Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 Dómur Félagsdóms í máli framreiðslunema Nemar unnu mál gegn meisturum FÉLAGSDÓMUR kvað á fimmtudag upp dóm þess efnis að framreiðslunemar skuli njóta vaktaálags ofan á daglaun og yfirvinnugreiðslna eftir þeim reglum sem gilda um fram- reiðslumenn í kjarasamningi Félags framreiðslumanna og VSI fyrir hönd Sambands veitinga- og gistihúsa. Þótt ASÍ væri stefnandi málsins fyrir hönd Iðnnemaasambands ís- lands var það í raun beggja vegna borðsins í málinu því VSI stefndi ASÍ til réttargæslu í málinu fyrir hönd Félags framreiðslumanna sem á aðild að ASÍ. Að sögn VSÍ var það fyrst og fremst afstaða Féiags framreiðslumanna sem valdið hefur því að nemar fram- reiðslumanna nutu ekki fyrr- greindra greiðslna. Framkvæmdin hafi verið sú að innheimt sé 15-20% þjónustugjald af öllum veitingum, sem seldar eru á veitingastöðum, hvort sem fram- reiðslumenn annist söluna og þjón- ustuna sjálfir eða nemar þeirra eða þá ófaglært aðstoðarfólk. Viðkom- andi framreiðslumaður fái allt þjónustugjaldið en greiði ófag- lærðu aðstoðarfólki og nemum laun fyrir unninn tíma en þau laun tengist ekkert tekjum af þjónustu- gjaldinu heldur séu óbreytt hvort sem sala er lítil eða mikil. Innanbúðarmál Framreiðslumennirnir hafí borið fyrir sig álit lögmanns félagsins þegar þeir hafi neitað nemum um vaktaálag og því taldi VSÍ og SVG að deilan væri í raun innanbúðar- mál ASÍ, sem eðlilegast væri að leysa á þeim vettvangi. í niðurstöðu Félagsdóms er rak- ið að samkvæmt samkomulagi að- ila málsins um kjör iðnnema skuli þeir njóta sömu réttinda og hlunn- inda og ákveðin séu í samningum um kjör sveina og í kjarasamningi Félags framreiðslumanna sé að fínna ákvæði um vaktaálag og yfír- vinnugreiðslur. Því beri að túlka samkomulagið um kjör iðnnema á þann veg að nemar skuli njóta þeirra greiðslna eftir reglum samn- ingsins sem kveða á um að yfir- vinna og álag greiðist sem hlutfall dagvinnulauna iðnnema á 4. ári fyrir unninn tíma. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Mótmæli PALL Eggertsson afhendir bæjarstjóranum í Keflavík, Ellert Eiríks- syni, undirskriftalistana þar sem fyrirhugaðri byggingu nýs safnað- arheimilis á kirkjulóðinni er mótmælt. Bæjarstjóra Keflavíkur afhentir undirskriftalistar Vilja ekki safnaðar- heimili á kirkjulóöina ÁHUGAHÖPUR um verndun kirkjulóðarinnar í Keflavlk gekk í síðustu viku á fund bæjarstjórans, Ellerts Eiríksson- ar, og afhenti honum undirskriftalista þar sem fyrirhug- aðri byggingu nýs safnaðarheimilis á kirkjulóðinni er mót- mælt. Við þetta tækifæri upplýsti Páll Eggertsson, einn af forsvarsmönnum áhugahópsins og íbúi við kirkjuna, að um tvo lista væri að ræða, annars vegar listi með öllum íbúum í næsta nágrenni kirkjunnar og hins vegar listi með nöfnum um 800 einstaklinga sem hefðu undirritað. Listarn- ir hefðu legið frammi á ýmsum stöðum þar sem fólk hefði ritað nöfn sin að eigin frumkvæði. Páll sagði að margar ástæður í ólestri og myndi nýbygging krefj- væru fyrir mótmælunum við aug- lýsta deiliskipulagsbreytingu á kirkjulóðinni. Þar mæti nefna aukaumferð inn í hverfíð sem væri engan veginn hannað fyrir aukinn umferðaþunga sem myndi skapa mikla hættu á hinum þröngu götum hverfisins. Illmögu- legt yrði að athafna sig í neyðartil- fellum, bílastæðamál væru þegar ast enn frekari bílastæða sem ekki væri gert ráð fyrir á skipulaginu. Páll sagði að hann og fleiri teldu að núverandi reitur væri þegar vel skipulagður og væri í dag fallegur unaðsreitur