Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRUAR 1993 Mál þrotabús Fórnarlambsins gegn Hagvirki-Kletti Ún sögu Hagvirkis. 1979: Jóhann G. Bergþórsson stofnar Hraunvirki árið 1979. Það fýrirtæki er síðar nefnt Hagtala. 1981: Hagvirki stofnað 16. mars 1989: Fjármálaráðuneytið hafnar viðbótargreiðslum til Hagvirkis vegna framkvæmda við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 13. júií 1989: Hagvirki gert að greiða um 108 milljónir í viðbótarsöluskatt. Júií 1990: Samstarfssamningur Hagvirkis og sænsku verktaka- samsteypunnar NCC 12. nóv. 1990: Rfkissjóður sýknaður af endurgreiðslukröfum Hagvirkis í söluskattsmálinu. Mars 1991: •Hagvirki + NCC verður Hagtak hf. (markaðsfyrirtæki) •Hagvirki + NCC verður Norrænt verktak hf, Nortak (samstarfs- fyrirtæki um virkjanir og jarðgangaframkvæmdir). •Hagvirki (Byggingadeild Hagvirkis hf.) verður Hagvirki hf. •Hagvirki (Jarðvinnslu-, virkjana- og véladeild Hagvirkis) + Hagtala (gamla Hraunvirki) + Vélsmiðjan Klettur verður Hagvirki-Klettur hf. 26. ágúst 1992: Nafnið Hagvirki selt Hagvirki-Kletti hf. og nafni félagsins breytt í Fómarlambið hf. 17. sept. 1992: Fómarlambið hf. gjaldþrota. 1.700 millj. lýst í þrotabú Fómarlambsins Otryggðar kröfur ríkíssjóðs 381 millj. LÝST var samtals rúmlega 1.700 milljóna króna kröfum í þrotabú Fórnarlambsins hf. fyrir lok kröfulýsingarfrests sem var 4. janúar síðastliðinn, og tók skiptastjóri þrotabúsins til greina kröfur samtals að upphæð 1.219 milljónir króna, en kröfum upp á rúmlega 500 milljónir var hafnað. íslandsbanki er stærsti kröfuhafinn með samtals 442 milljóna kröfu, en viðurkenndar kröfur bankans eru 350 milljónir. Sýslumaður- inn í Hafnarfirði er næststærsti kröfuhafinn með 327 milljóna króna kröfu sem viðurkennd var af bústjóra. Alls nema kröf- ur innheimtumanna rikissjóðs 381 milljón króna en þær eru ekki tryggðar með veðum eins og kröfur banka og lánasjóða. Aðrar stærstu kröfur í þrotabú Fómarlambsins hf. sem viðurkennd- ar voru af skiptastjóra eru 174 millj- óna kr. kröfur Iðnlánasjóðs, 50 millj- óna kr. kröfur Landsbanka íslands, 45 milljóna kr. kröfur Lífeyrissjóðs Hlífar og Framtíðarinnar, 44 millj- óna kr. kröfur Framkvæmdasjóðs, 36 milljóna kr. krafa Gjaldheimtunn- ar í Reykjavík, 10 milljóna kr. kröf- ur Búnaðarbanka Islands, 18 millj- óna kr. krafa sýslumannsins á Blönduósi og kröfur annarra opin- berra aðila upp á 10 milljónir króna. Hagvirki-Klettur hf. gerði samtals 208 milljóna kr. kröfu í þrotabú Fórnarlambsins hf. og af því viður- kenndi skiptastjóri kröfur upp á 19 milljónir. Verkfræðistofa Jóhanns G. Bergþórssonar var með 13 millj- óna kr. kröfur, og af því viður- kenndi skiptastjóri tveggja milljóna kröfu. Jóhann G. Bergþórsson gerði 116 milljóna kr. kröfu í þrotabúið sem ekki var viðurkennd, og sömu sögu er að segja um 157 milljóna kr. kröfu Aðalsteins Hallgrímssonar, og 41 milljóna kr. kröfu Gísla J. Friðjónssonar. Um 30 verksamn- ingar eru í gildi STJÓRN Hagvirkis-Kletts hf. skipa, samkvæmt fundi 