Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRUAR 1993
AF INNLENDUM
VETTVANGI
PÁLL LÚÐVÍK EINARSSON
Heilbrigðisnefnd Alþingis fjallar um frumvarp til tóbaksvaraalaga
Fi’okan umræður um
hertar tóbaksvarnir
SIGHVATUR Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
mun fara þess á leit að heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis
athugi frumvarp til tóbaksvarnalaga sem tóbaksvarnanefnd samdi
fyrir rúmlega ári. Heilbrigðisráðherra segir að ekki sé eining um
þetta frumvarp innan ríkisstjórnarinnar. Þetta mál gangi þvert á
öll flokksbönd bæði innan ríkisstjórnar og á Alþingi. Heilbrigðis-
ráðherra segir tóbaksvarnanefnd hafa unnið mjög vel, sér lítist
vel á sum atriði frumvarpsins en miður á önnur og hafnar því
að flytja málið í eigin nafni. Sigbjörn Gunnarsson, formaður heil-
brigðis- og trygginganefndar, segir sjálfsagt að skoða þetta mál,
honum finnist ekkert óeðlilegt að opna umræðuna um tóbaksvand-
ann.
Ekki reykja ofan í börnin
Frumvarpið sem heilbrigðis- og
trygginganefnd mun nú fljótlega
kynna sér er í meginatriðum hert
og ítarlegri útfærsla á gildandi
lögum. Enn sem fyrr er markmið
laganna að draga úr tóbaksneyslu
og því heilsutjóni sem hún veldur.
Til að ná fram þessum markmið-
um gerir frumvarpið ráð fyrir
ýmsum nýmælum. Fortakslaust
er kveðið á: „2.1 Það er réttur
hvers manns að þurfa ekki að
anda að sér lofti sem mengað er
tóbaksreyk af völdum annarra."
Og: „Þeir sem bera ábyrgð á barni
skulu stuðla að því að það njóti
réttar skv. gr. 2.1, einnig þar sem
reykingar eru ekki bannaðar skv.
III. kafla þessara laga.“ Höfundar
greinargerðar frumvarpsins segja
hliðstæðu finnast í farsóttarlögum
þar sem menn séu skyldugir til
að „gjalda sem mesta varúð við
farsóttum og gera sér allt far um
að sýkja hvorki sjálfan sig né
aðra.“
III. kafli frumvarpins er um
„vemd gegn tóbaksmengun and-
rúmslofts." Meðal nýjunga í þess-
um kafla má nefna að þeim stöð-
um fjölgar þar sem tóbaksreyk-
ingar verða óheimilar og undan-
þáguheimildum fækkar. I greinar-
gerð segir að það sé í samræmi
við þá þróun sem orðið hefur í
viðhorfí til mengunar af völdum
tóbaksreyks og með hliðsjón af
„auknum skilningi á nauðsyn þess
að draga úr fordæmisáhrifum
reykinga." Reykingar verða með
öllu óheimilar. í grunnskólum,
hvers konar dagvistun barna og
húsakynnum fyrir félags- og tóm-
stundaiðkanir bama og unglinga,
og einnig framhaldsskólum.
Bráðabirgðaákvæði í lokakafla
frumvarpsins gerir þó ráð fyrir
að skólastjóra framhaldsskóla
verði tímabundið heimilt að leyfa
reykingar í afmörkuðum hluta
skólahúsnæðisins fram að 1. júní
1994. Reykingar verða óheimilar
á öllum opinbemm fundum og
fundum sem haldnir eru á vegum
ríkis og sveitarfélaga, stofnana
þeirra eða embættismanna. Reyk-
ingar í samgöngufarartækjum eru
líka mjög takmarkaðar, t.d. verða
tóbaksreykingar óheimilar í far-
þegarými skipa taki ferð skemmri
tíma en fjórar klukkustundir.
Þess má geta að líkt og í gild-
andi lögum varða brot gegn þess-
um bannákvæðum sektum enda
hafí umráðamaður húsakynria eða
stjómandi farartækis eða fulltrúi
þeirra veitt áminningu.
Bann við snuffi og skro
II. kafli frumvarpsins fjallar um
verslun með tóbak. Höfundar
greinargerðar með frumvarpinu
hafa orðið varir við viðleitni tób-
aksframleiðenda til að markaðs-
setja nýjar tegundir munntóbaks
sem blandað sé bragðefnum og
lyktblandað og fínmulið neftóbak.
