Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 eftir Guðrúnu Guólaugsdóttur. Á BÖKKUM Signu í Frakklandi er borgin Rouen eða Rúðuborg, frægt mennta- og menningarsetur, þar sem jafnframt er mikill iðnaður og mikilvæg umskip- unarhöfn á flutningaleið til Parísar. Milli Islands og Rúðuborgar eru og hafa verið ýmis tengsl. Skemmst er þess að minnast að þar var fyrir skömmu haldin kvikmyndahátíð þar sem íslenska myndin Ingaló fékk fyrstu verðlaun. Á sömu hátíð voru sýndar kvikmyndir eftir sögum Halldórs Laxness, honum til heiðurs. Halldóri og Auði konu hans varboðið á þessa hátíð, hann gat ekki farið vegna veikinda svo Auður fór þangað ásamt Guðnýju dóttur sinni og Halldóri Þor- geirssyni, eiginmanni hennar. „AÖalráður kon- úngur átti svo sem áður segir konu þá er Emma hefur heitið, hún var hin dáfríð- asta prinsípissa. Emma drotníng var kynjuð af Norm- andí og systir eins mikils höfðíngja er hér verður frá sagt Ríkarðar rúðujarls; þau systkin vóru komin af Gaunguhrófli að lángfeðgatali,fí ségir í upphafi 24. kafla Gerplu, þess sígilda verks Halldórs Laxness, hins íslenska bókmenntakonungs okkar tíma. í Rúðu- borg skálaði hann árið 1952 fyrir fæðingu lítillar prinsípissu: „Rúðuborg skipar sess í fjölskyldusögu okkar, þar skálaði Halldór fyrir fæðingu Sigríðar eldri dóttur okkar er hann var þar að búa sig undir ritun Gerplu,“ sagði Auður Laxness er blaðamaður heim- sótti hana upp að Gljúfrasteini til þess að spjalla við hana um ferð hennar til Rúðuborgar og sitthvað fleira. París árið 1948. ari árið 1939. Þá hafði ívar Jónsson móðurbróðir minn þegar lesið upp- hátt fyrir mig og aðra heima á Báru- götu 14 allar bækur Halldórs sem þá voru komnar út. Ég var svo sem ekkert að hugsa um að hann væri frægur rithöfundur þegar okkar kynni hófust, mér fannst hann bara fyndinn og skemmtilegur maður. Þegar fólk var farið að taka eftir að við Halldór værum saman, hringdi vinkona mömmu, fyrrum tengda- móðir Kristmanns, í hana til að vara hana við. Mamma var mjög frjálslynd og óborgaraleg. Ég heyrði að hún svaraði á þessa leið: „Þá bara kemur hún aftur hingað,. það gerist ekkert annað en það.“ Vinir Halldórs höfðu skiptar skoðanir á sambandi okkar. Ein vinkona hans sagði: „Ég skil ekki hvað þú ert að gera með þess- ari hversdagslegu stúlku, Halldór." Önnur sagði hins vegar eftir að hafa hitt okkur Halldór saman: „Mér þyk- ir Halldór hafa veitt uppúr.“ Halldór vai á þessum árum mjög umsetinn maður, það voru sífellt ei_n- hveijar konur í kringum hann. Ég gætti þess vel að ganga ekki á eftir honum. Emu sinni átti ég þó bágt með mig. Ég var að ganga upp Vest- urgötuna og sá þá stúlku sem hegð- aði sér þannig að hún var augljóslega að fara á stefnumót. Halldór hafði alltaf gaman af að ég segði honum frá athyglisverðu fólki. Hann skemmti sér t.d. vel þegar ég sagði honum frá prestinum að vestan sem var alltaf að gera við prímusa heima hjá okkur á Bárugötunni. Nú hægði ég á mér til þess að taka eftir stúlk- unni svo ég gæti lýst atferli hennar vel fyrir Halldóri. Mikil var undrun mín þegar stúlkan, eftir að hafa taf- ið dálítið tímann, bankaði hjá Hall- dóri þar sem hann bjó á Vesturgöt- unni. Mér hnykkti við þegar hann opnaði fyrir henni_ og þau hurfu bæði inn til hans. Ég tók þó á mig rögg og barði líka að dyrum og það endaði með því að hann lét hina fara. „Bíddu meðan ég losa mig við stúlk- una,“ sagði hann og ég beið. heima þegar síminn hringdi. Það var Halldór að segja mér að hann væri hættur við að fara í umrætt afmæli. Honum var heldur ekki sama hvað ég tók mér fyrir hendur. Ég ætlaði til Ameríku snemma á okkar sam- verutíma. Halldór neitaði að láta mig fara og ég fór ekki.