10. október 1992: Jóhann G. Berg- þórsson, sem er aðalmaður, og varamaður er Bergþór Jó- hannsson. Firmað ritar aðal- maður og varamaður í forföll- um. Hlutafé er 5.280.000,00 kr. Starfsmenn eru nú um 150 tals- ins, en hafa verið flestir um 250. Nærri liggur að 30 verksamningar séu í gildi við undirverktaka um þessar mundir. Meðal verkefna félagsins hafa verið bygging Blönduvirkjunar, sem það yfirtók frá Hagvirki hf., hafnarframkvæmdir víða um land, meðal annars í Keflavík, Sundahöfn, Hafnarfjarðarhöfn og Húsavíkurhöfn, þar sem fram- kvæmdum er ekki lokið, skólplögn við Ægissíðu og dælustöð við Faxaskjól í Reykjavík, en þeim framkvæmdum er að ljúka og gatnagerð í Mosahlíðarhverfi í Hafnarfirði. Auk jarðvegsframkvæmda hef- ur félagið verið stórtækt í bygg- ingariðnaðinum. Nýlokið er bíla- geymslunni Traðarkoti við Hverf- isgötu og unnið er að ýmsum byggingum. Verið er að byggja stórhýsi fyrir Öryrkjabandalagið við Sléttuveg í Reykjavík, fé|ags- heimili lR og Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju og tónlistar- skóla í Hafnarfirði. Þá er unnið við skrifstofuhús BM Vallár og stóra skemmu fyrir Þýsk-íslenska hf. Gerð ársreiknings síðasta árs er ekki lokið, en Bergur Btjánsson framkvæmdastjóri áætlar að árs- velta Hagvirkis-KIetts hf. hafí verið um 1100 milljónir króna í fyrra. Bústjóri telur ríkis- sjóð hlunnfariim RAGNAR H. Hall, hrl, bústjóri þrotabús Fórnarlambsins, áður Hagvirkis, telur að fyrirsvarsmenn fyrirtækisins hafi með samn- ingum um sölu eigna Hagvirkis til Hagvirkis-Kletts, 15. desem- ber 1990, hreinlega gefið eignir að verðmæti nokkur hundruð milljónir króna til þess að þær gætu ekki nýst skuldheimtumönn- um félagsins. I tilkynningu um riftun ráðstafananna, sem birt var fyrirsvarsmönnum Hagvirkis á föstudag, rekur Ragnar. H. Hall ítarlega hvernig hann telji að eignum Hagvirkis hafi verið ráðstafað til Hagvirkis-Kletts án þess að nýtanleg verðmæti hafi komið á móti. „Eg hef satt að segja ekki í annan tíma séð aðra eins löggerninga eins og þá sem hér um ræðir,“ segir Ragnar H. Hall, sem um langt árabil var borgarfógeti skiptaréttar Reykja- víkur, í bréfi til fjármálaráðuneytisins þar sem hann fer þess á leit að ríkissjóður ábyrgist kostnað þrotabús Fórnarlambsins af rekstri riftunarmála og rökstyður nauðsyn þess að leggja í svo víðtækar og kostnaðarsamar aðgerðir sem riftun þessara ráðstaf- ana sé. „Mér sýnist augljóst af aðdraganda samningsgerðarinnar og öllu yfirbragði samninganna að umræddar ráðstafanir hafi gagngert miðað að því að hægt yrði að gera upp við nánast alla aðra en ríkissjóð. Sú afstaða mun hafa byggst á því viðhorfi fyrir- svarsmanna félagsins að fulltrúar ríkisvaldsins hafi sýnt óbilgirni í afstöðu sinni til krafna félagsins vegna flugstöðvar og sölu- skattsálagningar .. .,“ segir í bréfinu. Matsmenn á vegnm sýslumanns í Hafnarfirði og' Hagvirkis meta nú verðmæti þeirra eigna sem fyrirsvarsmenn Hagvirkis bentu á við kyrrsetningargerðina sem duga eigi til tryggingar fyrir 