í bæjarfélaginu. Ollum reglum framfylgt Birgir Guðnason, sem á sæti í safnaðarstjóm, sagði í samtali við Morgunblaðið að kosið hefí verið í byggingarnefnd á vegum safnað- arins fyrir tveim árum til að vinna að þessu máli og þess hefði verið gætt að framfylgja öllum reglum og reglugerðum. Efnt hefði verið til samkeppni um bygginguna og þær tillögur legið frammi á sínum tíma. Hvort mótmæli íbúanna nú yrðu til að hefta framgang þessa máls yrði bara að koma í ljós þeg- ar málið yrði afgreitt í bæjarstjóm Keflavíkur. -BB af hlífðaráklæðum (cover) á bílsæti. settið naust Borgartúni 26, sími 62 22 62. Verð frá Metsölublad á hverjum degi! Kaup lífeyrissjóða af Húsnæðisstofnun Skuldabréf fyrir 9,2 milljarða kr. SAMKOMULAG um fyrirhuguð skuldabréfakaup lífeyris- sjóðanna af Húsnæðisstofnun ríkisins á þessu ári tókst sl. fimmtudag, og felur það í sér að Iífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf af stofnuninni fyrir 9,2 milljarða króna. Þar af nemi samningsbundin kaup 6,15 milljörðum, en hins vegar mun stofnunin bjóða lífeyrissjóðunum húsnæðisbréf til kaups fyrir ekki minna en 3,05 milljarða. Samkomulagið byggist á fyrra samkomulagi um að í ár verði ann- ars vegar um samningbundin skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna að ræða og hins vegar útboð á húsnæðisbréfum. Aður var gert ráð fyrir að þessi kaup skiptust til helminga, en að sögn Sigurðar E. Guðmundssonar, forstjóra Hús- næðisstofnunar ríkisins, náðist samkomulag um að beinu kaupin næmu 2/3 í ár vegna þess hve út- boðin fóru hægt af stað í fyrra. í fjárlögum er gert ráð fyrir að Húsnæðisstofnun taki að láni 10,73 milljarða króna til útlána á þessu ári, en að sögn Sigurðar þótti ljóst að ekki yrði unnt að ná þeirri upphæð, og tækju samning- arnir við samtök lífeyrissjóðanna mið af því. „Skuldabréfasalan nú í janúar gekk afar vel, og eftir báðum þess- um farvegum tókst okkur að selja lífeyrissjóðunum bréf fyrir tæplega einn milljarð króna. Við erum því bjartsýnir á að þetta gangi vel þó að við teljum gjörsamlega óhugs- andi, báðir aðilar, að ná því mark- miði sem sett var í fjárlögunum. Auðvitað vitum við ekki hvernig þetta kemur nákvæmlega út á endanum, en á síðasta ári ætluðu lífeyrissjóðirnir að kaupa af okkur bréf fyrir 8,9 milljarða en niður- staðan varð sú að þeir keyptu fyr- ir 7,3. Reynslan sýnir þess vegna að það er mjög erfítt að ná svona háleitum markmiðum ef svo má taka til orða,“ sagði liann. Óbreytt fyrirkomulag verður í ár hvað varðar vexti á þeim skulda- bréfum sem lífeyrissjóðirnir kaupa af Húsnæðisstofnun, en þeir taka mið af vöxtum spariskírteina ríkis- sjóðs og reiknast þeir eftir á sam- kvæmt sérstakri formúlu. í gær var staðfest vaxtaprósentan á þeim bréfum sem Húsnæðisstofnun seldi lífeyrissjóðunum á tímabilinu frá apríl til desemberloka í fyrra, en samkvæmt útreikningi Seðlabank- ans verða vextirnir á því tímabili 7,1%. ..... in n- iv- — 1 n 4- i } —L i 4- + -t- f-— tt: t =F= L i LÍ i i 4++- 1—- II nn n -HEKLA^ llll .JL H m TIL LEIGU I HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI170 Á annarri hæð: Skrifstofuhúsnæði, ca. 400 m2 auk sameiginlegs. S C n\cT A m ~T nMn. i y—p—p—p——p—p 0 HEKLA Húsnæðið leigist helst í einu lagi. Mörg bílastæði. Góð aðstaða fyrir umferð að og frá húsinu. Einn þekktasti staðurinn á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar gefur Sigurður Gunnarsson alla virka daga frá kl. 9.00 - 18.00 í síma 695500.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.