Morgunblaðið - 06.08.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993
KÓNGAFÓLK
Danaprins kominn
heim úr námi
Anita og June Pointer klappa ánægðar á maga Ruth Pointer.
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morg-
unblaðsins.
Það eru ekki allir ferðalangar sem sjá sig knúna
til að halda blaðamannafund á flugvellinum þeg-
ar þeir snúa heim eftir tíu mánaða vist utan landstein-
anna. Friðrik krónprins Dana gerði það um daginn
þegar hann kom heim eftir að hafa stundað nám vi
Harward-háákóla og keyrt um þver og endilöng Banda-
ríkin.
Friðrik prins leggur stund á stjómmálafræði við
Árósarháskóla eins og móðir hans gerði á sínum tíma.
í vetur hefur hann verið við nám í Harward og það
verður metið sem hluti af námi hans heima fyrir.
Prinsinn mætti blaðamönnum sportlega klæddur í
blárri skyrtu, svolítið lubbalegur, en það var þó einkum
fótabúnaðurinn sem dró að sér athygli blaðamann-
anna, því á fótum sér bar hann þung og þykk amer-
ísk kúrekastígvél.
Lærdómsríkur tími
Prinsinn sagðist ánægður með dvölina sem hefði
verið sér lærdómsrík, ekki aðeins námið sjálft, heldur
einnig kynnin af bandarísku þjóðfélagi. Hann heim-
sótti Clinton í Hvíta húsið, auk þess sem hann tók til
hendinni á heimili fyrir heimilislausa. Hann sá því
ekki aðeins allsnægtimar heldur einnig örbirgðina.
Sagði hann að þetta hefði haft mikil áhrif á sig. Ferð-
inni lauk hann síðan með því að keyra um Bandaríkin
í kádilljáki ásamt dönskum félaga sínum.
Aðspurður sagðist hann ekki hafa saknað dönsku
blaðamannanna heldur notið þess að vera Friðrik
Henrikssen, eins og hann hét vestra.
Fyrsta kvöldið heima fyrir notaði hann til að fara
á tónleika og uppákomu með hljómsveitinni U2. I
haust sest hann svo að nýju á skólabekk í Árósum.
íslensk stúlka hittir krónprinsinn
Morgunblaðið heyrði af skemmtilegri sögu í sam-
bandi við Friðrik og tónleika U2 og fékk hana stað-
festa hjá viðkomandi. íslenskur blaðamaður á Vik-
unni, Sigrún Sigurðardóttir, var á tónleikunum þar
sem henni var ætlað að taka myndir. Hljómsveitarmeð-
limir höfðu neitað öllum norrænum blaðamönnum um
viðtal, en hins vegar hafði ástralskur blaðamaður feng-
ið áheym hjá hljómsveitinni. Fyrir mikla harðfylgni
tókst Sigrúnu að ná viðtali við hljómsveitarmeðlimina
ásamt ástralska blaðamanninum.
Hver er þessi maður?
Það skondna við kvöldið var þó að Sigrún hitti
Friðrik Danaprins og talaði við hann tvívegis án þess
að vita hver hann var. „Fyrir tónleikana hittist fjöl-
miðlafólkið ásamt ýmsum aðstandendum tónleik-
anna,“ sagði Sigrún í spjalli við Morgunblaðið. „Þegar
TONLISTARFOLK
Xhdro
Vatnsþéttingarefni
- VATNSFÆLUR
-100% ACRYL MÁLNING
- STEYPUVIÐGERÐAREFNI
- GÓLFVIÐGERÐAREFNI
Efni sem standast prófanir
út um allan heim, síðan 1912.
!l steinprýði
Stangarhyl 7, Sifni: 672777.
Friðrik Danaprins hefur snúið til baka úr námi
frá Bandaríkjunum. Þetta er forsíðan sem Sig-
rún Sigurðardóttir sá og uppgötvaði þá fyrst
hver ókunni maðurinn var.
Friðrik kom inn sá ég að margir þyrptust að honum
og fjöldi mynda voru teknar. Ég kunni ekki við að
spyija hver þetta væri en hélt að hann væri einn fjölm-
iðlamannanna."
