Morgunblaðið - 11.02.1993, Page 52
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Atvinnulausir á biðtíma leita til félagsmálastofnana
Flestir atvinnulausra
í VR undir fertuffu
MEIRA en 70% þeirra félagsmanna Verzlunarmannafélags
Reylqavíkur sem nutu atvinnuleysisbóta í janúar voru fertug-
ir og yngri. Alls hlutu 659 félagar í VR atvinnuleysisbætur
í janúar. Þegar atvinnulausir hafa þegið atvinnuleysisbætur
í 12 mánuði falla greiðslur bóta niður í 16 vikur. Fjörutíu
og tveir félagsmenn VR þreyja nú biðtímann uns þeir eiga
aftur rétt á bótum. Meira en helmingur atvinnulausra á bóta-
lausum biðtíma er um eða undir fertugu.
Að sögn Gunnars Klængs
Gunnarssonar, yfirmanns fjöl-
skyldudeildar Félagsmálastofnun-
ar Kópavogs, fjölgar atvinnulaus-
um á biðtíma sem leita fjárhagsað-
^oðar og býst hann við að þessi
hópur stækki á næstunni vegna
þess hversu langvinnt atvinnuleys-
ið er orðið.
Framkvæmdastjóri Atvinnu-
leysistryggingasjóðs segir laga-
breytingu þurfa til að afnema
tímamörk atvinnuleysisbóta. í
undirbúningi er frumvarp til nýrra
laga um sjóðinn og kemur sterk-
lega til greina að breyta þessari
reglu.
200 milljónir á mánuði
Atvinnuleysistryggingasjóður
greiðir nú um og yfir 200 milljón-
ir króna á mánuði í atvinnuleysis-
bætur og er ljóst að þeir fjármun-
ir sem sjóðurinn hefur til ráðstöf-
unar nægja ekki út árið, ef svo
fer sem horfir.
Sjá nánar á bls. 22.
Morgunblaðið/Kristinn
Vöm gegn sogskálarottum
RÚSSNESKT fískflutningaskip, sem vísað var frá Kefla-
víkurhöfn á mánudag, fékk í gær leyfi til að leggjast að
bryggju í Njarðvík enda var þá talið að íslenskum mein-
dýraeyðum hafí tekist að útrýma svörtum rottum, svoköll-
uðum sogskálarottum sem skoðunarmenn Hollustuvemdar
sáu um borð í skipinu. Til að fyllsta öryggis væri gætt
voru þó sperintar rottuskífur á landfestamar til að koma
í veg fyrir að rottumar gætu fetað _sig eftir þeim í land
og landgangur var ekki hafður úti. Á innfelldu myndinni
sést hvar hafnsögumaður á Suðumesjum á viðræður við
skipstjóra rússneska skipsins til að kynna honum hvaða
skilyrði séu sett fyrir hafnarvistinni. Svartar rottur hafa
fengið nafngiftina sogskálarottur þar sem þær hafa svo
beittar klær að þær geta hlaupið upp veggi.
Sjá frétt á bls. 22.
Breytingar á vísitölu
framfærslukostnaðar
Október 1992 til febrúar 1993
16%
Breyting síðasta
14 mariuð reikriuð
til árshækkunar-
10,0%
9,1%
3ja man.
breyting
12 mán. breyting
Þjálfar
Alfreð
Essen?
ALFREÐ Gíslasyni hefur ver-
ið boðin þjálfarastaða hjá
þýska handknattleiksliðinu
TUSEM Essen, en Alfreð lék
með félaginu um árabil.
„Þetta kitl-
ar dálítið. Það
er gaman að
fá svona til-
boð. Ég er að
hugsa málið
og vona að ég
fái annað
tækifæri síðar
ef ég neita
þeim núna. Ef
ég fer þá fer
ég einn. Það
er ekki hægt
að rífa fjöl- Alfreð Gíslason í
skylduna aft- búninKi Essen-
ur upp,“ sagði Alfreð í gær.
Alfreð lék í nokkur ár með
Essen og þekkir því vel til hjá
félaginu. Hann telur það eina
af ástæðum þess að leitað var
til hans.
Sjá bls. 51.
Essen
Hækkunjafn-
gildir iun 10%
verðbólgu í ár
VÍSITALA framfærslukostnaðar
í febrúar hækkaði um 0,7% frá
janúar. Undanfarna þrjá mánuði
hefur vísitalan hækkað um 2,4%
og jafngildir sú hækkun um 10%
verðbólgu á heilu ári.
Af hækkun yísitölunnar frá janúar
til febrúar stafar 0,3% af hækkun
matvöruverðs, sem hækkaði að með-
altali um 1,6%, og 0,2% af verð-
hækkun lyfja og læknishjálpar, sem
hækkuðu um 7%.
