Morgunblaðið - 16.02.1993, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993
Skin og* * skúrir
Gústaf Adolf í faðmi fjölskyldunnar og hið ómissandi familísjornal
ekki langt undan.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Baðdagurinn mikli — Den store
baddag. Leiksljóri Stellan Ols-
son. Handrit Olsson og Sören
Skjær, byggt á skáldsögu Palle
Fischer. Tónlist Kasper Wind-
ing. Klipping Tómas Gíslason
og Grete Möldrup. Aðalleikend-
ur Eric Clausen, Nina Gunke,
Benjamin Rothenborg Vibe, Je-
sper Klein, Hasse Alfredsso,
Liselotte Lohman, Bjarne Liil-
Karina Rasmussen. Dönsk.
Pathe Nordisk Film 1992.
Er við rifjum upp æskuárin eru
sólskinsstundimar vonandi í mikl-
um meirihluta hjá flestum en mót-
lætið og hinar óþægilegri stað-
reyndir lífsins þroska okkur og
herða. Öllum lífsnauðsyn að beij-
ast á móti vindi, en í smáskömmt-
um í áhyggjuleysi bemskunnar.
Um þetta fjallar hin ljúfsára
mynd Svía og Dana, Baðdagurinn
mikli. Bakgrannurinn er Kaup-
mannahöfn á tímum kreppunnar,
persónumar mislit hjörð almúga-
fólks í fjölbýlishjalli. Þó einkum
og sér í lagi fjölskylda hins tíu ára
Gústafs Adolfs (Vibe) og foreldrar
hans, jámsmiðurinn Axel (Claus-
en) og Svea (Gunke), sænskættuð
kona hans. Grannamir aukréitis
krydd í litríku umhverfí Gústafs
litla. Spaugið lengstum ofaná,
enda leikstjórinn sænskur en sag-
an og handritshöfundurinn dansk-
ur, notabene.
Það er sumar og sól en hinn
sérlundaði og ráðríki heimilisfaðir
tekur óstinnt í þá hugmynd konu
sinnar að bregða sér á ströndina,
sem þá var að komast í tísku í
Evrópu. Þangað til að honum dett-
ur það sjálfum í hug og þá ekki
verið að skera framkvæmdina við
nögl heldur stormar allur stiga-
gangurinn útað Eyrarsundi með
jámsmiðsfjölskylduna í farar-
broddi. Það verður eftirminnilegur
dagur, einkum fyrir litla Gústaf
Adolf sem fær óvænt að kynnast
heldur nöpram sannleika um föður
sinn. En sólin brýst snarlega aftur
útúr kólgunni.
Danir era jafn fyndnir og fyrri
daginn og lengst af er Baðdagur-
inn mikli dýrðleg skemmtun
krydduð harla óvenjulegri gaman-
semi þegar ijölskyldumyndir eiga
í hlut. Hér fáum við vænan
skammt af kryddlegnum lýsingum
á ævintýram rauparans Axels og
sonur hans hlustar hugfanginn á
lygasögumar er hann varð mösul-
beina niður á argentísku pömpunni
þar sem ekkert var ætt að finna
vikum saman annað en vínþrúgur.
Þó geðslegri lífsbjörg en manna-
ketið á eyðieyjunni. Og þar fram
eftir götunum. Spaugilegasti
kaflinn gerist í dýragarðinum þar
sem þessi litríki og bráðhressi
kjaftaskur kollvarpar skemmtiferð
í tragedíu fyrir ijölskylduna þegar
hún er gerð brottræk úr Paradís,
ástæðan að Axel lendir í handalög-
málum við varðmennina er hann
heldur því fram að lamadýrin séu
grímubúið sauðfé. Sönnunargögn-
in: Þau hrælq'a ekki á móti.
Baðdagurinn er dramatískur
hápunktur myndarinnar og þar
hefðu höfundamir mátt fara að-
eins hægar í sakimar. Sannleikur-
inn er sagna bestur en hér er far-
ið offari, blákaldar staðreyndir
lífsins á skjön við þá ljóðrænu og
draumkenndu upprifjun drengsins
sem á undan er gengin. En þetta
er ósköp lítill ljóður á notalegri
mynd sem er vel heppnuð í flesta
staði. Leikhópurinn vænn; Eric
Clausen stórkostlegur og hin
sænska Gunke og Vibe ungi skila
sínu með piýði. Landi okkar, Tóm-
as Gíslason, klippir af fagmennsku
og samvinna þeirra Olsons og
Skjær hefur fætt af sér eftirminni-
lega og sérstaka fjölskyldumynd.
handavínna
■ Silkimálun,
myndverk úr efnisbútum og fatasaumur.
Innritun hafin. Aðeins fáar í hóp.
Upplýsingar gefur Björg í sima 611614.
myndmennt
.......... 1 [i ...........
■ Myndlistaskóli Suðurlands
Næstu námskeið vorannar:
27. febrúar hefjast bama- og unglinga-
námskeið, módelteikning og málun,
pappírsgerð og leirmótun.
Innritun til 24. febrúar.
