Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 Atvinnumál í brennidepli á 77. Búnaðarþingi sem sett var í gær Hafa verður trú á því að hægt sé að vinna sig út úr vandanum - sagði Jón Helgason formaður Búnaðarfélags Islands í setningarræðu BÚNAÐARÞING var sett í 77. sinn í gærmorgnn að viðstöddum for- seta íslands, landbúnaðarráðherra og fleiri gestum. Jón Helgason, formaður Búnaðarfélags íslands, setti þingið, og að því loknu fluttu ávörp þeir Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, og Haukur Halldórs- son, formaður Stéttarsambands bænda. A þinginu voru lögð fram rúmlega 20 mál til umfjöllunar, en þar verður að þessu sinni meðal annars fjallað um stöðu atvinnumála í dreifbýli, samninginn um EES, og frumvarp um breytingar á jarðalögum. Búnaðarþing sitja 25 fulltrú- ar, sem kjörnir eru til fjögurra ára í senn á 15 búnaðarsambandssvæð- um, og er þetta þriðja þing þessa kjörtímabils. Jón Helgason, formaður Búnað- úrræðið ekki að halda áfram að arfélags íslands, vék meðal annars að sölu búvara í setningarræðu sinni, og gat þess að það mál hefði verið aðalumræðuefnið á síðasta ársfundi Alþjóðabændasamtakanna. Þar hefðu allir verið á einu máli um þá hættu sem stafaði af sívaxandi tök- um alþjóðlegra hlutafélaga á verslun með matvöru, en örfá fyrirtæki önn- uðust víða meirihluta þeirra við- skipta, og í krafti aðstöðu og stærð- ar á markaðnum settu þau bændum stólinn fyrir dyrnar um verð á afurð- um en ákvæðu verðið til neytenda í litlu samræmi við það. Gæta þarf hagsmuna á fleiri sviðum en áður „Þetta leiðir hugann að því hversu mikilvægt er fyrir íslendinga, bæði bændur og neytendur, að hagkvæmt skipulag sé á dreifingu og sölu búvara hér í okkar fámenna og stijálbýla landi. Þau mál hafa líka verið mikið til umræðu hjá okkur vegna þeirra miklu breytinga sem nýgerðir búvörusamningar hafa í för með sér. Það er eitt þeirra mörgu málefna sem íslenskir bændur þurfa að standa að með samtökum sínum. En vegna vaxandi fjölbreytni innan landbúnaðarins og jafnvel sérhæfingar í hverri grein þarf að gæta hagsmuna bænda á miklu fleiri sviðum en áður. Af því hefur leitt fjölþættara félagskerfi. Sú þróun veldur umræðunni um flókið félagsmálakerfi bændastéttarinnar. Sumt af því sem um það er sagt er á misskilningi byggt vegna þess að ekki er haft í huga að hve mörgu þarf að hyggja," sagði Jón. Hann sagði að hins vegar yrði ekki of mikil áhersla lögð á nauðsyn þess að allir gerðu sér grein fyrir að markmið allra væri eitt, að vinna að hagsmunamálum bænda. Því væri mikilvægt að búgreinarnar hefðu nána samvinnu og sæktu stuðning hver til annarrar og heild- arsamtakanna. Það væri kostur hve margir aðilar hefðu aðstöðu á sama stað í Bændahöllinni og auðveldaði það þeim að leita aðstoðar og sam- ráðs hver hjá öðrum. „Stjórnendur stofnana hér hittast að jafnaði einu sinni í viku til að fjalla um sameiginleg málefni. Rætt er um betri skipulagningu hér innan- húss og breytingar á félagskerfínu. Þar má vafalaust færa ýmislegt til betri vegar. Aðalatriðið er þó að all- ir hafí það ríkt í huga að það er sameiginlegt áhugamál að árangur starfsins verði sem bestur og því verði að leggja hver öðrum lið til að ná því markmiði. Vaxandi fjöl- breytni landbúnaðarins hefur ekki aðeins áhrif á félagskerfí hans held- ur einnig á þjónustustofnanirnar, rannsókna- og leiðbeiningaþjón- ustuna. Þar vex stöðugt krafan um sérþekkingu, en um leið verða þá möguleikarnir fleiri.