Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 18
18__________________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 Alþingismenn, stöðv- P um einkavæðinguna - Opið bréf til Guðrúnar Helgadóttur „Það brýnasta, sem srera barf núna, er að I - eftir Valdór Bóasson Háttvirtur alþingismaður. Eg vil óska þér til hamingju með 5 ára afmæli bjórsölu á Is- landi. Ég vil nota þetta tækifæri til að minna þig á ummæli þín þegar bjórfrumvarpið var sam- þykkt á alþingi. Þar sagðir þú frammi fyrir alþjóð, ef minni mitt er rétt: Að sjálfsögðu flytjum við (flutningsmenn bjórfrumvarpsins) annað frumvarp ef neysla áfengis, þar á meðal bjór, fer úr böndunum. Háttvirti alþingismaður, hvað þarf neyslan að aukast mikið til að málin fari úr böndunum? Sam- kvæmt tölum frá ÁTVR jókst sala um 5,97% milli áranna 1988 og 1992. Sala áfengis hefur sem bet- ur fer minnkað milli áranna 1991 og 1992 um 8,03% og var 1992 3,55% en var 3,35% 1988. Tel ég þessa minnkun vera helst að þakka fræðslu og kynningarstarfi ýmissa aðila sem vinna að forvömum; þar mætti nefna góðtemplarahreyf- inguna, Áfengisvamaráð, íslenska ungtemplara, Vímulausa æsku, Landssambandið gegn áfengisböl- inu, Átak gegn áfengi. Þessi listi gæti verið miklu lengri því að margir smáir aðilar bættust við og gera góða og merkilega hluti. Þar fyrir utan em allar meðferð- arstofnanir sem em að gera góða hluti í meðferð á áfengissjúkling- um og vinna stórkostlegt verk. Það brýnasta, sem gera þarf núna, er að stöðva einkavæðingu ÁTVR. Þetta mál er mjög mikilvægt og þyrfti að rannsaka og skoða mjög vel. Hvergi á Norðurlöndum er dryklqa jafnmikil og í Danmörku og á Grænlandi, í þessum löndum er ekki áfengiseinkasala. Viljum við fá svipað ástand og í þessum löndum? Ég vona ekki. Á þessum 5 ámm hefur aldur sífellt farið lækkandi hjá þeim sem neyta áfengis. Samkvæmt upplýsingum hjá starfsfólki á Tindum, meðferðar- heimili fyrir unga vímuefnaneyt- endur, sem hóf störf 2. janúar 1991, hafa 100 böm og unglingar dvalið þar á þessum 2 ámm. Hafa böm niður í 13 ára verið þar í meðferð vegna neyslu vímuefna. Það þýðir að böm undir fermingu era farin að fara í meðferð. Flestir unglingar em á aldrinum 15, 16 og 17 ára. Hvað vora þessi böm og unglingar gömul þegar þau hófu neyslu? Og getum við ímyndað okkur hvað ástandið þarf að vera slæmt, til að böm og ung- lingar þurfi að fara í 3 mánaða meðferð til að losna undan áhrifum vímuefna? Þessi stofnun annar ekki eftir- spum þegar tilfellin em sem flest, og með þessu áframhaldi þarf að stofna meðferðarheimili fyrir börn á aldrinum 10 til 13 ára á næstu áram._ 1. „Áfengi er eina vímuefnið sem lögum samkvæmt er heimilt að neyta hér á landi. Önnur slík efni em bönnuð, einkum af heilsufarslegum, félagsleg- um og efnahagslegum ástæð- um. Því liggur í augum uppi að hafa verður stjóm á dreif- ingu þess og meðferð eftir því * sem kostur er. 2. Grundvallaratriði norrænnar áfengismálastefnu er að tak- marka einkagróða af sölu og annarri dreifingu áfengis. 3. Kaupsýslumenn ýmsir, áfeng- stöðva einkavæðingu ÁTVR. Þetta mál er mjög mikilvægt og þyrfti að rannsaka og skoða mjög vel. Hvergi á Norðurlöndum er drykkja jafnmikil og í Danmörku og á Græn- landi, í þessum löndum er ekki áfengiseinka- sala.“ isveitingamenn og ýmiss kon- ar braskarar aðrir vilja hirða gróðann af áfengissölunni en taka ekki meiri þátt í gífurleg- um kostnaði þjóðfélagsins vegna áfengistjóns en aðrir skattborgarar - jafnvel minni. 