Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Gallar hafa komið upp í rúmlega þriggja ára gamalli sundlaug við Glerárskóla
Um 5 milljónir
í lagfæringar
GALLAR hafa komið upp í Sundlaug Glerárskóla og tíðar bilan-
ir, en frá því Iaugin var tekin í notkun í janúar árið 1990 og þar
til nú hefur rúmum 5 milljónum verið varið til viðgerða. Bæjar-
ráð Akureyrar hefur samþykkt að bæjarlögmaður og bæjarverk-
fræðingur kanni réttarstöðu bæjarins gagnvart hönnuðum og
verktökum, en formaður Iþrótta- og tómstundaráðs lagði fram
bókun um málið á fundi ráðsins nýlega.
skápana efni sem þolir bleytu ekki
verið uppfyllt. Talið er að kostnaður
við að skipta um skápa í búningsher-
bergjum nemi um 3 milljónum króna.
Samtals er um að ræða tæpar 5,2
milljónir sem farið hafa til lagfæringa
eða fyrirsjáanlegt er að veija þurfí
vegna galla sem upp hafa komið.
„Þessi upptalning sýnir svo ekki
verður. um villst að sitthvað hefur
farið úrskeiðis við hönnun, byggingu
og eftirlit þegar sundlaugin var
byggð,“ segir í bókun Gunnars Jóns-
sonar og þar er þess einnig farið á
leit við bæjarverkfræðing og bæjar-
lögmann að réttarstaða Akureyrar-
bæjar gagnvart hönnuðum og verk-
tökum laugarinnar verði könnuð,
„þannig að komist verði til botns í
því hver beri ábyrgð á öllum þessum
göllum og bilunum," eins og segir í
bókun Gunnars
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gusug-angnr
STRÁKARNIR létu fara vel um sig í heita pottinum allir jafn kátir og þeir eftir að tíðir gallar hafa
við sundlaug Glerárskóla í gær, en það eru ekki komið í Ijós sem kostað hafa yfir 5 milljónir.
Lauginni lokað
í bókun Gunnars Jónssonar for-
manns íþrótta- og tómstundaráðs
segir að frá því laugin var tekin í
notkun 20. janúar 1990 hafi komið
í ljós alls konar bilanir og gallar sem
kostað hafi mikið fé og ómælda fyrir-
höfn að láta lagfæra. Þá hafi orðið
að loka lauginni í tvígang vegna þessa
í nokkra daga í hvort skipti.
Gallar
í bókun Gunnars eru rakin helstu
atriði og útlagður kostnaður við lag-
færingar. Skipt var um hurðir úr
sturtuklefum fram í laugarsal, en þær
sem fyrir voru þóttu stórhættulegar
slysagildrur vegna þyngdar og upp-
fylltu ekki skilyrði fýrir aðgengi fatl-
aðra. Kostnaður við nýjar hurðir nam
tæpum 300 þúsund krónum. Þá var
jámhandrið sett upp ofan á of lágan ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
hreinsibúnaði varð til þess að hreinsi- Sjómenn í Grímsey funda með framkvæmdasljóra frystihúss KEA í dag
kútar sprungu, en kostnaður nam ----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
rúmri hálfri milljón króna við þessi
verk.
Sundlaugarbakkar vom yfirfamir
og gert við þá, þar sem fúga milli
flísa var ónýt og kostnaður við verk-
ið nam tæpum 100 þúsund krónur.
Gólfefni í sturtu- og búningsklefum
reyndust ónýt og leggja þyrfti nýtt
fyrir um 460 þúsund krónur. Ljós
undir yfirborði sundlaugarinnar
reyndust einnig gölluð og þurftu lag-
færingar við og nam kostnaður um
160 þúsund krónum.
Ónýtir skápar
Nú hefur komið í ljós að loftræst-
ing er mjög gölluð og þarf að lag-
færa án tafar ef ekki á illa að fara,
en kostnaður er áætlaður rúmar 670
þúsund krónur. Einnig hefur komið
í ljós að allir skápar í búningsklefum
era ónýtir eftir þriggja ára notkun
og segir formaður Iþrótta- og tóm-
stundaráðs í bókun sinni að augljós-
lega hafi það framskilyrði að nota í
Öánægja meðal sjómanna
vegna lækkunar fiskverðs
Grímsey.
SJÓMENN í Grímsey komu saman til fundar um nýtt fiskverð
um helgina, en óánægju gætir meðal þeirra með það fiskverð
sem Fiskverkun Kaupfélags Eyfirðinga býður. Framkvæmda-
sljóri Fiskverkunar KEA í Hrísey kemur til fundar við sjómenn
í Grímsey í dag, þriðjudag, til að ræða málin.
Fiskverð lækkað
Fyrir hálfum mánuði var sjómönn-
um gert ljóst að um lækkun á fis-
kverði yrði að ræða en þá lá ákvörð-
un ekki fyrir. Á föstudag í liðinni
Framhaldsskólarnir á Akureyri
Fjölbreytt dagskrá á
viku barst símbréf þar sem fram
komu hugmyndir að nýju fiskverði
er tæki gildi 1. mars. Fiskverð er
lækkað frá því sem verið hefur og
era sjómenn lítt hrifnir auk þess sem
tími til að semja um nýtt verð var
naumur, en mönnum gafst einungis
tími til að hugleiða málið yfir helgi.
Mikil óánægja kom fram með þenn-
an seinagang forráðamanna Fisk-
verkunar KEA á fundi sem sjómenn
héldu í félagsheimilinu Múla um
helgina.
