Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993
23
Reuter
Nixon í Pétursborg
BORGARSTJÓRINN í Pétursborg, Anatólí Sobtsjak (t.h.) hjálpar Richard
Nixon, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, úr frakkanum, áður en fundur hófst
með fésýslumönnum í borginni. Nixon, sem kom til borgarinnar á sunnu-
dag, er í einkaheimsókn í Rússlandi. Á sjötta áratugnum var Nixon vara-
forseti Bandaríkjanna og heimsótti hann þá borgina er hét Leníngrad á
mestöllu valdaskeiði kommúnista. Hann átti þar fræg orðaskipti við Ník-
íta Khrústsjov Sovétleiðtoga um kosti og galla kommúnisma og kapítal-
isma. Síðar er Nixon var forseti hélt hann árið 1972 til fundar við Leo-
níd Brezhnev, þáverandi leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins, og var
þá lagður grunnurinn að slökun á spennu (detente) í samskiptum austurs
og vesturs auk samkomulags um takmörkun langdrægra gereyðingar-
vopna (SALT-1).
Reuter
Fjögurra ára ógn
BRESKI rithöfundurinn Salman Rushdie við King’s College í Cam-
bridge þar sem hann kom fram við messu á sunnudag þegar þess
var minnst að fjögur ár eru liðin frá því Khomeini, erkiklerkur í
íran, gaf út dauðatilskipun á hendur honum.
Khamenei um Salman Rushdie
Dauðatilskipunin
„óafturkallaiileg“
Tcheran. Rcuter, The Daily Telcgrapli.
ALI Khamenei, erkiklerkur í íran, sagði á sunnudag að
framfylgja bæri dauðatilskipuninni á hendur breska rithöf-
undinum Salman Rushdie hvað sem það kostaði.
Ruhollah Khomeini erkiklerkur,
þáverandi trúarleiðtogi írana, gaf
tilskipunina út fyrir fjórum árum
og lést skömmu síðar. Eftirmaður
hans, Khamenei, sagði að dauðatil-
skipunin væri „óafturkallanleg".
„Khomeini hefur skotið ör á þennan
ósvífna trúníðing. Örin nálgast
skotmarkið og hittir það fyrr eða
síðar,“ sagði hann.
Samtök múslima sem buðu þrjár
milljónir dala, 195 milljónir króna,
til höfuðs Rushdie sögðu að tími
væri kominn til að framfylgja
dauðatilskipuninni vegna bókar
Rushdie, Söngva Satans.
Salman Rushdie hefur farið
huldu höfði frá því tilskipunin var
gefin út fyrir Ijórum árum. Hann
tók til máls við messu í kapellu
King’s College í Cambridge á
sunnudag og sagði að dauðatilskip-
unin væri „ekkert annað en hryðju-
verkahótun“. „Rétt eins og þessi
kapella hefur orðið tákn um það
besta við trúarbrögðin hefur dauða-
tilskipunin orðið tákn um það
versta.“
Deilur bresku konungsfj ölskyldunnar við fjölmiðla
Sun biður drottn-
iiigima afsökunar
Lundúnum, Iiouston. Reuter, The Daily Telegraph.
Reuter
Prinsinn lendir
KARL Bretaprins lendir þotu sinni á alþjóðaflugvellinum í Mexíkó-
borg á sunnudag eftir ferð um Bandaríkin um helgina. Þetta er fyrsta
utanlandsferð hans eftir skilnaðinn við Diönu prinsessu í fyrra.
BRESKA æsifréttablaðið
Sun bað í gær Elísabetu
Bretadrottningu afsökunar
á forsíðu og kvaðst hafa
móðgðað hana óviljandi með
því að birta jólaávarp henn-
ar tveimur dögum áður en
því var sjónvarpað. Blaðið
kvaðst ætla að bjóða góð-
gerðasamtökunum Save the
Children 200.000 pund, 18,6
milljónir króna, en dóttir
drottningarinnar, Anna
prinsessa, er verndari sam-
takanna. Drottningin sagð-
ist í gærkvöldi fallast á af-
sökunarbeiðnina og málið
væri úr sögunni af sinn
hálfu.
Embættismenn Bretadrottningar
tilkynntu á fímmtudag að Sun yrði
stefnt vegna brots á höfundarrétti
með birtingu ávarpsins.
