Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 Mörg fyrirtæki undirbúa útflutning á íslensku vatni Erfitt að ná fótfestu á Bandaríkjamarkaði SÖLUAUKNING hefur orðið hjá vatnsútflutningsfyrirtækjunum Þórs- brunni og Akva í Bandaríkjunum en forráðamenn fyrirtækjanna telja markaðinn ótryggan. Markaðssókn íslensks bergvatns hf. vestra hefur ekki tekist sem skyldi og mun dreifingin vestra verða endurskipulögð á næstunni. Unnið er að stofnun nýs vatnsfyrirtækis á Sauðárkróki. Söluaukning lyá Þórsbrunni „Það hefur gengið vel hjá okkur á Bandaríkjamarkaði að undanfömu og við seldum 5 milljónir lítra þar á síðasta ári,“ sagði Ragnar Atli Guð- mundsson framkvæmdastjóri Þórs- brunns hf., sem er í eigu Hagkaupa, Vífilfells og Vatnsveitu Reykjavíkur. Hann sagði að mikil söluaukning á síðustu mánuðum gæfi tilefni til bjartsýni en samkeppnin væri mikil á Bandaríkjamarkaði og væri engan veginn víst að Þórsbmnnur hefði náð þar varanlegri fótfestu. Sæmilegar horfur hjá Akva „Horfurnar eru sæmilegar en við lítum á þetta sem tilraunastarfsemi næstu tvö árin,“ sagði Þórarinn E. Sveinsson hjá Akva hf. á Akureyri. Hann sagði að veruleg söluaukning væri áætluð hjá fyrirtækinu og yrðu um tvær milljónir lítra sendar á markað í Bandaríkjunum á þessu ári. Hann sagði að íslensku fyrirtæk- u r V Q af hlífðaráklæðum (cover) á bílsæti. *&• \vr» % 4 %.VT Verð frá settið. ínn nríaust Borgartúni 26, sími 62 22 62. in væru ekki í samkeppni hvert við annað þar sem markaðurinn væri stór og fleiri hundruð aðila seldu innflutt vatn á Bandaríkjamarkaði. Endiu'skipulagning íslenskt bergvatn fiutti alls út fjór- ar milljónir lítra af kolsýrðu vatni á síðasta ári, þar af tæplega eina millj- ón lítra á Bandaríkjamarkað. Um 200% auking varð á sölu fyrirtækis- ins í Ástralíu og um 100% í Bret- landi. Mikil söluaukning var áætluð í Bandaríkjunum en dreifingarfyrir- tækinu þar, Great Icelandic Water Corporation, tókst aðeins að selja um 5% af framleiðslugetu Islensks berg- vatns á síðasta ári. Unnið er að end- urskipulagningu dreifingarfyrirtæk- isns og fyrirhUguð ný sókn á Banda- ríkjamarkaði. Miklir möguleikar eru taldir fyrir framleiðslu Islensks berg- vatns í Bandaríkjunum en að sögn Davíðs Schevings Thorsteinssonar er nauðsynlegt að taka öðruvísi á markaðsmálunum vestra en gert hefur verið hingað til. Nýtt fyrirtæki á Sauðárkróki? „Við erum því mjög hlynntir að vatnsútflutningsfyrirtæki taki hér til starfa og erum tilbúnir að veita ýmsa fyrirgreiðslu," sagði Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri á Sauð- árkróki í samtali við Morgunblaðið. Byggðasjóður hefur veitt Islensku lindarvatni vilyrði fyrir 70 milljón króna láni með ákveðnum skilyrðum og hefur bæjarfélagið gengist í ábyrgð fyrir um helmingi lánsins, að sögn Snorra. Bæjarfélagið hefur í nokkur ár láta rannsaka erlendis vatn af vatna- svæði vatnsveitunnar og einnig látið gera jarðfræðikort af svæðinu. Þess- ar upplýsingar verða væntanlega notaðar til