Æ fleiri korthafar dreifa greiðslum
Jólareikningam-
ir greiddir niður
fram undir páska
VANSKIL vegna jólaúttektar greiðslukorthafa eru ekki meiri í ár
en þau voru í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Kreditkortum hf.
og Visa-ísland. Hjá Visa voru um 600 milljónir í vanskilum hinn 9.
febrúar og hjá Kreditkortum um 60 milljónir. Fleiri Visa-korthafar
hafa hagnýtt sér greiðsluskiptingu vegna úttektar í jólamánuðinum
miðað við í fyrra, en þjá Kreditkortum er þetta svipað og í fyrra.
Með þessu fyrirkomulagi geta korthafar dreift greiðslum vegna jóla-
innkaupa fram undir páska.
Einar S. Einarsson fram-
kvæmdastjóri Visa sagði að 3. febr-
úar hefðu gjaldfallið Visaúttektir
fyrir 4,2 milljarða króna, og þá
hefðu 25% verið ógreidd eða liðlega
einn milljarður. Hinn 9. hefðu van-
skil verið komin niður í 14,6% eða
rúmlega 600 milljónir.
„Það má reikna með að vanskilin
verði komin niður fyrir 10% eftir
þessa viku og niður fyrir 5% í mán-
aðarlok, sem er það sama og venju-
lega er um að ræða. Ef hins vegar
Þjónustusímarnir eru vinsælir hjá börnum og unglingum
Foreldrar vilja læsa sínium
NOKKUÐ hefur verið um það að undan-
förnu að foreldrar leiti til Pósts og síma og
biðji um lás á síma fjölskyldunnar, þannig
að ekki sé hægt að hringja úr honum í síma-
númer sem byrja á 99. Þar er um að ræða
þjónustusíma með ýmiss konar efni, til dæm-
is kynfræðslu, upplestri úr rómantískum
sögum, upplýsingum um kvikmyndir, mynd-
bönd og fleira. Brögð hafa verið að því að
börn og unglingar hringi oft í þessi númer
og hlusti lengi og símreikningurinn verði
svimandi hár.
Hjá söludeild Pósts og síma í Kirkjustræti
fengust þær upplýsingar að gjaldskrá þjónustu-
símanna væri mismunandi, allt frá kr. 12,50
og upp í 66,50 krónur á mínútu.
Þeir sem ekki hafa stafrænt sex stafa síma-
númer geta ekki hringt í þjónustusíma þar sem
gjaldið er hærra en 16,65 krónur. Þeir sem
þafa stafrænt símanúmer geta hins vegar nýtt
sér þessa þjónustu til fulls, en á móti kemur
að hægt er að biðja Póst og síma að setja staf-
rænan lás á símann þannig að ekki sé hægt
að hringja í þjónustusímana.
Sundurliðun
Þeir sem hafa stafrænt númer geta beðið um
sundurliðun símreiknings. Þannig hefur óhófleg
þjónustusímanotkun yngri kynslóðarinnar á
heimilinu stundum uppgötvazt og foreldrarnir
gripið til sinna ráða.
Að sögn starfsfólks söludeildarinnar segja
sumir foreldrar að eins og efnahagsástandið sé,
verði að skera niður alla óþarfa reikninga, þar
á meðal fyrir kynfræðsluna, rómantísku sögum-
ar og bíólínurnar.
er litið á heildarveltu ársins í fyrra
sem var 40,4 milljarðar króna, þá
em einungis 0,76% ógreidd af þeirri
upphæð nú, eða um 300 milljónir.
Þetta er mjög svipað og var árið á
undan,“ sagði hann.
Einar sagði að ekki lægi enn
fyrir hver margir korthafar hefðu
hagnýtt sér greiðsluskiptingu hjá
Visa, en þeim korthöfum sem eru
í skilum gefst sá möguleiki. í fyrra
hagnýttu sér um 5% Visa-korthafa
þessa þjónustu, en Einar sagðist
áætla að fleiri hefðu nýtt sér þenn-
an valkost nú.
Febrúar erfiður
Að sögn Gunnars Bæringssonar
framkvæmdastjóra Kreditkorts hf.
eru vanskilin örlitið meiri nú en i
fyrra, en það væri þó ekkert sem
orð væri á gerandi.
„Þetta vom 1,2 milljarðar sem
við vorum að innheimta núna, og
er það svipað og í fyrra, en af því
fara 13% í greiðsludreifingu til
þriggja mánaða. Hinn 9. febrúar
vom um 5% í vanskilum, og er það
mjög svipað og hefur verið frá ári
til árs. Þessi mánuður er fólki oft
erfiðari en aðrir, en það hefur verið
létt á honum með greiðsludreifing-
unni sem við tókum upp fyrir tveim-
ur árum, og er hún svipuð nú og í
fyrra,“ sagði Gunnar.