Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 44
m
HEWLETT
PACKARD
HPÁ ÍSLANDI HF
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika lil veruleika
UORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
Stm 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI85
FIMMTUDAGUR 12. AGUST 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
I fífu-
sundi
NÚFER
sumri senn að
halla. Til marks
um það er fífan
sem orðin er full-
þroskuð og farin
að fjúka um.
Þannig ber hún
fræin á nýja
staði á sínum
mjúku ullar-
vængjum.
Frændurnir og
nafnamir Eirík-
ur Þór og Eiríkur
Rafn skemmtu
sér vel þar sem
þeir voru að leik
í fífusundinu við
Granastaði ofan
Borgarness.
Morgunblaðið/Theodór
Yfirmenn flugöryggismála leggjast gegn flugleyfi til Óðins hf.
Alvarlegar athugasemdir
um öryggi í Grænlandsfhigi
Ásakanirnar eiga ekki við nein rök að styðjast, segir fiugrekstrarstjóri félagsins
YFIRMENN hjá Loftferðaeftirliti og flugslysarannsóknadeild Flug-
málastjórnar gagnrýna harðlega öryggismál í Grænlandsflugi Odin
Air í bréfum sem send hafa verið til samgönguráðherra vegna umfjöll-
unar um flugrekstrarleyfi flugfélagsins Óðins hf. og umsókn þess um
leyfi til að sinna áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Kulusuk. í bréfi
sem Skúli Jón Sigurðarson, framkvæmdastjóri flugslysarannsókna-
, deildar Flugmálastjórnar, sendi ráðherra 26. júlí sl., greinir hann frá
Mokkrum tilvikum, sem yfirmönnum flugöryggismála hafi borist upp-
lýsingar um, þar sem öryggis hafi ekki verið gætt og legið hafi við
slysi vegna harðfylgni Helga Jónssonar, fyrrv. flugrekanda, og Odin
Air i Grænlandsflugi. Jón Helgason, flugrekstrar- og framkvæmda-
stjóri Óðins hf., segir þessar ásakanir ekki eiga við nein rök að styðjast.
Óðinn er að 70% í eigu Helga
Jónssonar og fjölskyldu hans en
Helgi stundaði m.a. áætlunarflug
til Grænlands, þar til hann varð
gjaldþrota á síðasta ári. Hefur Jón
Helgason, sonur Helga Jónssonar,
hlotið viðurkenningu Loftferðaeftir-
litsins sem flugrekstrarstjóri félags-
ins. Fékk félagið leyfí samgöngu-
ráðuneytisins til að stunda þjónustu-
flug 12. júlí sl.
Óhöpp aldrei tUkynnt
I bréfí Skúla segir m.a. að Helgi
hafí aldrei tilkynnt Loftferðaeftirlit-
inu um óhöpp í flugrekstri sínum.
Engu að síður hafí yfirmönnum
flugöryggismála borist upplýsingar
um ýmis atvik eftir öðrum leiðum.
Nefnir hann sem dæmi að í,desem-
ber 1989 hafi litlu munað að flug-
vél Odin Air færi í hafið eftir hreyf-
ilstöðvun og í nokkrum tilvikum
hafí flugvélar Odin Air lent á síð-
ustu dropunum eftir flug frá Kulu-
suk, þar sem sannarlega hafi legið
við stórslysi.
Jón Helgason segir að í umsögn
framkvæmdastjóra Loftferðaeftir-
litsins til flugráðs í mars hafi komið
fram að félagið uppfyllti kröfur um
öryggis- og tæknimál. Ásakanirnar
nú séu undarlega tímasettar og
mjög alvarlegar. Þeim sé beint gegn
Helga sem fari ekki með neina
ábyrgðarstöðu í rekstri Óðins hf.,
vegna atvika sem starfsmenn Loft-
ferðaeftirlitsins haldi að hafi hent í
flugrekstri hans.
Skv. upplýsingum Morgunblaðsins
er búist við að ráðherra taki ákvörð-
un í málinu í dag eða á morgun.