4. Hvergi á Norðurlöndum er drykkja jafnmikil og í Dan- mörku og á Grænlandi. í þeim löndum er ekki áfengiseinka- sala. 5. Addiction Research Foundati- on (ARF) í Toronto í Kanada er virtasta rannsóknastofnun heims í vímuefnamálum. Hún leggur eindregið til að los varðandi sölu og aðra dreif- ingu áfengis verði ekki aukið. 6. Hvergi er jafn auðvelt sem í Bandaríkjunum að rannsaka muninn á afleiðingum mis- munandi skipulags á áfengis- dreifíngu þar eð sum ríkin búa við svokallað frelsi í sölu áfengis en önnur hafa einka- sölukerfi líkt og Norðurlönd, önnur en Danmörk. 7. í aldaifyórðung hafa vísinda- menn vestra fylgst með breyt- ingum á áfengissölu í 48 ríkj- um. Niðurstaðan er: A) Ríkiseinkasala dregur úr neyslu. Einkahagsmunir í sambandi við dreifíngu áfeng- is valda því hins vegar að meira er gert til að hvetja til drykkju en ella. Hvort tveggja stafar af því að opinberir aðil- ar verða að greiða það tjón sem áfengisneyslan veldur. Þar hafa einkaaðilar engar skyldur. B) Fjöldi dreifíngarstaða hefur áhrif á neysluna. C) Því lægri sem lögaldur til áfengiskaupa er þeim mun yngri byrja unglingar eða böm að neyta þessa vímuefn- is. D) Verðlagning hefur áhrif á neysluna. 8. í tveim ríkjum vestra, þar sem er einkasala, Iowa og Vestur- Virginíu, var gerð tilraun með að leyfa sölu veikra vína og bjórs í ákveðnum matvöm- búðum. Það var ekki einungis að vín- og bjórdrykkja ykist heldur og heildameysla áfengis. I Vestur-Virginíu jókst víndrykkja um 48% og í Iowa um 93%. 9. Norðurlandamenn, Finnar, Norðmenn, Svíar og íslend- ingar, hafa látið bóka í við- ræðum um Evrópska efna- hagssvæðið að þeir áskilji sér rétt til að halda einkasölu á áfengi, þar komi til heilbrigð- issjónarmið og velferð þjóð- anna. 10. Kaupmenn væm ekki ginn- keyptir fyrir að flytja inn og selja áfengi ef þeir ættu þar ekki gróðavon. Og þegar um áfengissölu er að ræða gjalda skattborgarar reikninginn." Að lokum, kæri alþingismaður. Segjum nei við einkavæðingu ÁTVR. Það er mesta vandamál sem steðjar að íslenskri æsku. Höfundur er trésmiður og leiðbeinandi. Jón Guðbergsson stórgæslumaður unglingastarfs ávarpar félaga Rósa Aðalsteinsdóttir, skólastjóri Seljalandsskóla og gæslumaður barnastúkunnar Fjallrósar, segir frá. stúkunnar. Félagar í bamastúkunni Æskunni úansa með herðatré milli hnjánna. I bamastúkum er fjör á feröum Margt er sér til gamans gert í starfi barnastúkna. Félagar dansa, flytja leikþætti og fara í leiki, spreyta sig í spurningakeppni, þrí- þrautinni Heppni og hæfileikar og íþróttaþríþraut - svo að fátt eitt sé nefnt. Nýlega heimsótti Jón K. Guð- bergsson stórgæslumaður nokkrar stúkur. Á ferð um Suðurland fylgdu honum Árni Norðfjörð, Halldór Kristjánsson og Guðjón Eggertsson. Ámi lék á harmónikku fyrir dansi og stjórnaði öðmm skemmtiatrið- um. Úr þeirri ferð em flestar mynd- anna. Markmið unglingareglunnar Það er greinilegt að mikið er um að vera í bamastúkunum en þar er ekki bara glens og grín. Mark- mið unglingareglunnar er meðal annars: Að kenna þeim ungu að skilja þá hættu sem leitt getur af neyslu áfengis og tóbaks. Að hafa áhrif á börn og ungl- inga til að vera bindindismenn. Að fá æskulýðinn til að vinna samtaka gegn áfengis- og tób- aksnautn. Að vinna á móti Ijótu orðbragði og öðrum löstum og koma vel fram við menn og málleysingja. Að kenna bömum og unglingum að starfa í félagsskap og efla alhliða félagsþroska þeirra. Að vinna að því að göfga æsku- manninn og styðja hann að þvi að geta orðið góður og nýtur maður. Kjörorð unglingareglunnar en Sannleikur - kærleikur - sakleysi. Jón K. Guðbergsson, stórgæslumaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.