Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Ljósagangur af
völdum loftsteins
Hugsanlegt að brot hafi náð til jarðar
TALIÐ er að loftsteinn eða jafnvel tveir loftsteinar hafi valdið ljósa-
gangi sem vart varð víða um land á laugardagskvöld. Þorsteinn
Sæmundsson síjarnfræðingur telur líklegt að um stóran loftstein
hafi verið að ræða og hugsanlegt að brot úr honum hafi náð til
jarðar.
Tvö fyrirbæri
„Það er engu líkara en að þarna
hafi verið um tvö fyrirbæri að
ræða því menn eru með tvær tíma-
setningar, milli klukkan átta og
níu og um klukkan hálftíu á laug-
ardagskvöld," sagði Þorsteinn
Sæmundsson, stjarnfræðingur á
Raunvísindastofnun, í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði að vart
hefði orðið við ljósið víða um land
en skærast hefði það verið á Suð-
urlandi. Benti margt til þess að
Félöer BHMR
lofsteinninn hefði brunnið upp
ofan við Hestfjall í Grímsnesi og
ekki væri útilokað að brot úr hon-
um hefðu náð til jarðar. Margir
heyrðu hljóð eftir ljósaganginn og
minnti það meira á skell en þrumu.
Þorsteinn sagði margt benda til
að um óvenjulega stóran loftstein
hefði verið að ræða og gæti hann
hafa verið á stærð við fótbolta.
Ef eitthvað af honum hefur náð
til jarðar eru það líklega hnefastór-
ar steinvölur. Loftsteinar hafa
aldrei fundist hér á landi að sögn
Þorsteins en hljóta þó að vera hér
víða.
Félög* BHMR
semja aftur-
virkt við ríki
LANGFLEST aðildarfélög
Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna hafa
gengið til samninga við rík-
isvaldið um miðlunartillögu
ríkissáttasemjara í kjölfar
samnings Hins íslenska
kennarafélags fyrir um tíu
dögum.
Samningarnir eru aftur-
virkir til maí á síðasta ári og
runnu út nú um mánaðamótin
og giltu því ekki nema í fáeina
daga. Þeir fela í sér 1,7%
launahækkun frá 1. maí og
orlofsuppbót.
Aldrei valdið tjóni hér
Þorsteinn sagði að engar heim-
ildir væru til um að loftsteinar
hefðu valdið slysi hérlendis. „Árið
1954 varð kona í Bandaríkjunum
fyrir loftsteini sem kom niður í
gegnum þakið á húsinu hennar
og slasaðist hún töluvert. Loft-
steinar hafa oft valdið tjóni á
byggingum en ég þekki engin
dæmi þess að þeir hafi valdið
skaða hér á landi,“ sagði Þor-
steinn.
Þorsteinn sagði að geislavirkni
í loftsteinum væri jafnan undir
hættumörkum. Hann biður sjónar-
votta að hafa samband við sig því
enn hafa ekki borist nógu margar
vísbendingar til að hægt sé að
kortleggja stefnu loftsteinsins eða
loftsteinanna með neinni vissu.
Fjárfesting
Breytingar frá fyrra ári.
Fjárfestingartölur fyrir 1992
eru bráðabirgðatölur.
-13,6%
2 -18,4%
tt
5
Fjárfesting í veiðum
jókst um 96,4% í fyrra
HEILDARFJARFESTING þjóðarinnar á síðasta ári nam 64,4 milljörð-
um króna og dróst hún saman um 14% frá árinu 1991 þegar fjárfest
var fyrir tæplega 73 milljarða kr., samkvæmt bráðabirgðamati Þjóð-
hagsstofnunar. Fjárfesting dróst saman í öllum avinnugreinum á ár-
inu nema í fiskveiðum en þar jókst fjárfesting um 96,4% frá árinu á
undan. Nam fjárfesting í fiskveiðum 5,4 milljörðum á síðasta ári, eink-
um vegna kaupa á fiskiskipum, samanborið við 2,6 milljarða árið 1991.
Fjárfesting í fiskvinnslu dróst
saman um tæp 10% á síðasta ári
og nam hún 1.320 milljónum kr. og
í landbúnaði dróst fjárfesting saman
um 12,7% að fiskeldisstöðvum með-
töldum.
Heildarfjárfesting álversins nam
350 milljónum á árinu og hafði þá
dregist saman um tæp 62%. Fjár-
festing í almennum iðnaði nam 5,1
milljarði kr. og dróst saman um
14,6%. Mikið dró einnig úr fjárfest-
ingu flutningafyrirtækja eða úr 9,2
milljörðum árið 1991 í 5,1 milljarð
á síðasta ári sem er 47% samdráttur
og 20% samdráttur varð í fjárfest-
ingu í verslunar- og skrifstofuhús-
næði á árinu.
13,6% minni fjárfesting
opinberra aðila
Fjárfesting landsmanna í íbúðar-
húsnæði dróst saman um 6% á síð-
asta ári og heildarfjárfesting hins
opinbera var 22,5 milljarðar sem er
13,6% samdráttur frá árinu 1991.
í endurskoðaðri áætlun Þjóðhags-
stofnunar er gert ráð fyrir 10,5%
áframhaldandi samdrætti í fjárfest-
ingu á árinu 1993 og að mest muni
draga úr fjárfestingu atvinnuveg-
anna eða um tæp 22%.
Islensk kvikmynda-
hátíð í New York
6 mynd-
ir sýnd-
ar í mars
FRÁ 11. mars og fram í apríl
verður efnt til fyrstu íslensku
kvikmyndahátíðarinnar sem
haldin hefur verið í New York
borg. Fjölmargir aðilar standa
að þessari hátíð en verndari
hennar verður Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti Islands. All-
ar myndirnar verða sýndar í
The Angelika Film Center og
verður fyrsta myndin, Svo á
jörðu sem á himni, sýnd þar 11.
mars en hátíðinni lýkur 1. apríl
með myndunum Ryði og Karla-
kórnum Heklu.
Þær myndir sem sýndar verða
á sýningunni auk fyrrgreindra eru
Börn náttúrunnar, Magnús og
Veggfóður. Til stóð að sýna einnig
myndimar Sódóma Reykjavík og
Ingaló en Sódóma verður á Can-
nes-kvikmyndahátíðinni og því
ekki hægt að sýna hana í New
York og Ingaló verður á hátíð í
Rouen í Frakklandi.
Það er Íslensk/ameríska félagið
í New York sem hefur veg og
vanda að þessari hátíð en meðal
styrktaraðila að hátíðinni má
nefna Kvikmyndasjóð, Thor Thors
sjóðinn, The American Scandina-
vian Foundation, íslandsbanka,
Landsbankann, Eimskip og Flug-
leiðir.
Valið stendur um
þrjár mismunandi
tegundir af
Merrild kaffi:
103-Millibrennt
304-Dökkbrennt
104-Mjög dökkbrennt
Merrild
setuí