraut í brekkunni fyrir ofan Kúgagerði laust fyrir klukkan átta í gær- morgun en þá var fljúgandi hálka á veginum. Sendir voru tveir lögreglubílar og ein sjúkrabifreið úr Keflavík og frá Hafnarfirði fór lögreglu- og sjúkrabifreið á staðinn. Þegar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að þar höfðu orðið tveir tveggja bíla árekstrar og engin slys á fólki. Bílarnir reyndust hins vegar mikið skemmdir og varð að íjarlægja þá með dráttarbílum. Alls hlutu 659 félagsmenn VR atvinnuleysisbætur í janúar Bótalausir á biðtíma eru 42 Atvinnulausir án bóta leita í auknum mæli til félagsmálastofnana ALLS nutu 659 félagsmenn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur at- vinnuleysisbóta í janúar og er atvinnuleysið yfirgnæfandi í yngri aldurs- hópunum, þannig er 71% þeirra félagsmanna sem nutu bóta hjá VR fertugir og yngri. Mikill meirihluti þeirra er konur, eða 73% enda eru þær mun fleiri en karlar í félaginu. Atvinnulausir hjá VR 207 Konur fl Karfar Cj 135 Á bótum alls 659 Á biðtfma alls 42 76 8 r~i 16-30 ára samt. 283 á bótum 1 51 14 31-40 ára samt.186 á bótum 19 41-50 ára sarnt. 79 á bótum 49 I □ s iö 51-60 ára samt. 65 á bótum 61-71 ára samt. 46 á bótum Atvinnuleysisbætur era greiddar atvinnulausum launþegum í 260 daga, sem samsvarar 12 mánuðum. Þá fellur bótaréttur niður í 16 vikur en hinn atvinnulausi verður samt að láta skrá sig vikulega hjá vinnumiðl- un til þess að öðlast á ný rétt til atvinnuleysisbóta að biðtímanum liðnum. Um þessar mundir era 42 félagsmenn VR á biðtíma án bóta, eftir að hafa fullnað 12 mánaða skeið á atvinnuleysisbótum, samkvæmt upplýsingum Þorgerðar Sigurðar- dóttur hjá VR. Meira en helmingur þess fólks er innan fertugs, en langfæstir á fímmtugsaldri. Leitað til félagsmálastofnana Atvinnulaust fólk, sem er á bið- tíma og fær ekki atvinnuleysisbætur, leitar í vaxandi mæli til félagsmála- stofnana eftir fjárhagsaðstoð. Gunn- ar Klængur Gunnarsson, yfírmaður fjölskyldudeildar Félagsmálstofnun- ar Kópavogs, segist eiga von á að þessu fólki eigi eftir að fjölga tals- vert því sá hópur sé orðinn nokkuð stór sem hefur lengi verið atvinnu- laus. Hann segir Félagsmálastofnun Kópavogs miða fjárhagsaðstoðina við hlutfall af tryggingabótum Trygg- ingastofnunar og sé sú upphæð ekki fjarri atvinnuleysisbótum. „Ég á bágt með að sjá hvemig hægt verður mikið lepgur að velta þessum byrðum yfír á sveitarfélögin," sagði Gunnar og taldi að Atvinnuleysistrygginga- sjóði bæri að leysa vandann. Margrét Tómasdóttir, fram- kvæmdastjóri Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, segir að lagabreytingu þurfí til að annar háttur verði á greiðslu atvinnuleysisbóta en nú er. Hún telur að við setningu núgildandi laga hafí menn ekki gert ráð fyrir jafn almennu og langvinnu atvinnu- leysi og við búum við nú. Biðtíminn hafí verið hugsaður sem hvatning til fólks að leita sér vinnu. Samkvæmt lögum er ekki gert ráð fyrir nema 180 bótadögum, eða 9 mánuðum samfleytt. Stjóm sjóðsins var veitt heimild til að lengja bótatímabilið og var það lengt í þá 260 daga sem nú gilda. Margrét segir ný lög um At- vinnuleysistryggingasjóð í undirbún- ingi og komi sterklega til álita að fella 16 vikna biðtímann niður eða stytta hann, enda sé um það hávær krafa frá stéttarfélögunum. 