Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
19
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
m
Uffe í ham
Uffe Ellemann Jensen var í ham við Hraunsál í Laxá í Aðaldal
á dögunum, veiddi fyrst þennan 17 punda hæng á Blue Charm nr.
8 með gáruhnút. Skömmu síðar náði hann svo hrygnunni, en hún
var 14 punda.
Stórstraumur er nýafstaðinn
og gengur veiði yfirleitt þolan-
lega, en mikið mun vera af særð-
um laxi víða í ánum. Ekki er
Ijóst af hveiju sárin stafa. Lax-
arnir eru marðir, „eins og eftir
reipi“, segir Torfi Ásgeirsson
umsjónarmaður Haukadalsár.
„Þetta eru engir smámarblettir.
Menn geta lagt fingur sína í
förin á löxunum. Svo eru marg-
ir rispaðir, margir svo illa að
roðið er af á stórum flákum og
menn sjá þá sveimandi skellótta
um árnar,“ bætir Torfi við.
Haukan...
í gær voru komnir tæplega 500
laxar úr Haukadalsá og þótti Torfa
Ásgeirssyni það „nokkuð mein-
hægt, en mætti ekki vera minna“.
Að sögn Torfa er stöðugt að ganga
lax í ána, en ekki eins mikið magn
og búast hefði mátt við, Gott vatn
er í ánni um þessar mundir.
Laxá í Dölum
„Það rigndi á fimmtudaginn og
aftur í fyrradag og laxinn tók sig
þá til og fór að dreifa sér betur
en áður. Það kom kippur í veiðina
og það eru kómnir rúmlega 400
laxar á land. Það er allt í lagi, en
ætti að vera meira. Við vitum af
þessum særðu löxum hér og þeir
hafa reyndar verið í ánni síðustu
sumur,“ sagði Gunnar Björnsson
kokkur í Þrándargili við Laxá í
Dölum í gærdag. Hann sagði enn-
fremur, að mun minna væri í ánni
af hefðbundnum stórlöxum, meðal-
vigtin væri minni.
Bærileg staða í Hítará
í fyrrakvöld voru komnir 125
laxar af aðalsvæði Hítarár og 20
laxar til viðbótar af svæðinu Hít-
ará 2. Hítará hefur verið í lægð
síðustu árin þannig að þetta eru
tölur sem benda til uppsveiflu. Áin
er vön að taka við sér síðsumars
og því gæti lokatalan orðið þolan-
leg, enda telja menn að talsvert
sé gengið í ána af laxi.
Hér og þar
Fyrir skömmu voru laxarnir af
Fjallinu í Langá orðnir 60 talsins
og úr Brynjudalsá voru í gærmorg-
un komnir tæplega 60 laxar. í
fyrrakvöld voru og komnir 911
laxar úr Elliðaánum, en á sama
tíma í fyrra voru komnir 863 laxar
á land og var þó byijað fimm dög-
um fyrr í fyrra. Þá má geta þess,
að Snæfoksstaðaveiðar í Hvítá í
Árnessýslu höfðu í gærmorgun
gefið rúmlega 50 laxa.
Dregur Laxá á Norðurá?
Orri Vigfússon sagði í gærdag, að
Laxá í Aðaldal væri komin í 1400
laxa og veiði gengi þar með ágæt-
um, algeng dagsveiði væri 35 til
40 laxar. Sagðist Orri reikna með
því að mjótt yrði á mununum á
Laxá og Norðurá er yfir lyki, en
veiði stendur til 9. september í
Laxá, en lýkur í ágústlok í Norð-
urá. Úffe Elleman Jensen utanrík-
isráðherra Danmerkur var við veið-
ar í Laxá ásamt Orra á dögunum
og fékk nokkra laxa, þar á meðal
einn 17 punda hæng í Hraunsál á
flugu. Þá sagði Orri, að sláandi
væri að annar hver stórlax úr ánni,
þ.e.a.s. laxar sem hafa verið tvö
ár í sjó eða lengur, væru illa farn-
ir eftir sjávarnet og yrði að taka
til hendinni og sporna við þeim
vaxandi ófögnuði.
Rífandi veiði í Svartá
Mjög góð veiði hefur verið í Svartá
í Húnavatnssýslu að undanförnu
og fyrir skömmu fór holl úr ánni
með 34 laxa, en það er þriggja
stanga veiði á tveimur dögum. Síð-
ustu holl á undan voru með 20 til
30 fiska. Mest er þetta vænn eins
árs fískur úr sjó, en slatti er einn-
ig af vænum laxi innan um. Fyrir
nokkru voru komnir um 900 laxar
upp fyrir teljarann í Ennisflúðum
í Blöndu, auk þess sem það fer
alltaf eitthvað flúðirnar sjálfar
þegar vatnshæð er hagstæð sem
hún þykir hafa verið. Lax er kom-
in um alla Svartá, en samt hafa
vatnaskilin verið drýgst til veiða
og þar er að sögn mjög mikill lax
saman kominn.
