Morgunblaðið - 16.02.1993, Side 33
------MQRGUNBLAÐIÐ ÞmÐJUOACiUR 16. FEBRÚAR T99S----------------------------------------33
Opið bréf til Astvalds Óskarssonar
og annarra sem ferðast um ísland
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Hópurinn sem sá um blótíð.
Hvölsvöllur w
Hippar á þorrablóti
eftirBjörn
Hermannsson
Eftir lestur greinar þinnar í
Morgunblaðinu hinn 10. febrúar sl.
sé ég mig tilneyddan að setja niður
nokkrar línur til þín og allra þeirra
þúsunda íslendinga sem stunda
ferðalög um óbyggðir íslands.
Það er mesti misskilningur að
það sé einhver hneisa að leita að-
stoðar eða hjálpar björgunarsveitar-
manna. Þegar menn eru staddir í
slæmu veðri við mjög vondar að-
stæður, fastir í ís og krapa í straum-
harðri á, er full ástæða til að láta
vita af sér og gefa með því björgun-
arsveitarfólki tíma til að gera þær
ráðstafanir sem til þarf.
Við íslendingar erum þeirrar
gæfu aðnjótandi að hafa á að skipa
þúsundum vel þjálfaðra björgunar-
manna með tækjabúnað á heims-
mælikvarða um land allt. Því miður
hef ég horft á félaga mína úr björg-
unarsveitunum standa yfír orðnum
hlut, hlut sem fór illa, og spyija
sjálfa sig, félaga sína og Guð al-
máttugan; af hvetju var ekki haft
samband við okkur fyrr. Við hefðum
þá kannski átt möguleika á að
„Það er mesti misskiln-
ingur að það sé einhver
hneisa að leita aðstoðar
eða hjálpar björgunar-
sveitarmanna. Þegar
menn eru staddir í
slæmu veðri við mjög
vondar aðstæður, fastir
í ís og krapa í straum-
harðri á, er full ástæða
til að láta vita af sér
og gefa með því björg-
unarsveitarfólki tíma
til að gera þær ráðstaf-
anir sem til þarf.“
bjarga.
Kæri Ástvaldur og aðrir lesend-
ur. Á tímum nútímatækni og upp-
lýsingaskyldu fjölmiðla vill stundum
bregða við að hlutum eru gerð full
mikil skil í fjölmiðlum. Það er nokk-
uð sem við sem að björgunarmálum
stöndum getum ekkert við gert.
Látum ekki bugast, notum skyn-
Björn Hermannsson
semina. Það á vel við máltækið:
„Byrgjum brunninn áður en bamið
fellur ofaní."
Höfundur er framkvæmdastjóri
Landsbjargar, landssambands
björgunarsveita.
Hvolsvelli.
ÞAÐ rikti glaumur og gleði á
þorrablótí Hvolhreppinga sem
haldið var i Hvolnum um síðustu
helgi. Um það bil 300 manns
voru saman komnir tíl að blóta
Þorra sem sýnir að mikill og al-
mennur áhugi er fyrir skemmt-
unum af þessu tagi.
Sá háttur er hafður á að íbúar í
ákveðnum götum á Hvolsvelli sjá
um blótshaldið. Að þessu sinni vom
það íbúar I Króktúni. Þeir komu
fram umbreyttir í hippa og fluttu
friðarboðskap að þeirra hætti sem
kryddaður var ýmsu skondnu sem
á daga hreppsbúa hefur drifíð.
Vöktu góðir leikbúningar og leik-
munir mikla lukku. Mátti m.a. sjá
á sviðinu snjómoksturstæki, kind
og fleira skemmtilegt. Urðu margir
ungir í annað sinn við að riQa upp
hippastemmningu sjöunda áratug-
arins.
- S.Ó.K. _
RAÐAUGÍ YSINGAR
Saltfiskverkun til sjós
Starfsfólk, vant saltfiskverkun til sjós og
lands, óskast. Tilvalið fyrir fyrrverandi skip-
stjóra, stýrimenn, bátsmenn eða verkstjóra.
Störfin felast í eftirlitsstörfum og verkstjórn
í saltfiskverkun til sjós.
Umsóknum, með ítarlegum upplýsingum um
fyrri störf, skal skilað á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 19. febrúar, merktum: „Salt - 8259“.
Hrafnista DAS, Hafnarfirðj
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar á kvöld- og helgar-
vaktir á hjúkrunardeild.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 54288.
Verslunarstjóri
Verslunarstjóri óskast í verslun okkar í
Goðahrauni 1, Vestmannaeyjum.
Reynsla í verslunarstörfum er nauðsynleg.
Upplýsingar gefa Árni Benediktsson í Vest-
mannaeyjum í síma 98-12052, Sigurður
Kristjánsson, kaupfélagsstjóri, Selfossi, í
síma 98-21208, og Guðmundur Búason, að-
stoðarkaupfélagsstjóri, Selfossi,
í síma 98-21207.
© Kaupfélag Árnesinga
Enskunám
Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna?
Skólinn, English 2000, School of English, í
Bournemouth, býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson,
sími 98-75888, heimasími 98-75889.
