Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 21
heimildar. Þegar höfð séu í huga þau miklu áhrif og það víðtæka tjón, sem hlotist geti í þjóðfélaginu komi til gjaldþrots Hagvirkis- Kletts, sé í meira lagi vafasamt að halda því fram að ríkissjóður sé að gæta að hagsmuna þjóðar- innar með því að leggja fram trygginguna. Þær ráðstafanir sem Ragnar H. Hall bústjóri þrotabús Fórnarlambs- ins vill rifta og hefur fengið sýslu- mann til að gera kyrrsetningu vegna í eignum Hagvirkis-Kletts snúast um samninga sem gerðir voru þann 15. desember 1990, og fólu í sér að eign- ir Hagvirkis voru seldar fyrirtækinu Hagtölu en nafni þess fyrirtækis var síðar breytt í Hagvirki-Klettur. Að því er Jóhann G. Bergþórsson sagði á blaðamannafundinum bjó þarna að baki að ákveðið hafði verið að félög- in skiptu þannig með sér verkefnum að Hagvirki sinnti byggingafram- kvæmdum en Hagvirki-Klettur jarð- vinnuverkefnum. Rúmum mánuði fyrr, 12. nóvem- ber 1990, hafði dómur fallið í bæjar- þingi Reykjavíkur um fyrrnefnd sölu- skattsmál fyrirtækisins þar sem rík- issjóður var sýknaður af kröfu fýrir- tækisins um að endurgreiða því 108 milljónir króna í söluskatt en þeim dómi hefur verið áfrýjað til Hæsta- réttar. Það er m.a. til þess dóms sem vísað er þegar bústjóri segir að með samningnum hafi verið miðað að því að gera upp við aðra kröfuhafa en ríkissjóð. Greiðsla innan gæsalappa Um var að ræða þijá kaupsamn- inga og einn samning sem kallaður var uppgjör kaupsamninga. Söluverð samkvæmt samningunum var sam- tals kr. 616.584.000 og eins og frá málum var gengið var að langmestu leyti greitt fyrir með yfirtöku skulda. I bréfum frá bústjóra til sýslumanns og ráðuneytis um yfirvofandi kyrr- setningu og riftun eru orðin samn- ingar, sala, kaup, og greiðsla, einatt höfð innan gæsalappa. í bréfunum, sem Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra lagði fram á blaðamannafundi í gær, kemur fram að bústjórinn byggir riftunarkröfur sínar á því að fyrirsvarsmenn hins gjaldþrota fé- lags (Fórnarlambsins, sem þá hét Hagvirki), hafi með samningunum ráðstafað eignum til annars hlutafé- lags sem þeim var nákomið án þess að_ greiðslur kæmu fyrir. í samtali við Morgunblaðið kom fram hjá Ragnari H. Hall að hann gerði út af fyrir sig ekki athuga- semdir við það söluverð sem fram kæmi í kaupsamningnum. Farið væri fram á riftunina á þeim for- sertdum að það sem kaupandi greiddi með í samningunum hafi ekki verið venjulegur greiðslueyr- ir, heldur ýmiss konar eignir, yfir- veðsettar og því einskis virði í viðskiptum, og pappírar sem voru seljandanum einskis virði. Þær eignir sem Hagvirki (Fórnarlambið) lét af hendi í samningunum frá 15. desember 1990 voru þessar: 1. Jarðvinnu-, véla- og virkjanadeild Hagvirkis hf., metin á kr. 396.184.000. 2. Þjónustudeild Hagvirkis hf., með tilheyrandi áhöldum, tækjum og innréttingum, metin á 10.500.000 kr. 3. Húseignirnar Vesturgata 9-13 í Hafnarfirði, verðlögð á 145.000.000.; Melabraut 18, verð- lögð á 65.000.000. Átti að fara í gjaldþrot 1990 - í tilkynningu Ragnars H. Hall um riftunina segir„að af hálfu þrotabús- ins byggist kröfurnar á því að Hag- virki hf. (Fórnarlambið) hafi með þeim gefið Hagtölu (Hagvirki-Kletti) þær eignir sem látnar voru af hendi gagngert í því skyni að draga úr fjár- hagslegum áföllum sem Hagtala (Hagvirki-Klettur) og einstakir hlut- hafar í því félagi hefðu orðið fyrir ef bú Hagvirkis (Fórnarlambsins) hefði á þessum tíma verið tekið til gjaldþrotaskipta, „svo sem rétt