Morgunblaðið - 20.06.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNl 1993
B 3
myndum. Mér finnst þeir taka
áhrif frá Bandaríkjunum og Evr-
ópu hrá. Þeir sía ekki í gegnum
hina persónulegu síu sem hver
listamaður þarf að koma sér upp
til að geta túlkað persónulega og
þess vegna er sannfæringarkraft-
ur listar þeirra mjög takmarkaður.
Samt fannst mér á nokkrum þeirra
eins og þeir væru að vakna til vit-
undar um að þeir þyrftu að hverfa
aftur og skoða hina fornu hefð.“
Bandaríkjamenn hafa sterk
ítök
„Fólk hefur fyrirfram ákveðnar
hugmyndir um Vest-
urlandabúa og Kóre-
ar halda almennt að
Evrópubúar líti upp
til Bandaríkjamanna
en Bandaríkjamenn
hafa mikil umsvif í
landinu. Þeir halda
líka að ljóshærð fal-
leg kona hljóti að
vera vond. Kórea er
mjög amerísk á yfír-
borðinu en eftir lang-
dvöl í landinu gerir
maður sér grein fyrir
því hvað áhrifin rista
grunnt. Hefðimar
eru ótrúlega sterkar
og kæfandi að búa
við, sérstaklega fyrir
frjálslynt fólk.“
Enginn frumleiki í
útliti
„Seoul er gerð fyr-
ir bíla og þeir eiga
allan rétt. Það er
martröð að vera
gangandi vegfarandi
og auðvelt að villast
í borginni. Maður fer
undir göturnar en
ekki yfír þær, nema
á einstaka stað þar
sem eru göngubrýr,
og þegar maður
kemur upp úr neðan-
jarðargatnamótun-
um aftur er maður gjörsamlega
búinn að tapa áttum. Það má segja
að það sé neðanjarðarborg undir
borginni sem tengd er neðanjarð-
arlestakerfínu. Þarna niðri eru
glæsilegar verslanir, veitingastað-
ir og allt er tandurhreint. I borg-
inni er hvergi gert ráð fyrir að
fatlaðir komist leiðar sinnar enda
sér maður hvergi fatlað fólk. Allir
eru tipp-topp og allir virðast vera
á svipuðum aldri. Maður sér hóp
karlmanna sem vinna hjá sama
fyrirtækinu og þeir ganga í fylk-
ingu, allir eins. Innan hvers fyrir-
tækis eru allir eins, sama hve hátt
settir þeir eru. Það mætti halda
að kóreskir karlmenn færu til
(sama!) rakara svona tvisvar á
dag. Það er örugglega ekki til þjóð
sem er jafn snyrtileg um hárið og
Kórear. Frumleiki í klæðaburði
eða útliti er ekki til. Unglingar eru
í skólabúningum og frjálslegasti
hugsanlegi klæðnaður þeirra eru
Levi’s gallabuxur og stuttermabol-
ur sem er gyrtur ofaní!“
Fiðrildapúpur ansi góðar
„Við sáum enga ketti í Kóreu
og fáa hunda nema á markaðnum.
Þar fást hundalæri, reykt og soð-
in. Flestir vina okkar höfðu
smakkað hundakjöt og sumum
þykir það gott en þetta er ekki
matur sem fólk borðar að stað-
aldri. Hins vegar eru fíðrildapúpur
oft á borðum. Þær eru borðaðar
líkt og við borðum kartöfluflögur.
Þær eru ansi góðar og svipaðar
undir tönn og ristuð brauðskorpa.
Kórear borða harðfísk eins og við,
þeir þurrka eiginlega allan físk,
m.a. smokkfisk. Þeir rífa hann
niður og borða með sterkri sósu.
