Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 35 7 Minning Hlíf Kristjánsdóttir Fædd 12. janúar 1913 Dáin 20. febrúar 1993 Hlíf Kristjánsdóttir fæddist 12. janúar 1913 í Stapadal, Auðkúlu- hreppi, V-ís. Hún dó 20. febrúar 1993 á St. Jósefsspítala í Hafnar- firði. Foreldrar hennar voru Kristján Kristjánsson hreppstjóri í Stapadal, f. 22. október 1844 á Borg í Auð- kúluhreppi, d. 8. apríl 1928, og ráðskona hans, Guðný Guðmunds- dóttir, f. 7. október 1881 á Homi, Auðkúluhreppi, d. 5. september 1957, og var hún annað bam þeirra. Kristján var ekkjumaður og hafði átt 15 böm í hjónabandi. Hann var sonur Kristjáns sterka á Borg, Guð- mundssonar skutlara í Vigur, Guð- mundssonar saltkarls í Reykjanesi og bónda á Auðkúlu, Arasonar bónda á Haukabergi, Jónssonar bónda í Reykjafirði við Djúp, Hann- essonar læknis og bónda sama stað, Gunnlaugssonar. Kristján á Borg átti Guðbjörgu Markúsdóttur prests á Álftamýri, Þórðarsonar stúdents í Vigur, Ólafssonar bónda á Eyri í Seyðis- fírði, Jónssonar. Móðir Guðbjargar var Þorbjörg Þorvaldsdóttir hreppstjóra í Hvammi í Dýrafírði Sveinssonar en amma hennar, móðir sr. Markúsar, var Valgerður Markúsdóttir Mála- Snæbjarnarsonar. Guðmundur skutlari í Vigur átti Guðbjörgu Þorláksdóttur prests á stað á Snæfjallaströnd. Guðmundur Arason á Auðkúlu átti Guðbjörgu Sæmundsdóttur bónda á Gemlufalli, Sigmundsson- ar. Kona Ara Jónssonar var Guðrún Þórðardóttir lögréttumanns á Haukabergi, Bjarnasonar. Kona Jóns Hannessonar var Hall- björg Ásgeirsdóttir bónda á Ósi í Steingrímsfirði, Sigurðssonar. Guðný, móðir Hlífar, var dóttir Guðmundar húsmanns og bónda á Horni og Kirkjubóli í Mosdal, Gísla- sonar bónda í Kirkjuhvammi á Rauðasandi, Magnússonar bónda á Hlaðseyri og víðar, síðast í Hænu- vík, Halldórssonar bónda á Geirs- eyri, Magnússonar prests í Árnesi og Garpsdal, Halldórssonar prests í Ámesi, Magnússonar prests á Stað í Steingrímsfirði, Einarssonar prests á Stað, Sigurðssonar prests á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, Ein- arssonar skálds í Eydölum, Sigurðs- sonar. Kona Guðmundar á Horni var Sigríður Karólína Jónsdóttir bónda í Rauðsdal lægri, Ólafssonar bónda á Neðra-Vaðli, Ólafssonar bónda í Tungumúla. Þessar framanrituðu ættgreinar eru ekki settar hér fram til að hreykja upp hinni framliðnu, því einskis slíks þarf hún með, heldur til að sýna hvemig hún var af sterk- um stofnum þar sem engan bláþráð var að finna. Þannig var hún líka sjálf, gegnheil, hrein og bein, einörð og föst fyrir eins og vestfirsku ijöll- in. Ef til vill var skap hennar líka eins og aldan við núpana, ólgandi undir niðri en agað og háttbundið. Það mundi líka vera sannmæli að líkja henni við marga kristals- fleti í einum steini þar sem ljós skín af þeim öllum og þó ólíkum. Höfðingslund sannarleg var í henni, það var henni eiginlegt að gefa og veita á báðar hendur og munu margir hafa reynt það. En eins og hún var hispurslaus og höfðingja- djörf þannig var hún líka nærgætin og skilningsrík á mannlegt eðli í þess margvíslegu myndum. Það fór ekki í rifinn sjóð sem henni var þá trúað fyrir því að orðheldni og áreið- anleiki í samskiptum öllum voru henni eiginleg. Hún unni skáldmennt og ljóða- gerð og gætti þar áhrifa frá heimil- inu í Stapadal, því faðir hennar var skáldmæltur eins og margt þeirra ættmonna, orti til dóttur sinnar á barnsaldri og dáði hana mjög. Ef til vill var það eitthvert skálda- blóð sem gerði Hlíf að ræktunar- konu eins og hún var. Ef til vill orti hún ljóð sín í garðinum við Hellisgötu sem var oft eins og ævin- týraþula eða syrpa af hugnæmum smáljóðum. Þar hafði Hlíf farið höndum um og þar átti hún sínar stundir. Ævinlega var lærdómsríkt að eiga tal við Hlíf, eitthvað nýtt eða óvænt kom í ljós og hver heimsókn varð eftirminnileg á einhvem sér- stakan hátt og nú að leiðarlokum er mikil birta yfir þeim minningum. Það er sólskin liðinna daga, birta sem ekki dvín. Við hlið Hlífar Krist- jánsdóttur stóð Jóhannes Ágúst Magnússon. Hann var nokkru eldri, fæddur 4. ágúst 1909 og dó 16. janúar 1978, einstakur dugnaðar- og mannkostamaður. Þau gengu í hjónaband 17. desember 1932 og stofnuðu heimili í svokölluðu Fé- lagshúsi sem foreldrar hans höfðu byggt. Þau bjuggu þar alla tíð