að fá viðurkenningu Evr- ópubandalagsins á vatnsgæðunum. Snorri sagði að þessi rannsóknar- vinna hefði kostað bæjarfélagið nokkrar milljónir en fyrir hendi væru góðar upplýsingar um gæði vatnsins. ) Ert þú atvinnulaus 1 J Ert þú 16-20 ára ? Hitt Húsið stendur fyrir námskeiðum fyrir ungt atvinnulaust fólk. Eftirtalin námskeið eru í boði: Útlvlst Skyndlhjálp Jákvæð sjálfsímynd Ábyrgð á elgln hellsu íslenska Bókfærsla Fjármálln þín Fluguhnýtlngar Dýflngar Sund Köfun Framsögn/Tjánlng Fundarsköp Ræðumennska Lelkllst Tónllst Myndllst Ljósmyndun Pappírsgerð Starf með börnum og unglingum Myndbandagerð Útvarpsþáttagerð Blaðamennska Skoðanakannanir Blaðaútgáfa Skíðanámskeið Skautanámskeið o.fl. ? Skráning fer fram (HINU HÚSINU til 9. mars frá kl. 9.00 -17.00. Námskeiðin hefjast 15. mars. Allar upplýslngar I slma 62 43 20 ^UÍIOM ATH ! EKKERT ÞÁTTTÖKUGJALD íþrótta-og Tómstundaráð j Raykjavfkur UR DAGBOK LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK: 26. febrúar -1. mars 1993 Tilkynnt var um 10 innbrot og 11 þjófnaði. Þá var tilkynnt um stuld á þremur ökutækjum. Á föstudag var tösku stolið úr ólæstri bifreið á bifreiðaverk- stæði Háskólans. Aðfaranótt laugardags var seðlaveski stolið á Fógetanum og öðru á Kaffi Amsterdam. Undir morgun var 25.000 kr. stolið úr veski í húsi við Mánagötu. Á laugardags- kvöld var útvarpi, geislaspilara, radarvara og peningum stolið úr ólæstri bifreið við Seljugerði og veski með peningum í húsi við Mjóstræti. Á sunnudag var tveimur reiðhjólum stolið frá húsi við Hvassaleiti og um kvöld- ið var nokkuð af verkfærum stolið úr nýbyggingu við Smára- rima. Ekki verður ofbrýnt fyrir fólki að skilja ekki eftir laus verðmæti í bifreiðum sínum þeg- ar þær eru yfirgefnar. Tilkynnt innbrot voru helm- ingi færri nú um helgina en áður. Tilkynnt var um innbrot í íþróttahúsi Vals, í bakhúsi við Skúlatún, í sumarbústað í Kjós og í bifreiðir við Reykjavíkur- flugvöll, við Grettisgötu, við Stigahlíð, við Grandaveg og í bílageymslu við Hverfisgötu. Nær undantekningarlaust var stolið radarvörum og geislaspil- urum, en að öðru leyti báru þjóf- amir lítið úr býtum. Stálu eins bílum Perubrot Á sunnudagskvöld var lög- reglunni tilkynnt um tvo drengi er væm að bijóta perar í ljósa- staurum við Ártúnsskóla. Haft var upp á drengjunum og fengu þeir far með lögreglumönnunum heim til sín þar sem foreldram drengjanna var gert kunnugt um athæfi þeirra. Aðfaramótt sunnudags var tilkynnt um mann að skríða inn um glugga á húsi í Austurborg- inni. Lögreglumenn fóra þegar á vettvang, en þá kom í ljós að um son húsráðanda var að ræða. Hann hafði verið að koma heim til sín af næturrölti. Tilkynnand- inn var umhyggjusamur nábúi. Atvik sem þetta er dæmi um það hversu áhrifaríkt það getur verið að fólk gefi eigum ná- granna sinna gott auga og til- kynni lögreglunni þegar í stað það sem gransamlegt þykir á hveijum tíma. Oftlega hafa slík- ar tilkynningar leitt til handtöku innbrotsþjófa, þó svo að það