Morgunblaðið - 12.08.1993, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Loksins,
loksins..
„VIÐ höfum haft á brattann aö
sækja í allt sumar, ýmislegt
hefur verið á móti okkur, en
fyrir þennan ieik vorum komnir
að þeim punkti að við sögðum
hingað og ekki lengra. Allir leik-
menn, frá númer eitt og upp í
sextán, þjálfari og aðstoðar-
menn voru sameinaðir í þessu
átaki," sagði Lárus Guðmunds-
son þjálfari Víkinga, eftir 3:2
sigur á KR-ingum, ífyrsta leik
12. umferðar 1. deildar karla í
knattspyrnu. Víkingar léku á
köflum ágætlega og var sigur
þeirra verðskuldaður, en KR-
ingar virkuðu ákaflega daprir.
FOLX
■ VÍKINGAR fögnuðu mikið eftir
sigurinn gegn KR, þeir tóku hið
venjulega sigurhróp þegar þeir voru
komnir inn í klefa, en þurftu síðan
að endurtaka það í tvígang af mikl-
um sannfæringarkrafti, fyrst fyrir
útvarpsmenn á Bylgjunni og síðan
sjónvarpsmenn frá Stöð tvö.
Éi SIGURÐUR Ómarsson leik-
maður KR var tekinn út af í leikn-
um gegn Víkingi, í síðari hálfleik
og var ekki sáttur við það; braut
rúðu í hurð á Laugardalsvellinum
er hann gekk út af.
■ ÓLAFUR Þórðarson, ÍA, var
kjörinn leikmaður 6. til 10. umferð-
ar 1. deildar karla, en Austur-
bakki, DV og íslenskar getraunir
stóðu að kjörinu.
■ ÁSGEIR Sigurvinsson, þjálf-
ari Fram, var kjörinn þjálfari
sömu umferða og Eyjólfur Ólafs-
son besti dómarinn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sögðum hingad og ekki lengra
VÍKINGAR voru ákveðnir í því að krækja í fyrsta sigur sinn í gærkvöldi, og
tókst það með góðum leik og mikilli baráttu. Bjarki Pétursson hleypti nokkru lífí
í leiki KR-inga er hann kom inná í síðari hálfleik, en náði ekki að koma í veg
fyrir sigur Víkings. Kristni Hafliðasyni tekst hér að stöðva skot hans í leiknum
í gærkvöldi.
■ 4 Rúnar Kristinsson gaf á Heimi Guðjónsson sem lék inn í
\M ■ I teig Víkinga og í átt að markteignum hægra megin, og var
kominn ansi nálægt endalínu þegar hann gaf hann út. Stefán Ómars-
son varð fyrir því óláni að setja löppina f knöttinn og senda hann í
eigið net, þegar valiarklukkan sýndi að 44 mínútur og 50 sekúndur
voru liðnar af fyrri hálfleik.
1m 4| Thomaz Javorek gaf á Martein Guðgeirsson á 52. mínútu
■ I sem lyfti knettinum mjög snyrtilega yfir ólaf í markinu,
úr vftateignum miðjum nokkuð utarlega.
Guðmundur Steinsson stal knettinum af varnarmanni KR
■ ■ á hægri kantinum á 69. mínútu, óð upp kantinn og gaf fyrir
á Thomaz Javorek sem kom á ferðinni og sendi knöttinn í netið, þar
sem hann var staddur rétt framan við vítapunktinn.
2* OBjarki Pétursson sendi netta stungusendingu á Tómas Inga
■ ■■■Tómasson á 75. mínútu. Hann lék inn í vítateiginn hægra
megin og skaut knettinum mUli lappa Guðmundar Hreiðarssonar og
í netið.
3B^JfcLárus Huidarson, sem nýkominn var inná sem varamaður,
málmvdv upphafsmaðurinn að sókn upp vinstri kantinn á 78.
mínútu, sem endaði á því að hann gaf laglega sendingu frá vinstri
kantinn, alveg yfir í vítateiginn hægra megin, þar sem Hólmsteinn
Jónasson kom á mikilli siglingu og skoraði glæsiiegt mark.
2:1
Öruggt hjá KR-stúlkum
KR-stúlkur unnu Þrótt auðveld-
lega á IMeskaupstað í gær-
kvöldi, 3:0, og eru efstar í 1.
deildinni; hafa nú sex stiga for-
skot á Breiðablik þegar aðeins
fjórar umferðir eru eftir.
Þróttarstúlkur virtust bera mikla
virðingu fyrir gestunum í
gærkvöldi. KR-ingar voru mun betri
og sigurinn mjög svo
sanngjarn. KR fékk
reyndar ekki nema
tvö góð færi- i fyrri
hálfeik en nýtti ann-
að er Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir
komst ein inn fyrir vörn heima-
manna og skoraði.
Helena Ólafsdóttir og Ásthildur
Helgadóttir, besti maður vallarins,
skoruðu svo í seinni hálfleik; Helena
fyrst með föstu skoti eftir góða
sókn og Ásthildur af stuttu færi
eftir hornspyrnu.