“ Á slóðum fyrra lífs „í rauninni er allt líf mitt á milli þessara tveggja heimsókna til París- ar sem ég hef gert hér að umræðu- efni. í seinni ferðinni var Guðný dótt- ir mín með mér, en við Halldór vorum enn barnlaus í fyrri heimsókninni árið 1947. Það var ekki af því að við vildum ekki eignast börn, þau létu bara bíða eftir sér. Ég varð ekki ófrísk fyrr en ég hætti að hugsa um barneignir. Ég endurlifði veru okkar Halldórs í París þegar ég gekk þar um götur með Guðnýju dóttur minni og heim- sótti ýmsa þá staði sem við Halldór höfðum farið á. Ég minntist þess þegar við fórum á slóðir Heming- ways þegar hann skrifaði Veislu í farangrinum. Halldór þýddi þá bók. Það fór þannig fram að hann sat og þýddi beint en ég skrifaði jafnóðum niður á ritvél. í þessu ferðalagi kom ýmislegt upp úr Halldóri sem hann minntist ella ekki á. Hann hafði t.d. hitt James Joyce. Hann hafði þó ekki gefið sig á tal við hann. Með- fædd kurteisi bannaði honum að trana sér fram, kæmi hins vegar fyrir að hann tæki ákvörðun um að gera það, þá kom hann sér líka eftir- minnilega á framfæri. Halldór hefur yfirleitt fengið því framgengt sem hann hefur viljað. Hann hefur sínar eigin skoðanir og sjaldnast hikað við að koma þeim á framfæri. Einu sinni, þegar við vor- um í Rússlandi, heyrði ég hann segja við háttsettan mann í útgáfumálum þar: „Eruð þið þjófar eða eruð þið útgefendur." Það þorðu víst ékki . margir að tala þannig við háttsetta menn í Rússlandi þá. Halldór var óflokksbundinn sósíalisti þegar ég „Það hafði mikil áhrif á mig að fara í þessa ferð,“ segir Auður. Við sitjum saman í herbergi hennar á annarri hæð hins stflhreina húss á Gljúfrasteini. Mér á hægri hönd er rúmið hennar og valin listaverk á þili, til vinstri handar eru bækur húsfreyj- unnar, þ. á m. allar bækur Halldórs og margvíslegar hannyrðabækur. „í átta ár hef ég nánast varla farið út fyrir veggi heimilisins. Eins og fýrr sagði er Halldór veikur. Heilsu hans fór verulega að hraka um það léýti sem hann var 85 ára. Smám saman hefur hann orðið æ meira utan við sig og hin síðustu ár hvorki haft gagn né gaman af að koma á mannamót. Við höfum því dvalið saman á Gljúfra- steini og ekki verið aðskilin fyrr en ég fór í þessa ferð.“ Vegna þessarar innilokunar var skynjun mín á vissan hátt ferskari en ella er ég kom til Parísar. Ég skynjaði vel visst vonleysi, sem ekki lá í loftinu þar þegar ég kom þangað fyrst með Halldóri árið 1948. Þá áttum við í París sex yndislegar vik- ur. Veturinn áður hafði ég verið í Handíða- og myndlistaskólanum. Ekki var síður lærdómsrík sjö mán- aða ferð okkar Halldórs, sem París- arheimsóknin var liður í. Kristján Albertsson hafði útvegað okkur hót- elherbergi í París að beiðni Halldórs. Þar voru rúm upp við veggi, rykugt flauelisveggteppi og ekkert smjör með morgunmatnum. Halldór var voðalega vondur yfír þessu, en konan sem rak staðinn sagði bara: „Landið er ríkt en við erum fátæk.“ Halldór hringdi í Kristján og skammaði hann og sagðist vera orðinn ennþá meiri kommúnisti eftir þessa reynslu. Síð- an fluttum við inn á hið glæsilega Hótel Kalifornia og nutum lífsins. Við skoðuðum mikið af söfnum með hverskyns listaverkum og handverki, ég hef alltaf haft mikinn áhuga öllu slíku. Ég er alin upp af handverksfólki. Faðir minn Sveinn Guðmundsson var járnsmiður en móðir mín Halldóra Jónsdóttir var mikil hannyrðakona. Ásdís systir mín tók fyrst kvénna á íslandi sveinspróf í gullsmíði. Sjálf var ég löt við handavinnu meðan ég var í skóla, en þeim mun áhugasam- ari þegar ég fullorðnaðist. Mamma var hamhleypa við hannyrðir. Ég er einmitt nýlega búin að senda Þjóð- minjasafninu teikningar hennar af Auður í París fyrir skömmu. veggteppum safnsins, ég held að hún hafí gert 30 slík teppi. Ég hef sjálf meira gaman af skapandi handa- vinnu.