Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ VIPSKIPTI/flTVINWPUF ÞKIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 Hugbúnaður Heimilistæki selja og þjónusta Fjölni STRENGUR hf., dreifingaraðili fyrir viðskiptahugbúnaðinn Fjölni (áður Búsljóra), hefur ákveðið að ganga til samstarfs við Tækni- og tölvudeild Heimilistækja hf. um sölu og þjónustu á Fjölni. „Notendum Fjölnis hefur fjölgað verulega hér á landi undanfarna mánuði. Það hefur kallað á aukna þjónustugetu og með samstarfi Strengs og Tækni- og tölvudeildar Heimilistækja er ætlunin að mæta þessari þörf,“ sagði Haukur Garð- ársson framkvæmdastjóri hjá Streng. Að sögn Magnúsar Böðvars Ey- þórssonar hjá Tækni- og tölvudeild Heimilistækja eru nú um 400 fyrir- tæki sem nota staðlaðar útgáfur af Fjölni bókhaldshugbúnaði. Auk þess sé til verulegur fjöldi af hug- búnaði sem sérhannaður hefði verið á undanförnum árum fyrir flestar greinar íslensks atvinnulífs. Skeljungur Brennisteinn í elds- neyti minnkar verulega BRENNISTEINSINNIHALD í olíu og bensíni sem Skeljungur flytur inn frá Noregi er allt að 98% minna en í því eldsneyti sem félagið flutti áður frá Rússlandi og Rotterdam. Er innihald brennisteins í bensíni frá Noregi nú um 0,001% en var áður á bilinu 0,02% til 0,07%. Þá hefur innihald brennisteins í díselolíu einnig minnkað mikið eða úr 0,2% í allt að 0,08%. Samkeppni Umbúðir utan um Camem- bert ost verðlaunaðar UMBUÐASAMKEPPNI — Verðlaunin í umbúðasamkeppni Félags íslenskra iðnrekenda voru afhent við hátíðlega athöfn sl. föstudag. Á myndinni eru f.v. Elísabet Cochran, hönnuður hjá auglýsingastof- unni Auk hf., Leifur Agnarsson, framkvæmdastjóri Kassagerðar Reykjavíkur og Ólafur Einar Ólafsson frá Osta- og smjörsölunni. Þessi fyrirtæki hlutu fyrstu verðlaun fyrir umbúðir utan um sex geira af Camenbert osti. Brennisteinsmagn í bensíni Skeljungs minnkar um allt að 32 tonn á ári og allt að 100 tonn á ári í díselolíu sé miðað við sölu félags- ins á síðasta ári á þessum elds- neytistegundum, samkvæmt upp- lýsingum Skeljungs. Skeljungur hefur frá því í maí í fyrra keypt allt eldsneyti frá Norsk Shell í Noregi að svartolíu undanskilinni sem flutt er inn frá Rússlandi. Með tilkomu nýja bens- ínsins dregur úr loftmengun af völdum bílaumferðar hér á landi. Strætisvagnar Reykjavíkur aka að jafnaði um 12 þúsund kílómetra á dag um götur höfuðborgarinnar og brenna til þess um 6,5 tonnum af díselolíu. Á ársgrundvelli minnkar brennisteinsúrfellið í út- blæstri strætisvagnanna um 2,5 tonn. HgH precision OSTA- og smjörsalan og Mjólkurbú Flóamanna hlutu fyrstu verð- laun í umbúðasamkeppni Félags íslenskra iðnrekenda fyrir umbúð- ir utan um sex geira af Camenbert osti. Umbúðimar voru hannað- ar af Elísabetu Cochran hjá aulýsingastofunni Auk hf. og framleið- andi þeirra er Kassagerð Reykjavíkur. Úrslitin í samkeppninni voru kunngerð við hátíðlega athöfn sl. föstudag í Perlunni þar sem verðlaunahöfum var afhent til eignar afsteypu af íslenskri skel úr silfri. Er ætlunin að slík skel muni fylgja umbúðasamkeppn- inni eftirleiðis en stefnt er að því að hún öðlist fastan sett í starfi félagsins. Þetta var í áttunda sinn sem Félag íslenskra iðnrekenda stend- ur fyrir slíkri samkeppni og er markmiðið að undirstrika mikil- vægi umbúðaframleiðslu og hönn- unar. Var samkeppnin haldin í samvinnu við Samband íslenskra auglýsingastofa, íslenska mark- aðsklúbbinn og FORM ísland, fé- lag áhugamanna um hönnun. Ein- ungis var leyfilegt að senda inn umbúðir sem komið hafa á markað frá 1. janúar 1990. Alls bárust 80 tilnefningar í keppnina að þessu sinni sem fólu í sér alls um 200 mismunandi umbúðir. í umsögn dómnefndar