Morgunblaðið - 12.08.1993, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.08.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 29 tróðum við okkur út af mat sem ekki var á hvers manns borðum og ævintýralegu sælgæti með dularfull- um nöfnum og sannarlega nutum við þess hámarks sælunnar á jörðinni. Heimili þeirra Sigrúnar og Bjössa var líka harla frábrugðið öðrum heimilum sem við höfðum kynni af. Hákiassísk húsgögn, málverk meist- aranna veggjum, dúnmjúk ítölsk teppi og tónlist hinna gömlu snillinga mynduðu umgjörð sem drottningu hæfði. Ást og gagnkvæm virðing þeirra hjóna leyndist engum sem til þekkti. Sigrún vann langan starfsaldur í Landsbanka íslands og skilaði þar verki sem enginn blettur féll á. Hún var oft ein í löngum fjarvistum bónda síns, eignaðist fáa vini en trausta og undi sér gjarna við lestur góðra bóka. Fáum hefur tekist sem Sigrúnu að lifa vammlausu lífi, þessari göf- ugu konu sem frændi minn eignaðist fyrir gjafmildi forlaganna. Yfir minn- ingu slíkrar mannkostakonu hvílir ljómi sem seint dofnar. Þórður Helgason. t Elskuleg systir okkar, NICOLE ROXANNE ADAL, lést i sjúkrahúsi í Vancouver, Kanada, 8. ágúst sl. Rosina Myrtie Vilhjálmsdóttir, Anna Peggy Friðriksdóttir. Ástkær vinkona mín og amma okkar, MAGNFRÍÐUR SIGURBJARNARDÓTTIR, Hofteigi 16, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 10. ágúst. Axel Guðmundsson, Lára Stefánsdóttir, Gísli Gíslason, Fríður Birna Stefánsdóttir, Jóhann Gunnar Stefánsson, Sigrún Dóra Jónsdóttir og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGRID MARKAN, Laugateigi 28, lést þann 1. ágúst sl. Útför hennar hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Starfsfólki öldrunardeildar Hvitabandsins eru færðar alúðarþakkir fyrir umönnunina. Rolf Markan, Sofie Marie Markan, Björn Markan, Helén Louise Markan, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU KRISTINSDÓTTUR, Grenigrund 16, verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 13. ágúst, kl. 15.00. Skúli Júliusson og fjölskylda. ■Þj&O A UGL YSINGA R / V v_/ V—/ L I v-/ #1 N| V,—/ / V I \ Innheimtufólk Óskum eftir innheimtufólki á Dalvík og Grundarfirði. Upplýsingar veitir Halldóra í síma 812300 milli kl. 9 og 16. FROÐI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA „Au pair“! „Au pair“ óskast til heimilisstarfa og að gæta 4ra ára drengs á heimili íslenskra hjóna í Ósló. Góð laun og góð aðstaða í boði. Viðkomandi þarf að vera minnst 18 ára. Má ekki reykja og þarf að hefja störf í byrjun september nk. Nánari upplýsingar í síma 615805. Sálfræðikennara vantar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi vant- ar kennara í sálfræði (full staða). Umsóknarfrestur um starfið er framlengdur til 18. ágúst. Umsóknir skal senda Fjölbrautaskóla Vestur- lands, Vogabraut 5, 300 Akranesi. Upplýsingar veitir undirritaður í síma 93-12544. Skólameistari. Innflutnings- og heildsölufyrirtæki óska eftir að ráða skrifstofumann frá og með 1. október nk. Starfið felst í umsjón með öllum fjármálum fyrirtækisins, þ.m.t. bók- hald, innheimtu, tollskýrslugerð, áætlana- gerð og úrvinnslu gagna. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé viðskipta- fræðingur eða hafi sambærilega menntun. Aðeins kemur til greina aðili sem hefur reynslu á þessu sviði. Umsóknarfrestur er til og með 18 ágúst nk. Svar sendist á auglýsingadeild Mbl. merkt: AJ - 36". Fullum trúnaði heitið. Barnafataverslun - innflutningur Óskum eftir barnafataverslun(um) til þess að leysa saman út barnafatnað, haust- og jólavörur. Beinn innflutningur. Tilvalið fyrir litlar verslanir úti á landi. Um áframhaldandi viðskipti við erlendan aðila getur verið að ræða. Bregðast þarf fljótt við og senda svör fyrir 17. ágústtil Mbl. merkt: „Innflutningur 1993". Njáluslóðir - Þórsmörk Árleg sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík verður farin laugardaginn 14. ágúst 1993. Að þessu sinni verður farið á söguslóð- ir Njálu og inn í Þórsmörk. Aðal leiðsögumað- ur ferðarinnar verður Jón Böðvarsson. í öllum bílum verða reyndir fararstjórar. Steingrímur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, mun ávarpa ferðalanga. Ferðaáætlunin er þessi: Kl. 8.00 frá BSÍ. Kl. 10.00 frá Hvolsvelli. Kl. 11.15 frá Bergþórshvoli. Kl. 12.30 frá Gunnarshólma. Kl. 17.00 úr Þórsmörk. Kl. 18.45 frá Hlíðarenda. Kl. 20.45 frá Gunnarssteini. Kl. 22.00 frá Hellu. Áætlað er að vera í Reykjavík kl. 23.30. Skráning íferðina er á skrifstofu Framsóknar- flokksins í síma 624480 frá 9.-13. ágúst. Verð fyrir fullorðna. 2.900 kr., börn yngri en 12 ára 1.500 kr. Steingrfmur Hermannsson Fulltrúaráðið. Söluturn - skyndibiti Til sölu vel útbúið og staðsett fyrirtæki. Góð afkoma fyrir duglegt fólk. Upplýsingar á skrifstofu. Fyrirtækjasala Húsafells, Langholtsvegi 115, sími 680445. Halldór Svavarsson, sölustjóri. Frá Kvennaskólanum íReykjavík Vegna bilunar í hugbúnaði hjá viðskiptabanka skólans var einungis hluti síðari innheimtu- seðla vegna skólagjalds sendur út um síðast- liðin mánaðamót. Seðlarnir verða sendir út í þessari viku og er nýr gjalddagi og eindagi settur 18. ágúst. Skólameistari. kJM XXXII sambandsþing Ir^ Sambands ungra ,,,“,.1, sjálfstæðismanna 13.-15. ágúst 1993 Úr viðjum ríkisafskipta með frelsi að leiðarljósi DAGSKRÁ: Föstudagur: 13.00 Skráning þingfulltrúa hefst á Hótel Örk. 18.00 Setning sambandsþings SUS á Hótel Örk. Ávarp formanns SUS, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Forsætisráðherra, Davíð Oddsson, ávarpar þinggesti. Ávarp Hjalta Helgasonar, for- manns FUS Hveragerði, og Kjartans Björnssonar, formanns Hersirs, FUS Selfossi. 19.30 Kvöldverður á Hótel Örk (pottréttur, pasta og brauð). 20.30 Fundur SUS-þings með ráðherrum Sjálfstæðisflokksins á Hótel Örk. 23.00 Opiö hús í Sjálfstæðishúsinu í Hveragerði ásamt léttum veigum. SUS-ball. Laugardagur: 07.00-10.00 Morgunveröur. 10.00-12.30 Nefndastörf. 12.30-13.30 Hádegisverður (glænýr Ölfusárlax). 13.30 Þingfundi og nefndarstörfum fram haldið. 17.00 Fótboltakeppni gestgjafa og úrvals SUS-ara á iþrótta- vellinum á Selfossi. Fari svo ólíklega að veður verði óhagstætt er íþróttahúsið til taks fyrir innanhússfót- bolta. 18.30 Rútuferð um Selfoss og nágrenni. 20.00 Hátíðarkvöldverður á Hótel Selfossi (þríréttuð máltíð: Blandaðir sjávarréttir í hvítvínssósu, glóðarsteikt lambafillet með jurtasósu, steiktum kartöflum, fylltum sveppum og grænmeti, kaffi með líkjör eða koníaki). 23.00 SUS-dansleikur á Hótel Selfossi með stórhljómsveit- inni Todmobile. Sunnudagur: 07.15-10.00 Morgunverður. 10.00-12.00 Nefndafundir og þingstörf. 12.00-13.00 Hádegisverður (létt pasta að hætti hússins). 13.00 Þingstörf, kosningar og þingslit að þeim loknum. Nefndarfundir fara fram á Hótel Selfossi og i Sjálfstæðishúsinu á Seifossi, en sjálft þinghaldið og skrifstofur þingsins verða á Hótel Selfossi. Á meðan þinghaldið stendur verður kaffi endur- gjaldslaust. Þinggjald verður 3.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.