Morgunblaðið - 12.08.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. AGUST 1993
fclk i
fréttum
LEIKARAR
Blíður inn við beinið
Bandaríski kvikmyndaleikarinn
John Lithgow er ekki nærri
því eins grimmur og áhorfendum
síðustu mynda hans, Cliffhanger
og Raising Cain kann að fínnast.
Inni við beinið er Lithgow sagður
stakt ljúfmenni en honum fínnst
gaman að glíma við hlutverk ill-
mennanna og nýtur við það dyggr-
ar aðstoðar sonar síns, Nathan,
sem er níu ára. Nathan fylgdist
með uþptökum á slagsmálaatrið-
um Cliffhanger og sagði föður sín-
um til er hann slóst við sjálfan
konung slagsmálaatriðanna, Syl-
vester Stallone. Með bendingum
og varahreyfingum sagði hann
föður sínum til og hafði mestar
áhyggjur af því að hann gretti sig
of mikið.
Leikstjórinn Renny Harlin segir
að sér hafí fundist nóg um hversu
auðvelt Lithgow átti með að
bregða sér í hlutverk illmennisins.
Þá þótti Harlin með ólíkindum
hversu lipur leikarinn er þrátt fyr-
a
—s
t ! 1 1
PLANHVÍJT
BAÐINNRÉTTING
Lí^ feo
BÆJARHRAUNI 8, HAFNARFIRÐl. SlMI 651499
STUTTUK AFGREIÐSIUTÍMI
GOB GREIÐSLUKJÖR
Stallone og Lithgow í kröppum
dansi í Clilffhanger.
ir að hann sé rúmir 190 sm og
100 kg. En Litgow hefur leikið
meira en illmenni, hann hefur far-
ið með hlutverk alls kyns furðu-
fugla. Nægir þar að benda á The
World According to Garp þar sem
hann leikur kynskipting og fyrr-
verandi ruðningshetju.
Á milli þess sem Lithgow bregð-
ur sér í hin ýmsu hlutverk, nýtur
hann þess að vera ósköp venjuleg-
ur maður. Hann býr í Los Angeles
með Mary, seinni konu sinni og
börnum þeirra, áðumefndum Nat-
han og Phoebe, 11 ára. Mary er
aðstoðarprófessor í sagnfræði við
háskólann í Los Angeles og segir
Lithgow hana meira eða minna
einstæða móður þar sem hann
dvelur langdvölum fjarri heimili
sínu við tökur. Þegar hann er
heimavið, hefur hann matarinn-
kaup með höndum, auk þess sem
hann keyrir börn sín í tónlistar-
tíma. Mary sættir sig ágætlega
við starf eiginmannsins að frátöld-
um veislunum sem hún fer helst
ekki í.
John Lithgow hlaut leiklistar-
bakteríuna í arf, hann er sonur
ieikkonu og leikhússtjóra og eyddi
bernskunni á ferðalögum með leik-
flokki foreldranna. Hann nam við
Harvard og síðar í London, þar
sem hann giftist breskri kennslu-
konu og eignaðist með henni son.
Hann er nú 21 árs og stundar nú
leiklistamám.
Lithgow skildi við fyrri eigin-
Langt frá því að vera illilegur;
með börnunum Phoebe og Natan.
Lithgow í rólegheitunum heima
með Mary.
konu sína 1980 en var fljótlega
kynntur fyrir Mary. Fyrsta stefnu-
mótið horfði ekki vænlega, Mai-y
mætti uppstríluð en John ét sér
nægja svitastorkinn tennisgallann.
Tveimur vikum síðar vom þau hins
vegar farin að ræða giftingu.
Lithgow er maður sem kann að
njóta lífsins, segir leikstjórinn
Harlin. Þegar hann er við tökur,
hefur hann alls kyns delludót með
sér; hann les, skrifar og málar og
flakkar um á bflaleigubíl. „Hann
lifir hinu fullkomna lífí,“ segir
Harlin. Og Lithgow tekur undir
það. „í Hollywood fæ ég borgað
tuttugu sinnum meira en nokkurs
staðar annars staðar, starfíð er
miklu léttara en sviðsleikur og ég
kemst til fjarlægra slóða.“ •
Morgunverður í Bláa lóninu
Þeir vom ánægðir jarðfræð-
ingamir sem komu hingað
til lands frá Bandaríkjunum um
verslunarmannahelgina. Þeir
komu beint frá Keflavíkurflug-
velli í Bláa lónið, þar sem þeim
var borinn morgunverður í veðri
eins og best verður á kosið hér
á landi. Það má segja að þar
hafí þeir verið í sínu rétta um-
hverfí. Frá Bláa lóninu héldu
þeir í hringferð um Reykjanesið.
Að sögn Kristins Benedikts-
sonar, framkvæmdastjóra Bláa
lónsins, var þetta í fyrsta skipti
sem hópi fólks er borinn morg-
unverður úti í lóninu og telur
hann að framhald geti orðið á
því. Það byggist þó á veðri og
verður að vera hægt að borða
innanhúss leiki veðurguðirnir
gesti of grátt.
COSPER
CDSPER
1-2209 £.piB.
Okkur var skipað að spara bæði efni og sauma-
skap.
'<A'r
NÝTT KORTATIMABIL