Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 48
MORGVNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK SlMI 601100, SIMBRÉF 601181, PÓSTHÓLF 1556 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Níu manns bjargað út um glugga þegar eldur kom upp að Bræðraborgarstíg 7 Mikill og þykk- "ur reyknr kom á móti okkur „VIÐ heyrðum hróp og köll og þegar við opnuðum dymar fram á gang kom mikill reykur á móti okkur,“ sögðu Ingrid Jónsdóttir og Sólrún Jónsdóttir, íbúar á 2. hæð að Bræðra- borgarstíg 7. Eldur kom upp á jarðhæð hússins um mið- nætti I gær og var níu íbúum bjargað út um glugga hússins. Bergsveinn Alfonsson, aðalvarð- stjóri slökkviliðsins, sagði að slökkviliðið hefði fengið tilkynn- ingu um að eldur væri laus í hús- inu, sem er fjögurra hæða stein- hús, og fólk kæmist ekki út. „Þeg- ar við komum að húsinu var fólk úti í gluggum og á svölum húss- ins,“ sagði hann. „Við sáum strax að það logaði í ýmsu dóti í anddyr- inu, en það er ómögulegt að segja nú hvemig hann kviknaði. Það hefur verið unnið að miklum breyt- ingum á húsinu og þetta dót var til komið vegna þeirra. Tveir reyk- '■'kafar vora sendir inn og fjórir aðrir fóra inn skömmu síðar, til að ganga úr skugga um hvort nokkur væri lokaður inni. Níu manns var bjargað út um glugga hússins." Kölluðum út um gluggann „Við heyrðum mikil læti frammi á gangi og áður en við vissum af vora slökkviliðsbílar fyrir utan húsið," sögðu Ingrid og Sólrún, sem höfðu aðeins búið í húsinu í nokkra daga. „Þegar við opnuðum fram á gang kom mikill og þykkur reykur á móti okkur. Við fóram út að glugga, opnuðum hann og kölluðum út. Þá skrúfuðum við gluggann úr, til að auðveldara væri að komast út.“ Ræstiút slökkvilið- ið til að fá gistingu Fáskrúðsfirði. — SLÖKKVILIÐ Fáskrúðsfjarðar var ræst út klukkan að verða fimm að morgni sunnudags. Ekki hafði kviknað í heldur hafði ung- ur maður sem var að leita sér gistingar þrýst á boðunarhnapp slökkviliðsins. Slökkviliðsmenn- irnir gátu farið aftur heim í rúm sín og ungi maðurinn fékk gist- ingu í fangageymslum. Þannig háttar til á Fáskrúðsfírði að boðunarhnappur slökkviliðsins er á útvegg lögreglustöðvarinnar. Lögreglan var á vakt þegar ýtt var á hnappinn og náði að handsama manninn. Reyndist það vera ungur maður úr öðra byggðarlagi. Hann hafði verið að skemmta sér í félags- heimilinu á laugardagskvöldið en orðið viðskila við félaga sína. Hann bar því við að hann hefði verið að gera vart við sig til að fá gistingu. Fékk hann gistingu á lögreglustöð- inni á Eskifírði. Albert Slökkviliðið hjálpaði Ingrid og Sólrúnu út um gluggann og varð þeim ekki meint af. Aðrir íbúar hússins sluppu einnig með skrekk- inn, en óttast var í fyrstu að ein- hveijir hefðu orðið fyrir reykeitran. Skemmdir af völdum elds urðu ekki miklar, en talsverðar skemmdir urðu vegna reyksins. Morgunblaðið/Júlíus Bjargað úr brennandi húsi SLÖKKVILIÐIÐ bjargaði 9 manns út úr brennandi húsi við Bræðraborgarstíg í Reykjavík í nótt. Landbúnaðarráðherra boðar Búnaðarþingi breytingar í landbunaði Bændur þurfa að keppa við innflutning á búvörum „Á NÆSTU árum verða miklar breytingar í landbúnaði. Þar ber hæst að alþjóðleg viðskipti með landbúnaðarafurð- ir verða frjálsari og innlendir framleiðendur verða að gera ráð fyrir því að þurfa að keppa við innfluttar landbúnaðar- afurðir. Minnkandi kaupgeta og tvísýnar horfur