Sigrún segist síðan hafa gengið til dansks kunn-
ingja síns, sem hún átti erindi við, en hann var að
tala við krónprinsinn. „Þegar ég hafði lokið erindi
mínu sagði kunninginn: „Þetta er Friðrik.“ „Já, hæ
ég heiti Sigrún. Ég er blaðamaður frá íslandi," sagði
ég og gekk þar með í burtu.“
Prinsinn skemmti sér vel
Eftir tónleikana hittist fólkið aftur og þá gekk Frið-
rik til Sigrúnar, spurði hvemig hún hefði skemmt sér
og sagði að sér hefðu þótt tónleikamir góðir. „Svo
fór ég að tala við aðra stráka sem voru miklu meira
spennandi," sagði Sigrún og hló.
Hún gerir sjálf grín að því að hún hafí ekki þekkt
Friðrik í sjón. „Þrátt fyrir að ég hafi fengið póstkort
sent árlega með myndum af honum frá vinum mínum
þekkti ég hann ekki. Hann hefur bæði fítnað og svo
er maður vanur að sjá hann í jakkafötum, en þarna
var hann í kúrekastígvélum, skræpóttri skyrtu og
heldur hallærislegur. Þetta var nú samt dálítið leiðin-
legt, því ég var með myndavélina á öxlinni allan tím-
ann,“ bætti hún við.
Það var svo ekki fyrr en daginn eftir þegar Sigrún
keypti BT að hún uppgötvaði að það var krónprins
Danmerkur sem hún hafði hitt.
MATERNITY
Verðandi
mæður:
Meðgöngubelti
Meðgöngunærfatnaður
Meðgöngu-
brjóstahaldarar
Gjafahaldarar
tvmFDis
Laugavegi 26, s. 13300
Kringlunni 8-12, s. 33600
Fjölgun í
Pointer-ættinni
Ruth Pointer, sú elsta af Pointer-
systrum, lætur ekki aldurinn
á sig fá varðandi bameignir því nú
í ágúst á hún von á tvíburum. Hún
segist ekki óttast fæðinguna, hún
eigi uppkominn son og sé því ekki
að fæða í fyrsta sinn.
Systumar hafa sungið fyrir aðdá-
endur sína í 30 ár, eða frá því þær
vom 17-25 ára gamlar. Þær
brugðu ekki út af vana sínum í
sumar og héldu tónleika þrátt fyrir
ásigkomulag Ruthar. „Við höfum
alls ekki efni á því að hætta að
syngja,“ er haft eftir þeim. Þær
bentu ennfremur á að laun þeirra
væru ekki í líkingu við þær upphæð-
ir sem Michael Jackson eða Whitney
Houston fengju.
Prince á tónleikum
Reuter
Bandaríski söngvarinn Prince var á tónleikaferðalagi í Bretlandi
um síðustu mánaðamót þar sem hann söng meðal annars lagið
sitt Let’s Go Crazy and Sexy, sem slegið hefur í gegn í Bandaríkj-
unum og víðar að undanförnu. Segir sagan að hann heimti að
öll þau hótelherbergi sem hann sofi í verði máluð svört. Sömuleið-
is vill hann að eðalvagnamir sem hann ekur í séu með svörtu
áklæði.
SJONVARP
Vill búa til mynd
um forsetafrúrnar
Bandaríska sjónvarpsfrétta-
konan Barbara Walters hefur
áhuga á að framleiða þáttaröð um
Ómissandi
upplýsingabanki
forsetafrúr Bandaríkjanna undan-
farin 30 ár. Þær sem leitað hefur
verið til og hafa gefið vilyrði fyrir
samvinnu eru Lady Bird Johnson,
Betty Ford, Rosalyn Carter, Nancy
Reagan og Barbara Bush. Þær hafa
■sagst vera tilkippilegar að segja frá
opinberu lífi sínu í Hvíta húsinu.
Núverandi forsetafrú, Hillary Clint-
on, svaraði því til að væru fyrrver-
andi forsetafrúr reiðubúnar í slag-
inn stæði hún ekki á móti því. En
sú sem eftirsóttust þykir, Jacquel-
ine Kennedy Onassis, hefur hingað
til ekki verið mikið gefin fyrir að
opinbera líf sitt, og því eru uppi
vangaveltur um hvort framleiðsla
þáttaraðanna strandi á henni.
Reuter
Barbara Bush og Hillary Clinton
eru tilbúnar að segja frá lífi sínu
í Hvíta húsinu.