Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 31 Morgunblaðið/Rúnar Þór Norðlensk fegnrð Margrét Sonja Viðarsdóttir var krýnd ungfrú Norðurland í Fegurðarsamkeppni Norðurlands sem fram fór í Sjallanum á föstudagskvöld. Hér er verið að krýna Margréti en á minni mynd- inni sést kynnir kvöldsins fara fögrum orðum um fegurðardrottningarnar nyrðra. Fegnrðardrottning Norðurlands valin á Akureyri Margrét Sonja sigraði MARGRÉT Soqja Viðarsdóttir, 18 ára Akureyrarmær, var kjörin ungfrú Norðurland í Fegurðarsamkeppni Norðurlands sem fram fór í Sjallanum á föstudags- kvöld, en tiu stúlkur tóku þátt í keppninni. Elva Eir Þórólfsdótir var kjör- in besta ljósmyndafyrirsætan og stúlkurnar völdu Karen Ingi- marsdóttur vinsælustu stúlkuna í hópnum. Margrét Sonja fæddist 17. maí árið 1974 á Akureyri. For- eldrar hennar eru Viðar Garðars- son og Sonja Garðarsson. Mar- grét Sonja stundar nám í þriðja bekk á hagfræðibraut við Verk- menntaskólann á Akureyri og stefnir hún að því að ljúka þaðan stúdentsprófi og fara síðan í Kennaraháskólann. Margrét Sonja verður fulltrúi Norðlendinga f fegurðarsam- keppni íslands sem haldin verður í Reykjavík í vor. Dregið hefur úr beitarálagi á af- I réttí Mývetninga Björk, Mývatnssveit. ÞVÍ HEFUR verið haidið fram undanfarin ár að ofbeit hafi verið á afréttum Mývetninga. Aðrir draga það mjög í efa og telja að veðurfarið ráði mestu um uppblástur og landeyðingu. Landgræðsla rikisins hefur látið í ljósi áhyggju um þátt beitar á gróður og jarðvegseyðingu. Þátt- ur beitar í uppblæstri lands er umdeildur og sýnist sitt hverjum í því efni. Landgræðslan leggur mikla áberslu á aukna friðun á afréttum sem hún telur forsendu fyrir véls- áningu og sjálfssáningu melgresis. Teknar hafa verið saman töluleg- ar upplýsingar um sauðfjáreign Mývetninga frá 1935 og notkun afréttarins frá 1973. Notaðar eru tölur sem eru fjöldi fullorðins fjár ásamt lömbum. Þær sýna stöðuga fjölgun fjár allt frá fjárskiptum árið 1945 til 1976. Fyrir fjárskipti gekk fjöldi fjár frá nágrannasveitum á afrétti Mý- vetninga þótt tölur séu ekki hand- bærar. Færri beitardagar Árið 1976 náði sauðfjáreign Mývetninga hámarki. Aukningin frá 1935 til 1976 varð um 100% eða úr 10.220 kindum í 20.527. Síðan 1975 hefur átt sér stað mik- il fækkun frá hámarkinu. Frá 1976 hefur fé fækkað úr 17.053 kindum í 10.220 kindur miðað við sumarið 1992, sem er um 40%. Þar að auki hefur beitardögum á afrétti fækkað um að minnsta kosti 30%. Af þessu má ráða að Mývetningar hafa mjög dregið úr beitarálagi á afrétti sínum frá því það var mest. Nýjasta mat á gróðurmagni af- réttanna bendir til þéss að það nægi til framfærslu fjárins sem þar gengur. Til gamans má geta þess að sauðfjáreign Mývetninga árið 1712 var um 2.000 kindur, bæði ær, sauðir og lömb samkvæmt laus- legri samantekt. Kristján Eddukvæða- námskeið FYRSTU þijá mánudaga í mars mun Haraldur Bessason ,. háskólarektor kenna á nám- ~ skeiði fyrir almenning um eddukvæði. Námskeiðið sem haldið er á vegum endurmenntunamefndar Háskólans á Akureyri ber yfir- skriftina „Hetjur og goð“ og þar mun Haraldur fjalla um fjögur eddukvæði: Völuspá, Lokasennu, Skímismál og Völundarkviðu. Haraldur Bessason lauk á sín- um tíma cand. mag. prófi frá Háskóla íslands í íslenskum fræðum og kenndi síðan í um þijá tugi ára við Manitoba- háskóla í Kanada áður en hann tók við rektorsembættinu á Ak- ureyri. Haraldur er heiðursdokt- or frá Manitoba-háskóla. Þeir sem hug hafa á að sækja námskeið þetta sem er öllum opið geta skráð sig á skrifstofu háskólans frá kl. 10 til 12 fram til 23. febrúar næstkomandi. Námskeiðið stendur frá kl. 20 til 20.30 fyrstu þrjú mánudags- kvöld í mars og er námskeiðs- gjald 2.500 kr. sem greiðist fyrsta kvöldið, mánudaginn 1. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Dorgarinn Eini heimamaðurinn sem þátt tók í dorgveiðikeppninni á Ólafsfjarð- arvatni, Friðrik Eggertsson, lét frostið ekki á sig fá þar sem hann lá á ísnum. Dorgveiðikeppni á Ólafsfjarðarvatni Formaður vann þótt laxinn hafi sloppið BJÖRN Grétar Sigurðsson fór með sigur af hólmi í dorg- veiðikeppni sem fram fór á Ólafsfjarðarvatni á laugardag- inn. Mótið þótti takast vel, ísinn var traustur og fiskur undir. Ellefu keppendur voru skráðir til keppni, færri en við var búist, en leiðindaveður sem gekk yfir fyrir keppnina setti strik í reikninginn. Dogað var frá kl. 11 til 16 og urðu menn strax varir meðfram vestur- landinu út undan laxeldisstöð sem þar er. Þar voru bleikjur sem kippt var upp allt upp í þriggja punda. Formaður Dorgveiðifélags ísland, Björn Grétar Sigurðsson, vann mót- ið, þrátt fyrir að hann missti lax sem hann setti í, Baldur Vilhjálmsson varð í öðru sæti og Jónas Baldursson í því þriðja. Allir fengu þeir tíu bleikj- ur, en vigt var látin ráða úrslitum og reyndist afli Björns vega mest. Umhverfisdeild leggur mesta áherslu á skógrækT 15 millj. í nýfram- kvæmdir í sumar GENGIÐ hefur verið frá skiptingu fjár til nýframkvæmda á vegum umhverfisdeildar, en til ráðstöfunar eru 15 milljón- ir króna. Gert er ráð fyrir að í sumar verði plantað út um 100 þúsund skógarplöntum. í Lystigarðinum á Akureyri verður lokið við að gera aðstöðu fyrir starfsmenn og einnig verður gengið frá vélageymslu, en alls verða 2,5 milljónir króna notaðar til nýframkvæmda í Lystigarði. Á útivistarsvæðinu í Kjarna- skógi verður mikið um fram- kvæmdir, en í sumar verður þar haldið landsmót skáta og hefur undirbúningur staðið yfir um nokkurt skeið. Auk framkvæmda við hátíðarsvæðið verður hálfri milljón króna varið til að koma upp svokölluðum steinagerðisvelli í skóginum. 100 þúsund skógarplöntur Árni Steinar Jóhannsson um- hverfisstjóri sagði að um 100 þús- und skógarplöntum yrði plantað út í sumar, m.a. á Eyrarlands- hálsi, Miðhúsaklöppum og á Gler- ársvæðinu, en samtals er gert ráð fyrir að veija 3,5 milljónum króna vegna útplöntunar á þessum svæð- um. Þá verður einnig plantað út í miðbæ, meðfram Hlíðarbraut og Dalbraut og er áætlað að það kosti 2,3 milljónir króna. Unnið verður við opin svæði í Síðuhverfi Qg. Giljahverfí fyrir 1,7 milljónir króna og á ýmsum svæðum um allan bæ fyrir 1,4 milljónir króna. Loks er gert ráð fyrir að bæta aðstöðu á tjaldsvæðinu fyrir 2,5 milljónir króna, en m.a. verður snyrtiaðstaða bætt og aðstaða fyr- ir starfsmenn. Til leigu eða sölu Höfum verslunarhúsnæði á fyrstu hæð ásamt 86 fm kjallara í Kaupangi. Upplýsingar á skrifstofu. Sölumaður: Ágústa Ólafsdóttir. FASTEIGNASALAN, BREKKUGÖTU 4, 600 Akureyri - sími 21744

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.