Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
B—10
X = óþekkt stærð
Kvikmyndir
Arnaldur Indribason
Malcolm X. Sýnd í Saga-bíói. Leik-
stjóri: Spike Lee. Handrit: Lee og
Arnold Perl uppúr ævisögu Malc-
olms X eftir Alex Haley. Aðalhlut-
verk: Denzel Washington, Spike
Lee, Angela Bassett
Ævisögulega myndin Malcolm X
eftir Spike Lee er kyrfilega stað-
sett í nútímanum þótt efni hennar
spanni árin frá seinni heimsstyrjöld-
inni og fram að miðjum sjöunda
áratugnum. Lee byijar myndina á
einni af þrumandi ræðum Malcolms
og undir henni leikur hann mynd-
bandið óhugnarlega af Rodney
King-barsmíðunum. í nk. eftirmála
kallar hann til Nelson Mandela þar
sem hann predikar yfír hópi skóla-
barna. Baráttu svertingja í Banda-
ríkjunum fyrir auknum réttindum
og leit að aukinni sjálfsvitund er
auðvitað hvergi nærri lokið, myndin
er hluti af þeirri baráttu, en hún
sýnir líka að barátta Malcolms var
rétt að byija þegar hann var myrt-
úr og enginn veit hvað hefði orðið
hefði hann lifað. Hann kaus að
kalla sig X, það fól í sér andstöðu
við kerfí hvítra og það fól í sér
óþekkta stærð. Og þannig kannski
lét hann lífið, sem óþekkt stærð.
En hann afrekaði margt og það
er ástæða fyrir því af hveiju Lee,
sem er fremstur kvikrnyndaleik-
stjóra í Bandaríkjunum úr röðum
svertingja, kýs að gera mynd um
hann frekar en annan og frægari
baráttumann fyrir réttindum
svartra sem einnig féll fyrir morð-
ingjahendi, Martin Luther _ King.
Malcolm var mun herskárri. A með-
an Martin predikaði ofbeldislaus
mótmæli hvatti Malcolm svertingja
til að beijast og hann boðaði full-
kominn aðskilnað svartra og hvítra
í Bandaríkjunum. Hann byggði á
trúarkenningum múslima sem hann
kynntist í fangelsi en þegar hann
klauf sig úr hópi svartra múslima
undir forystu fyrrum læriföður síns,
Elía Múhammeðs, var líf hans í
hættu þar til hann var myrtur, lík-
lega af fýrrum félögum sínum.
Lee hefur reist þessu átrúnaðar-
goði sínu veglegan minnisvarða
með sinni ógnarlöngu bíómynd.
Malcolm X er hans Gandi. Hún er
rúmir þrír klukkutímar að lengd og
fjallar eins og nærri má geta mjög
ítarlega um manninn. Það má
skipta frásögninni í þijá hluta; tím-
ann sem Malcolm var eiturlyfjasali
og smákrimmi; tímann í fangelsinu
þegar hann vaknar til vitundar um
hlutverk sitt og tekur að boða kenn-
ingar sínar á götum úti og loks tím-
ann þegar hann hefur sagt skilið
við hóp Elía og boðar nýjar kenn-
ingar um samlyndi allra kynþátta
eftir pílagrímsför til Mekka. Hver
hluti hefur sinn sérstaka slátt. Sá
fyrsti er íjörlegur og jassaður vel
en alltof langur inngangur að því
sem máli skiptir; Lee munar ekki
um að spreða í heilt dansnúmer í
óvssum tilgangi en allur kaflinn
skiptir einhvern veginn svo litlu
máii miðað við það sem síðar ger-
ist. Miðhlutinn er á miklu alvar-
legri nótum og samanþjappaðri um
leið og myndin fer að hafa ein-
hveija vikt og persóna Malcolms
þróast úr hugsunarlausum auðnu-
leysingja í trúfastan boðbera nýrra
tíðinda. Og loks er lokakaflinn, lík-
lega sá besti, þegar Malcolm sér
sitt nýja hlutverk, hann er ekki
lengur þessi herskái predikari held-
ur sér heiminn í nýju ljósi og kvíður
ekki píslarvættisdauða.
