Morgunblaðið - 12.08.1993, Qupperneq 41
•í-iSrifeffSssÉr -
ffjfíjrt g£ * - ff' : «£> 'x. -' .-v,'
1~_r.:®" - ’ . ..
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
PIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Llð Fylkis sem sigraði í keppni B-liða. Efri röð frá vinstri: Helgi Bjamason
aðst.þjálfari, Albert Brynjar Ingason, Bjami Helgason, Einar Pétursson, Ragn-
ar Sigurðsson og Halldór Örn Þorsteinsson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Sigurð-
ur Helgi Jónsson, Grímur Kristinsson, Kjartan Á. B. Jóhannsson, Halldóra Sigur-
laug Ólafsdóttir, Konráð Vignir Sigurðsson og Alexandra Gyða Frímannsdóttir.
Morgunblaðið/Frosti
Lið Aftureldlngar sem sigraði í flokki A-liða á Hnokkamóti 7. flokks. Aft-
ari röð frá vinstri: Ágúst Haraldsson aðst.þjálfarik, Andrés Ásgeir Andrésson,
Daníel Jónsson, Hrafn Ingvarsson, Jóhann Bjöm Valsson, Snorri Hauksson
þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Magnús Lárusson fyrirliði, Kristján Magnússon,
Davíð Svansson og Halldór Örn Kjartansson.
Mikill áhugi
hjá þeim yngstu
ÁHUGINN var ífyrirrúmi þegar
sjö og átta ára krakkar tóku
þátt í Hnokkamóti Stjörnunnar
sem haldið var um síðustu
helgi. Um 500 þátttakendur
flestir úr liðum í nágrenni höf-
uðborgarinnar tóku þátt í mót-
inu.
Afturelding úr Mosfellsbæ sigr-
aði í keppni A-liða. í öðru
sæti varð KR og Keflavík varð í
þriðja sæti. Hjá B-liðum sigraði
Fylkir spennandi keppni við Stjörn-
una sem' hafnaði í öðru sæti og KR
sem varð í því þriðja.
Knattspyrnudeild Stjörnunnar
stóð fyrir mótinu og veitt margvís-
leg önnur verðlaun fyrir frammi-
stöðu, innan vallar sem utan.
Njarðvík var valið prúðasta liðið
á leikvelli hjá A-liðum og Týr fékk
sömu verðlaun í b-liðakeppninni.
Fengu liðsmenn veggspjald á laun-
um og félagið skjöld. Þá var Njarð-
vík valið prúðasta liðið og var þá
jafnframt tekið mið af umgengni
leikmanna.
Bestu vítaskyttur mótsins komu
frá Akranesi en lið ÍA skoraði úr
24 vítaspyrnum af þrjátíu möguleg-
um og fengu í verðlaun Stjörnuveif-
ur.
Besti leikmaður Hnokkamótsins
var valinn Davíð Svansson hjá A-
liði Aftureldingar. Ingvar Árnason
úr Stjömunni "ar valinn besti mark-
vörðurinn. Markahæsti maður
mótsins varð Gunnar Þór Gunnars-
son sem lék með B-liði Víkings.
Þeir Davíð og Gunnar voru verð-
launaðir með bikar, knattspymus-
kóm og legghlífum en Ingvar fékk
markmannshanska í stað hlífanna.
Utíhátíð Eurocard
íHvammsyík,
sunnudaginn 15. ágúst
Enn á ný efnir Eurocardtil útihátíðar í Hvammsvík í Hvalfirði
(aðeins 40 mín. akstur frá Reykjavík) fyrir gullkorthafa og
handhafa Atlaskortsins. Fjölbreytt dagskrá allan daginn tryggir
að allir í fjölskyldunni finni eitthvað við sitt hæfi.
jPVeiði kl.10-18
Mikið er af spriklandi fiski í vatninu við
Hvammsvík sem er sólginn í alls konar beitu,
s.s. maísbaunir, rækju, hrogn, maðk og flugu.
Hægt er að veiða allt í kring um vatnið og því
ættu flestir að geta krækt i væna silunga eða
laxa í soðið. Veiðivörður leiðbeinir við
veiðarnar og veitir aðstoð ef á þarf að halda.
Veiðistangir fást leigðar í veitingaskálanum
og þar eru til sölu spúnar og krókar, svo og
laxahrogn til að nota sem beitu. Þar er fisk-
urinn einnig vigtaður, slægður og þveginn
fyrir veiðimenn þeim að kostnaðarlausu.