um Camenbert umbúðirnar kom fram að hönnunin væri einstaklega aðlaðandi og glæsileg, frágangur væri til fyrirmyndar og innri um- búðir leystar vel úr hendi. Önnur verðlaun voru veitt fyrir umbúðir utan um smávörur í heimili- spakkningum frá Emmess ísgerð- inni. Hönnuður þeirra er Steve Fairbaim hjá Auk hf. og framleið- andi Dyboflex AS og Eson pac. Þriðju verðlaun komu í hlut ís- lenskt bergvatns fyrir dósir og flöskur utan um Svala sem er kolsýrt vatn. Einnig fékk Ora hf. þriðju verðlaun fyrir umbúðir utan um Ora kavíar sem hannaðar voru af Ingibjörgu Stefánsdóttur hjá Auk hf. Framleiðandi er Metro pak. Auk þess voru veittar sérstakar viðurkenningar fyrir umbúðir utan um Emmess skafís, 350 gr. osta- kökur, gjöf frá Glóbusi til 1-6 ára barna, Rúbín kaffi, Helga magra bjór, 1 kg og 2 kg öskjur utan um fryst fiskflök frá íslenskum sjávarafurðum, hreinan appelsínu- og eplasafa frá Sól og Stjörnu- snakk. Flestar umbúðir sem bárust í samkeppnina verða til sýnis í Perl- unni fram til 20. febrúar frá kl. 10.00-22.00 nema síðasta daginn en þá lýkur sýningunni kl. 16.00. hjöruliðskrossar Þekking Reynsla Þjónusta FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8. SÍMI 814670 Bankastarfsemi Starfsfólki Landsbankans fækkaðum 100-150 á 2 árum LANDSBANKINN hefur ákveðið að fækka starfsfólki um sem nemur 100-150 stöðugildum á þessu og næsta ári. Er þetta liður í hagræðingarátaki sem unnið hefur verið að innan bankans og kemur fækkun starfsfólks m.a. í kjölfar yfirtöku á Samvinnu- bankanum og nýs svæðaskipu- lags útibúa. Að sögn Brynjólfs Helgasonar, aðstoðar banka- stjóra, er verið að vinna að út- færslu á því hvernig umræddri fækkun stöðugilda verður náð. Hann segir að ekkert liggi fyrir um það hvort grípa verði til upp- sagna. Þegar Seðlabankinn veitti Lands- banka íslands 1.250 milljóna króna víkjandi lán til að bankinn stæðist kröfur nýrra reglna um eiginíjár- stöðu lagði viðskiptaráðherra fyrir bankastjórnina að semja greinar- gerð um það hvernig bæta megi afkomu bankans og eiginfjárstöðu. Þessi greinargerð hefur nú verið send Seðlabanka og viðskiptaráð- herra. í greinargerðinni er farið yfir þróunina í bankastarfsemi und- anfarin ár og breytingar á starfs- skipulagi Landsbankans. Brynjólfur Helgason sagði að útfærsla á því hvernig dregið yrði úr launakostnaði myndi liggja fyrir á næstu vikum. Hann sagði að til greina kæmi að gera það með því að bjóða fólki upp á að fara í hluta- störf. Yfirvinna yrði áfram tak- mörkuð og ráðning sumarafleys- ingafólks yrði í lágmarki í ár. Hann sagði að þessi mál væru í athugun í samvinnu við starfsmenn. Brynjólfur sagði að launakostn- aður væri stæsti einstaki kostnað- arliðurinn í rekstri bankans en einn- ig væri stefnt að lækkun annars rekstrarkostnaðar, eða um 7,5% á árinu miðað við síðasta ár. Til við- bótar yrðu framkvæmdar einhveij- ar af fjölmörgum sparnaðartillögum starfsmanna. Fundur Miðlun hf. á ÍMARK fundi MIÐLUN hf. mun kynna starf- semi sína og útflutning á Gulu línunni á morgunverðarfundi ÍMARK á morgun miðvikudag 17.febrúar, en Miðlun hlut mark- aðsviðurkenningu ÍMARKS fyrir vel unnin markaðsstörf á siðast- liðnu ári. Fundurinn verður haldinn á Hót- el Sögu, Skálanum kl.8.00-9.30. Borið verður fram kaffi og léttur morgunverður. Verð er 1.000 krón- ur fyrir ÍMARK félaga en 1.300 fyrir aðra. HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - simi 17800 BALDYRING V 3 L . Kennari: Elínbjört Jónsdóttir. 23. feb. - 30. mars þriðjudaga kl. 19.30-22.30. Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánud.- fimmtud. kl. 14-16 í síma 17800.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.