Lee tekst á flug með myndavél-
ina og með samstillingu klippingar
og hljóðvinnslu gerir hann myndina
mjög skemmtilega á að horfa svo
minnir stundum á JFK. Hann snýr
myndavélinni í hringi og á hvolf,
svífur með hana um loftin, klippir
inní frásögnina í endurliti atriði úr
æsku Malcolms, birtir sýnir hans í
fangelsinu, hann klippir saman
svart/hvítar myndir og litaðar í n.k.
heimildarmyndastíl og þekktum
andlitum úr leikarastéttinni bregð-
ur fyrir, svo eitthvað sé nefnt. Úr
því kemur áhrifarík bíómynd og
íjarska vel leikstýrð og leikin. Denz-
el Washington fer á kostum í titil-
hlutverkinu og fýlgir þróuninni sem
verður á persónunni mjög vel eftir
með sinni látlausu yfirvegun.
Umsjón Amór G. Ragnarsson
Bridsfélag SÁÁ
Þriðjudaginn 11. maí var spilaður
Michell og þá urðu úrslit þessi:
Norður/suður
Gestur Pálsson - Dinah Dunn 356
Ragnheiður Tómasd. - Guðrún Jóhannesdóttir 351
Guðmundur Þórðarson - Guðný Halldórsdóttir 291
Eysteinn Sigurðsson - Páll Þór BergsSön 291
Austur/Vestur:
Helga Bergmann - Sturla Snæbjömsson 337
Magnús Þorsteinsson - Sigmundur Hjálmarsson321
Þorsteinn Sæmundsson - Haraldur Kristjánsson296
Keppnisstjóri var Sveinn Rúnar
Hauksson.
Bridsfélag Suðurnesja
Birgir Scheving, Gunnar Guðbjöms-
son og Kolbeinn Pálsson urðu efstir í
þriggja kvölda vortvímenningi sem
lauk hjá félaginu sl. mánudag. Keppn-
in um efstu sætin var hörkuspennandi
og titringur í lokaumferðunum en spil-
aður var Michell þannig að staða lá
fýrir eftir hveija umferð.
Þetta var síðasta stórmót vetrarins
hjá félaginu en lokastaða efstu para
varð þessi:
Gunnar-Kolbeinn-Birgir 742
Gísli Torfason - Logi Þormóðsson -
Jóhannes Sigurðsson 739
Ingimar Sumarliðason - Karl Karlsson 723
BjörnDúason-ValurSímonarson 722
HögniOddsson-GunnarSiguijónsson 717
Hæsta skor í norður/suður síðasta
spilakvöldið:
Birgir Scheving - Kolbeinn Pálsson 259
Ingimar Sumarliðason - Karl Karlsson 247
Hæsta skor í austur/vestur:
BjömDúason-ValurSímonarson 289
LogiÞormóðsson-GísliTorfason 262
Spilað verður tvímenningur á mánu-
daginn kemur í Hótel Kristínu kl.
19.45.
Laugardaginn 29. maí verður bæj-
arkeppni milli Keflvíkinga og Sand-
gerðinga og er fyrirhugað að hafa
knall og verðlaunaafhendingu um
kvöldið. Nánar auglýst síðar.
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudag lauk hraðsveita-
keppninni sem jafnframt var loka-
keppni félagsins á þessu starfsári,
sv. Sigrúnar Pétursdóttur vann með
miklum yfirburðum en ásamt henni
spiluðu Sveinn Sigurgeirsson,
Hrafnhildur Skúladóttir og Jörund-
ur Þórðarson í sveitinni. Annars
varð lokastaðan þessi:
Sveit Sigrúnar Pétursdóttur 2755
Sveit Dúu Ólafsdóttur 2605
Sveit Ingu L. Guðmundsdóttur 2599
Sveit Soffíu Daníelsdóttur 2596
Sveit Höllu Ólafsdóttur 2565
Sveit Öldu Hansen 2564
Kripalujóga
Orka sem endist
Byrjendanámskeið hefst 24. maí.
Kennt mánud. og miðvikud. frá
kl. 20.00-21.30.
Kennari Jenný Guðmundsdóttir.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
Átak til
Söfnum fyrir sundlaug
handa fötluðum börnum
- og leggjum skógrækt lið um leið
Eitt mikilvægasta hjalpartækið í þjálfun og uppbyggingu fatlaðra .
bama er sundlaug. í Reykjadal við Mosfellsbæ starfrækir
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra bamaheimili. Það hefur lengi
verið draumur félagsins að koma upp góðri sundlaug á staðnum.
