Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 Er sjálfsoryggi meðfætt? eftir Reyni Valdimarsson Daglega má sjá eða heyra ein- hvern flytja erindi eða ræðu í fjöl-. miðlum. Sumir gera það af svo miklu öryggi og koma það vel fyr- ir að maður finnur til vanmáttar gagnvart þeim. Þess vegna halda margir því fram að hinn eða þessi sé fæddur ræðusnillingur eða stjómandi. Það er hinn mesti mis- skilningur. Það er staðreynd að mælskulist, stjórnunarhæfíleikar og sjálfsöryggi eru ekki meðfædd- ir eiginleikar. Allt sem við tökum okkur fyrir hendur byggist á þjálf- un og reynslu. Eftir því sem við öðlumst meiri reynslu á ákveðnu sviði, því öruggari verðum við. Ótrúlega marga skortir reynslu í því að koma fram og geta sagt sína skoðun á hlutunum. Enn fleiri skortir reynslu í því að hafa stjóm á hlutunum í kring um sig og eig- in lífí. Þetta fólk er því feimið og óömggt. Efling sjálfsöryggis Hverjum manni er nauðsynlegt að vinna sig úr viðjum feimni og óöryggis, geta tjáð sig bæði í fá- mennum hópi og á almennum vett- vangi. Alls kyns námskeið standa til boða sem fyrst og fremst byggj- ast á að laga framkomu og sjálfs- traust einstaklingsins. Bent er á „Junior Chamber er þjálfunarhreyfing sem sækist eftir fólki sem er tilbúið til að leggja eitthvað af mörkum til að þjálfa sig og þroska.“ ýmis atriði sem laga má í fari hans og koma þau oft að gagni. Eftir að námskeiði lýkur er það svo undir einstaklingnum komið hvert framhaldið verður. En allt of margir þekkja að tilgangur og efni námskeiðisins gleymist, vegna þess að þekkingunni er ekki haldið við. Lausnin er að einstaklingurinn þarf að fá tækifæri og hvatningu til að temja og nýta sér það sem hann lærði á námskeiðinu. Þetta stendur til boða í Junior Chamber. Hvað er Junior Chamber? Junior Chamber, skammstafað JC, er alþjóðlegur. félagsskapur sem starfar í yfír 100 þjóðlöndum. Hreyfíngin var stofnuð í Banda- ríkjunum árið 1915 og barst hing- að til lands árið 1960. Félagar í JC eru ungt fólk í athafnalífínu, á aldrinum 18 til 40 ára, af báðum kynjum og úr öllum stéttum þjóðfé- lagsins. Junior Chamber er þjálf- unarhreyfing sem sækist eftir fólki sem er tilbúið til að leggja eitthvað af mörkum til að þjálfa sig og þroska. Námskeið Innan Junior Chamber hreyfing- arinnar er að finna fjölmörg nám- skeið á ýmsum sviðum. Að sjálf- sögðu er að fínna námskeið til uppbyggingar á sjálfstrausti og framkomu einstaklingsins. Má þar nefna fjölmörg tjáningarnámskeið. Þar lærir maður að tjá sig fyrir framan hóp fólks, bæði líkamlega og í töluðu orði. Marga brestur t.d. kjark til að standa upp á fund- um til að leggja fram einfalda fyr- irspum eða ábendingu þó svo að hún brenni á vöram þeirra. Fjölmörg stjórnunamámskeið er að fínna í eigu Junior Chamber. Þar lærum við að stjóma öðram, okkur sjálfum, tíma okkar og að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Námskéið í fundarsköpum og fundarstjórnun standa einnig til boða. Nauðsynlegt er að kunna grandvallaratriði fundarhalda til þess að hindra að réttur fundar- manna sé brotinn og tryggja að málefni fái rétta afgreiðslu. Námskeiðum fer sífellt fjölgandi innan JC og era ýmis viðskipta- tengd námskeið að bætast í hópinn. Tækifærin Eins og áður sagði býður Junior Reynir Valdimarsson Chamber okkur upp á að nýta okkur það sem við læram á nám- skeiðum hreyfingarinnar. Mikið af starfí JC fer fram sem skipulagt hópstarf í nefndum og stjómum aðildarfélganna. Starfíð felst m.a. í ýmsum verkefnum sem unnin era í byggðarlagi viðkomandi