Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 31
800! .VffAMjP 'HíinAíim.WíM *HJBIHWm\It*IIMí»IV OjriAJpUljtljfrtNt MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 31 Greiðslumiðlun Hagnaður Kreditkorta um 68 milljónir VELTA Kreditkorts hf. á sl. ári nam alls 13,2 milljörðum króna og jókst um 7,6% á árinu. Hagnaður ársins var um 68,4 milljónir eftir tekju- og eignarskatt en 114 milljónir fyrir skatt. Eigið fé í lok árs- ins var alls 419,7 milljónir og hlutfall þess af heildareignum 28,7%. Arðsemi eiginfjár var tæp 19%. Þetta kom fram á aðalfundi fyrirtæk- isins sem haldinn var þann 5. febrúar sl. en þar var samþykkt að greiða hluthöfum 15% arð. Notkun korthafa innanlands var um 75% af heildarveltu og notkun erlendis um 15% af veltunni. Kort- hafar Eurocard voru alls tæplega 33 þúsund um síðustu áramót og fjölgaði þeim um 7% á árinu. Hins vegar fjölgaði gullkorthöfum um 10%. Færslum flölgaði um 26% á sl. ári og var heildarfjöldi þeirra um 4,3 milljónir. í ræðu sinni á aðalfundinum flall- aði Tryggvi Pálsson, stjómarfor- maður félagsins, m.a. um markaðs- starfið og þjónustu Kreditkorts hf. Þar kom fram að kortaúrval jókst hjá fyrirtækinu í fyrra því hafin var útgáfa á tveimur nýjum tengikort- um, Sportkorti og Sámkorti. Á þessu ári bætist við ferðakortið Atlas. Þjónusta við gullkorthafa var efld verulega á síðasta ári með til- komu símaþjónustu sem nefnd hef- ur verið kortasími Eurocard. Getur þetta sparað korthöfum töluverðar ijárhæðir og eru dæmi um að sím- tal gegnum hótel í Svíþjóð hafi ver- ið sexfalt dýrara ef hringt var gegn- um símakerfi hótelsins en í gegnum kortasíma Eurocard. Tryggvi vék einnig að væntan- legum staðgreiðslukortum (debet- kortum) og sagði að stefnt væri að útgáfu fyrstu kortanna fyrir næsta sumar. Hann kvað það ánægjulegt hvað undirbúningi miðaði nú loks vel áfram í þessu mikla máli en eftir væri taka ákvarðanir um það atriði sem mestu skipti um afkomu banka og sparisjóða af allri greiðslukortastarfseminni, þ.e. verðlagningu kortanna. Þegar hefur verið ákveðið að staðgreiðslukortin verði alþjóðleg debetkort sem tengj- ast munu heimsneti greiðslukorta- fyrirtækjanna. Korthafa verður því í sjálfsvald sett hvort hann vill held- ur fá aðgang að heimsneti Eurocard méð Maestro korti eða heimsneti Visa með Visa Electron korti. í stjóm Kreditkorts voru endur- Iqömir þeir _ Tryggvi Pálsson, bankastjóri íslandsbanka, Hall- grímur Jónsson, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði vélstjóra, Ragnar Onund- arson, framkvæmdastjóri hjá ís- landsbanka, Björgvin Viimundar- son, bankastjóri Landsbankans og Jón Adólf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðarbankans. IKEA Gengisþróun lækk- ar verð um 5-10% IKEA hefur ákveðið að lækka verð á mörgum vörum sem koma frá Sviþjóð um 5-10% vegna gengisþróunar. Gestur Hjaltason í IKEA seg- ir að lækkunin sé einnig á þeim vörubirgðum IKEA sem greiddar voru fyrir gengisfellinguna í nóvember. Ný kynslóð ORACLE þróunarverkfæra Kynning að Holiday Inn fimmtudaginn 4. mars, kl. 13.15 -16.30 Oracle ísland heldur kynningu á nýrri kynslóð þróunarverkfæra fyrir Windows 3.1. ORACLE Forms ORACLE Reports ORACLE Graphics ORACLÉ Books ORACLE Data Browser Kynningin fer fram á ensku undir leiðsögn Jan Vels Jensen frá Oracle Danmark A/S. Þátttaka er ókeypis og óskast tilkynnt í síma 91-623088. ORACLE ísland Borgartiini 24 105 Reykjavík Sími 91-618131 Fax 91-628131 Þ.á m. eru eldhúsinnréttingar sem notaðar hafa verið við útreikinga á byggingarvísitölunni og því gerir hann ráð fyrir að lækkuninin hafi bein áhrif á vísitöluna. „IKEA flytur inn vörur frá ýmsum löndum. Þær eru greiddar í sænskum krónum eða bandarískum dollurum. Hækkun dollarans hefur verið 20% sl. 4 mánuði og kostnaðarverð þeirra vara hefur því hækkað. Þrátt fyrir það ætlum við að halda verðinu á þeim vörum óbreytu og mun svo verða áfram nema dollarinn hækki ennfrekar," segir Gestur. Metsölublað á hverjum degi! STORVIÐBURÐUR f ÍSLEIHSKU VKtSKIPTALfFI Philip Kotler heldur námsstefnu í íslensku Óperunni 5. mars næstkomandi sem nefnist: ..Altæk markaðssetning: Árangursrík sóknarstefna fyrir markað tíunda áratugarins." Námsstefnan hefst kl. 9:30 árdegis og stendur til kl. 16:30. Þátttökugjald fyrir félaga í ÍMARK er kr. 14.700 og kr. 19.700 fyrir aðra. Innifalið er hádegisverður og kaffiveitingar. Þátttökugjaldið má greiða með VISA og EURO. Skráning fer fram í síma 680945 (fax 680965) hjá NIKO hf., Engjateigi 5. Látið þennan einstaka viðburð ekki fara framhjá ykkur. Skráið ykkur strax á námsstefnu Philips Kotler. Þeir sem vilja gerast félagar i ÍMARK og tryggja sér aðgöngumiða á námsstefnu Philips Kotler á lægra verði geta sótt um aðild með því að hringja í NIKO hf., sími 680945 (fax 680965) eða senda skriflega umsókn til ÍMARK, pósthólf 8843, 128 Reykjavík. Árgjaldið er kr. 4.000 og veitir félagsmönnum aðgang að fiölbreyttri starfsemi (MARK á lægra verði en ella. IMABK- íslenski markaðsklúbburinn / SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.