Frá Ágústi
Blöndal á
Neskaupstað
Ásthildur Helgadóttir lék mjög
vel á miðjunni hjá KR, var besti
maður vallarins sem fyrr segir, en
í heimaliðinu stóð enginn upp úr.
IA sigraði í fallbaráttunni
^Pvö neðstu lið deildarinnar mætt-
1 ust á Akranesi í gærkvöldi og
vann ÍA ÍBA 3:1. Skagastúlkur léku
undan golu í fyrri
Sigþór hálfleik, sóttu mun
Einksson meira og uppskáru
skrifar eitt mark. Þær
fengu óskabyijun
eftir hlé og bættu öðru marki við,
en innsigluðu sigurinn mínútu eftir
að Akureyringar höfðu minnkað
muninn.
Júlía Sigursteinsdóttir og Hall-
dóra Gylfadóttir voru bestar hjá ÍA,
en Arndís Ólafsdóttir og Eydís
Marinósdóttir hjá ÍBA.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Dauft að Hlíðarenda
öguleikar Vals á sigri í 1.
deild kvenna minnkuðu til
muna þegar liðið tapaði gegn
Stjörnustúlkum 0:2
í daufum leik að
Hlíðarenda í gær
kvöldi. Hlíðarenda
stúlkumar virkuðu
þunglamalegar en spiluðu engu að
síður oft vel og héldu boltanum en
Garðbæingar nýttu eldsnögga
framherja sína og uppskám mörk.
Valsstúlkur tóku sig verulega á
eftir hlé en án þess að skora og
Stjörnustúlkur áttu nokkrar stór
hættulegar skyndisóknir.
Systurnar Guðný og Gerður
Guðnadætur vom atkvæðamestar
hjá Stjörnunni og mikið mæddi á
Kristínu Briem í Valsvörninni.
Leikurinn byijaði með látum,
Víkingar fengu sannkallað
dauðafæri eftir 40 sekúndna leik,
en Ólafur Gott-
Stefán skálksson bjargaði
Eiríksson vel frá Thomasi Ja-
skrifar vorek. Á þriðju mín-
útu átti Tómas Ingi
Tómasson skot yfir Víkingsmarkið.
Víkingar höfðu góð tök á leiknum
í fyrri hálfleik fengu fín færi, en
alla hreyfingu vantaði í KR-liðið,
og það var ekki fyrr en rétt undir
lok fyrri hálfleiksins að þeir fengu
færi, og komust yfír, þegar Víking-
ar skoruðu sjálfsmark, tíu sekúnd-
um fyrir leikhlé.
Víkingar létu markið lítið á sig
fá og jöfnuðu fljótlega i síðari hálf-
leik, og komust yfir á 69. mínútu.
KR-ingar virtust þá vakna af dva-
lanum og fengu tvö góð færi áður
en þeir náðu að jafna 2:2 á 75.
mínútu. Margir vom á því að KR-
ingar myndu klára leikinn í kjölfar- _
ið. En Víkingar voru ekki á því,
og gerðu sigurmarkið þremur
mínútum seinna. Hólmsteinn Jón-
asson skoraði markið, og var ná-
lægt því að skora ijórða mark Vík-
inga fimm mínútum síðar, en datt
á knöttinn sem hafnaði í innan-
verðri stönginni. KR-ingar sóttu
ákaft það sem eftir lifði leiksins
og fengu ágætt færi á 87. mínútu,
en Guðmundur Hreiðarsson varði
glæsilega frá Rúnari Kristinssyni.
Mikil og góö barátta
Víkingsliðið sýndi mikla baráttu
allan leikinn út i gegn, og trúði
því allan tímann að það gæti sigr-
að, þrátt fyrir slæma stöðu á köfl^-
um. Liðið lék vel á köflum, hrein-
lega yfírspilaði KR-inga nokkmm
sinnum, og var í raun óheppið að
skora ekki fleiri mörk. Thomas
Javorek var fljótur og skapaði oft
hættu, Hólmsteinn Jónasson lék
vel, Atli Helgason átti einnig góðan
dag, og Víkingsvömin var alls ekki
svo slæm. Olafur Gottskálksson
var sá eini í KR-liðinu sem sýndi
sitt rétta andlit, bjargaði þeim
hreinlega í fyrri hálfleik, og verður
varla sakaður um mörkin þijú.
„Víkingsliðið er ekki eins slakt
og menn hafa verið að halda fram,
en það breytir því ekki að við
spiluðum afleitan leik,“ sagði Tórn-
as Ingi Tómasson. „Við emm bún-
ir að spila erfiða leiki að undan-
fömu, og það virðist sitja í mönn-
um.“
„Það var ótrúlega ljúft að sjá
hann í netinu," sagði Hólmsteinn
Jónasson um sigurmarkið. „Það
var svo sannarlega kominn tími á
þetta. Við emm með gott lið, sjálfs-
traustið hefur vantað en það er
komið núna.“
í kvöld Knattspyrna 1. deild karla:
Vestm.: ÍBV-Valur kl.19
Fylkisvöllur: Fylkir-FH ,...kl. 19
Akranesvöllur: í A - Þór ....kl. 19
Laugardalsv.: Fram - ÍBK... 4. deild: ....kl. 20
Sauðárkr: Þrymur-Dagsbrún..kl. 19
Seyðisfj.: Huginn - Austri.... ...,kl. 19 •
FRJALSAR
Einar
hættivid
Einar Vilhjálmsson, spjót-
kastari, keppir ekki á HM
í Stuttgart um helgina vegna
meiðsla. Hann sagði við Morg-
unbiaðið að til að ná bólgum úr
olnboganum yrði hann að hvfla
í flórar vikur og byrja síðan
uppá nýtt með verkefni næsta
árs í huga.