hefði verið miðað við þáverandi fjárhags- stöðu félagsins," eins og bústjórinn kemst að orði. Þannig hafi Hagvirki (Fórnar- lambið) látið af hendi í samningnum óveðsettar eignir að fjárhæð 349.165.337 (þ.e.a.s. söluverð þeirra eigna sem samningurinn náði til að frádregnum veðsetningar, sem á eignunum hvíldu). Fyrir þetta hafi Hagtala (Hagvirki-Klettur) afhent „greiðslur" í eftirtöldu fonni“, eins og segir í greinargerð bústjórans: 1. Skútahraun 2, suðurhluti, ásamt 'A hluta lóðar og Skútahrauni 2b og 4b, metið á kr. 100.000.000. 2. Eignarhluti í sameign að Skúta- hrauni 4, metið á kr. 17.000.000. 3. Dalshraun 16, kjallari, m/áhöld- um og tækjum, metið á kr. 7.000.000. 4. Yfirteknar skuldir án sérstakra trygginga, að íjárhæð 166.938.900. 5. Oftaldar veðskuldir sem reynd- Morgunblaðið/Sverrir Unnið í óvissu Starfsemi Hagvirkis-Kletts hf. var með eðlilegum hætti í gær. Starfsmenn ræddu að vonum mikið um framtíðina sem hulin er nokkurri óvissu þessa dagana. ust án tiygginga í eignum félagsins að ijárhæð kr. 42.979.536. 6. Fært á viðskiptareikning Hag- virkis (Fórnarlambsins) hjá Hagtölu (Hagvirki-Kletti), krónur 15.246.901. „Greiðslan“ sögð einskis virði fyrir viðtakanda Ragnar Hall segist byggja á því að í raun hafi engin þeirra greiðslna sem komu fyrir hin óveðsettu verð- mæti komið öðrum sérstaklega til góða en Hagtölu- (Hagvirki-Kletti) og aðilum sem því fyrirtæki séu ná- komnir í skilningi gjaldþrotalaga en samkvæmt gjaldþrotalögum er unnt að rifta ráðstöfunum fjármuna sem gerðar hafa verið milli nákominna aðila allt að 24 mánuðum fyrir gjald- þrot. Þvi til stuðnings rekur hann að allar þær fasteignir sem Hagtala (Hagvirki-Klettur) hafi látið af hendi hafi verið yfirveðsettar og því einsk- is virði fyrir viðtakandann, Hagvirki (Fómarlambið). „Þarf ekki að orð- lengja það að engin þessara eigna hafði neitt markaðsvirði af þessum sökum,“ segir í greinargerðinni. í sundurliðun þeirra skulda sem yfirteknar hafi verið án sérstakra trygginga, að fjárhæð kr. 166.938.900, kemur fram að þar á meðal hafi verið um að ræða kröfur sem fyrirsvarsmenn fyrirtækisins, eða fyrirtæki tengd þeim hafi verið í ábyrgðum fyrir og í sumum tilvikum hafí verið um að ræða skuldabréf þar sem fyrirsvarsmenn og aðaleig- endur Hagvirkis (Fórnarlambsins) hafi verið skuldarar og ekki verði séð að hið gjaldþrota félag (Fómarlamb- ið, áður Hagvirki) hafi nokkru sinni borið ábyrgð á greiðslum þeirra skulda. Yfirteknar eigin skuldir Meðal annars er undir þessum lið er sundurliðaðar eftirtaldar skuldir: Skuld við Rafleiði sf. að fjárhæð kr. 8.888.968 en þrír stjórnenda og aðalhluthafa í Hagvirki (Fórnarlamb- inu), Jóhann G. Bergþórsson, Aðal- steinn Hallgrímsson og Svavar Skúlason hafí verið persónulega ábyrgir fyrir greiðslu þessara bréfa. Skuld við bæjarsjóð Hafnar- fjarðar að fjárhæð kr. 2.166.584, þar sem Jóhann og Aðalsteinn hafí verið persónulega ábyrgir skv. skuldabréfi. Skuld við íslandsbanka að fjár- hæð 50.706.457. sem gerð hafi verið upp við bankann með sölu á lóðum í eigu Hagvirkis (Fórnar- lambsins) hinn 4. september 1992, og því hafi Hagvirki-Klettur (áður Hagtala) aldrei greitt neitt af þeirri skuld. Skuldabréf þar sem aðaleigend- um Hagvirkis (Fórnariambsins) Jóhanni, Aðalsteini, Svavari Skúlasyni og Gísla Friðjónssyni, hafí hveijum borið að greiða ís- landsbanka u.