Þeir borða ekki brauð og ekki ost,
þeir borða heitan mat á morgn-
ana, súpu og grjón. Þeir hugsa
alltaf um að halda jafnvægi í því
sem þeir láta ofan í sig; á móti
þurru kemur vökvi og á móti
sterku kemur milt. Kórear borða
snemma á kvöldin og fara aldrei
saddir að sofa. Þeir eru mjög
meðvitaðir um heilsu sína og flest-
ir halda í heiðri hið gullna lögmál
að borða aldrei nema 75% af því
sem þá langar í!“
Þjóðerniskennd í uppsveiflu
„Því meira sem þú drekkur og
borðar því minni kona ertu en hið
gagnstæða gildir um karlmenn. Á
þetta er lögð rík áhersla. Kórear
leggja mikið upp úr hefðum í sam-
bandi við mat og drykk og það er
í raun stórkostleg lífsreynsla að
horfa á þá borða. Málsverðir eru
mikilvægur þáttur í samskiptum
kynjanna, þá er hægt
að gefa alls konar
skilaboð. Venjulegar
daglegar máltíðir eru
bara innbyrtar í nær-
ingarskyni. Á veit-
ingastað situr maður
ekki yfír tómum disk-
um, það er úðað í sig
og síðan er farið út.
Öðru máli gegnir
þegar karlmaður
býður konu út að
borða. Þá er mun
lengri tíma_ eytt í
máltíðina. í hverri
máltíð eru margir
réttir, allt að 15 með
aðalrétti og allir
bomir fram samtím-
is. Nú er þjóðernis-
kennd í uppsveiflu í
Kóreu, sérstaklega
hvað varðar mat. Nú
er smart að vera þjóð
sinni og hefðum
trúr.“
Vatnið þarf að
hvíla sig
„Ég eyddi miklum
tíma í að stúdera
mannlífíð, ólík við-
brögð fólks, hegðun
þess og væntingar til
lífsins. Það er hent-
ugt að vera áhorfandi
og geta skynjað óper-
sónulega. Eftir því sem tíminn leið
þá gat maður sigtað þetta í gegn-
um eigin reynslu í Kóreu og hafði
meiri skilning á því sem maður
var áhorfandi að.
Þó að skilningurinn ykist með
tímanum var stöðugt eitthvað að
koma okkur á óvart. Ein dæmi-
saga um slíkt er sundferðin okk-
ar. Við fórum í sund, héldum að
þetta væri svipað og að fara í
baðhús. Þegar við ætluðum að
fara að stinga okkur út í var allt
í einu blásið í flautu. Fyrr en varði
sáum við að allir voru komnir upp
úr og við skildum ekki neitt í neinu.
Okkur var síðan sagt að laugin
þyrfti að hvíla sig. Við fengum
þó aldrei neinar nánari skýringar
á því hvaða hugsun lægi að baki
hvíld vatnsins.“
Spánveijar austursins
„Yfír jólin fórum við í ferðalag
til að endurnýja vegabréfsáritan-
irnar. Við höfðum verið í vinnu-
stofunni öllum stundum og höfð-
um þörf fyrir að komast eitthvað
burt. Við fórum til Kína í hálfan
mánuð, vorum í Shanghai á að-
fangadag og í Peking um áramót-
in. Að koma til Kína er nokkuð
sem lætur engan ósnortinn. Við
héldum að Austurlandabúar væru
tiltölulega líkir en Kínveijar eru
ótrúlega ólíkir Kóreum. Það má
segja að Kínveijar séu Spánveijar
austursins, þeir eru opnir og lífleg-
ir en ekki eins þrifalegir og Kóre-
ar. I Kína er allt óhreint, fólk býr
við ótrúlega fátækt og fæstir hafa
baðaðstöðu. Maður fann sjálfur
hvað það var erfitt að halda sér
hreinum því það liggur kolaryk
yfir öllu. Maður var alltaf með
sorgarrendur undir nöglunum. Ég
kunni í það heila betur við Kín-
veija en Kórea. Kínveijar eru glað-
legri en Kórear sem þora ekki að
brosa öðruvísi en að grípa fyrir
„Botnormasúpan var
skásti maturinn sem við
fengum í Kína sem var
annars hræðilega vond-
ur, öfugt við það sem
við bjuggumst við.“ Hér
er verið að verka botn-
orma á markaðnum í
Shanghai.
munninn á sér. Kínveijar eru for-
vitnir og ótrúlega hjálplegir, vilja
allt gera fyrir náungann."