373 milljóna króna kröfu bústjórans. Búist er við að starfi matsmann- anna ljúki í vikunni. Verði niðurstaða þeirra sú að félagið eigi ekki eignir sem standi undir þessari viðbótarveðsetningu er þess vænst að fulltrúi sýslumanns lýsi því yfir að kyrrsetningin sé ár- angurslaus að hluta. Komi til þess getur hvaða lánardrottinn Hagvirkis- Kletts, sem hefur ekki fengið gjald- fallna kröfu á félagið greidda, kraf- ist gjaldþrots þess á grundvelli hinn- ar árangurslausu kyrrsetningar. Býst allt eins við gjaldþroti Jóhann G. Bergþórsson for- stjóri og aðaleigandi Hagvirkis sagði á blaðamannafundi á sunnu- daginn að ef stuðst væri við opin- bert mat á eignum fyrirtækisins teldi hann það ætti fyrir veðsetn- ingunni. Hins vegar kvaðst hann allt eins búast við því að sá hnekk- ir sem orðspor félagsins fengi við kyrrsetninguna yrði til þess að gjaldþrot þess væri framundan. A fundinum gagnrýndi Jóhann harð- lega fullyrðingar um hættu á því að reynt yrði að skjóta eignum Hagvirkis-Kletts undan fullnustu þrotabúsins, en til að lög heimili að kyrrsetning sé gerð í eignum félags verður gerðarbeiðandinn að gera slíkt sennilegt að mati sýslumanns. Jóhann fullyrti að Hagvirki-Klett- ur hefði tekið á sig á þriðja hundrað milljónir króna vegna þrotabús Fóm- arlambsins, eftir að samningarnir frá 15. desember 1990 voru gerðir, til dæmis með því að ljúka samningum sem Fómarlambið (áður Hagvirki) var skuldbundið til að Ijúka. Með þessu hafi Hagvirki Klettur t.a.m. forðað þrotabúinu frá verulegum kröfum ýmissa viðsemjenda, þar á meðal einstaklinga sem keypt hefðu íbúðir af Hagvirki. Þá sagðist Jóhann sjálfur vera í ábyrgðum fyrir þrotabú fórnarlambsins fyrir á annað hund- rað milljónir en hann og Aðalsteinn Hallgrímsson annar aðaleigandi fé- lagsins, hefðu ábyrgst víxil að fjár- hæð um 116 millj. kr. vegna yfir- dráttarheimildar félagsins í íslands- banka og ljóst væri þeir yrðu krafn- ir um að standa skil á þeirri ábyrgð. Þá gagnrýndi Jóhann að bústjóri þrotabúsins hefði hafnað að reka fyrir Hæstarétti mál Hagvirkis vegna ágreinings við ríkissjóð um sölu- skattsskyldu en félagið teldi sig eiga inni 6-700 milljónir króna hjá ríkinu þess vegna. Þegar þeirri eign væri bætt við 400 milljóna bókfærðar eignir Fómarlambsins (áður Hag- virkis) væri varla unnt að telja fyrir- tækið gjaldþrota. Þá hafi Hagvirki- Klettur tekið við rekstri máls vegna uppgjörs við framkvæmdir vegna Flugstöðvarinnar á Keflavíkurflug- velli en því máli hefur enn ekki verið stefnt fyrir héraðsdóm. Að sögn bú- stjórans hefur sú krafa verið eign- færð fyrir um 100 milljónir króna í efnahagsreikning Hagvirkis (Fórnar- lambsins) og er ásamt lóðum I Smárahvammslandi, sem eru veð- settar yfir markaðsverð, stærsti eignarliður á reikningi félagsins. Gagnrýnir tryggingu ríkissjóðs Jóhann gagnrýndi harðlega það að ríkissjóður skuli hafa lagt fram þá 115 milljóna króna tryggingu sem gert hafi þrotabúi Fómarlambsins kleift að óska kyrrsetningarinnar. Leiði kyrrsetningin til gjaldþrots