“ Hér gerir Auður hlé á frá- sögn sinni og teygir sig í hannyrða- bók bundna inn í skinn. „Sjáðu, hér er ýmislegt sem ég hef hannað," segir hún og réttir mér bókina. „Eft- ir að ég hætti í skóla eftir gagn- fræðapróf fór ég að vinna í hann- yrðabúð Ágústu Svendsen. Eftir sumarið kallaði Sigríður Björnsdótt- ir, systir Arndísar leikkonu, mig inn til sín og sagðist hafa kunnað sam- vinnu okkar í búðinni vel og spurði hvort ég kynni vélritun og hraðritun. Nei, ég sagðist ekki kunna það. „Þá fáum við fyrir yður tíma í því svo þér geti fengið góða stöðu við rönt- gendeild Landspítalans hjá honum Gunnlaugi Classen, mági mínum. Og svo skuluð þér bara snúast og snú- ast þar til þér hafið völdin," sagði Sigriður og hló.“ Hversdagslega stúlkan? í fyrstu Parísarferðinni vorum við Halldór nýlega gift en höfðum verið saman í fímm ár. Við kynntumst árið 1936 en kynni okkar urðu nán- Fékk sting í hjartað Mörgum þótti trúlofun okkar ansi löng. Gumflaugur Classen, húsbóndi minn, var farinn að segja mér dæmi- sögur af mönnum sem tíðkuðu það að vera trúlofaðir einni stúlku lengi og svo annarri þar á eftir. Auðvitað fann ég fyrir afbrýðisemi. Halldór hafði gaman af að tala við konur og lét það vel. Ég ákvað að láta afbrýði- semina ekki ná tökum á mér — en það þurfti ákvörðun til. Seinna, þeg- ar við vorum gift, bauð hann stund- um á ferðalögum sínum konum út í mat og sagði mér síðan frá því í bréfí en ég lét það ekki á mig fá, ég vissi hvað heiðarleikinn var ríkur í eðli hans. Ég fékk þó sting í hjart- að einu sinni þegarhann lét skradd- arann sinn í Kaupmannahöfn sauma dýrindis föt úr mjög fallegu efni sem hann hafði keypti í Englandi, með það fyrir augum að fara í fötunum í afmæli vinkonu sinnar. Það stóð ekki til að ég mætti í þetta afmæli, ég var á leið heim. Á heimferðinni lá fyrst illa á mér, en svo ákvað ég að taka þetta ekki nærri mér. Ég var varla komin inn úr dyrunum kynntist honum, en hann talaði mjög lítið um pólitík. Pabbi minn var sjálf- stæðismaður af gömlu sortinni en Ivar móðurbróðir minn var eins og Halldór, óflokksbundinn sósíalisti. Sjálf hugsaði ég harla lítið um stjóm- mál. Hér var um tíma ráðskona af miklum framsóknarættum. Hún sagði einu sinni: „Það er alltaf verið að tala um að ég verði kommúnisti af að vera hjá ykkur Halldóri. Ég hef sagt; það er aldrei minnst á póli- tík á því heimili.“ Það var líka rétt, við ræddum ekki um pólitík ef undan er skilið það sem efst var á baugi í blöðum og fréttum á hverjum tíma. Fyrstu hjónabandsárum mínum eyddi ég í að aðlagast Halldóri og hans lífsmáta. Læra að lifa með hon- um og án hans. Ég var oft ein þegar hann var í útlöndum, þá var gott að eiga góða nágranna. Ég hætti fljót- lega að vinna utan heimilis, ég gafst upp á erfiðum samgöngum um hol- ótta moldarvegi sem urðu fljótt ófær- ir vegna snjóa á vetrum. Ég ein- beitti mér í staðinn að heimilinu. Ég stóð fyrir húsbyggingunni á Gljúfra- steini, þótt mér litist í fyrstu ekki á að fara þangað, ég var Reykjavíkur- barn, miðbærinn og rúnturinn voru mitt svæði. Én Halldór hefur ugg- laust frá upphafí ætlað sér að byggja þar. „Getið þið ekki haldið eftir skika í kringum steininn,“ segir hann í bréfi sem hann skrifar systur sinni frá Ameríku. Sú bón kom of seint, það var búið að selja. Seinna keypti hann