um veru- lega aukna þjóðarframleiðslu gera enn meiri kröfur til innlendra framleiðenda um lægra vöruverð án minni gæða,“ sagði Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra í ávarpi við setningu Búnaðarþings í gær. Morgunblaðið/Kristinn Útsölum lokið TÍMI útsalanna er nú liðinn og hafa sjálfsagt margir gert góð kaup. Hillur verslana era tómar, en væntanlega fyllast þær von bráðar af nýjum vamingi. Konan á myndinni var að fjarlægja útsölumerkinguna af rúðu verslunarinnar þegar ljósmyndarinn átti leið hjá. í ræðu sinni ræddi landbúnaðar- ráðherra nokkuð um breytingar í landbúnaði vegna GATT-samninga og Evrópska efnahagssvæðisins. Hann sagði að þó óvissa ríkti um GATT-samninga breytti það ekki þeirri staðreynd, að héðan af hefð- um við ekki leyfi til að meta stöðu íslensks landbúnaðar og framtíðar- horfur nema í ljósi vaxandi heims- viðskipta með búvörar, sem hefði í för með sér opnun markaða. Hann sagðist ekki hafa farið dult með þá skoðun sína að verð- lagskerfi sauðfíárafurða fengi ekki staðist til lengdar og væri reyndar til tjóns fýrir bændur til skemmri tíma litið. Benti hann á umræður um verðjöfnunargjöld að undan- fömu því til stuðnings. Ótti við fákeppni Landbúnaðarráðherra sagði einnig að ótti manna við fákeppni með matvörar færi vaxandi og slíka þróun væri ekki hægt að leiða hjá sér. Hann sagði að vegna fámennis og dreifðrar byggðar væri það kannski í Reykjavík einni, sem hægt væri að búast við, að lögmál markaðarins hefði nægilegt svig- rúm til að geta breitt út sér, en því aðeins að fleiri en einn og fleiri en tveir eigist þar við. „Við bætist svo, að mörgum helstu talsmönnum fijálsra viðskipta hættir til að mikla fýrir sér hagkvæmni innflutnings- ins, í staðinn fyrir að fylgja hug- sjónum sínum eftir með því að hafa vakandi auga á, hver ferillinn sé hér innanlands frá framleiðandan- um til neytandans. íslenskir bændur hafa ekki leng- ur ráð á því að láta sig þennan feril engu skipta. Þeir hljóta að íhuga, hvort ekki sé tími til kominn að þeir taki afurðastöðvamar í sín- ar hendur, beri ábyrgð á rekstrinum og sýni fram á að unnt sé að koma framleiðslunni á markað ódýrar en gert hefur verið. Það er gott og raunar nauðsynlegt fyrsta skref til að mæta þeirri erlendu samkeppni sem óumflýjanleg er á næstu áram, því að eftir að hún er komin, getur innlenda framleiðslan ekki reitt sig á fákeppni," sagði Halldór. Matvælamarkaður í þessu sambandi minntist hann á hugmyndir um matvælamarkað bænda á höfuðborgarsvæðinu. Sagðist ráðherra telja að framleið- endur ættu að einbeita sér að því að minnka vinnslu- og dreifíngar- kostnaðinn og nýta á hagkvæman hátt þau dreifingarkerfi sem fyrir era. Sjá „Stofnana- og stoð- kerfi___“ bls. 20 ------» » ♦------- JL-byggingavörur 600 millj. gjaldþrot TAP kröfuhafa í þrotabú JL- byggingarvara sf., sem varð gjaldþrota í júní 1991, nam tæp- um 598 milljónum króna, auk vaxta og kostnaðar. Skiptum er nýlega lokið og fund- ust engar eignir í búinu til að greiða upp í lýstar kröfur. Eigendur JL- byggingarvara sf. urðu einnig gjaldþrota, en þeir bára ótakmark- aða ábyrgð á skuldbindingum sam- eignarfélagsins. í þrotabú Þórarins Jónssonar var lýst 516 milljón króna kröfum, en í bú Kristjáns Eiríkssonar kröfum að fjárhæð 481,8 milljón króna. í hvorugu bú- inu fundust eignir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.