aðildar- félags. Mörg þekkt verkefni hafa verið unnin á vegum JC. Má þa_r nefna kynningu á slagorðinu „Á eftir bolta kemur barn“ og Yrkju verkefnið sem var afmælisrit til heiðurs forseta íslands. Ræðumennska skipar einnig stóran sess. Á félagsfundum fá allir tækifæri til að leggja orð í JZ belg og einnig era haldnar ræðu- keppnir innan aðildarfélaga og á milli þeirra. Fundarsköp og fundar- stjórn eru í hávegum höfð á öllum opinberam fundum sem haldnir eru á vegum hreyfíngarinnar. Með þessu verða fundirnir mun árang- ursríkari, skipulagðari og skemmtilegri. Junior Chamber Breiðholt Félagið var stofnað þann 19. júní 1977. Eins og nafnið gefur til kynna starfar félagið að mestu í Breiðholti og hefur unnið mörg verkefni bæði eitt sér og í sam- starfi við aðra. Félagið hefur m.a. staðið að áfengisvamakynningu í samstarfi við SÁÁ í grannskólun- um í Breiðholti og listasýningum fatlaðra og myndlistarmanna, þekktra sem óþekktra. Nú er í gangi verkefni er nefn- ist „Samningur um lífíð“. Verkefn- ið gengur út á það að unglingar og foreldrar geri samning sín á milli um samskipti þeirra. Nú er félagið að vinna að því að fá þekkta einstaklinga í þjóðfélaginu til liðs við sig til að standa að kynningará- taki á þessu verkefni. Kynningarfundur Miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20.30 verður haldinn kynningar- fundur Junior Chamber Breiðholts í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi, Gerðubergi 3-5. Þar verður starfsemi félagsins og hreyfingar- innar kynnt enn frekar. Þarna er kjörið tækifæri til að kanna hvort að JC sé félagsskapur fyrir þig. Höfundur erforseti JC Breiðholts. Borgarkirkja sveitakirkja eftirsr. Gylfa Jónsson Lífíð á sér margar hliðar. Af þeim hafa einstaklingarnir mismik- il kynni. Að sumum snúa aðeins þær björtu og hlýju. Að öðrum vita hinar dökku og sáru. En hvaða hliðar sem vita að einstaklingum þá er honum stuðningur í því að iðka trú sína. Eiga lifandi samband við Guð sinn. Rækta trú sína með kirkjugöngu og helgihaldi. Sveita- kirkjan tók helgihald sunnudagsins með sér til bæjarins. Síðdegisstund að snæddum hádegisverði varð lög- vernduð til helgra tíða. En tímarn- ir breytast og mennirnir með. Bæ- jarkirkjan tók upp messutíma kl. 11 f.h. að sumrinu til svo að sunnu- dagssíðdegið væri óskert. En nú er sótt á sunnudagstímann. Sumar- húsaferðir, skíðaferðir, íþróttaæf- ingar og einfaldlega svefninn, svo fátt eitt sé nefnt, yfirtaka helgi- stundir sunnudagsins, hjá sumum. Hið fjölþæætta þéttbýlissamfélag kallar á aukið og fjölbreyttara framboð af helgihaldi en áður. Kyrrðarstundir Borgarkirkjan hefur þegar brugðist að nokkru við nýjum þörf- um. Boðið er upp á helgihald á öðrum dögum en sunnudögum. Kyrrðarstundir er ein sú ný- breytni sem hér verður sérstaklega nefnd. Eru það bænastundir í há- deginu, virka daga, frá kl. 12 til að verða 13. Stundir þessar eru með svipuðu sniði. Þær hefjast á hádegi með orgeltónlist í um tíu mínútur. Þá er sunginn sálmur og lesið Guðs orð. Að því loknum fer fram altarisganga. Kirkjugestir hafa þá allir gengið upp í kórinn. Að altarisgöngunni lokinni kynnir prestur þau fyrirbænaefni sem bor- ist.hafa símleiðis og þátttakendur bera fram þau bænaefni sem þeim liggja á hjarta. Presturinn leiðir því næst hópinn til sameiginlegrar bænar fyrir þeim bænaefnum sem nefnd hafa verið. Að lokinni hljóðri bænarstund flytur prestur blessun og heglistundinni lýkur. Eftir kirkjusamverana er boðið upp á „Fjölbreyttara helgi- hald kirkjunnar er til- boö safnaðarmanna til