27. mars hefjast námskeið í teikningu,
vatnslita- og akrílmálun, skipulagningu
einkalóöa, grafik og bamanámskeið.
Kennsla fer fram á Selfossi og í Hvera-
gerði.
Innritun og nánari upplýsingar í
síma 91-39035 frá kl. 17-19 aila
virka daga nema miðvikudaga
kl. 17-18.
Hægt er að skilja eftir skilaboð á sím-
svara á öðrum tímum.
nudd
■ Heígarnámskeið
★ Lærið að nudda vini og vandamenn.
★ Helstu grunnatriði í heilnuddi.
★ Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
★ Afsláttur fyrir hjón og pör.
Ragnar Sigurðsson, nuddari,
sími 620616 eftir kl. 19.00.
starfsmenntun
P Bókhalds- og
rekstrarnám 68 tímar
Morgun- og kvöldtimar
Aðalnámsgreinar:
★ Hlutverk bókhalds, bókhaldslög.
★ Bókhaldsæfingar og gerð milliupp-
gjörs.
★ Launabókhald.
★ Skil og innheimta virðisaukaskatts.
★ Raunhæft verkefni
- frágangur, afstemmingar, milliupp-
gjör
- samning rekstrar- og efnahags-
reiknings.
★ Tölvubókhald - ÓpusAllt.
Viðskiptaskólinn,
* Skólavörðustíg 28, sími 624162.
stjórnun
■ Breyttu áhyggjum
í uppbyggjandi orkul
ITC námskeiðið, markviss málflutmngur.
^ Símar: Guðrún 46751, Kristín
34159 og Vilhjálmur 78996.
tölvur
■ Tölvuskóli í fararbroddi
Úrval vandaðra námskeiða. Reyndir leið-
beinendur. Kynntu þér námsskrána.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ Windows og PC grunnur
9 klst. um Windows og grunnatriði PC
notkunar 1.-3. kl. 13-16.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ PageMaker umbrotsnámskeið
15 klst. námskeið fyrir þá sem sjá um
útgáfu fréttabréfa, ársskýrslna, eyðu-
blaða og annars prentaðs efnis, 22.-26.
mars kl- 13-16.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ DOS stýrikerfið - framhald
Námskeið 3.-5. mars kl. 13-16 sem
kennir möguleika DOS við uppsetningu
og notkun tölvubúnaðar.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ CorelDraw myndvinnsla
Námskeið 17.-25. febrúar kl. 13-16
(ath. breytta dags.) fyrir þá, sem þurfa
að nota grafík í auglýsingum, dreifi- og
kynningarritum o.fl.
Rafn Jónsson leiðbeinir.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ AUTOCAD 12 tölvuhönnun
AutoCad grunnnámskeið 22. febrúar-
1. mars kl. 9-12. Framhaldsnámskeið
15.-22. mars kl. 9-12.
Aðeins 7 manns komast að.
Finnur P. Fróðason, leiðbeinir.
Töivuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ EXCEL og WORD byrjenda- og
framhaldsnámskeið
ftarleg og árangursrik námskeið. Tónlist
auðveldar námið. Næstu námskeið:
Word byrjendur 1.-4. mars kl. 13-16.
Word framhald 22.-26. feb. kl. 13-16.
Excel byrjendur 2.-5. mars kl. 9-12.
Excel framhald 23.-25. feb. og 16.-18.
mars kl. 9-12.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ Macintosh fyrir byrjendur
15 klst. um stýrikerfi, ritvinnslu, gagna-
söfnun og töflureikni. 180 bls. handbók
fylgir, 22. -26. febrúar kl. 9-12.
Einnig kvöldnámskeið, tvisvar í viku,
2.-16. mars kl. 19.30-22.30.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ Excel töflureiknirinn
15 klst. ítarlegt námskeið fyrir Macin-
tosh og Windows notendur 22.-26.
febrúar kl. 16-19 eða tvisvar í viku á
kvöldin 1.-15. mars kl. 19.30-22.30.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ Öll tölvunámskeið á PC
og Macintosh
Fáðu senda námsskrá.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, Grensásvegi 16,
sími 688090.
■ Excel framhaldsnámskeið
12 klst. framhaldsnámskeið fyrir þá sem
sótt hafa grunnnámskeið okkar um Excel,
1.-4. mars kl. 16-19.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ Word Perfect fyrir Windows
Ritvinnsla á íslensku, 15 klst. 22.-26.
febrúar kl. 13-16.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ Kennarabraut
fyrir Macintoshnotendur
15 klst. um stýrikerfi, ritvinnslu, gagna-
söfnun og töflureikni. 180 bls. handbók
fylgir, 22.-26. febrúar kl. 9-12.
Einnig kvöldnámskeið, tvisvar í viku,
2.-16. mars ki. 19.30-22.30.
Tölvuskóli Tölvu- og verkfræði-
þjónustunnar, s. 688090.
■ Tölvuskóli EJS
býður upp á vönduð tölvunámskeið
hjá góðum kennurum.
Meðal námskeiða á næstunni:
Byrjendanámskeið um tölvunotkun
Heppilegt námskeið fyrir þá, sem vilja
fá kynningu á undirstöðuatriðum við
tölvunotkun, m.a. fjallað um grunnatriði
stýrikerfisins MS-DOS og Windows.
