Morgunblaðið - 23.05.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 23.05.1993, Síða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAI 1993 Nokkrir leikarar i Togað á norðurslóðum, f.v. Neville Hutton, Sime- on Truby, Chuck Foley og Gerard McDermott. Þjóðleikhúsið Gestaleikur frá Hull ÞANN 25. maí nk. mun leikhopunnn „The Remould Theatre Comp- any“ frá Hull í Englandi flj’tja leikritið Togað á norðurslóðum („The Northern Trawl“) á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Fjórar sýning- ar verða í Reykjavík, dagana 25.-28. maí, en þaðan mun leikhópur- inn halda norður í land og sýna á Akureyri, Dalvik, Húsavík og Seyðisfirði. Togað á norðurslóðum var frum- flutt árið 1985 og hlaut þá þegar fádæma góðar viðtökur. Hefur verkið verið leikið víðsvegar um Bretland alla tíð síðan. Leikför „The Remould Theatre Company" hófst að þessu sinni í Trömsö í Noregi og frá Islandi heldur hópurinn til Færeyja þar sem leiknar verða þrjár sýningar. Höfundar verksins, þeir Rubert Creed og Jim Hawkins, byggðu það á yfir 70 klst. löngum upptökum á viðtölum við fyrrver- andi sjómenn og fjölskyldur þeirra. Leikritið rekur sögur togarasjó- manna sem sigldu frá Hull og Grimsby til veiða í úfnum og erfið- um miðum N-Atlantshafsins við Grænland, ísland og Noreg. „The Remould Theatre Comp- any“ var stofnað fyrir 12 árum og hefur aðsetur í Hull. Markmið hóps- ins er að semja og ferðast um með ný leikrit, jafnt fyrir böm og full- orðna, en leikferðin til Norðurlanda er fyrsta ferð hópsins utan Bret- landseyja. Jóhannes Andreasen. Morgunblaðið/Kristinn EPTA-tónleikar Jóhannes Andrea- sen í Kirkjuhvoli SEINNI tónleikar Jóhannesar Andreasen á vegum EPTA, Evrópu- sambands píanókennara, verða haldnir í Kirkjuhvoli, í Garðabæ í dag, laugardag, kl. 17.00. Efnisskráin er fjölskrúðug; sónata op. 57, „Apassionata“ eftir Beethoven og fyrri bók af prelúdíum Debussys munu óma þar ásamt verki ungs, færeysks tónskálds sem heitir Sunleif Rasmussen, og Jóhannes hyggst frumflytja. Verkið nefnist „Sem sólargull" og styðst meðal annars við hljóð- mögnun, bergmál og endurvarp til að ná fram þeim áhrifum sem tón- skáldið telur æskileg. Sunleif Ras- mussen er liðlega þrítugt tónskáld sem sótti í framúrstefnujazz í fyrstu en í námi hjá Atla Heimi Sveins- syni um miðjan níunda áratuginn fór áhugi hans að beinast að nú- tímatónlist. Jóhannes Andreasen er þrítugur að aldri. Barnungur lærði hann á píanó í Þórshöfn í Færeyjum og fór síðan til Vínarborgar í nám við tón- listarskóla þar. Hann stundaði að auki kammermúsíknám við Menuh- in-akademíuna í Gstaad í Sviss og hefur tekið þátt í námskeiðum hjá ýmsum þekktum píanóleikurum, auk tónleikahalds víða um Evrópu, bæði einn sér og með hljómsveitum. Björg Þorsteinsdóttír Myndlist Eiríkur Þorláksson Björg Þorsteinsdóttir hefur lengi verið vel metinn þátttakandi í íslensku listalífi. Eftir nám í Handíða- og myndlistarskóla íslands og frekara listanám í Stuttgart og París, tók hún til óspilltra málanna; hún hefur tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis frá 1969, og hélt sína fyrstu einkasýningu í Unuhúsi 1971. Verk