þeirra mörgu sem leita eftir krafti og leiðsögn í daglegu lífi hins krefj- andi borgarsamfélags. Kyrrðarstundir á virk- um dögum eru vandað tilboð í erli hversdags- léttar veitingar gegn vægu gjaldi fyrir þá sem hafa tíma til að staldra við. En helgistundin sjálf tekur rúmar tuttugu mínútur. Yfir góðri súpu og brauðsneið gefst síðan gott tækifæri til samfélags og við- ræðu. Öllu þessu getur verið lokið fyrir kl. eitt. Kyrrðarstundir með þessu sniði era nú í Laugarneskirkju, Grensáskirkju, Seltjarnarnes- kirkju og Dómkirkjunni, en þar er þó ekki altarisganga í kyrrðar- stundinni. Að lifa við álag Samfélag borgarinnar er á margan hátt meira krefjandi en minni samfélög. Streitan er þáttur í mannlifinu sem við verðum að búa við, laga okkur að. Fjölbreyttara helgihald kirkjunnar er tilboð safn- aðarmanna til þeirra mörgu sem leita eftir krafti og leiðsögn í dag- legu lífí hins krefjandi borgarsam- félags. Kyrrðarstundir á virkum dögum eru vandað tilboð í erli hversdagsins. Höfundur er safnaðarprestur við Grcnsáskirkju. 3M Tannlæknavörur 10 % afsláttur á bamamyndatökum út febrúar Við vomm 3 ódýrastir í fyrra Hvar færðu mest og best fyrir peningana þína ? berðu saman veröin á hinum ýmsu myndatofum Pantaðu fermingarmyndatökuna tímanlega Ljósmyndastofumar: Bama og Fjölskylduljósmyndir sími 677 644 Ljósmyndastofan Mynd sími 65 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4 30 20 Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 671800 Innbrot í Botnsskála Toyota Corolla Touring XL 16v 4 x 4 '91, hvítur, ek. 41 þ. V. 1190 þús. stgr. Grensáskirkja TVEIR unglingar, 14 og 18 ára, brutust inn í Botnsskála í Hval- firði aðfaranótt laugardagsins og síðan inn í hús í Botnsdal. Lögreglan í Borgarfirði kom að unglingunum i húsinu og kom þeim í hendur Reykjavík- urlögreglunnar á laugardags- morguninn. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar munu unglingarnir hafa stolið bíl í Reykjavík á föstudags- kvöld og síðar öðram bíl í Mos- fellsbæ. Þaðan lá leiðin í Hvalfjörð en við innbrotið í Botnsskála fór viðvöranarkerfi í gang og gerði lögreglu aðvart um ferðir þeirra. V.W. Golf GL 1.8 sport '92, grænsans, 5 g., ek. 8 þ., vökvast. o.fl. V. 1090 þús. stgr. MMC Lancer GLXI 4x4 Hlaðbakur '91, vínrauður, 5 g., ek. 18 þ., rafm. í öllu, þjófav.kerfi, fjarst.læsingar o.fl. V. 1130 þús. Bein sala Peugout 309 GL Proflle '91,5 dyra, rauð- ur, 5 g. Gott ástand. V. 595 þús. stgr. Opel Kadett LS '85, 5 dyra, óvenju gott eintak. V. 260 þús. Chevroiet Monza SLE '87, 3ja dyra, ek. 107 þ. Lada Samara 1300 '90, 3ja dyra, 5 g., ek. 40 þ. V. 290 þús. stgr. Toyota Hilux Ex Cap V-6 '91, m/húsi, 5 g., ek. 42 þ., álfelgur, CB talstöð o.fl. V. 1690 þús. Ford Econoline 350 XLT 4x4 '89, 7.3 diesel, sjálfsk., ek. 16 þ., 36“ dekk, spil o.fl. V. 2.3 millj. Toyota Hilux Ex Cap SR5 '91, m/húsi, 5 g., ek. 33 þ., álfelgur o.fl. V. 1490 þús. BMW 518i '88, 4ra dyra, 5 g., ek. 52 þ., sóllúga, álfelgur o.fl. Toppeintak. V. 1290 þús., sk. á ód. Nissan Sunny 1600 SLX '92, 4ra dyra, sjálfsk., ek. 13 þ., vökvast., álfelgur o.fl. V. 950 þús. stgr. MMC Lancer EXE hlaðbakur '92, sjálfsk., ek. 15 þ. V. 1080 þús. stgr. Toyota Hilux Douple Cap diesel '89, 5 g., ek. 109 þ. V. 1150 þús., sk. á ód. Cherokee Jeep 2.5L '84, 5 dyra, 4 g., uppt. vól. Gott útlit. V. 850 þús. Ford Bronco 8 cyl. (302) '74, sjálfsk., mikiö endurnýjaður. Gott ástand. V. 480 þús. V.W. Transporter 9 manna '87, ek. 93 þ. V. 550 þús., sk. á ód.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.