ANDRÉS
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22A - SÍMI 18250
Köflóttar buxur í golfið, verð kr. 2.900
Regngallar og vindjakkar fyrir öll veður
Buxur á veiðimennina, verð kr. 5.900-6.400
Flauelsbuxur í úrvali, verð kr. 1.790-5.600
Á VEGGI, LOFT OG GÓLF
TRAUSTARI HUÓÐEINANGRUN,
ÞYNGRI OG STEINULL
ÞVÍ ÓÞÖRF. A FLOKKUR
ELDTRAUSTAR
VATNSHELDAR
ÖRUGGT NAGLHALD
KANTSKURÐUR SEM EGG
HOLLENSK GÆÐAVARA
Þ.ÞORGRfMSSON &C0
ÁRMÚLA29, SIMI 38640
*61 kr.: Verð á 1 mínútu símtali
(sjálfvirkt val) til Hollands
á dagtaxta m.vsk.
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMI
Ómissandi
uppljsingabanki
Innilegar þakkir Jyrir heillaóskir og aðra vin-
semd mér sýnda í tilefni 70 ára afmcelis míns
26. júlí sl.
Þórarinn Sigurjónsson,
Laugardælum.
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
Sálfræðistofa
Dr. Gunnar Hrafn Birgisson,
sérgrein klínísk sálfræði.
Hef opnað stofu á Hverfisgötu 73, Reykjavík.
Sálfræðileg próf, greining, meðferð og handleiðsla.
Tímapantanir í síma 12174 eða í héimasíma 24782
milli kl. 9 og 18 virka daga.
VANTAR ÞIG KÆLISKÁP?
BLOMBERG
hefur réttu lausnina!
BLOMBERG skáparnir eru búnir Við bjóðum 20 gerðir af kæli-
glæsilegum innréttingum með og frystiskápum frá Blomberg,
færanlegum hillum í hurð og skáp. 55 eða 60 cm breiða.
Einn þeirra hentar þér örugglega!
Kæli/frystiskápur
KFS 270
Kælir: 190 lítrar
nettó, alsjálfvirk af-
hríming, 3 hillur, 2
grænmetisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 52 lítrar
nettó, 3 frysti-
skúffur með
kuldahlít.Orku-
notkun á sólar-
hring: 1.6 kWh.
Mál:
H144xB60xD60 cm.
Verð kr. 69.900 eða kr. 66.400 stgr.
Kæli/frystiskápur
KFS 350
Kælir: 222 lítrar nettó,
alsjálfvirk afhríming,
4 hillur, 3 færanlegar
og ein með flöskugati,
2 grænmetisskúffur,
færanlegar hillur f
hurð, innbyggt Ijós.
Frystir: 86 lítrar nettó, i
2 frystiskúffur og
1 hilla með kuldahlíf.
Mál: H184xB60xD60 cm.
Verð kr. 95.900 eða kr. 89.187 stgr.
Kæli/frystiskápur
KFS345
Kælir: 190 lítrar
nettó, alsjálfvirk af-
hríming, 3 hillur, 2
grænmetisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 42 lítrar
nettó, 2 frystiskúffur
með kuldahlíf.
Orkunotkun á sólar-
hring 1.7 kWh.
Mál: H184xB60x
D60 cm.
Verð kr. 94.900
eða kr. 88.257 stgr. \
Kæli/
frystiskápur
KFS 230
Kælir: 166 lítrar
nettó, alsjálfvirk
afhríming, 3
hillur, græn-
metisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 42 lítrar;
nettó, 2 frysti-
skúffur með
kuldahlíf.
Orkunotkun
ásólarhring. 1.3 Kwh.
Mál: H139.5xB55xD58 cm.
Verð kr. 62.900 eða kr. 59.755 stgr.
Kæli/frystiskápur
KFS310
Kælir: 208 lítrar
nettó, 4 hillur, 2
grænmetiskúffur,
innbyggð lýsing.
Frystir: 67 lítrar
nettó, 2 frysti-
skúffur og 1 hilla
með kuldahlif.
Orkunotkun á
sólarhring 1.6 kWh.
Mál: H178xB55
xD58.
Verð kr. 78.900
eða kr. 73.377 stgr.
Kæli/
frystiskápur
KFS 282
Kælir: 217 lítrar
nettó, alsjálf-
virk afhríming,
5 hillur, 2 græn-
metisskúffur,
innbyggt Ijós.
Frystir: 53
lítrar netó,
1 hilla.
Orkunotkun á
sólarhring
1.65 kWh.
Mál:
H153.5xB55xD58.
Verð kr. 62.900 eða kr. 59.755 stgr.
Kynntu þér nýju, mjúku
línuna frá
Blombera
KFS 243
Samskonar skápur
Kælir: 190 lítrar nettó.
Frystir: 50 lítrar nettó.
Mál: H144xB54xD60.
Verð kr. 59.900 eða kr. 56.900 stgr.
MffMff Einar
MmM Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 1T 622901 og 622900