Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 50. tbl. 81. árg. ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Norskir fiskútflyl^* endur gagnrýndir Eins og villimenn á fískmörkuðum Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. „NORSKIR fiskútflytjendur hafa hagað sér eins og villimenn á erlend- um mörkuðum og það er ástæða til að harma, að þeir skuli kaupa rússneskan fisk og selja á undirboðsverði á evrópsku mörkuðunum," segir Einar Hepsöe, formaður Norges Fiskarlag, helstu hagsmuna- samtaka í norskum sjávarútvegi. Mikill og vaxandi kurr er meðal norskra sjómanna með rússafiskinn, sem er að eyðileggja fyrir þeim vetrarvertíðina. Mikili ótti ríkir innan norska físk- iðnaðarins við viðbrögð Evrópumark- aðarins við ásökunum um, að Norð- menn hafi undirboðið hann með „svörtum" físki og árás franskra sjó- manna á fiskmarkaðinn í París þar sem þeir eyðilögðu 120 tonn af norskum físki hefur skotið mörgum skelk í bringu. Það eru þó ekki að- eins franskir sjómenn, sem eru reið- ir, heldur einnig norskir sjómenn. Vegna mikilla kaupa á rússneskum físki hefur verðið fallið og vertíðin í Ungverjaland Anamaðka- ævintýrið sem brást Búdapest. Rcuter. TÓLF Ungveijar, sem fjárfest höfðu í glæstum áætlunum um framleiðslu gróðurmoldar með ánamöðkum, sviptu sig lífi þegar Jjóst var orðið, að þeir myndu ekki uppskera neitt nema skuldimar. Skýrði dagblaðið Pestí Hirlap frá þessu í gær. Mennirnir 12 voru meðal þús- unda manna, sem settu fé í ána- maðkaeldið en það fór eins og eldur í sinu um Ungveijaland árið 1989. Var það kynnt sem einstakt tækifæri fyrir litla fjár- festa til að drýgja tekjurnar. Ungversku bankamir lánuðu marga milljarða kr. í ánamaðka- ævintýrið, sem ekkert hefur af sér gefíð. „Sumir, sem eru að missa ofan af sér húsið, sjá ekki annan kost betri en reipið,“ sagði dagblaðið. Lófót verður ekki nema svipur hjá sjón af þeim sökum. Ráðherrann gagnrýnir íslendinga Um helgina var haft eftir Charles Josselin, sjávarútvegsráðherra Frakklands, að Norðmenn hefðu hellt yfir markaðinn rússneskum fiski, sem þeir seldu langt undir lágmarks- verði, og hann sakaði íslendinga einnig um það sama með físk, sem þeir hefðu keypt af pólskum skipum. Forsvarsmenn íslensku sölusamtak- anna vísa þessu á bug og segjast ekki vita um neitt dæmi um fískkaup af Pólveijum. Franskir sjómenn á Bretagne- skaga réðust í gær inn í stórverslun í bænum Saint-Brieuc og rifu upp úr kælikistunum innfluttan fisk. Hótuðu þeir að stöðva allan fiskinn- flutning frá löndum utan Evrópu- bandalagsins ef hann yrði ekki settur undir kvóta. James Bulger borinn til grafar Reuter JAMES Bulger, tveggja ára gamall drengur, sem lét lífið fyrir hendi tveggja tíu ára drengja, var borinn til grafar í Liverpool á Englandi í gær. Voru mörg hundr- uð manns við útförina en örlög Bulgers hafa vakið umræður í Bretlandi og á Vesturlöndum um ýmsar skuggahliðar nútímasamfélags, einkum hvað varðar aðbúnað barna. Hér eru ættingjar James litla Bulgers að bera kistu hans úr kirkju en við athöfnina var leikið uppáhaldslagið hans, „Bætum veröldina“, með Michael Jackson, sem sendi fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Aðstoð Bandaríkjamanna við stríðshrjáða í Bosníu hafin Ovíst hvar hjálpar- gögnin komu mður