Með þessum afbrigðum tóbaks-
neyslu sé einkum höfðað til ungs
fólks. í greinargerð segir: „Til að
verja íslenska neytendur fyrir til-
raunum tóbaksframleiðenda og
spoma gegn því að nýjar tegundir
munntóbaks og neftóbaks komist
í tísku meðal barna og unglinga
er lagt til í 8. gr: „Bannað er að
flytja inn, framleiða og selja
munntóbak. Sama er um neftóbak
annað en þá tegund sem Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins hefur
framleitt undanfarin ár.“ í 9. gr.
segir að ráðherra ákveði í reglu-
gerð hver séu hæstu leyfilegu
mörk skaðlegra efna í tóbaksvarn-
ingi. í greinargerðinni er bent á
að landlæknir hafi lagt til fyrir
fjómm ámm að bönnuð verði sala
á sígarettum sem gefi meira en
15 mg af tjöru.
Leyfi og viðurlög
í frumvarpinu er leitast við að
reisa sem bestar skorður við
óbeinum auglýsingum á tóbaki og
áróðri fyrir neyslu þess, m.a.:
„Tóbaki skal þannig komið fyrir
á útsölustöðum að það beri ekki
fyrir augu viðskiptavina.“ Einnig:
„Bannað er ennfremur að sýna
neyslu eða hverskonar meðferð
tóbaks eða reykfæra í auglýsing-
um eða upplýsingum um vöru eða
þjónustu og í myndskreytingu á
varningi." Hér mun m.a. vera átt
við myndir af reykjandi fólki, t.d.
frægum kvikmyndastjörnum, á
fatnaði. Framvarpið kveður á um
að einstaklingum yngri en sautján
ára er bannað að kaupa tóbak og
einstaklingum yngri en sextán er
forboðið að selja þennan varning.
I 13. gr. er kveðið á um að
smásala á tóbaki skuli háð sér-
stöku leyfí sem heilbrigðisnefnd
veiti til allt að fjögurra ára í senn
og ráðherra ákveði leyfisgjald og
setji ákvæði um framkvæmd.
Gjaldinu skal varið til eftirlits með
framkvæmd laganna á sölustöð-
um. í greinargerð er bent á að
þetta ákvæði gefi kost á því að
veita seljendum aukið aðhald, ekki
hvað síst varðandi bann við sölu
til barna og unglinga. Heimilt
verður að svipta söluaðila leyfinu.
Og þess verður einnig að geta að
brot gegn ákvæðum í II. kafla
frumvarpsins varða sektum „en
varðhaldi séu sakir miklar eða
brot ítrekað".
Tóbaksvarnanefnd var falið
1988 að athuga reynsluna af lög-
um um tókbaksvarnir frá 1984
og gera tillögur um breytingar. i
nóvember 1991 skilaði nefndin
tillögum sínum um ýmis nýmæli
í frumvarpsformi. Á þessu tíma-
bili hafa ýmsir unnið að samningu
fmmvarpsins en fremst má telja
aðalmenn í tóbaksvarnanefnd,
þáverandi nefndarformann, Egil
Heiðar Gíslason framkvæmda-
stjóra, Helga Guðbergsson, yfir-
lækni á atvinnusjúkdómadeild
Heilsuvemdarstöðvar Reykjavík-
ur, og Þorvarð Örnólfsson, fram-
kvæmdastjóra Krabbameinsfélags
Reykjavíkur. Einnig varamenn í
nefndinni, Lilju Eyþórsdóttur
fóstm og Halldór Runólfsson, for-
stöðumann Heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis. Nýskipaður for-
maður nefndarinnar er Halldóra
Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur
hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar.
Klýfur flokka og ríkisstjórn
Ýmsa áhugamenn um tóbaks-
varnir var farið að lengja eftir því
að Alþingi tæki afstöðu til hertra
tóbaksvarna og þessa frumvarps.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta frumvarp
hefði á síðasta ári verið kynnt
innan ríkisstjórnarinnar. Aðspurð-
ur sagði ráðherra að ekki hefði
reynst vera eining um þetta frum-
varp meðal ráðherra. Heilbrigðis-
ráðherra sagði að afstaða manna
til málsins réðist ekki eftir flokka-
pólitík.
Heilbrigðisráðherra sagðist
myndu óska eftir þvi við heilbrigð-
is- og trygginganefnd að hún
tæki þetta mál til skoðunar og
athugaði hvort samkomulag gæti
orðið um að nefndin stæði að
flutningi frumvarpsins. Heilbrigð-
isráðherra kvaðst hafa rætt þetta
mál við Sigbjörn Gunnarsson, for-
mann nefndarinnar, og myndi
fljótlega skrifa honum formlega
bréf um þessa málaleitan.