Nú leitum við til landsmanna eftir stuðningi með söfnunarátakinu
Græðum land og þjóð til að láta drauminn rætast.
Söfnunarátak Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra er í samvinnu við
Stöð 2 og Bylgjuna, Kiwanisfélaga víðsvegar um land, Olís og
íslandsbanka sem einnig er fjárgæsluaðili átaksins.
Söfnunin stendur yfír vikuna 24. - 29. maí.
Fyrir hverjar 500 krónur sem safnast verður jafnframt lögð ein
trjáplanta til skógræktar. Hægt er að fá plöntuna afhenta eða hún
verður gróðursett í nafhi gefanda.
Tekið er á móti fjárffamlögum á eftirtöldum stöðum;
Útibúum íslandsbanka • Bensínstöðvum Olís • Kringlunni
Einnig er tekið á móti framlögum alla vikuna í síma 91-811250.
Jafnframt er hægt að leggja inn á tékkareikning félagsins númer 10 í íslandsbanka Mosfellsbæ.
Á þessum stöðvum OLÍS er tekið við fjárframlögum,
afhentar plöntur eða ávísanir á piöntur
Ánanaustum Akranesi Sauðárkróki Homafirði
Állheimum Hvítárvöllum Siglufirði Vestmannaeyjum
Álfabakka Borgamesi Ólafsfiröi Skarðshlíð Eyjafj.
Háaleitisbraut Baulu, Borgarf. Dalvík Hellu
Gullinbrú Ólafsvík Hauganesi Vegamótum
Klöpp Stykkishólmi Akureyri Flúðum
Hamraborg Búðardal Steinhólaskála Minni-Borg
Garðabæ Bæ, Reykh.sveit Húsavík Eyrarbakka
Hafnarftrði Reykhólum Reynihlíð Selfossi
Mosfellsbæ Innri-Múla Þórshöfn Hveragerði
Laugabakka Fellabæ Litlu kaffistofunni
Kjalamesi Blönduskálanum Neskaupsstað Grindavík
Ferstiklu Skagaströnd Reyðarfirði Keflavík
Á þessum gróðrar- og starfsstöðvum Skógræktar
ríkisins fást plöntur afhentar gegn ávísun
í þessum útibúum íslandsbanka er tekiö við fjárframlögum og afhentar ávísanir á plöntur
Bankastræti 5 Dalbraut 3 Háaleitisbraut 58 Kringlunni 7 Laugavegi 105 Laugavegi 172 Lóuhólum 2-6 Lækjargötu 12 Réttarholtsvegi 3 Stórhöfða 17 Suðurlandsbraut 30 Þarabakka 3 Garðabæ, Hörgatúni 2 Hafnarfirði, Reykjavíkurv. 60 Hafnarfirði, Strandgötu 1 Kópavogi, Hamraborg 14a Kópavogi, Smiðjuvegi 1 Mosfellsbæ, Þverholti 6 Seltjamamesi, Eiðistorgi 17 Keflavík, Hafnargötu 60 Akranesi, Kirkjubraut 40 fsafirði, Hafnarstræti 1, Akureyri, Hrísalundi la Akureyri, Skipagötu 14 Blönduósi, Húnabraut 13 Húsavík, Stóragarði 1 Siglufirði, Aðalgötu 34 Selfossi, Áusturvegi 38 Vestmannaeyjum Kirkjuvegi 23
Einnig er tekiö við fjárframlögum og afhentar
plöntur úr gámum við Suðurlands- og Vesturlandsveg
Reykjavík • Suðurhlíð 38
Mógilsá • Kjalamesi
Hvainmur • Skorradal
Hreðavatn • Borgarfirði
Reykjarhóll • Varmahlíð, Skfj.
Vaglir • S-Þingeyjarsýslu
Hallormsstaður • S-Múlasýslu
Egilsstaðir • S-Múlasýslu
Tumastaðir • Fljótshlíð, Rang
Selfoss • Gagnheiði 11
GRÆÐUM
LANDIÐMEÐ
olís
ÍSLANDSBANKI
Fjárgæsluaðili og aðal styrktaraðili átaksins
Siyrtiarf élag lama^ra og faélací:
ra
MorgunblaÖið gefur birtingu þessarar auglýsingar
I