Sarajevo. Reuter. BANDARÍKJAMENN byrjuðu í fyrrinótt að varpa hjálpar- gögnum úr flugvélum yhr austurhluta Bosníu. Að sögn Jam- es A. Lair flotaforingja gekk aðgerðin eins og í sögu. Heima- menn sem rætt var við í síma sögðust hins vegar hvorki hafa séð tangur né tetur af hjálpargögnunum og er jafnvel talið, að þau hafi lent í höndum Serba. Leiðtogafundur Bills Clintons og Borís Jeltsíns í apríl Borgin nefnd fljótlega Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunbladsins. WARREN Christopher, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsþætti á sunnudag að Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Boris Jeltsín Rússlandsforseti væru enn að ráðfæra sig hvor við annan um það hvar halda ætti leiðtogafund 4. apríl. Sagði Christopher að ákvörðun um það yrði tekin „á næstu dögum“. „Ýmsir kostir koma til greina," sagði Christopher þegar gengið var á hann um fundarstað í sjónvarps- þættinum „Meet the Press“, sem sjónvarpsstöðin NBC sendir út á Leiðtogarnir Vangaveltur um fundarstað sunnudagsmorgnum. „Ég hygg að við munum fínna góðan stað.“ Þeim stöðum, sem taldir eru koma til greina, hefur fjölgað und- anfarna daga. Fréttastofan UPI nefndi Finnland, ísland og Kanada í fréttum í gær og á sunnudag. The Washington Post tiltók í frétt á föstudag fjórar borgir: Genf, Helsinki, Vín og Reykjavík. „Þetta eru tómar getgátur," sagði Alex Liebowitz, sem hefur málefni íslands á sinni könnu í bandaríska utanríkisráðuneytinu, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Fjölmiðlar hafa engar upplýsingar og nefna því staði, þar sem leið- togafundir hafa verið haldnir áð- ur.“ Það voru þijár C-130 flutninga- vélar sem flugu frá Frankfurt- flugvelli til Bosníu og vörpuðu 30 kistum með samtals 21 tonni af hjálpargögnum yfir bænum Cerska. Flogið var að nóttu til og slökkt var á ljósum flugvélanna til að draga úr hættu á að skotið yrði á þær. Engar orrustuflugvélar fylgdu flutningavélunum; Banda- ríkjamenn töldu að það hefði verið of mikil ögrun við Serba. Ekki var gefið upp úr hvaða hæð kistunum var varpað en talað hefur verið um að flugvélarnar færu af örygg- isástæðum ekki neðar en í 1.500 m hæð. Hugsanlega í höndum Serba Talstöðvaráhugamaður í þess- um hluta Bosníu sagði í gær að ekkert af hjálpargögnunum hefði fundist. Sagði hann að óstaðfestar fregnir hermdu að eitthvað af þeim hefði lent í höndum Serba. Nefndi hann þá hugsanlegu skýringu á að hjálpargögnin hefðu ekki lent í réttum höndum að Serbar hefðu um helgina náð á sitt vald svæði sem múslimar höfðu áður. Hús hefðu brunnið eftir bardaga og e.t.v. hefðu bandarísku flugmenn- imir litið á það sem merki um að Á varðbergi BANDARÍSKA flugmóðurskipið John F. Kennedy hefur verið á Adríaliafí síðustu tvo sólarhringa en frá því er fylgst með flutning- um flughersins með lvjálpargögn til múslima. þar væri hjálpargagna þörf. Músl- imar sem rætt var við í Cerska könnuðust ekki við að hafa séð flugrit sem Bandaríkjamenn dreifðu á laugardag með upplýs- ingum um neyðaraðstoðina. Samkvæmt fréttum seint í gær- kvöld hafði tekist með aðstoð bandarískra gervihnatta að finna lendingarstað níu af 30 kistum og voru einhveijar aðeins í 300 metra fjarlægð frá miðju fyrirhuguðu lendingarsvæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.