hennar er að finna í flestum opinberum söfnum hér á landi, en einnig í ýmsum söfnum erlendis, t.d. á Norðurlöndunum, Spáni, Frakklandi og Póllandi. Nú stendur ýfír stór sýning á verkum listakonunn- ar í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnar- fjarðar. Björg hefur í gegnum tíðina m.a. unnið í grafík og teikningu, en að þessu sinni sýnir hún olíu- og akrýlmálverk, vatnslitamyndir og teikningar unnar með olíukrít; þannig gefst áhorfendum gott tækifæri til að kynnast myndheimi hennar í þeim miðlum, sem listakonan hefur helst unnið með und- anfarið. í verkum sínum gengur Björg út frá fáum form- um, sem koma svo fyrir aftur og aftur í sífellt end- umýjuðu samhengi litasamspiisins»í fletinum. Þessi form em hringurinn, þríhyrningur og sporbaugur, sem oft minnir á hina helgu „mandorla" miðald- anna, þar sem guðlegar verur sátu á tignarlegan hátt inn sporbaugnum. Það er úrvinnsla litanna, sem verður helsta ein- kenni verka listakonunnar. Þ,að eru hin fínni blæ- brigði litanna, sem heilla hana; hér er hvergi að finna æpandi andstæður kröftugra lita, heldur em það næm tilbrigði birtunnar, sem ráða ríkjum. Einnig hefur Björg unnið litinn mismunandi þétt í flötinn, þannig að oft eiga undirtónar mikinn þátt í að móta þá birtu, sem verkin endurspegla. Bjartir litirnir eru lagðir hver ofan á annan, og þannig gefur hver mynd fyrir sig af sér mismunandi blæ, eftir því hversu nálægt verkinu áhorfandinn er staddur. Til þess að koma þessum viðfangsefnum sem best til skila, hefur Björg valið að vinna talsvert í samstæðum mynda; tvö verk með nánast sömu myndbyggingu gefa áhorfandanum gott tækifæri til að njóta mismunandi listaspils verkanna. Þannig em „Hnattaflug I og 11“ (nr. 17 og 18) og „Blátt tungl I og 11“ (nr. 23 og 26) byggð upp á ólíkum litbrigðum, sem sýna vel hversu ríkulegt málverkið getur orðið fyrir tilstilli ekki stærri umbreytinga; fleiri myndasamstæðura styrkja slíkan samanburð. Vinnubrögð Bjargar í ákveðnum lit njóta sín einna best í myndum eins og „Baugar" (nr. 19) og „Ljós- baugar“ (nr. 25), þar sem hinn guli litur er gegnsýrð- ur birtu, sem kemur ekki síst innan úr verkunum. Vatnslitamyndirnar á sýningunni nefnir Björg Björg Þorsteinsdóttir: Baugar. 1993. einu nafni „Aprílglettur“ (nr. 34-48), og í þeim er að finna vissan léttleika, sem vísar til nafnsins. Flet- irnir em litlir og formin taka þar meira rými, um leið og tenging þeirra er lausari en í málverkunum; litavalið er hins vegar oft sterkara, og ber vott um nokkrar þreifingar listakonunnar á þvi sviði. Sverrissal Hafnarborgar fylla verk unnin með ol- íukrít og þar em litirnir mun dekkri en í málverkun- um. Formin em að mestu þau sömu, en þó oft hvass- arí; línuspil verkanna er hér meira áberandi en ella, einkum þar sem er að finna samstæð verk, eins og t.d. í „Spírur 111“ (nr. 3). Myndbyggingin er hins vegar einnig í aðalhlutverki hér, og er „Tríó“ (nr. 13) gott dæmi um hvernig það kemur fram. Hér er á ferðinni sýning listakonu, sem stöðugt er að bæta við sig. Litameðferð hennar í verkunúm hér er sterkur þáttur í hennar list, og sýnir að góð myndlist felst ekki aðeins