Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Elín Hólmfríður Helga
Frímannsdóttir frá
Homi — Minning
Fædd 27. september 1918
Dáin 3. ágúst 1993
Útför Elínar H. H. Frímannsdóttur
verður í dag frá Víðistaðakirkju.
Tengdamóðir mín lést á Landspítal-
anum eftir nokkurra vikna sjúkra-
húsvist að þessu sinni. Þrátt fyrir
alvarleg veikindi er hún hafði átt við
að stríða í tæplega fjörutíu ár, var
hún að miklu leyti laus við hina
ýmsu alvarlegu fylgikvilla þess sjúk-
íeika og náði hann ekki að setja á
hana sín mörk fyrr en hin allra síð-
ustu ár.
Elín Hólmfríður Helga var fædd
að Homi á Homströndum 27. sept-
ember 1918, frumburður hjónanna
Hallfríðar Finnbogadóttur og Frí-
manns Sigmundar Jóns Haraldsson-
ar. Þau eignuðust síðar Guðmund
Óskar, fæddan 1927, dáinn 1968,
og Rebekku Rósu, fædda 1932, íþrót-
takennara í Reykjavík. Uppeldisson-
ur þeirra hjóna var Jóhann Friðrik,
fæddur 1921, dáinn 1981, vélstjóri
í Hafnarfírði. Hallfríður átti ættir
sínar að rekja til Bolungarvíkur á
Ströndum og Frímann var einnig
Strandamaður, fæddur og uppalinn
að Homi, þjóðhagasmiðúr eins og
hann átti kyn til. Elín sleit barns-
skónum að Horni í stómm bamask-
ara úr hópi vensla- og skyldfólks.
Við það fólk hélt Elín tryggð allar
götur síðan. Frímann, faðir Elínar,
gerðist seinna vitavörður á Hom-
bjargsvita og fiuttist þá fjölskyldan
til Látravíkur. Elín tengdist þeim
stað sterkum böndum og átti þar góð
ár, sem hún oft minntist síðar.
Hallfríður, móðir hennar, var for-
sjál, skynsöm kona og taldi hag dótt-
urinnar best borgið með góðri mennt-
un. Hún settist því í Héraðsskólann
að Núpi í Dýrafirði og lauk þar námi
á tveimur árum, sem ekki var talin
svo lítil skólaganga á þeim ámm.
Síðar dvaldi hún einn vetur í Hús-
mæðraskólanum á ísafirði og við
bættust námskeið í klæðasaumi og
hannyrðum. Má því segja að á þeirra
t
Elskulegur eiginmaður minn,
JÓN ÞÓRARINN PÁLSSON,
Prestsbakka á Síðu,
verður jarðsunginn frá Prestsbakkakirkju laugardaginn 14. ágúst
kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigríður Jónsdóttir.
t
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR GRETTIR JÓSEPSSON,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju föstudaginn 13. ágústkl. 13.30.
Sigtryggur Guðmundsson, Hrefna Ragnarsdóttir,
Barbara Ósk,
Hlynur Páll,
Kristrún íris.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍSABET HJÁLMARSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 50,
(áður Hófgerði 10, Kópavogi),
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju-
föstudaginn 13. ágúst kl. 10.30.
Elísa J. Jónsdóttir, Þórir Davíðsson,
Guðmundur G. Jónsson, Þóra Jónsdóttir,
María Huld Jónsdóttir, Díana L. Franksdóttir,
Guðmundur H. Jónsson, Kristín Kristensen,
Bára M. Eiríksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Stjúpfaðir okkar og bróðir,
ÓLAFUR KRISTJÁNSSON
fyrrverandi verkstjóri,
Skálholti 15,
Ólafsvfk,
er lést 6. ágúst, verður jarðsunginn
frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 14.
ágúst kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Ólafsvíkurkirkju.
Bjarni Þórðarson, Kristin Þórðardóttir,
Erla Þórðardóttir, Magnús Þórðarson,
Guðmundur Jóhannes Ólafsson,
Kristfn Kristjánsdóttir, Tómas Kristjánsson,
Aðalheiður Kristjánsdóttir.
t
Hjartans þakklæti til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát móður okkar,
SIGRÍÐAR (SISSÝ) GUÐMUNDSDÓTTUR,
Siglufirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
ída Christiansen,
Jóninna Hjartardóttir.
tíma mælikvarða hafí Elín hlotið
gott veganesti, hvað snertir menntun
og aðbúnað fyrir lífsins ólgusjó.