“' Atvinnumálin í brennidepli Jón sagði að stjóm Búnaðarfé- lagsins teldi nauðsynlegt að Búnað- arþing fjalli að þessu sinni enn ítar- legar um atvinnumálin, enda væri staðan þar alvarlegri en verið hefði um áratuga skeið. „Mest um vert er þó að gera sér grein fyrir raunveruleikanum, bregðast við í samræmi við hann og trúa því að það sé hægt að vinna sig út úr vandanum. Vandi okkar nú er sá að verðmætasköpun fer minnkandi. Við slíkar aðstæður er draga saman framleiðslu og auka af þeim sökum erlendar lántökur til að græða á því að flytja inn í stað- inn ódýrari vörur, eins og það er gjarnan orðað. Þvert á móti þarf að gefa öllum vinnufúsum höndum kost á að leggja fram sinn skerf til að stækka þjóðarkökuna og nota hina fjölbreyttu kosti landsins til að búa í haginn fyrir framtíðina,“ sagði Jón Helgason. Félagskerfið dýrt, flókið og svifaseint Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda gerði fé- lagskerfí landbúnaðarins að umtals- efni í ávarpi sem hann flutti við setningu Búnaðarþings. Hann sagði að þó gengið væri út frá ákveðinni verkaskiptingu í félagskerfinu væri staðreyndin sú að í öllum deildum þess væri meira og minna sama fólkið að ræða sömu málin. „Nú vil ég taka fram að til þess að landbúnaðinum takist farsællega að fóta sig í því breytta starfsum- hverfí sem nú blasir við er bændum nauðsynlegt að hafa með sér öflug samtök sem á skilvirkan hátt vinna að hagsmunamálum þeirra. Það fé- lagskerfí sem við búum við í dag er að mínum dómi ekki þessum kost- um búið. Það er of dýrt, það er flók- ið og svifaseint. Boðleiðir innan þess eru óljósar og í stað þess að vinna saman finnst mér í vaxandi mæli gæta tilhneigingar til þess að menn stefni hver í sína áttina, eins og oft gerist þegar að kreppir. Svona getur þetta ekki gengið áfram. Því er það eitt allra brýnasta verkefni okkar sem höfum valist í tilsvar fyrir bændastéttina að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að félagskerfið geti gegnt hlutverki sínu á viðunandi hátt. Við þurfum að sníða okkur nýtt baráttu- tæki til þess að vinna úr þeim mögu- leikum sem framtíðin ber í skauti sér fyrir íslenskan landbúnað,“ sagði hann. Haukur sagði að tillögur nefndar, sem á síðasta aðalfundi Stéttarsam- bands bænda var kosin til að gera tillögur til breytinga á samþykktum Stéttarsambandsins, miðuðu meðal annars að því að fulltrúum á aðal- fundi yrði fækkað um þriðjung, og fækkað yrði um tvo í stjóm. Þessar breytingar næðu einungis til breyt- inga á samþykktum Stéttarsambands bænda, en hin almenna krafa bænda væri hins vegar um einföldun á félag- skerfinu í heild. Því vænti hann þess að Búnaðarþing tæki þessi mál til umfjöllunar, en augljóst væri að til þess að ná fram þeim heildarbreyt- ingum sem nauðsynlegar væru þyrfti víðatæka samstöðu um það mál. Hafkóng- ur veld- ur eitrun TVÆR konur og karlmaður sem starfa hjá franska sendi- ráðinu í Reykjavík fengu að- kenningu að eitrun i síðustu viku eftir að hafa snætt haf- kóng en fólkið hélt að um beitukóng væri að ræða. Hafkóngurinn sem um var að ræða kom af Suðumesjamarkaði og gaf afgreiðslumaður í fískbúð hann kunningja sínum sem mat- reiddi hann í heimahúsi með fyrrgreindum afleiðingum. Fólk- ið fékk aðkenningu að lömun en náði sér á nokkmm klukku- stundum. Ekki var leitað til læknis vegna þessa. Fjarlægja verður ranann Að sögn Jóns Daníels Jóns- sonar, matreiðslumanns hjá veit- ingahúsinu Við Tjörnina, hafa bæði beitukóngur og hafkóngur verið þar á matseðli og líkað vel. Eitur er í rana hafkóngsins og verður að fjarlægja hann fyr- ir neyslu. Einnig gæti beitu- kóngur verið varasamur og því ástæða til að fjarlægja rana hans. Atvinnumálin efst á baugi ATVINNUMÁLIN verða efst á baugi á 77. Búnaðarþingi sem sett var á Hótel Sögu í gær, en þingið sitja 25 fulltrúar, sem kjörnir eru til fjögurra ára í senn á 15 búnaðarsambandssvæðum. Á myndinni sést Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra ávarpa Búnaðarþingsfull- trúa við þingsetninguna. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra við setningu Búnaðarþings Stofnana- og stoðkerfi land- búnaðarins til endurskoðunar HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra sagði í ávarpi sem hann flutti við setningu Búnaðarþings i gær að hann hefði ákveðið áð leita samráðs við bændasamtökin um að setja af stað vinnu við endurskoðun á stofnana og stoðkerfi landbúnaðarins, og muni hann leita eftir að áfangaskýrslu verði skilað fyrir næsta haust til þess að unnt verði að ræða hana á aðaifundi Stéttarsambands bænda. „Um sjálft félagskerfi landbúnaðarins skal ég ekki fjöl- yrða, enda ekki í mínum verkahring að hafa afskipti af því. Mér dylst þó ekki að uppbygg- ing á samtökum bænda er orðin mannfrek og margbrotin, jafnvel svo að hamlað geti fram- gangi brýnna hagsmunamála, “ sagði landbún- aðarráðherra. Endurskoðun búvörusamnings í ávarpi sínu gat Halldór Blöndal þess að hann hefði í janúarmánuði óskað eftir því við formann Stéttarsambands bænda að teknar yrðu upp við- ræður um endurskoðun á vissum þáttum búvöru- samningsins frá 11. mars 1991, en formlegar viðræður hefðu enn ekki hafist. Halldór sagði að það sem fyrir sér vekti kæmi fram á minnisblaði sem hann hefði sent formanni Stéttarsambandsins í síðustu viku, en þar segir meðal annars að sauðfjárbændur á skilgreindum svæðum, þar sem talin væri þörf á sérstökum gróðurverndar- eða landgræðsíuaðgerðum, yrðu leystir undan þeirri kvöð að framleiða að minnsta kosti 80% upp í greiðslumark sitt til að eiga rétt á fullum beingreiðslum, en þessi tilteknu svæði yrðu skilgreind svo þröngt að ekki yrði um það deilt að þau hefðu sérstöðu í þessu tilliti. Þá yrði metið hvort ekki væri skynsamlegt að gefa roskn- um bændum og öryrkjum rýmri hendur hvað varð- ar neðri mörk framleiðslu heldur en 80% eins og nú er, og athugað yrði hvort skynsamlegt væri að taka kjöt af fullorðnu fé út úr greiðslumarki og þá hvernig að því skuli staðið. „Málefni landgræðslu og skógræktar eru ofar- lega á baugi. Víðtækur áhugi er fyrir því að efla þessa starfsemi, en fjármunir hafa ætíð verið af skomum skammti, og eins og nú árar í þjóðarbú- skap okkar verður á brattann að sækja um stór- aukin framlög til þessara mála. í landgræðslu hljótum við, í samræmi við ályktanir Alþingis, að einbeita okkur fyrst og fremst að stöðvun landeyð- ingar, þar sem hún er alvarlegust. Það er einmitt í því ljósi og vegna þröngrar stöðu í sauðfjár- rækt, að ég vil bjóða bændum á viðkvæmustu gróðursvæðunum þann valkost, að draga saman sauðfjárbúskap eða jafnvel hverfa frá honum um stundarsakir, en taka að sér verkefni við land- græðslu og gróðurvemd í staðinn. Það verður þó að vera algerlega ljóst að hugmynd mín hnígur alls ekki að valdboði í þessa veru, og jafnframt hitt, að þeim bændum sem kunna að kjósa þessa leið, verði tryggður sami réttur til áframhaldandi búskapar og öðrum við lok núvernadi búvömsamn- ings,“ sagði Halldór. Hann vék að störfum bænda á sviði skógrækt- ar, og sagðist hafa það nú til sérstakrar athugun- ar hvort ekki væri tímabært og skynsamlegt að Skógrækt ríkisins rifi seglin í plöntuframleiðslu sinni og skapaði þannig aukið svigrúm fyrir fram- tak einstaklinga og fyrirtækja. Að þessu mætti þó ekki flana, og óhjákvæmilegt væri að taka til- lit til starfa þeirra sem nú ynnu við skógræktar- stöðvar, en ýmsir þeirra væru bændur sem byggt hefðu afkomu sína að hluta á þessum störfum. 3 milljarða kostnaðarlækkun Halldór sagði að í ljósi þeirrar gagnrýni sem væri á opinberan stuðning við landbúnað væri nauðsynlegt að fram kæmi að kostnaður við þá þætti fjárlaga sem skilgreindir hefðu verið undir búvörusamning hefði lækkað um þrjá milljarða króna síðan 1991 á verðlagi yfírstandandi árs og útgjöld landbúnaðarráðuneytisins að öðru leyti um 600-700 milljónir króna á þessu ári. „Það er athyglisvert og má vel vera mönnum til umhugsunar að niðurfelling virðisaukaskatts á innlendum búvörum, ef til kæmi, kostaði ríkissjóð rúmlega 4,5 milljarða króna, en beinir framleiðslu- styrkir til bænda vegna framleiðslu yfírstandandi árs eru ríflega 4,8 milljarðar," sagði hann. Þá benti hann á að athugun á þróun framfærsluvísitölu frá maí 1988 hefði leitt í ljós að síðan þá hefðu innlend- ar búvörur hækkað um 44% borið saman við 61% hækkun á öðrum matvörum, og ósanngjamt væri að virða ekki þennan árangur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.