Verðlaun verða veitt-fyrir stærsta fiskinn sem
veiðist fyrir kl.16. Auk þess hefur einum sér-
merktum fiski verið sleppt í vatnið. Verðlaun
fyrir að veiða þennan fisk eru vegleg, helgar-
ferð fyrir tvo til London.
V Flugukastkennsla og flugu-
^ hnytingar kl.10-14
Nú er kjörið tækifæri að læra að hnýta og kasta
flugu. Kolbeinn Ingólfsson kennir byrjendum og
lengra komnum listina ókeypis og gefur góð ráð.
Áhugasamir þurfa að hafa með sér flugustangir.
► Golfleikur kl.10-18.
cb Golfkennsla kl.10-14
Það er góð aðstaða til golfiðkunar í Hvammsvík
og geta þeir sem leika golf nýtt sér hana að vild á
hátíðardaginn. Fyrir byrjendur eða þá sem vilja
bæta leik sinn verður Arnar Már Olafsson golf-
kennari með ókeypis golfkennslu milli kl. 10-14 á
æfingabraut vallarins. Golfvöllurinn er opinn allan
daginn og hægt er að leigja kylfur og fá „skor-
kort“ í veitíngaskálanum. Verðlaun verða veitt
fyrir þann bolta sem lendir næst holu á 9. braut
eftir upphafshögg.
WHestar kl.10-12 ög 14-18
Boðið er upp á stutta útreiðartúra, einkum fýrir
yngstu kynslóðina. Tekið er mið af hæfni hvers
og eins.
Fjöruferð með leiðsögn
M kl. 10:30
Skemmtíleg fjöruferð undir leiðsögn Konráðs
Þórissonar íiskifræðings verður farin kl. 10:30
stundvíslega og hugað ap náttúrufari, umhverfis-
þáttum og nýtingu lífríkis fjörunnar. Ferðin tekur
um eina og hálfa klukkustund og er við allra hæfi.
Aflraunasýning kl. 13:30
Andrés Guðmundsson og Guðni Sigurjónsson
kraftajötnar sýna aflraunir og bregða á leik með
hátíðargestum.
rn Leikir og grín fyrir börn
• * á öllum aldri
Dagskrárkynnir hátíðarinnar, Hafsteinn Haf-
steinsson, leikur og syngur á milli atriða og
stjórnar auk þess leikjum fyrir börn á öllum
aldri á grasflötinni við skálann.
Grillveisla kL13
Efiit er tíl mikillar grillveislu þar sem Goði og
Egils leggja saman og bjóða upp á gómsæta
rétti og svalandi gosdrykk. Þá er einnig hægt að
fá keyptar ýmsar veitingar í skálanum.
f Upplýsingabás
í veitingaskálanum verður starfræktur upplýsinga-
bás þar sem starfsfólk Eurocard mun veita hvers
kyns upplýsingar um hátíðina, svo og allar upp-
lýsingar um Eurocard og þá þjónustu sem kort-
höfum stendur tíl boða.
Allt þetta bjóðum við gullkorthöfum og hand-
höfum Atlaskortsins þeim að kostnaðarlausu,
en greiða þarf 400 kr. fyrir hvern veiddan fisk
(ath. ekkert veiðileyfisgjald). Hér gefst allri
ljölskyldunni kjörið tækifæri til að eiga ánægju-
legan dag og Eurocard vonar að sem flestir nýti
sér þetta boð.
Góða skemmtun -sjáumst í Hvammsvík!
Krcditkort hf., Ármúla 28,108 Reykjavík. Sími (91) 685499
NÁMSKEIÐAPAKKI á einstðkum kiöiiitn!
Viltu margfalda lestrarhraðann og auka ánægju af öllum lestri?
Viltu auka afköst í starfi og námi?
Hraðlestrarskólinn býður nú tvö vinsæl námskeið, hraðlestr-
arnámskeið sem kostar kr. 15.800 og námstækninámskeið
sem kostar kr. 5.900, saman í „pakka" á frábærum kjörum,
einungis kr. 15.800. Þú sparar kr. 5.900! Betra tilboð færðu
ekki, enda skila námskeiðin þér auknum afköstum í námi og
starfi alla ævi!
Næsta námskeið hefst 25. ágúst.
Skráning alla daga í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
S3 1978- 1993 CE