Menningarlíf og listsköpun í
Barcelona
Meðan Rebekka var í námi í
Bellas Artes vann hún á sumrin
hér heima við myndskreytingar
fyrir ýmsa aðila, m.a. auglýsinga-
stofur, Námsgagnastofnun og
fleiri bókaútgáfur. Hún býr núna
á Álafossi, þar sem listamenn hafa
komið sér upp aðstöðu, og þar er
hún að mála og vinna úr hugmynd-
um fyrir skúlptúr. í haust ætlar
hún aftur til Barcelona og reyna
að lifa þar af listinni. „Ég ætla að
fá mér vinnustofu, reyna að halda
sýningu og láta reyna á það hvort
ég get lifað af listinni. Mig langar
til að njóta menningarlífsins og
lífsins yfir höfuð en mér fínnst
mjög spennandi og skemmtilegt
að búa á Spáni. Mig langar líka
að prófa að vera þar án þess að
vera námsmaður — lifa í raunveru-
leikanum, ef svo má segja. í fyrra
kom upp sá möguleiki að vinna
með leikhópi, hanna sviðsmyndir,
búninga og fleira en ég hef mikinn
áhuga á að vinna með leikhúsi.
Leikhúsvinna var hluti af náminu
og mig langar að vita hvort þessi
möguleiki er enn opinn.“
Og svo er það skúlptúrinn
„Skúlptúr er þess eðlis að þegar
maður byijar að fást við hann þá
heltekur hann mann. Maður klæð-
ir hugmyndina í föt og síðan fer
það eftir veðri og vindum hvernig
föt maður klæðir hana í. Hver
hugmynd kallar á ákveðið efni og
hún krefst ákveðins búnings. Ég
verð alltaf jafn hissa þegar fólk
spyr mig í hvaða efni ég vinni,
því þótt efnið skipti vissulega
máli þá skiptir hugmyndin sem
efnið klæðir alltaf mestu, hún er
eins og sálin í líkamanum.
Fæðing hugmyndanna er líka
misjöfn og laus við að vera form-
úlukennd. Stundum fæðist hún
fullbúin en stundum er eins og
annað komi á undan hinu, hug-
myndin eða búningurinn. Yfirleitt
kemur hugmyndin á undan og þá
þarf að fínna henni búning eins
og þegar leikari er klæddur í hlut-
verk sitt. Á meðan verið er að
klæða hugmyndina í búning,
draga hana úr huglæga heiminum
yfír í hinn hlutlæga þá tekur hún
völdin. Þótt maður reyni að þijósk-
ast við er yfirleitt skynsamlegast
að hlusta á hugmyndina. Hug-
myndin fæðist, síðan fer hún að
teyma mig. Spenna myndast á
milli mín og hugmyndarinnar en
þegar það gerist fínnst mér ég
vera stödd í elexír sköpunarinnar!“
Tveir góðir
Háir stærðir 36-46
Lágir stærðir 36-42
Verð U99tXf-
990,-
----SKOVUISUíV
S% KIVKJAVÍKLIR
Póstsendum
Laugavegi 95
sfmi 62 45 90
:
LEIÐBEIIMEIMDA-
IMAMSKEIÐ I
SKYNDIHJÁLP
Fræðslumiðstöö Rauða kross íslands fyrirhugar að halda
tvö leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp.
1) Námskeið ætlað kennurum. Haldið dagana 18. til 20.
ágúst í Kennaraháskóla íslands.
2) Námskeið ætlað fólki úr heilbrigðisstéttum, sjúkraflutn-
ingamönnum og félögum í hjálpar- og björgunarsveitum.
Haldið dagana 27. ágúst til 4. september að
Hótel Lind.
Að námskeiðinu loknu öðlast þátttakendur réttindi til að
kenna almenningi skyndihjálp.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí.
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu RKÍ í síma
91-626722.
FRÆÐSLUMIÐSTOÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími 91-626722
■
.
m
anow
steypumótakerfi
Léttbyggð og sterk álsteypumót
Einföld og hröð
uppsetning,
þökk sé
MEVA
hraðlásnum.
Getum einnig útvegað frá
framleiðanda notuð og
uppgerð álmót á mjög
góðu verði.
SÝNISHORN Á STAÐNUM
Pallar hf.
VERKPALLAR - STIGAR
DALVEGI 24,
200 KÖPAVOGUR
* (91) 42322 - 641020