Morgunblaðið - 16.02.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993
Morgunblaðið/Sverrir
ÚtförEinars Olgeirssonar
ÚTFÖR Einars Olgeirssonar var gerð frá Dómkirkjunni í gær. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng einsöng í útför-
inni, Hljómkórinn söng, Gunnar Kvaran lék á selló og Marteinn Hunger Friðriksson á orgel. Herdís Þor-
valdsdóttir og Jóhann Sigurðarson önnuðust upplestur og kveðjuorð flutti Ingi R. Helgason. Myndin var
tekin eftir útförina en kistuna bera Gísli Rafn Olafsson, Einar Baldvin Þorsteinsson, Benedikt Davíðsson,
Guðmundur J. Guðmundsson, Guðmundur Hjartarson, Ingi R. Helgason, Lúðvík Jósefsson og Svavar Gestsson.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Heímild: Veðurelofa Islands
(Byggl á veöurapá kl. 16.15 í gær)
\ f\
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl voður
Akureyri +0 úrkomaígrennd
Reykjavlk +0 úrkomafgrennd
Bergen 4 skúr á síö.klst.
Helslnki 1 kornsnjór
Kaupmannahöfn 2 alskýjað
Narssarssuaq +0 snjókoma
Nuuk +12 skýjað
Osló 3 skýjað
Stokkhólmur 2 alskýjað
Þórshöfn 5 rigning
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 4 þokumóða
Barcelona 14 þokumóða
Berlfn 3 skýjað
Chicago +7 skýjað
Feneyjar 8 heiðskírt
Frankfurt +1 þokumóða
Glasgow 7 skýjað
Hamborg +1 þokumóða
London 5 þokumóða
LosAngeles 10 skýjað
Lúxemborg •f3 hrímþoka
Madrid 10 léttskýjað
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal NewYork +19 lágþokublettir vantar
Orlando 8 léttskýjað
Parfs 4 þokumóða
Madelra 17 skýjað
Róm 14 heiðsktrt
Vín 2 snjókoma
Washington 3 úrkomaigrennd
Winnipeg +22 heiðskfrt
Grayson laus
úr varðhaldi
en í farbanni
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúr-
skurð þann, sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á miðvikudag yfir James Brian Grayson. Honum var
hins vegar gert að sæta farbanni þar til dómur fellur, þó
ekki lengur en til 3. mars. Hæstiréttur staðfesti hins vegar
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Donald M. Feeney.
Grayson og Feeney eru ákærðir
fyrir barnsrán og frelsissviptingu,
með því að hafa, ásamt þremur
öðrum, átt þátt í því að nema 10
og 5 ára dætur Emu Eyjólfsdóttur
á brott, en Grayson er faðir yngri
stúlkunnar. Héraðsdómari féllst á
miðvikudag ekki á kröfu veijenda
mannanna um að þeir yrðu úrskurð-
aðir í farbann eða látnir lausir gegn
tryggingu og taldi áframhaldandi
gæsluvarðhald nauðsynlegt.
Feeney áfram í gæslu
Hæstiréttur tók í gær undir sjón-
armið héraðsdóms hvað Donald M.
Feeney varðar og staðfesti gæslu-
varðhald yfir honum þar til dómur
fellur, þó ekki lengur en til 3. mars.
Varðandi Grayson segir Hæstirétt-
ur að honum hafi verið dæmt for-
ræði dóttur sinnar og Ernu af dóm-
stóli í Flórída í Bandaríkjunum, en
þeim dómi verði ekki framfylgt á
Islandi. Ákærði hafi lýst því yfir
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að
hann hygðist dvelja áfram hér á
landi í því skyni að fá forræði dótt-
ur sinnar með löglegum hætti fyrir
íslenskum dómstólum. Brýna nauð-
syn beri til þess að návist ákærða
verði tryggð, á meðan mál ákæru-
valdsins gegn honum verði til lykta
leitt. Eins og stöðu ákærða sé hátt-
að samkvæmt framansögðu þyki
þó nægilegt, að honum verði bönn-
uð för úr landi.
Hæstaréttardómararnir Hrafn
Bragason, Hjörtur Torfason og Pét-
ur Kr. Hafstein kváðu upp dómana.
Heimsókn biskups
Islands til Færeyja
BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, heimsækir dagana 17.-24.
þessa mánaðar Færeyjar í boði Færeyjabiskups, Hans Jabcob Jo-
ensen.
Heimsókn biskups er í tengslum
við íslandsdaga sem verða haldnir
í Norræna húsinu í Þórshöfn. Bisk-
up mun predika við hátíðarguðs-
þjónustu í Dómkirkjunni í Þórs-
höfn nk. sunnudag. Þá mun hann
eiga fundi með prestum og öðrum
kirkjuleiðtogum í Færeyjum.
Kirkjubæjarklaustxir
Ær dráp-
ust vegna
eldingar
Kirkjubæjarklaustri.
ELDINGAVEÐRIÐ sem gekk
yfir á föstudag olli víða skaða.
Á bænum Hunkubökkum í V-
Skaftafelli laust eldingu niður
í fjárhús og drápust þar þrjár
ær._
Á Hunkubökkum er þríbýli
og m.a. eru þar fjögur sumar-
hús hjá ferðaþjónustubónda.
Öll hús urðu síma- og raf-
magnslaus í u.þ.b. fimm
klukkustundir en auk þess
skemmdust rafmagnstæki og
perur fóru. Tjónið hefur ekki
verið metið en bara æmar eru
töluverður skaði sérstaklega
þegar á þessum tíma þegar
styttist í sauðburð. _ jjjj
Klemmdist
milli bíla
KONA lærbrotnaði þegar hún
klemmdist milli bifreiðar sinnar
og kyrrstæðrar bifreiðar á bíla-
stæði í Breiðholti í gærmorgun.
Bifreið konunnar sat föst á
hálkubletti og fór hún út úr
henni til að ýta, en skildi bifreið-
ina eftir í gír. Þegar konan ýtti
fór bifreiðin af stað og'stefndi
á næsta bíl. Konan fór fram
fyrir bifreiðina til að reyna að
stöðva hana, en þá vildi ekki
betur til en svo, að hún varð á
milli bifreiðanna og lærbrotn-
aði.
Stal bíl ók á
staur og braut
rúðu
SEXTÁN ára piltur stal bíl á
Selfossi á föstudagskvöld, ók
honum til Hveragerðis þar sem
ökuferðin endaði á ljósastaur.
Við það reiddist hann og braut
rúðu í nærliggjandi húsi.
Pilturinn áttaði sig ekki á
því að rúðan sem hann braut
tilheyrði húsnæði sem lögregl-
an hefur til umráða í Hvera-
gerði. Stuttur tími leið þar til
lögreglan hafði upplýst málið
og náð piltunum. Grunur leikur
á að hann hafi verið ölvaður.
Þjófur narraði
manninn úr
íbúðinni
ÞJÓFUR narraði mann í
austurborginni úr íbúð sinni í
gærmorgun, á meðan hann stal
ferðageislaspilara úr íbúðinni.
Um klukkan hálfátta í gær-
morgun hafði maður samband
við lögregluna og sagði sínar
farir ekki sléttar. Hann kvaðst
hafa verið í íbúð sinni þegar
maður nokkur kallaði inn um
dyrnar, að hundar hans hefðu
sloppið út. íbúanum brá í brún
og hljóp hann þegar út til að
ná í hundana. Á meðan sætti
þjófurinn færis og stal ferða-
geislaspilara úr íbúðinni.
Af hundunum er það að
segja, að þeir sváfu værum
svefni inni í íbúðinni á meðan
þessu fór fram.