í því sem er kraftalegt og djarft, heldur ekki síður í markvissri vinnu á fín- legri tónum litaskalans. Sýning Bjargar Þorsteinsdóttur í Hafnarborg í Hafnarfírði stendur til mánudagsins 31. maí, og eru listunnendur hvattir til að líta inn. Mai Bente Bonnevie 0 Um þessar mundir stendur yfir í sýningarsölum Norræna hússins sýning á verkum norskrar lista- konu, Mai Bente Bonnevie, sem nefnir sýningu sína „Af jörðu“. Hér er um að ræða tæplega tuttugu stór málverk, nokkrar litlar myndir og eina innsetn- ingu, sem tengist vel meginviðfangefnum listakon- unnar. Mai Bente Bonnevie mun ekki hafa snúið sér af alvöru að myndlistinni fyrr en á miðjum aldri, eftir að hafa lokið námi við listaakademíuna í Ósló. Hún hafði þó tengst listheiminum áður, þar sem hún hafði stundað nám við hönnunar- og listiðnaðarskól- ann (SHKS) á unga aldri, og lokið háskólanámi í listasögu og bókmenntum; um margra ára skeið kenndi hún í framhaldsskólum og listaskólum, m.a. í Japan, auk þess að starfa sem blaðamaður við kvennatímarit á áttunda áratugnum. Það er sköpunarkraftur jarðarinnar í birtu og hlýju litanna, sem listakonan er að fást við í verkum sínum. í sýningarskrá segir hún m.a.: „Það er það ljósmegin sem býr í jörðinni sem ég vil sýna, eins og sólin er í jörðinni. Ég vil láta eigin birtu litarefn- anna njóta sín eins og best má verða ... liturinn ræður - það er hann sem stjórnar, eins og hann sameinar efni og ljós í óhlutrænum myndum." Þetta viðhorf kemur vel fram i því, að Mai Bente vinnur mest út frá gulum og rauðum litum í fjölda litbrigða, þar sem hitinn og útgeislunin ræður mestu. Flest málverkanna eru byggð upp á abstrakt form- um, og tekst einna best þar sem formin eru fá, og litirnir ráða mestu; sem dæmi um þetta má nefna „Uppljómun" (nr. 24) og „Magma kemur í ljós“ (nr. 5), þar sem uppbygging formanna og ijölbreytt litbrigði þeirra sjást vel. í tveimur sterkum verkum, „Vita I og 11“ (nr. 11 og 12) er kvenlíkaminn hins vegar megin stefíð, og falla hinir sterku rauðu litir einkar vel að kröftug- um formunum; einföld myndbyggingin verður einnig til að styrkja þessar myndir. Flokkur smámynda, sem listakonan nefnir „Pot- ent form“ (nr. 13-21) byggir á hringnum og hinum Mai Bente Bonnevie: „Magma“ kemur í ljós. rauða lit, sem vissulega tengist sköpun á ákveðinn hátt; hins vegar er ímyndin veik í þessu formi og virkar sem daufur formalismi. Innsetningin er vel uppsett, og tengir vel saman jörðina og eldinn, þann sköpunarkraft sem mótar hana og allt líf hennar. Þarna minnir Mai Bente Bonnevie einnig á þá hringrás lífs og dauða, sem yfirskrift sýningarinnar vitnar til, og við erúm öll hluti af. í einfaldri sýningarskrá er sýningin tileinkuð Jó- hönnu, án frekari skýringa. Þannig er hluti hennar umvafinn dulúð, sem gerir að verkum að áhorfand- inn fær á tilfínninguna að hér sé um afar persónu- lega framsetningu listakonunnar að ræða, sem hún leyfir sýningargestum að deila með sér þann tíma, sem sýningin stendur. Sýningin á verkum Mai Bente Bonnevie í Nor- ræna húsinu stendur til annars í hvítasunnu, 31. maí.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.