Við tvítugt giftist hún, hvarf frá
foreldrahúsum í Látravík og fluttist
með eiginmanni til Reykjavíkur. Þar
hófu þau sinn búskap fyrst í skjóli
tengdamóður hennar, Guðnýjar Gils-
dóttur frá Dýrafírði, og síðar að
Háaleitisvegi 36 í Reykjavík, sem þá
þótti allfjarri kjama borgarinnar. Þar
bjuggu þau í einbýli á vænum jarð-
arskika, sem ætlunin var að rækta
og lifa á landinu að hluta eins og
forfeðurnir höfðu gert. Ýmsir erfíð-
leikar steðjuðu að hinum óreyndu
hjónum, börnin komu þétt og oft
vom efnin ekki mikil. Fór svo að
lokum að þau slitu samvistir. Þau,
Gunnar Guðjónsson vélsmiður, nú
látinn, eignuðust saman Ásthildi,
fædda 1941, póstmann í Reykjavík,
Halldór, fæddan 1942, vélamann í
Reykjavík, og Halldísi Önnu, fædda
1943, kennara í Borgamesi. Síðar
bættust í bamahópinn fædd 1953,
Frímann, starfsmaður hjá Flugleið-
um í Reykjavík, og Kolbrún, læknir
í Reykjavík, böm Benedikts Bjama-
sonar, sem nú einnig er látinn. Það
kom í hlut Elínar að ala upp sín
börn að talsverðu leyti ein sem hún
gerði af miklum dugnaði og atorku,
bjó börnum sínum fallegt og gott
heimili. Þótt efnin á ámm áður hafí
stundum verið lítil og oft á tíðum
ekki úr miklu að moða, var sjaldnast
skortur og tókst henni að vinna vel
úr því sem til var.
Þegar bömin uxu úr grasi var
hennar helsta hugðarefni að þau
öðluðust góða grunnmenntun og að
hagur þeirra yrði sem bestur. Það
færðist síðar yfir á fríðan og fjöl-
mennan hóp barnabama og gladdist
hún einlæglega yfír framgangi allra
sinna niðja. Elín hélt góðum tengsl-
um við systkini sín, Óskar er lést
langt um aldur fram og einnig hafa
þær systur, Elín og Rósa, ásamt fjöl-
skyldum þeirra, fylgst að allar götur
síðan þær fluttust báðar til Reykja-
víkur. Þá var fósturbróðirinn Jóhann
henni einnig mjög kær.
Elín var góðum gáfum gædd,
dugnaðarkona, framkvæmdasöm og
ósérhlífín, en einnig átti hún góða
kímnigáfu og fínt skopskyn. Átti hún
oft til með að slá á léttari strengi
og sjá broslegu hliðar augnabliksins.
Lestraráhuga hafði hún hlotið í arf
og undi vel hag sínum á efri ámm
ein með sjálfri sér í skjóli góðra bóka.
Þá þótti henni gott að heyra frá vin-
um og skyldfólki, sem studdu og
leiddu allir sem einn er heilsan tók
að bila.
Vil ég með þessum orðum kveðja
elskulega tengdamóður mína og um
leið þakka allan þann stuðning og
ástúð sem hún hefur sýnt mér og
mínum.
Baldvin Jónsson.
Ella amma er dáin og langar mig
að minnast hennar með nokkrum
orðum.
Amma fæddist á Homi á Horn-
ströndum, dóttir hjónanna Hallfríðar
Finnbogadóttur frá Bolungarvík á
Ströndum og Frímanns Haraldssonar
frá Horni. A unglingsámm bjó hún
í Látravík. Til Reykjavíkur lá leiðin
árið 1940 og bjó hún þar alla tíð
síðan. Amma átti fimm böm, Ást-
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
forstjóri,
Helgamagrastræti 26,
Akureyri,
sem andaðist 2. ágúst, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 13. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á minningar- og líknar-
sjóði Oddfellowreglunnar á Akureyri.
Karitas R. Sigurðardóttir,
Magnús Jónsson,
Lena Magnúsdóttir,
Sigurður Freyr Magnússon,
Magnús Karl Magnússon,
Guðrún Karlsdóttir,
Guðmundur K. Sigurðsson,
Laufey Einarsdóttir,
Arnar Guðmundsson,
Sigurður Guðmundsson,
Guðrún Björk Guðmundsdóttir,
Tinna Berglind Guðmundsdóttir,
Nanna Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Ragnhildur Rós Guðmundsdóttir,
Anna Gunndfs Guðmundsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug
og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
SVANBORGAR
GUÐBRANDSDÓTTUR,
Torfufelli 29,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og
lækna heimaaðhlynningar Krabba-
meinsfélags Islands.