Helgarnámskeið 27.-28. febrúar og
3.-5. mars kl. 13-16.
Windows 3.1
ítarlegt námskeið um undirstöðuatriði
gluggastýrikerfisins.
22.-24. febrúar kl. 13-16.
Byrjendanámskeið um ritvinnslu-
forritið Word fyrir Windows
22.-26. febrúar kl. 13-16.
Byrjendanámskeið um vinsælasta
töflureikninn: Excel
1.-4. mars kl. 13-16.
Works fyrir Windows.
1.-4. mars kl. 9-12.
Frekari upplýsingar um þessi og önnur
námskeið hjá
Tölvuskóla EJS,
Grensásvegi 10,
sími 633000.
Tölvukennsla
Við ábyrgjumst árangur:
1) Aðeins 6 í hverjum hóp.
2) Aukatúnar að kostnaðarlausu þar til
skilgreindum markmiðum er náð.
3) Frír símatími í 6 vikur eftir að nám-
skeiði lýkur.
4) 6 upprifjunartímar í jafnmargar vikur
að námskeiði loknu.
Glæsilegri aðstaða fyrir lægra verð.
Fríar veitingar.
■ Bókhaldsnám
Bókfærsla fyrir byrjendur (16 klst.)
Bókhaldsnám fyrir þá sem starfa vilja
sjálfstætt við bókhald (72 klst.).
Með náminu fylgir skólaútgáfa af fjár-
hagsbókhaldi og 15.000 kr. ávísun til
kaupa á bókhaldshugbúnaði.
Boðið er upp á dag- og kvöldnámskeið.
Innritun stendur yfir.
1 ýmislegt
■ Stafsetningamámskeiðin
eftirsóttu eru að hefjast.
Nýjar aðferðir. Góður árangur.
Vanir réttindakennarar.
Upplýsingar og innritun í síma
668143 alla daga eftir kl. 19.00.
■ Barnfóstrunámskeið E^a 1993
17., 18., 22. og 23. mars.
24., 25., 29. og 30. mars.
14., 15., 19. og 20. apríl.
26., 27., 28. og 29. apríl.
3., 4., 5. og 6. maí.
24., 25., 26. og 27. maí.
2., 3., 7. og 8. júní.
9., 10., 14. og 15. júní.
Upplýsingar og skráning: Sími 688 188
kl. 8-16.
Reykjavíkurdeild RKÍ.
nAmsaðstoð
■ Námsaðstoð við grunn-, framhalds-
og háskólanema. Flestar námsgreinar.
Einkatímar - hópar.
Reyndir réttindakennarar.
Innritun í síma 79233 kl. 14.30-18.30.
tómstundir
Nemendafjónustan sf.
■ Ættfræðinámskeið.
5-6 vikna (20-24 kennslustundir) eða
helgamámskeið, einnig úti á landi, auk
framhaldsnámskeiða. Mikil verðlækkun.
Uppl. í s. 27100, 22275.
Ættfræðiþjónustan, Brautarholti 4.
tungumál
■ Enskuskóii nærri York
Alm. námskeið 2-20 vikur. Stöðupróf í
upphafi náms. Fámennir hópar (6-7).
Viðurkennd próf ef óskað er.
Upplýsingar gefa Marteinn eða
Ágústfna, sími 32492 eftir kl. 19.
■ KINSALE SCHOOL
OFLANGUAGES
„ The Perfect Place to Learn English“
Mjög góður enskuskóli syðst á írlandi á
landsvæði, sem er rómað fyrir fegurð.
• Enska f. einstaklinga eða litla hópa.
• Námskeið í enskri tungu og menn-
ingu fyrir erlenda enskukennara.
• Viðskiptaenska.
Persónuleg kennsla. Mjög góð aðstaða
og möguleikar á tómstundaiðkunum.
Sími/fax: 90-353-21-774545
M. Ross,
Kinsale School of Languages,
Sandycove, Kinsale, Co. Cork,
írska lýðveldinu.
■ Bréfanám er góður kostur
Þú sparar tíma og ferðakostnað
og ræður námshraðanum.
Við notum kennslubréf, hljóðbönd,
myndbönd, síma, simbréf og náms-
ráðgjöf til að aðstoða þig.
Erlend tungumál, íslenska fyrir útlend-
inga, íslensk stafsetning, starfsmenntun,
nám á framhaldsskólastigi, teikning, sál-
arfræði o.m.fl.
Sendum ókeypis kynningarefni um
allt land, sími 91-629750.
■ Bréfaskólanámskeið
Teikning 1 og 2. Litameðferð. Listmálun
með myndbandi. Skrautskrift. Híbýla-
fræði. Innanhússarkitektúr. Garðhúsa-
gerð. Teikning og föndur. Húsasótt og
bíóryþmi.
Fáðu sendar upplýsingar um skól-
ann með því að hringja í síma 91-
627644 allan sólarhringinn eða
skrifaðu okkur í pósthólf 1464,
121 Reykjavík.