landskika á fyrrgreindum stað úr Laxneslandi af Jónasi Sveinssyni lækni." Með tárin í augunum „í ferðinni til Rúðuborgar komum við einnig í klaustrið í Clervaux, þar sem’ Halldór var sem ungur maður. Það er ótrúlegt að hann skuli hafa farið þetta, sveitapiltur úr Mosfells- sveitinni, nýlega búinn að missa föð- ur sinn. Hann tók föðurmissinn ákaf- lega nærri sér. Hann brást við eins og þegar hann missti Sigríði systur sína, sem var honum mjög kær, hann minntist varla nokkurn tíma á hana né föður sinn eftir lát þeirra. Halldór hefur aldrei, eins og sumir rithöfund- ar, lýst hörmum sínum á bók, nema þá óbeint. Honum hefur líklega þótt það of mikið einkamál. Fráfall föður Halldórs var óskap- legt áfall fyrir mömmu hans. Áð sögn smakkaði hún ekki mat í þá átta daga sem maðurinn hennar lá banaleguna. Eftir andlát hans stóð hún ein uppi með lítil böm og þenn- an ungling, Hai'.dór, sem ekkert hald var í. Ég heyrði um daginn sagt frá manni sem kom að Laxnesi og vildi láta vísa sér upp að Tröllafossi. Hann bankaði uppá en enginn kom til dyra fyrr en eftir langa mæðu að Halldór opnaði, þá 12 ára gamall. „Það er því miður enginn heima,“ sagði Hall- dór þegar maðurinn hafði borið upp erindið. „Fólkið er allt að vinna við heyskap." Maðurinn spurði af hveiju hann væri ekki að vinna. „Ég,“ svar- aði Halldór hneykslaður, „ég er að skrifa“. Svona hefur hann alltaf ver- ið, hann kom aldrei nálægt neinu á heimilinu „nema að opna budduna," eins og hann sagði stundum." Heimsljós á frönsku „í klaustrið í Clervaux komst hann hvað sem öðru leið. Þegar við Guðný börðum þar að dyrum kom ungur munkur og vísaði okkur á aðrar dyr. Þar fyrir innan var fullorðinn maður að selja minjagripi. „Hér var maður- inn minn, Halldór Laxness, einu sinni, fyrir löngu síðan,“ sagði ég þegar maðurinn var að afgreiða mig með smádót sem ég ætlaði að kaupa. Gamla munkinum brá við. „Leyfíð mér að sýna yður hvað ég er að lesa,“ sagði hann og fór með mig í annað herbergi. Á borðinu hjá honum var Heimsljós á frönsku, sem er nýkomið út. Þetta hafði mikil áhrif bæði á hann og mig. Við Duna vorum báðar með tárin í augunum þegar við skoð- uðum klaustrið. Við áttum ekki síður yndislega stund þegar við komum í jitla þorpið sem Halldór lýsir í bók sinni Dagar hjá munkum. Þar sett- umst við niður og fengum okkur kaffí og reyndum að setja okkur fyr- ir sjónir hvemig allt hefði verið þeg- ar Halldór var þar. Við reyndum að setja okkur í hans spor, við það vökn- uðu ýmsar spumingar, en þeim verð- ur ekki svarað, nú er of seint að spyrja Ilalldór." Samkvæmislj ónið „Þáð hafa verið viðbrigði að þurfa að fara að uppörva þennan mann sem áður var svo andlega sterkur. Með aldrinum urðum við æ nánari. Hall- dór hefur þó alltaf verið tengdur mér, líklega gekk ég að hluta til inn í móðurhlutverkið, eiginkona gegnir oft mörgum hlutverkum í lífí manns síns, stundum er það augljósara en ella. Nóbelsverðlaunin voru vendi- punktur í fleiru en bókmenntalegu tilliti. Verðlaunaferðin hafði mikil áhrif á samband okkar Halldórs. Eins og margir menn hafði Halldór vanist því að hafa konuna sína heima með svuntu, svo birtist hún allt í einu samkvæmisklædd, þá má segja að ég nyti mín í fyrsta skipti í slíkum skrúða, Allir vildu dansa við mig og tala við mig. Halldóri varð talsvert um þetta. Hann hvarflaði frá miðjum samræðum við mektarmenn í bók- menntaheiminum til þess að hvísla að mér: „Þú ert líklega meira sam- kvæmisljón en ég.“ Eg fékk þarna að blómstra sem kona, það hafði gríðarleg áhrif, bæði á mig og hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.