sam- an. Böm þeirra urðu þrjú. a) Guð- leif, f. 28. mars 1933, húsfreyja í Hafnarfirði. Eiginmaður hennar er Þorsteinn Sigvaldason rannsókna- maður og eiga þau fjögur böm. b) Kristján Magni, f. 2. janúar 1945, vélvirki í Hafnarfirði. c) Magnús, f. 9. janúar 1951, viðskiptafræðing- ur. Kona hans er Guðríður Guð- mundsdóttir lögfræðingur og eiga þau tvö böm. Börn hennar og barnabörn eiga auðvitað dýrasta minningasjóðinn um foreldra sína. En þeir eru líka fjölmargir samferðamennimir og nánir ættingjar sem munu minnast þeirra nú og ævinlega með virðingu og þökk. Það er margs að minnast, sumt varð aldrei fullþakkað og aldr- ei greitt. Við systurbörn Hlífar sendum bömum, tengdabömum og bamabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Á.S. t JÓN HALLGRÍMSSON, Reykhúsum, Eyjafjarðarsveit, andaðist 25. febrúar. Jarðarförin fer fram laugardaginn 6. mars kl. 13.30 aö Grund. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Styrktarsjóð Kristnesspítala. Vandamenn. t Útför systur minnar og fóstru, LAUFEYJAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Baldursgötu 1, Reykjavík, sem andaðist þann 23. febrúar, verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. mars kl. 13.30. Sigríður Guðmundsdóttir, Sigurður R. Sigurðsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGA ÁGÚSTA ÞORKELSDÓTTIR, Helgugötu 1, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 3. mars kl. 14.00. Björn Hjörtur Guðmundsson, Birgir Björnsson, Einar Oddur Kristjánsson, Ágústa Einarsdóttir, Ríkharður Harðarson, Aiexander Jarl Rikharðsson, Kristján Einarsson, Hafdís Einarsdóttir, Jóhanna Birna Einarsdóttir, Björn Hjörtur Einarsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL H. WÍUM málarameistari, Drápuhlíð 15, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 3. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag fslands. Karl Viðar Pálsson Wíum, Narfi P. Wíum, Svanhvít Aðalsteinsdóttir, Guðlaug P. Wíum, Ragnar S. Magnússon, Hlín P. Wíum, Árni H. Árnason, Einar Sveinbjarnarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær dóttir okkar, móðir mín, unnusta og systir, ANNA MARÍA KJARTANSDÓTTIR, Miðvangi41, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 2. mars, kl. 15.00. Alma Þorláksdóttir, Erna B. Kristinsdóttir, Kjartan Hjörvarsson, Edith Alvarsdóttir, Ólafur Árnason, Hjörleifur Harðarson, Hjörvar Kjartansson, Esther Ýr Kjartansdóttir. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu og virðingu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS E. GUÐMUNDSSONAR frá Mosvöllum. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Þorvaldur Ólafsson, Brynja Jóhannsdóttir, Kristin Á. Ólafsdóttir, Óskar Guðmundsson, Eggert Ólafsson, Sigrún Þorvarðardóttir, Snjólfur Ólafsson, Guðrún S. Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU PÁLSDÓTTUR frá Uppsölum. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarliði og starfsfólki á dvalar- heimilinu Hlíö. Garðar Vilhjálmsson, Sigríður Garðarsdóttir, Gylfi Garðarsson, Páll Garðarsson, Sigurrós Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir til allra sem sýnt hafa samúð vegna fráfalls SIGTRYGGS VILHJÁLMSSONAR frá Þórshöfn. Kristrún Jóhannsdóttir, Selma Rut Sigtryggsdóttir systkini og aðrir ástvinir. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, HELGU SIGURÐARDÓTTUR, Móabarði 34. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar Borgarspítalans. Sigurbjörg Njálsdóttir, Sigurður N. Njálsson, Guðrún Ágústsdóttir, Sigurður G. Njálsson, Sigurleif Sigurðardóttir, Steinunn E. Njáisdóttir, Hans B. Guðmundsson, Elín H. Njálsdóttir, Magnús Ólafsson og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra sem heiðruðu minningu mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURGEIRS FINNBOGASONAR, Maríubakka 2, Reykjavfk, og sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför hans. Alveg sérstakar þakkirfærum við hjúkr- unarfólki í Sjálfsbjargarhúsinu, 4. hæð, fyrir einstaka hjúkrun og umönnun í veikindum hans. Blessun Guðs fylgi allri starfsemi Sjálfsbjargar. Hulda Bertel Magnúsdóttir, Finnbogi Steinar Sigurgeirsson, Magnús Líndal Sigurgeirsson, Mahdja Mohamed og afabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.