Langholtssöfnuður
Aðalsafnaðarfundur verður sunnudaginn
21. febrúar, eftir messu, sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa í sóknarnefnd.
Sóknarnefndin.
Útboð
Bessastaðanefnd óskar eftir tilboðum í upp-
steypu og hluta frágangs tveggja nýrra húsa
við Bessastaðagarð. Húsin eru hvort um sig
kjallari, hæð og ris, en 189 m2og 172 m2að
grunnfleti. Verktími er til 15. júní 1994.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu Al-
mennu verkfræðistofnunnar hf., Fellsmúla
26, 108 Reykjavík, 4. hæð, frá kl. 13.00
þriðjudaginn 16. febrúar gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir
kl. 14.00 mánudaginn 8. mars 1993.
Fiskiskiptilsölu
Rúmlega 100 brl. nýlegt skuttogskip. Kvóti
um 100 tonna þorskígildi auk rúmlega 500
tonn af rækju fylgir.
Um 70 brl. nýlegur stálbátur. Báturinn, sem
er yfirbyggður, er búinn á togveiðar, drag-
nót, net og línu. Selst með eða án kvóta.
Tæplega 50 brl. eikarbátur í mjög góðu
standi. Humarkvóti um 4,7 tonn fylgir.
EignahöHmskiPasaia-
28850*28233
Skúli Olafsson
Hilmar Victorsson vióskiptafr.
Stór íbúð eða einbýlishús
íslenski dansflokkurinn óskar eftir 5-6 her-
bergja íbúð eða einbýlishúsi sem allra fyrst.
Leigutími til loka júní. Æskilegt að ejinhver
húsgögn fylgi.
Upplýsingar í síma 679188.
□ HL(N 5993021619 VI 2 Frl.
AD KFUK
Holtavegi
Fundur fellur inn i samkomuviku
í Breiðholtskirkju.
* f
□ EDDA 5993021619 I 1 Frl.
I.O.O.F. Rb. 4= 1422168-9.1. XX
□ FJÖLNIR 5993021619 II 8
Frl.
I.O.O.F. Ob. 1 = 1742168'/2 =
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - CÍMI 682533
Helgarferð 20.-21. febr.
Þórsmörk
í vetrarskrúða
Brottför laugard. kl. 08. Kveöjið
þorrann í Mörkinni. Gönguferðir
eða skíðagöngur. Farmiðar á
skrifstofunni. Pantið tímanlega.
Sunnudagur 21. febrúar: Borg-
argangan 1. áfangi kl. 13: Ráð-
húsið - Öskjuhlið. Skíðaganga
kringum Skarðsmýrarfjall og
fjallganga kl. 11.
Ferðafélag islands.
Jesús '93
VAKNINGARSAMKOMA
með Ulrich Parzany
í Breiðholtskirkju
í kvöld kl. 20.30.
Mikill söngur, fyrirbæn, vitnis-
burðir, sönghópar og orð frá
Guði til þín.
Jesús á erindi við þig.
Velkomin(n) á samkomuna!
KFUM/KFUK/
KSH/SÍK.
Skyggnilýsingarfundur
Breski miðillinn Lesley James
heldur skyggnilýsingarfund i
dag, þriðjudaginn 16. febrúar, í
Ármúla 40,2. hæð. Húsið opnaö
kl. 19.30 og lokað kl. 20.30.
Mætið tímanlega.
Ókeypis kaffi/te.
Miðilsfundir
Breski miðillinn Lesley James
heldur einkafundi næstu daga.
Pantið tímanlega í síma 668570
milli kl. 13-18.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Kvöldvaka F.í. 17. febrúar
Hornstrandir
Miðvikudaginn 17. febrúar
verður kvöldvaka með nýju
sniði í Sóknarsalnum, Skipholti
50a, og hefst stundvíslega
kl. 20.30.
Efni:
1) Hallvaröur Guðlaugsson fjall-
ar um örnefni á Hornströndum,
einkanlega ömefni og sig í Hæla-
víkurbjargi.
2) Dagný Kristjánsdóttir, bók-
menntafræðingur, les sjálfvalið
efni úr skáldverkum Hælavíkur-
skálda.
3) Björn Þorsteinsson, líffræð-
ingur, fjallar um gróðurfar og
sýnir myndir.
4) Jóhannes Kristjánsson les
draugasögu.
Guðmundur Hallvarðsson er
umsjónarmaður kvöldvökunnar.
Aðgangur kr. 500 (kaffi og með-
læti innifalið). Þátttaka í ferðum
Ferðafélagsins til Homstranda
hefur aukist ár frá ári og í sumar
verður unnt að velja um 11 for-
vitnilegar ferðir um svæðið frá
Ingólfsfirði í Strandasýslu til
Hlöðuvikur og einnig liggur leiðin
um Fljótavik, Aðalvík, Hesteyri
og víðar.
Dagsskrá kvöldvökunnar beinir
athyglinni að Iffi þeirra, sem
bjuggu á þessu svæði, og einnig
að því hvemig umhorfs er í dag
á Hornströndum.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Ferðafélag íslands.