Grétar Vilmundarson, Inga Erlingsdóttir,
Þóranna Jónsdóttir, Ævar Ákason,
Hermann R. Jónsson,
barnabörn
. og systkini hinnar látnu.
+
Innilegar þakkir færum við öllum, er
sýndu okkur samúð og vinarhug vegna
andláts og útfarar
HARÐAR ÁRNASONAR,
Bakkaseli 14,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Brynja Hliðar
og fjölskylda.
hildi, Halldór og Halldísi Önnu Gunn-
arsbörn og Frímann og Kolbrúnu
Benediktsbörn. Barnabörnin eru nú
orðin fimmtán og það sextánda
væntanlegt og langömmubömin sex.
Systkini hennar voru tvö, Rósa og
Óskar, en hann lést aðeins 41 árs
að aldri. Uppeldisbróðir þeirra var
Jóhann Vigfússon.
Amma gekk menntaveginn á
þeirra tíma vísu. Var hún fyrst við
nám á Núpi í Dýrafirði í tvö ár og
lá leiðin að námi loknu í hússtjórn-
arskólann á ísafirði. Hún var bráð-
skörp og fylgdist vel með öllu fram
á síðasta dag. Sérstaklega var fjöl-
skyldan henni hugleikin. Það var allt-
af gagman að ræða við hana um
málefni líðandi stundar og kom hún
stöðugt á óvart með vandlega hugs-
uðum og hnyttnum athugasemdum.
Hún starfaði til margra ára í mjólkur-
búðum, lengst af á Langholtveginum
og var ætíð spennandi að koma þang-
að til hennar. í þeim heimsóknum
vom þeir ófáir sælgætismolamir sem
hurfu niður í litla muna. Ekki var
síðra að koma heim til ömmu og
voru þeir ófáir lítrarnir af ísnum sem
var torgað hjá henni. Undantekn-
ingalaust átti hún eitthvað í skápun-
um til hátíðabrigða ef gesti bar að
garði.
Ekkert gaf ömmu eins mikið og
að gefa gjafír og þrátt fyrir að oft
væri þröngt í búi voru alltaf til aurar
er hátíð fór í hönd hvort sem um var
að ræða jól eða afmæli. Meðan heils-
an leyfði voru tekjurnar drýgðar með
prjónaskap. Jólin voru hennar tími
og var ekkert til sparað svo allir
yrðu ánægðir. Sérstaklega minnis-
stæð eru jólin 1970 þegar hún gaf
mér og systur minni dúkkuvagna
sem hún hafði látið Jóhann, uppeldis-
bróður sinn, kaupa fyrir sig erlendis.
Þar sem þeir voru of stórir til að
hægt væri að pakka þeim inn og
setja -undir tréð voru þeir vandlega
faldir niðri í geymslu. Á sama tíma
og verið var að ná í vagnana var
bankað á dymar og úti stóð jóla-
sveinn og hjálparmaður hans. Okkur
bömunum þótti mikið til koma og
ekki varð gleðin minni þegar vögnun-
um var rúllað inn framhjá þeim. í
fyrstu stóðum við í þeirri trú að jóla-
sveinninn hefði gefíð okkur þá, en í
það skipti sem önnur skákaði amma
jólasveininum. Þegar við urðum eldri
og pökkunum hafði fækkað var svo
alltaf einn auka pakki sem á stóð
„frájólasveininum“ og var amma þar
enn að verki. Svo var einnig um
annað sem amma gerði. Hún var
alla sína tíð boðin og búin við að
aðstoða og hlaupa undir bagga með
þeim sem henni þóttu hjálpar þurfí.
Hálfa ævina þurfti amma að stríða
við sykursýki á háu stigi. Að lokum
hafði sjúkdómurinn betur. Andlát
hennar kom eins og reiðarslag yfír
okkur sem eftir sitjum. Ég kveð
ömmu með harm í brjósti. Hennar
er sárt saknað. Blessuð sé minning
þín, elsku amma.
Halla.
Fleiri minningargreinar um
Elínu Frímannsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð fallegir
salirogmjög
góð þjónustíL
llpplýsingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
HÍTEL LIFTLÍllll