Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 3 Sjúkraliðar kjósa ekki um verkfall ÁKVEÐIÐ hefur verið í Sjúkraliðafélagi íslands að láta ekki fara fram atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun 22. mars næstkomandi, en önnur stærstu aðildarfélög Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hafa ákveðið að greiða atkvæði um hvort hefja eigi verkfall þann dag. Kristín Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins, sagði að mjög skýrt hefði komið fram hjá félagsmönnum að það væri ekki jarðvegur til að greiða atkvæði um verkfall að svo komnu. A fjölmennum félagsfundi í Sjúkraliðafélaginu í Reykjavík í síð- ustu viku var gerð könnun á afstöðu viðstaddra til atkvæðagreiðslu og voru 96 á móti, 30 meðmæltir og 8 tóku ekki afstöðu. Um 1.100 manns eru í félaginu alls staðar á landinu. „Skoðanir eru mjög skýrar hjá fólki og við förum eðlilega eftir því. Við tókum einmitt ákvörðun um að kanna afstöðu sjúkraliða með tilliti til þess að fara ekki út í at- kvæðagreiðslu um verkfallsboðun sem síðan yrði felld. En við eigum eftir að semja og þessi mál verða áfram til skoðunar hjá félaginu," sagði Kristín í samtali við Morgun- blaðið. Ekki að ijúfa samstöðuna Hún sagði að sjúkraliðar styddu eindregið kröfugerð BSRB og það starf sem unnið hefði verið í samn- ingamálunum. Hins vegar hefðu sjúkraliðar nýlega staðið í hörðum átökum sem ekki sæi kannski alveg fyrir endann á og það hefði ef til vill áhrif á afstöðuna til aðgerða nú. Aðspurð hvort hún teldi ekki að sjúkraliðar væru að ijúfa samstöð- una með öðrum félögum í BSRB sagði hún það alls ekki vera. BSRB nyti fulls stuðnings sjúkraliða, en það væri í ákvörðunarvaldi hvers félags um sig hvað langt það vildi ganga. Morgunblaðið/Ingvar Strætisvagn íárekstri Harður árekstur varð á mótum Sæbrautar og Lang- I bíll og strætisvagn. Ökumaður fólksbílsins skall í fram- holtsvegar í gærmorgun. Þar rákust saman lítill fólks- | rúðu bílsins, en hann hafði ekki spennt á sig bflbelti. Hrogna- takaað hefjast HROGNATAKA hefst innan skamms og munu a.m.k. tveir bátar hefja hrognatöku þegar næst gefur í loðnugönguna á Breiðafirði. Mikil veiði var um helgina og var löndunarbið á flestum höfnum. Bræla hamlar nú veiði á Breiðafirði og spáð er versnandi veðri á miðunum sunnanlands. Sæmileg loðnuveiði var við Vestmannaeyjar í gær. Sævald Pálsson, skipstjóri á Bergi VE, sagði að hrognafylling væri orðin mikil í loðnunni og myndi hrogna- taka hefjast innan skamms. Hann sagði að spáð væri versnandi veðri á miðunum sunnanlands. Mikil loðna í Breiðafirði Sunnuberg GK hélt á sjó á Breiðafirði í gær og sagði Magnús Þorvaldsson að þar hefði ekkert veiðst undanfarinn sólarhring vegna brælu. Hann sagði að Kap VE og Sighvatur Bjamasson VE myndu hefja hrognatöku næst þegar gæfi í loðnuna. Magnús sagði að mikil loðna væri á stóru svæði í norðanverðum Breiðafirði. Löndunarbið er á flestum höfnum og þurfa bátarnir að sigla langt með loðnuna. ----♦------ ísafjarðardjúp Kennsl bor- in á líkin Borin hafa verið kennsl á tvö lík sem komu upp með skömmu millibili í ísafjarðardjúpi fyrir stuttu. Líkið sem kom i vörpu Donnu frá ísafirði var af Ólafi.Ægi Ólafs- syni, skipstjóra, sem fórst með rækjubátnum Dóra ÍS, 14. febrúar 1989. Líkið sem kom í vörpu Gunn- bjarnar frá Bolungarvík var af Vagni Hrólfsssyni, skipstjóra og útgerðarmanni, en hann tók út af báti sínum, Hauki ÍS 195, þann 18. desember 1990. 2 Tveggja daga námskeið um íjármál einstaklinga 6.900,- kr. Námsgögn innifalin Nú hafa verið haldin 30 námskeið. í mars eru ennþá nokkur sæti laus. Dagsetningar námskeiðanna: 8. og 9. mars kl. 20-23:00 á Akranesi 15. og 16. mars kl. 20-23:00 á ísafirði 15. og 17. mars kl. 20-23:00 í Reykjavík 22. og 24. mars kl. 20-23:00 í Reykjavík Skráning þátttakenda, Auður og Hildur, í afgreiðslu VÍB og í síma 91 - 68 15 30. - Ég hef unnid í brádum 20 ár hjá sama fyrirtæki, ég hef ágæt laun en finnst samt ad ég eigi ekki mikíö. Hvemig get ég best aukib eignirnar og tryggt þannig öryggi og afkomu fjölskyldunnar? Ná. ia£ :a umi ingar mti ijarma í w? amams ;L €101' ¥ao me Á námskeiðinu er lögð er áhersla á: Markmiö ífjármálum, bæöi til lengri og skemmri tíma, þar sem reynt er aö samræma drauma og veruleikann; reglulega uþþsetningu á eignum og skuldum meö tengingu viö rekstur heimilis; eignastýringu og ávöxtun fjármuna; reglubundinn samanburö á árangri og settum markmiöum. FJARMALANAMSKEIÐI VIB er einkum œtlab það hlutverk að leiðbeina þátttakandanum við að nýla tekjur sínar sem best og byggja upþ sþarifé og eignir. Reynt hefur verið að gera námskeiðið þannig úr garði að þátttakandinn geti sjálfur ráðið fram úr Jjármálum sínum og skiþulagt þau til að ná sem bestum árangri. Tvcggja daga kennsla, þrjár klukku- stundir hvorn dag. Fjármálahandbók VÍB. Handbókin er 228 blaðsíður og hefur að geyma 14 cyðublöð til útfyllingar. Fjármálahandbók VIB cr skipt í 16 kafla, sem hafa að geyma 8.1 töflur og línurit. Á námskeiðinu erþátttakandanum leiðbcint hvernig fylla eigi tit eyðu- blöðin, sem nauðsynlcg eru til að ná árangri við uppbyggingu cigna. FJARMALA- NÁMSKEIÐ VÍB Einjbid uppskrift að skipulegri uppoyggingu rigna VÍB Einstakt námskeiö fyrir einstaklinga sem vilja hnitmiöaða leidsögn við hámörkun eigna sinna, á hvaöa aldri sem er. Leiöbeinendur eru Siguröur B. Stefánsson, Vilborg Lofts, Margrét Sveinsdóttir og Asgeir Þóröarson. rSTOFANl VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Fteykjavfk. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.