Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 17 Svona bara eftirÁrna Helgason Við getum ekki lifað af þessu, segir fólkið, án þess að nefna nokkra upphæð. Ríkisstjómin er alveg að gera út af við okkur. Og formenn verkalýðssamtakanna o.fl. sem hafa mörgum sinni meiri laun en þeir sem látnir eru flytja þennan boðskap, gefa heldur ekki upp hvað þeir hafa fyrir að kyija þennan söng. Aldrei heyrist í dag, að fara vel með hlutina. Aldrei heyrist að neyta hollrar fæðu eða ekki fyrr en á sjúkrahús er komið. Það er ekki verið að hugsa um þótt tekjur þjóðarinnar minnki ár frá ári og jafnframt skuldahalinn við erlend ríki stækki að sama skapi. Nei, það kemur mér ekki við segja forystumenn launþeg- anna, við verðum að fá okkar. Það eru nógir peningar í landinu og við vitum hvar þeir eru og það þarf bara að sækja þá. Þetta ætl- uðu Alþýðubandalagsmenn líka að gera ef þeir fengju tækifæri og það fengu þeir en síðan ekki sög- una meir og svona einfalt er það. Það eru nefnilega ekki þeir heldur aðrir. Og væri nú gaman ef Al- þýðubandalagsmenn vildu nú ná í þessa peninga sem þeir gleymdu, þótt ekki væri nema fyrir fátæk- asta fólkið. í laugardagsblaði Mbl. 13. febr- úar er sagt frá trafíkinni í einni af útsölum ÁTVR í Reykjavík. Viðskiptamenn létu ekki veður hafa áhrif á sig, fengu jafnvel af- greiðslu í myrkri og í biðröðinnni fyrir utan þraukuðu yfír 100 manns. Þar var ekki að sjá né heyra að peninga vantaði og ekki hafa þeir sem mikla peninga áttu verið þar. Það skyldu þó ekki hafa verið meirihluti þarna af „kvein- stafafólki“ sem ekki getur „lifað af launum sínum“ þama á ferð og kæmi mér það ekkert á óvart svo mikið hefí ég séð af blekkingum, ósannindum og undirferli um dag- ana. Væri þetta verðugt rannsókn- arefni. Og svo veit fólkið um allt bölið og óhamingju af völdum vímuefnanna. Það verður aldrei með tárum talið og hve margt framtíðarmannsefnið hefir farið í gröfina af völdum þess, það verður aldrei með tölum talið. Eigi leið þú oss í freistni, heyram við oft, en hversu margir eru til þess að leiða mein í freistni þegar þeir þurfa að græða á vímuefnasölu. Og svo hvernig verður ævi þeirra þegar að lokum líður. Gamall og reyndur lögreglumaður fullyrti við mig að meira en Vw af því sem lögreglan væri að snúast í kringum Lífskjör eldri kvenna á Norðurlöndum ANNAR fræðslufundur Kárs- nessóknar á þessum vetri verð- ur í safnaðarheimilinu Borgum, Kastalagerði 7, miðvikudags- kvöldið 3. mars klukkan 20.30. Á fundinum segir Sigríður Jóns- dóttir félagsfræðingur frá rann- sóknum á lífskjörum eldri kvenna á Norðurlöndum. Allir eru velkomnir á fundinn, hvaðan sem þeir koma og, er þess vænst að flestir sjái sér fært að veija einni kvöldstund með svo ágætum fyrirlesara. (Fréttatilkynning) „Gamall og reyndur lögreglumaður fullyrti við mig að meira en 9/io af því sem lögreglan væri að snúast í kring- um væri af völdum vím- unnar.“ væri af völdum vímunnar. Þarna væri hægt að spara mikið í þjóðar- búinu. Þetta er því miður satt og rétt. Okkur vantar ekki fé sagði gamall maður við mig um daginn. Nei. Við þurfum að útiloka vímuna og fá meira af sönnum kristin- Árni Helgason dómi. Þá kemur annað af sjálfu sér. Ekki hálfvelgju kirkjunnar. Höfundur er fyrrverandi póst- og símamálastjóri í Stykkishólmi. VASKHUGI Nú er rétti tíminn til að bæta vinnuumhverfið þitt svo um mun- ar. Með Vaskhuga uppfyllir þú ekki aðeins kröfur hins opinbera um skattskil, heldur er staða rekstrarins alltaf á hreinu. Vaskhugi er eitt forrit með öllum kerfum, sem venjulegur rekstur þarfnast, þ.e. sölukerfi, fjárhagsbókhaldi, birgða-, viðskipta- manna- og verkefnabókhaldi, hefti, ritvél og mörgu fleira. Tugir gagnlegra skýrslna sýna sölusögu, útistandandi kröfur, skulda- stöðu, virðisaukaskatt o.fl. o.fl. Vaskhugi prentar sölureikninga, gíróseðla, póstkröfur, víxla, lím- miða o.s.frv. Allt þetta fæst með einföldum skipunum. Og það besta er að Vaskhugi kostar aðeins 48.000 kr. Prófaðu Vaskhuga í 15 daga án skuldbindinga. Hringdu og fáðu sendar upplýsingar um þetta frábæra forrit, eða komdu við og skoðaðu möguleikana. Vaskhugi hf. Grensásvegi 13, sími 682680, fax 682679. TVÖ AF VIRTUSTU TÖLVUTÍMARITUM HEIMS VEITA AMBRA VIÐURKENNINGAR FYRIR EINSTÖK GÆÐI Á ÓTRÚLEGA LÁGU VERÐI AMBRA hefur farið sigurför um heiminn og hvarvetna slegið í gegn fyrir frábær gæði á einstaklega lágu verði. Það er einmitt fyrir þetta sem tvö af virtustu tölvutímaritum heims, PC Magazine og PC Today, hafa veitt AMBRA sérstakar viðurkenningar sem staðfestir að þegar þú kaupir AMBRA tölvu færðu mun meiri gæði en þú borgar fyrir. Auk þess færðu ýmislegt í kaupbæti þegar þú kaupir AMBRA tölvu. Hún kemur með DOS 5.0 og WINDOWS 3.1 uppsettum og er því tilbúin til notkunar. Láttu ekki einstaka tölvu úr hendi sleppa. Komdu í Nýherja, Skaftahlíð 24 og kynntu þér hvað þú færð stórkostleg gæði fyrir skemmtilega lágt verð. AMBRA er fyrir alla. A M B R -A NÝHERJI SKAFTAHllÐ 24 • SlMI 69 77 00 & 69 77 77 Alltctf skrefi á undan © ( Raðgreiðslur GREIÐSLUSAMNINGAR *Staðgreiðsluverð með VSK. H

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.