„Það er Rupert Murdoch [fjöl-
miðlakóngurinn sem á Sun] Sem vildi
að við brygðust við með svo höfðing-
legum og göfuglegum hætti,“ sagði
Chris Davis, aðstoðarritstjóri blaðs-
ins, á sunnudagskvöld.
„Við viðurkennum að við móðg-
uðum þig óviljandi með þvi að birta
jólaávarp þitt tveimur dögum áður
en því var sjónvarpað. Við hörmum
þetta,“ segir í afsökunarbeiðninni en
því er bætt við að blaðið hafi ekki
gerst brotlegt við lög með birtingu
ávarpsins.
„Oll tilboð frá blaðinu verða tekin
til athugunar en á meðan verður
málið í höndum Iögfræðinga,“ sagði
talsmaður drottningarinnar um af-
sökunarbeiðnina.
Þetta er í fjórða sinn sem Sun
biður drottninguna og fjölskyldu
hennar afsökunar eftir hótun um
málshöfðun. Blaðið baðst afsökunar
vegna birtingar á bréfi sem Filippus
hertogi skrifaði, birtingar á mynd
sem fjölskyldan ætlaði að nota á jóla-
kort og vegna frétta um vinkonu
Andrésar prins sem byggðar voru á
þjónustufólki hans.
Karl prins í Bandaríkjunum
Karl Bretaprins fór um helgina í
Slóvakar
kjósa sér
forseta
Bratislava. Reuter.
ÞING Slóvakíu kaus í
gær hagfræðinginn Mic-
hal Kovak sem fyrsta
forseta hins nýja ríkis.
Hann er náinn vinur
Vladimirs Meciars for-
sætisráðherra.
Kovac var einn í kjöri en
hann er varaformaður Lýðræð-
isfylkingar Slóvakíu (HZDS)
sem átti einna stærstan þátt í
skiptingu Tékkóslóvakíu í tvö
sjálfstæð ríki.
Litið var á kosninguna í gær
sem prófstein á stöðu Meciars
en tvær fyrri tilraunir til þess
að kjósa forseta höfðu reynst
árangurslausar.
Kovac er 62 ára og starfaði
í banka þar til 1989 er hann
var skipaður fjármálaráðherra
eftir flauelsbyltinguna svo-
nefndu. Hann hlaut 106 at-
kvæði af 150 en 20 þingmenn
greiddu mótatkvæði.
sína fyrstu utanlandsferð eftir skiln-
aðinn við Díönu prinsessu. Hann
ferðaðist um Bandaríkin og snæddi
meðal annars kvöldverð með Bill
Clinton forseta, A1 Gore varaforseta
og eiginkonum þeirra. Prinsinn ræddi
einnig við sérfræðinga um eitt helsta
hugðarefni sitt, byggingarlist og
skipulag borga, og snæddi kvöldverð
með umhverfisverndarsinnum. Hann
ávarpaði ennfremur námsmenn í
College of William og Mary í Vigi-
níu, einum elsta háskóla Bandaríkj-
anna. Hann ræddi þar um „andlegt
tómarúm neysluþjóðfélagsins" og
hvatti námsmennina til að halda
hefðbundin gildi í heiðri.
Karl prins hélt til Mexíkó á sunnu-
dag í fjögurra daga heimsókn í boði
Carlos Salinas de Gortaris forseta.
JUBILEE MINI er ny útgáfa af kakóvél sem framleiöir
allt aö 75 bolla á klukkutíma, sérlega hentugfyrir
mötuneyti og vinnustaöi.
]]ÍJilliJ£Jjji!J!jji:l Jj'Jl'JMa JJlíilJJ
í£’
UJJIJJ Uli úJííjJIJö íil
f
ÍJi£
H!l
(JUBlLEE
Jubilee sem um alllangt skeið
hefur verið á boðstólum hér á
landi er þekkt fyrir gæða kakó-
vélar og öndvegis kakó.
Heildverslunin Innnes hefur nú tekið við umboði fyrir
Jubilee og mun fyrirtækið leitast við að veita
sem besta þjónustu í framtíðinni. Auk þess
að bjóða upp á kakó- og kakóvélar þá mun
Innnes einnig verða með Jubilee ávaxtasafa
og vélar, íssósur og dýfur.
INNNES, Dalshrauni 13, Hafnarfirði, sími 652200