ÚRSLIT
Víkingur - KR 3:2
Laugardalsvöllur, íslandsmótið í knatt-
spymu, 1. deild karla, 12. umferð, miðviku-
daginn 11. ágúst 1993.
Aðstæður: Hægur andvari, sólskin á köfl-
um og völlurinn góður.
Mörk Víkings: Marteinn Guðgeirsson (52.),
Thomaz Javorek (69.) og Hólmsteinn Jónas-
son (78.).
Mörk KR: Stefán Ómarsson (45. sjálfsm.),
Tómas Ingi Tómasson (75.).
Gult spjald: Stefán Ómarsson (83.) og
Bjöm Bjartmarz (86.), báðir Víkingi og
báðir fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Gylfi Orrason, dæmdi mjög vel.
Linuverðir: Pjetur Sigurðsson og Kári
Gunnlaugsson.
Áhorfendur: 510 greiddu aðgangseyri.
Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson - Bjöm
Bjartmarz, Hörður Theódórsson, Stefán
Ómarsson - Hólmsteinn Jónasson, Guð-
mundur Guðmundsson, Atli Helgason, Mar-
teinn Guðgeirsson (Lárus Huldarsson 77.),
Kristinn Hafliðason (Amar Amarsson 81.)
- Guðmundur Steinsson, Thomas Javorek.
KR: Ólafur Gottskálksson - Atli Eðvalds-
son, Þormóður Egilsson, Izudin Daði Dervic
- Steindr Ingimundarson, Rúnar Kristins-
son, Sigurður Ómarsson (Gunnar Skúlason
73.), Heimir Guðjónsson, Einar Þór Daniels-
son - Ómar Bendtsen (Bjarki Pétursson
60.), Tómas Ingi Tómasson.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍA 11 10 0 1 37: 9 30
FH 11 6 3 2 22: 17 21
FRAM 11 6 0 5 28: 18 18
l'BK 11 5 2 4 18: 20 17
VALUR 11 5 1 5 18: 14 16
KR 12 5 1 6 24: 22 16
ÞÓR 11 4 3 4 10: 11 15
ÍBV 11 3 3 5 15: 24 12
FYLKIR 11 3 1 7 13: 25 10
VÍKINGUR 12 1 2 9 13: 38 5
mjM
Atli Helgason, Hólmsteinn Jónasson, Vík-
ingi. Ólafur Gottskálksson, KR.
m
Guðmundur Hreiðarsson, Kristinn Hafliða-
son, Bjöm Bjartmarz, Thomaz Javorek,
Stefán Ómarsson, Marteinn Guðgeirsson,
Guðmundur Guðmundsson; Guðmundur
Steinsson, Hörður Theódórsson, Lárus
Huldarson, Víkingi. Bjarki Pétursson, KR.
1. DEILD KVENNA
Þróttur N. - KR................0:3
- Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir (14.), Helena
Ólafsdóttir (50.), Ásthildur Helgadóttir
(66.).
Valur - Stjarnan...............0:2
- Laufey Sigurðardóttir (8.), Guðný Guðna-
dóttir (23.).
ÍA-ÍBA.........................3:1
Magnea Guðlaugsdóttir (24.), Júlla Sigur-
steinsdóttir (48.), Ragnheiður Jónasdóttir
(69.) - Steinunn Jónsdóttir (68.).
Fj. leikja u j T Mörk Stig
KR 8 6 2 0 22: 8 20
UBK 8 4 2 2 18: 13 14
VALUR 9 4 1 4 15: 12 13
STJARNAN 9 3 3 3 23: 19 12
ÍA 8 2 3 3 12: 17 9
ÞRÓTTUR 9 2 2 5 11: 24 8
ÍBA 9 2 1 6 11: 19 7
2. DEILD KVENNA C
Einhetji - Sindri................2:5
Aðalheiður Stefánsdóttir, Eydís Hafþórs-
dóttir - Rósa Steinþórsdóttir 3, Maren Al-
bertsdóttir, Ásta Baldursdóttir.
4. DEILD KARLA
KBS - Sindri..............i......7:3
Frakkland
Nantes - Marseille..............0:0
Mónakó - Bordeaux...............3:2
Vináttulandsleikur .
Sviss - Svlþjóð.................2:1
Martin Dahlin (17.) - Adrian Knup (18.),
Dominique Herr (73.). 14.712.
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