hafí ekki gerst í þetta sinn. Brotaskrá Bifreiðimar, sem stolið var á föstudag, era allar af sömu teg- und. Á laugardagskvöldið náði lögregluan í fjögur ungmenni, sem viðriðin vora einhver mál- anna. Þau viðurkenndu þjófnaði á bifreiðunum auk annarra þjófnaða. Fjórar minniháttar líkams- meiðingar voru tilkynntar um helgina. Á Gullinu urðu slags- mál á föstudagskvöld og þurfti að flytja mann á slysadeild eftir að sá hafði verið bitinn í nefíð. Á laugaragskvöld þurfti einn að fara á slysadeild eftir átök á Duus-húsi. Þá nótt þurfti að handtaka tvo eftir slagsmál á Lækjartorgi og einn þurfti að flytja á slysadeild eftir átök í Bankastræti. Frá og með 1. mars heldur lögreglan í Reykjavík sérstaka brotaskrá í umferðarmálum. í hana era skráð öll umferðar- lagabrot þeirra sem lögreglan þarf að hafa afskipti af á starfs- svæðinu. Fylgst verður með ferli hvers og eins í skránni og að ákveðnum fjölda brota skráðum á ákveðnu tímabili verður gripið til þeirra ráðstafana að aðvara þann ökumann sem ítrekað kem- ur við sögu í umferðarlagabrot- um. Láti hann ekki segjast verð- ur að teljast nauðsynlegt að beita hann viðeigandi viðurlög- um. Hver og einn getur sjálfur haft áhrif á það hvort hann hljóti skráningu eða ekki. Það er und- ir honum komið því þeir verða einungis skráðir sem fremja umferðarlagabrot. Von lögregl- unnar er sú að hver og einn ökumaður hugsi gaumgæfilega um sín mál og að færri umferð- arlagabrot verði til þess að fækka umferðaróhöppum. Verðkönnun á fiski NÝLEGA kannaði Verðlags- stofnun verð á fiski í 44 fiskbúð- um og matvöruverslunum á höf- uðborgarsvæðinu og 25 verslun- um utan þess. Á höfuðborgar- svæðinu var verðmunur á ein- stökum físktegundum allt að 117%. Hæsta Lægsta Verðm. verð verð X Steinb., heill 390 180 117 Smálúðuflök 900 460 96 Rauðspretta, heil 350 180 94 Smálúða, heil 790 420 88 Hrogn 646 430 50 Kinnar, nýjar og saltaðar 360 250 44 • • RAFSTOWAR Gott úrval diesel-rafstöðva í ýmsum stærðum. Hagstætt verö. Varahlutir og þjónusta. Þjónustusamningar. Leitið upplýsinga hjá okkur VELASALAN H.F. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122 Utan höfuðborgarsvæðisins var mun meiri verðmunur á einstökum fisktegundum. Hæsta Lægsta Verðm. verð verð X Steinb., heill 385 81 375 Smálúða, heil 490 111 341 Kinnar, saltaðar 478 155 208 Rauðsprettuflök 495 165 200 Rauðspretta, heil 360 125 188 Kinnar, nýjar 339 120 183 Meðalverð á fiski var í flestum tilvikum lægra á þeim stöðum utan höfuðborgarsvæðisins sem könnunin náði til, en á höfuðborg- arsvæðinu. Sem dæmi má nefna að meðalverð á ýsu og ýsuflökum var 13-18% hærra á höfuðborgar- svæðinu en utan þess, steinbítur var 56% dýrari á höfuðborgar- svæðinu og stórlúða 35% dýrari. Verðlagsstofnun gerði sambæri- lega könnun í september 1991. 1 ljós kemur að meðalhækkun á nýj- um fiski er tæplega 3% á þessu tímabili og er það sama hækkun og á fiskverði í framfærsluvísi- tölunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.