þ.b. 4,8 milijónir krona og Hagvirki (Fórnarlamb- inu) hafí því aldrei borið að greiða þessa skuld. Samningsverðið var 616 millj. Sú fjárhæð sem bústjóri vill tryggja greiðslu á með kyrrsetning- unni, 373.626.792., er þannig fundin að frá heildarsamningsijárhæðinni, 616.584.000, er dregin fjárhæð krafna sem á samningsdegi, 15. des- ember 1990, voru tryggðar með veð- rétti eða öðrum hliðstæðum trygg- ingarréttindum í hinum seldu eignum, samtals krónur 267.518.663. Þá er tekið tillit til þess að á tilteknum eignum hvíldu sérstök tryggingarbréf sem hugs- anlega hafa tryggt viðkomandi kröfuhafa veðréttindi fyrir allt að kr. 99.955.519 til viðbótar. Loks er gerð krafa til að verðmætum að íjárhæð 10.500.000 (þjónustu- deild Hagvirkis) verði skilað og kaup á henni gangi til baka. Þá eru eftir krónur 238.709.825) sem teljast hafa verið verðmæti óveð- settra eigna sem ráðstafað var með samningunum, og að viðbætt- um vöxtum og innheimtukostnaði verði fjárhæðin kr. 373.626.792. Segist bústjóri fara varlega í kröfugerð og vænta þess að kröf- ur verði talsvert hærri í vænt- anlegu staðfestingarmáli. 100 millj. eign í óhöfðuðu dómsmáli A fyrsta skiptafundi í þrotabú- inu, sem haldinn verður á fimmtu- dag, kvaðst Ragnar H. Hall mundu gera kröfuhöfum grein fyrir stöðu málsins. Helstu eignir búsins séu yfirveðsettar lóðaspildur í Smára- hvammslandi og 100 milljóna króna eignfærð krafa á ríkissjóð vegna Flugstöðvarmálsins, Hann kveðst meðal annars munu lýsa yfir þeirri afstöðu sinni að til- gangslaust sé að reyna að selja frjálsri sölu yfirveðsettar fast- eignir búsins sem ljóst sé að engu muni skila og því muni hann ekki leggjast gegn því að þær verði seldar nauðungarsölu. Þá muni hann gera grein fyrir því að hann telji tilgangslaust að reka þau mál sem fýrirsvarsmenn Hagvirkis (Fórnarlambsins) telji sig geta rekið gegn ríkissjóði vegna sölu- skatts og aðflutningsgjalda vegna framkvæmda við Helguvík þar sem hann telji þau ekki munu vinnast en jafnframt muni hann árétta að kröfuhafi sem eigi viður- kennda kröfu í búið hafí lögum samkvæmt rétt til að reka málið á eigin kostnað og áhættu. Leyfí til slíks hafi hann þegar veitt for- svarsmönnum Hagvirkis-KIetts vegna Flugstöðvarmálsins en sú krafa hafi verið í þann veginn að fýrnast við gjaldþrot Hagvirkis (Fómarlambsins) þar sem ekkert hafi verið gert í að reka málið fyrir dómstólum. Þar sem for- svarsmenn fyrirtækisins hafi virst hafa mikla trú á málstað þess i málinu hafí hann talið eðlilegt að þeir önnuðust rekstur málsins og þann möguleika ættu þeir einnig opinn ef þeir kysu vegna Helgu- víkurmálsins og áfrýjunar sölu- skattsmálsins. _pq Tilbob í ríkisvíxla fer fram mibvikudaginn 17. febrúar Á morgun fer fram tilboð í ríkisvíxla. Um er að ræða 4. fl. 1993 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til þriggja mánaða með gjalddaga 21. maí 1993. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfa- þingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tiltéknu tilboðsverði er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra tilboða er 1 millj. kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tilteknu tilboðsverði. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt aö bjóða í vegiö mebalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn 17. febrúar. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40. Athygli er vakin á því að 19. febrúar nk. er gjalddagi LÁNASÝSLA RÍKISINS á 2. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 20. nóvember 1992. Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40. GOTT FÓLK / SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.