Hiti í mönnum
Þá tóku sjómenn á fundinum fá-
lega í hugmyndir um að flokka og
slægja fisk eins og lagt er til að
gert verði, en því fylgir mikið óhag-
ræði. Miklar umræður urðu um
málið og hiti í mönnum, en ákveðið
var að gera tilboð um nýtt fiskverð
og senda forráðamönnum fiskverk-
unar KEA.
Tilboðið hljóðaði upp á að greidd-
ar yrðu 73 krónur yfir kílóið af ós-
lægðum þorski, 40 krónur fyrir
undirmálsþorsk, 70 krónur fyrir ýsu
og 50 krónur fyrir undirmálið. Fram
til þessa hefur verið greitt 67,5 krón-
ur fyrir óslægðan þorsk og 45 krón-
ur fyrir undirmálsfiskinn og fyrir
ýsuna hafa verið greiddar 75 krónur.
KEA vill greiða 70 krónur fyrir
óslægðan stóran þorsk í 1. flokki
og tæpar 54 krónur fyrir tveggja
kílóa þorsk í sama flokki og þá yrðu
greiddar tæpar 30 krónur fyrir
undirmálsfiskinn. Verð fyrir ýsu yrði
75 krónur fyrir kílóið og 50 krónur
fyrir undirmálið.
Fundað í dag
Sjómenn í Grímsey gáfu forráða-
mönnum KEA frest til miðvikudags
til að svara tilboði þeirra, en fram-
kvæmdastjóri frystihúss KEA í Hrís-
ey kemur í Grímsey í dag, þriðju-
dag, og verður þá haldinn fundur
með sjómönnum um málið og er
vonast til að samningar náist í kjöl-
farið.
HSH.
Listadögum skólanna
FRAMHALDSSKÓLARNIR á Akureyri, Menntaskólinn á Akur-
eyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri efna í fyrsta skipti til
sameiginlegra Listadaga, en þeir hefjast í dag, þriðjudaginn 2.
mars. Dagskrá Listadaganna er fjölbreytt, fyrírlestrar, gaman-
mál, tónleikar og leiksýningar, en Listadögum lýkur fimmtudag-
inn 11. mars næstkomandi.
Listadagar verða settir í Gryfju
VMA í kvöld kl. 20.30 og síðan verða
tónleikar með KK-bandi. Á miðviku-
dagskvöld verður fluttur fyrirlestur
um skotveiði og flutt verða gaman-
mál. Núverandi og fyrrverandi sam-
gönguráðherrar, Halldór Blöndal og
Steingrímur J. Sigfússon leiða saman
hesta sína í kappræðum á fimmtudag
Rangt föðurnafn
í frétt blaðsins síðasta föstudag
um nýstárlega teppagerð í Eyja-
fjarðarsveit var farið rangt með föð-
urnafn Jennýjar Karlsdóttur og hún
sögð Gunnbjömsdóttir. Hlutaðeig-
andi era beðnir velvirðingar á mis-
tökunum.
og á föstudag verður fyrirlestur um
dulspeki. Um kvöldið verður komið
upp kaffihúsi þar sem flutt verður
jass og blústónlist.
Um næstu helgi verður m.a. efnt
til skautaballs, farið í útreiðartúr,
gönguferð á Súlur og dorgað á Ólafs-
fjarðarvatni auk þess sem efnt verð-
urtil söngvararkeppni milli skólanna.
í næstu viku verður Ríta gengur
menntaveginn, leikrit Willy Russels,
frá Þjóðleikhúsinu sýnt í 1929, efnt
verður til klassískra tónleika þar sem
nemendur skólans koma fram og
einnig reyna skólarnir með sér í ár-
legri íþróttakeppni. Listadögum
verður slitið á fimmtudag í næstu
viku, 11. mars.
Verslun flytur
Verslunin Toppmenn og sport hefur verið flutt um set í miðbæ Akur-
eyrar, en verslunin hefur verið opnuð í Skipagötu 1, þar sem verslað
er með íþróttavörur af ýmsu tagi auk þess sem þar er einnig að finna
sportfatnað fyrir dömur og herra. Á myndinni eru eigendur verslunarinn-
ar, frá vinstri, Friðbjörn Benediktsson, Áskell Þór Gíslason, Ragnar
Þorvaldsson og Þorvaldur Hilmarsson.
Fundur um
alkóhólisma
FYRSTI kynningarfundurinn sem
haldinn er um helstu einkenni
alkóhólismans verður á göngu-
deild SÁÁ í Glerárgötu 20 á Akur-
eyri í dag, þriðjudaginn 2. mars,
og hefst kl. 17.15. Fyrirlesari er
Georg Heide ráðgjafi SÁÁ.
Á kynningarfundinum verður fjall-
að um alkóhólismann og hvernig
hann snertir aðstandendur, vini,
vinnufélaga og vinnuveitendur.
Fundurinn er öllum opinn og er að-
gangur ókeypis.
Kynningarfundir af þessu tagi
hafa verið haldnir vikulega hjá SÁA
í Reykjavík í mörg ár og jafnan vel
sóttir, en fyrirkomulag fundarins á
göngudeild SÁÁ verður með sama
sniði. Ætlunin er að halda reglulega
kynningarfundi af þessu tagi á
göngudeild SÁÁ á Akureyri fyrsta
þriðjudag hvers mánaðar.
/