Sigbjörn Gunnarsson nefndar-
formaður sagði Morgunblaðinu að
sér væri kunnugt um að um þetta
mál stæði styr. Sigbjörn sagði
sjálfsagt að athuga frumvarpið
en það væri ómögulegt að svara
því hvort nefndin flytti frumvarpið
óbreytt fyrr en hún hefði farið
efnislega yfír málið. Hann sagði
að sér fyndist ekkert óeðlilegt að
opna umræðu um tóbaksvandann.
Tvímenningur á Bridshátíð
Zia Mahmood og Larry Cohen
öruggir sigurvegarar
____________Brids________________
Arnór G. Ragnarsson
íslandsvinurinn Zia Mahmood
sigraði í tvímenningnum á Brids-
hátíð en hann spilaði að þessu
sinni með mjög þekktum brids-
spilara frá Bandaríkjunum,
Larry Cohen. Zia og Cohen tóku
forystuna í upphafi mótsins og
héldu henni til loka eða í 40
umferðir. Um tíma voru þeir
komnir með 100 stiga forskot
- en síðan dró saman á ný en sig-
ur þeirra var þó aldrei í hættu.
Helztu keppinautamir um efsta
sætið í mótinu vom Guðmundur
Sv. Hermannsson og Helgi Jó-
hannsson annars vegar og gömlu
ítölsku kempurnar Giorgio Bella-
donna og Pietro Forquet hins veg-
ar. Bankastjórinn Forquet var mjög
lasinn í upphafí móts og þá gekk
honum og Belladonna mjög illa en
um miðbik móts vora þeir félagar
komnir í toppbaráttuna en staða
efstu para eftir 23 umferðir var
þessi:
ZiaMahmood-LarryCohen - 246
Ari Konráðsson - Kjartan Ingvarsson 142
Helgi Jóhannss. - Guðmundur Sv. Hermannss.
139
Guðmundur Sveinsson - Júlíus Siguijónsson 138
Guðm.PállAmarson-ÞorlákurJónsson 128
Sigurður Sigurjónsson - Júlíus Snorrason • 128
Ib Lundby - Inge Keith Hansen 102
Belladonna - Forquet 97
Röð efstu manna átti eftir að
breytast mikið áður en yfír lauk.
Forseti Bridssambandsins, Helgi
Jóhannsson, og varaforsetinn, Guð-
mundur Sveinn, gáfu hvergi eftir
og spiluðu mjög vel. Nokkuð bak-
slag kom hjá þeim í þegar fáeinar
umferðir vora eftir en þeir rifu sig
upp á ný í lokaumferðunum og
enduðu í þriðja sæti.
Norðmennimir Tor Hoeyland og
Even Ulfen vora aldrei meðal efstu
para nema í lokaumferðunum þeg-
ar þeir læddu sér upp í annað sæt-
ið. Belladonna og Forquet skiptust
á að vera í öðra til þriðja sæti seinni
hluta mótsins en gáfu eftir í loka-
umferðunum. Sverrir Ármannsson
og Matthías Þorvaldsson byijuðu
mótið mjög ilia sem og Guðlaugur
og Öm sem vora í 45. sæti eftir
14 umferðir.
Lokastaðan:
ZiaMahraood-LarryCohen 259
Tor Hoeyland - Even Ulfen 218
Helgi Jóhannsson - Guðm. Sv. Hermannsson 207
Sverris Ármannsson - Matthías Þorvaldsson 202
Belladonna - Forquet 198
ÖrnAmþórsson-GuðlaugurR.Jóhannss. 168
BjömEysteinsson-AðalsteinnJörgensen 164
IbLundby-IngeKeithHansen 143
Guðmundur Sveinsson - Júlíus Siguqónsson 129
Sigurður Siguijónsson - Júlíus Skorrason 125
Mikill kærufjöldi kom til kasta
dómstóls Bridssambandsins sem
„í þriðja sæti varð svo spilafé-
lagi minn Guðmundur Sveinn
Hermannsson....“ sagði Helgi
Jóhannsson þegar hann afhenti
3. verðlaun mótsins.
hafði í nógu að snúast. Keppnis-
stjóri var Agnar Jörgensson.
Reiknimeistari og aðstoðarkeppn-
isstjóri var Kristján Hauksson.
Sjötíu sveitir tóku þátt í sveita-
keppninni og trónaði Sparisjóður
Sigluíjarðar á toppnum eftir fyrri
daginn en sveitakeppninni lauk í
gærkveldi.
Morgunblaðið/Amóf
Sigurvegararnir, Zia Mahmood og Larry Cohen, hampa sigur-
laununum í mótslok. Helgi Jóhannsson, forseti Bridssambandsins,
afhenti verðlaunin.
Ib Lundby og Inge Keith Hansen eru orðnir fastir gestir á
Bridshátíð. Þau náðu sínum besta árangri, urðu í 8. sæti.