200 milljónir á mánuði Sjóðurinn greiðir nú út um 200 milljónir króna á mánuði og hefur til ráðstöfunar tæpa tvo milljarða á þessu ári. Þar af koma 1464 milljón- ir af fjárlögum og um 500 milljónir frá sveitarfélögunum, en sveitarfé- lögin geta sótt um styrki til atvinnu- bóta á móti framlaginu. „Það er ljóst að þetta nægir engan veginn, á síð- asta ári fengum við um 700 milljóna króna aukafjárveitingu á fjárlögum og þurfti sjóðurinn ekki að ganga á eignir sínar sem því nam,“ segir Margrét. Meindýraeyðir útrýmdi svörtum rottum í rússneskum togara undan Keflavík Sá rottur á hlaupum í skipinu RÚSSNESKU fiskflutningaskipi var vís- að frá Keflavíkurhöfn á mánudag eftir að uppvíst varð um rottugang um borð. Skipið lá á ytri höfninni í Keflavík meðan meindýraeyðir fékkst við að eyða rottunum um borð en fékk leyfi til að leggjast að hafnarbakkanum í Njarðvík síðdegis í gær. Talið er öruggt að engar rottur hafi sloppið í land úr skipinu. „Heimamenn höfnuðu skipinu ekki vegna farmsins heldur vegna ótta við að fá rottur í Iand,“ sagði Hermann Svein- björnsson, framkvæmdastjóri Hollustu- vemdar í gær. „Skipstjórinn framvísaði rottuvottorði og var víst mjög miður sfn þegar kom í ljós að rottur vora um borð í skipinu." Hermann sagði að skipið hefði lagst að bryggju í Keflavík en vart varð við rottugang er skoðunarmenn frá Holl- ustuvernd komu um borð. Gunnar Kristins- son, starfsmaður Hollustuverndar sagðist hafa séð rottur á hlaupum niðri í skipinu og fann hræ af rottu um borð. Sóttvamanefnd Suðumesja tók þá ákvörðun að vísa skipinu þegar út á ytri Þær svörtu ROTTURNAR í rússnesku skipunum eru svartar og með svo beittar ldær að þær geta hlaupið upp veggi. Því hafa þær fengið nafngiftina sogskálarottur. höfnina í Keflavík og lagði bann við að það legðist að aftur fyrr en öllum rottum um borð hefði verið eytt. Norðmenn vísa frá Rússneska skipið, Poljamoe sijanie M60421, er gamall togari sem er aðeins í flutningum; safnar físki af veiðiskipum á miðunum og flytur til lands. Hermann seg- ir það vinnureglu hjá Hollustuvernd ríkis- ins, að ef um er að ræða skip sem er bara í flutningum en ekki í veiðum eða vinnslu, séu mál sem þessi ekki litin eins alvarlegum augum. Rússamir hefðu skilning á vanda- málinu og gerðu allt til þess að losna við rottuganginn. Mikilvægt væri að taka á þessu með samræmdum hætti um allt land þannig að Rússarnir sæju að sér. Norð- menn hefðu hert reglur hjá sér verulega og vísuðu öllum skipum umsvifalaust frá ef rottugangur væri um borð. „Við viljum hafa það á hreinu að skip sem vísað er frá í Noregi komi ekki hingað," sagði Her- mann. „Þetta skip var hér í desember og þá keyptu þeir eitur og hafa eitrað fyrir rott- um um borð síðan," sagði Guðmundur Bjömsson verkstjóri hjá Meindýravörnum Reykjavíkur, en hann sá um eitrun um borð í skipinu á ytri höfninni í Keflavík. „Ég held að þær rottur sem þarna voru á ferli hafi verið búnar að fá vel í kroppinn og varla átt langt eftir.“ Svartar rottur Guðmundur sagði að þarna hefðu svart- ar rottur verið á ferð en þær eru ekki til staðar hér á landi. Hann sagði útilokað að rottur hefðu sloppið í land úr skipinu en til öryggis voru settar rottugildrar á landfestar og landgangur ekki hafður úti er skipið lagðist að til löndunar í Njarðvík- urhöfn. Valgerður Sigurvinsdóttir meindýraeyð- ir á Suðumesjum sagði að brúnar rottur væra í holræsakerfi allra bæja á Suðumesj- um og verður þeirra vart við fískvinnslu- hús og beitningaskúra ef bilanir verða á skolpræsakerfi. Valgerður sagðist vita til þess að svartar rottur hefðu komist í land úr rússneskum skipum í Grindavík en ekki náð að tímgast þar. Rottubit alvarlegt „Margt fólk verður ofsahrætt þegar rott- ur gera vart við sig en venjulega er er ekki mikið vandamál að ráða niðurlögum þeirra,“ sagði Valgerður. „Rottur eru smit- berar og maður veit ekki hvaða sjúkdóma þær bera auk þess sem mikill sóðaskapur er af þeim. Það er kannski eins gott að fólk er hrætt við þessi dýr þvi afleiðingar af rottubiti gætu reynst alvarlegar," sagði Valgerður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.