Hagvirkis-Kletts telur Jóhann að rík- issjóður hafi með þessu bakað sér bótaábyrgð á allt að því eins millj- arðs tjóni sem af kunni að leiða. Hann telur ríkinu hafa verið óheim- ilt að veita þessa ábyrgð þar sem lög kveði á um að enga ríkisábyrgð megi veita án sérstakrar laga- Fríðrik Sophusson fjármálaráðherra um Hagvirki -Klett Oumflýjanlegt að veita ábyrgð til að reka kyrr- setningar- og riftunarmál FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráðherra, segir að ekki hafi verið um annað að ræða en veita skiptastjóra þrotabús Fórnarlambins hf., áður Hagvirki hf., ábyrgð til að hægt væri að reka kyrrsetningar- og riftunarmál á hendur Hag- virki-KIetti hf. til að verja hagsmuni ríkisins. Þetta kom fram á blaðamannafundi fjármálaráðherra í gær sem boð- að var til vegna fullyrðinga forsvarsmanna fyrirtækisins Hagvirkis-KIetts. Friðrik sagði að þetta mál væri ekki í höndum fjármálaráðuneytisins heldur í höndum skiptaforstjórans. Hann væri fulltrúi kröfuhafa í búið og ríkið væri einn stærsti kröfuhaf- inn. Afskipti ríkisins takmörkuðust við það, að hafa sett fram tryggingu til að skiptaforstjórinn gæti rekið mál gegn Hagvirki-Kletti. Þar væri fyrst og fremst um kyrrsetningarmál að ræða og í framhaldi af því dóms- mál til riftunar á samningum sem gerðir voru á sínum tíma. í bréfí skiptaforstjórans til ráðuneytisins frá 21. janúar 1993 hefðu komið fram ábendingar sem væru með þeim hætti, að ráðuneytið hefði ekki séð sér fært annað en veita þessa til- teknu ábyrgð til að veija hagsmuni ríkisins. Friðrik sagði að slíkar ábyrgðir hefðu verið veittar í öðrum viðlíka málum. Hér væri ekki um að ræða ábyrgð vegna þriðja aðila, heldur að ríkið legði fram ábyrgð til þess að veija sína hagsmuni. Þessi heimild væri fyrir hendi og það hefðu ríkis- lögmaður og Ríkisendurskoðun stað- fest. Ekki áhrif á önnur mál Friðrik sagði að einnig hefði verið látið að því liggja að með þessari gerð væri verið að ónýta gömul ágreiningsmál á milli ríkisins og Hagvirkis, nú Fómarlambsins. Ann- ars vegar væri um að ræða svokallað „söluskattsmál" og hins vegar „flug- stöðvarmál". Því væri til að svara að þessi mál væru aðskilin og kæmu þessu nýja máli ekkert við. Búið væri að stefna í máli vegna bygging- ar flugstöðvarinnar í Keflavík og Hagvirki-Klettur ræki það mál fyrir hönd þrotabúsins enda væri Hag- virki-Klettur aðili að þrotabúi Hag- virkis, nú Fórnarlambsins. Deilumál vegna söluskatts væri komið til Hæstaréttar og geti allir kröfuhafar í þrotabúið haldið því máli áfram kjósi þrotabúið að gera það. Friðrik sagði að síðustu vilja láta það koma fram, að hann sæi ekki að þessi kyrrsetningargerð ein og sér leiddi til gjaldþrots Hagvirkis-Kletts, því þó að hún yrði árangurslaus að hluta sæi hann ekki ástæðu til þess að bústjórinn kræfíst gjaldþrota- skipta á félaginu. Hins vegar væri það alveg rétt sem fram hefði kom- ið, að það rýrði auðvitað getu félags- ins til að halda áfram starfsemi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.