Sjá miðopnu: „Lent á síðustu
dropunum.“
Slitlag á
alla vegi í
Asahreppi
ALDREI hefur jafn mikið verið
lagt af bundnu slitlagi né eins
mikið boðið út af vegum í Suður-
landskjördæmi og í ár. í heild
er um að ræða á milli 120 og
130 kílómetra vejgalengd. Sem
dæmi leggur Asahreppur í
Rangárvallasýslu slitlag á alla
vegi í hreppnum, um 26 kíló-
metra leið. Aætlaður kostnaður
við þær framkvæmdir er um 150
milljónir króna og fjármagnar
hreppurinn þær sjálfur.
í upphafi næsta sumars verður
lokið við gerð Suðurlandsvegar í
gegnum Suðurlandskjördæmi. Að
sögn Þórhalls Ólafssonar, umdæm-
istæknifræðings hjá Vegagerðinni,
hafa áður mest verið lagðir 50 kíló-
metrar á ári. „í ár samsvarar þetta
á hinn bóginn vegalengdinni frá
Reykjavík og austur fyrir Hvols-
völl,“ segir hann.
Svipuð fjárhagsstaða við
sameiningu
Fleiri sveitarfélög en Ásahrepp-
ur hafa í ár lagt fé í vegagerð,
t.d. Skaftárhreppur og Grafnings-
hreppur sem leggur fram 7 milljón-
ir til að ljúka við Grafningsveg.
„Yfirleitt eru þetta stuttir kaflar
sem sveitarfélögin eru að leggja
en þetta eru þjóðvegirnir sjálfir.
Við þessar framkvæmdir gjör-
breytast vegasamgöngur innan
hreppsins auk þess sem þetta fegr-
ar umhverfið til muna,“ segir Þór-
hallur. Hann segir að áhugi sveit-
arfélaganna á að fjármagna vega-
gerð komi til m.a. af því að talið
sé heppilegt að sveitarfélögin
standi svipað að vígi fjárhagslega
þegar að sameiningu komi. Því sé
talið arðbært að ráðstafa fé í vega-
gerð.
Eysteinn Jónsson fyrr-
verandi ráðherra látinn
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fyrsti sigur
Víkings
LANGÞRÁÐ stund rann upp hjá
Víkingum í gærkvöldi þegar þeir
unnu sinn fyrsta sigur í 1. deild
Islandsmótsins í knattspyrnu.
Víkingarnir lögðu KR-inga að
velli á Laugardalsvelli 3:2. Fram
að leiknum í gærkvöldi hafði Vík-
ingur gert tvö jafntefli í deildinni
en tapað 9 leikjum. Þeir voru því
kampakátir er þeir gengu af velli
nafnarnir Guðmundur Steinsson
. og Hreiðarsson.
Sjá nánar á íþróttasíðu
bls. 43.
EYSTEINN Jónsson, fyrrverandi
alþingismaður, ráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, lést
í gærmorgun á hjartadeild Land-
spítalans. Hann var á 87. aldurs-
ári. Eysteinn markaði djúp spor
í stjórnmálasögu landsins á þess-
ari öld, sat einna lengst allra í
ráðherraembætti og var einungis
27 ára gamall þegar hann varð
ráðherra, yngstur Islendinga í
slíku embætti. En lengst verður
hans þó minnst fyrir skelegga
afstöðu til alþjóðakommúnismans
á kaldastríðsárunum þegar hann
hafði forystu um það að Fram-
sóknarflokkurinn studdi, með
undantekningum, aðild íslands að
Atlantshafsbandalaginu og tók
höndum saman við aðra forystu-
menn lýðræðisflokkanna um að
tryggja öryggi íslands á viðsjálum
tímum. Það er mesta framlag
hans til íslenskra stjórnmála.
Eysteinn var fæddur 13. nóvem-
ber 1906 á Djúpavogi. Foreldrar
hans voru Jón Finnsson prestur í
Hofsþingum og Sigríður Hansína
Hansdóttir kona hans. Eysteinn
stundaði verslunarstörf og ýmsa
aðra vinnu á Djúpavogi svo og sjó-
Eysteinn Jónsson
mennsku. Hann lauk Samvinnu-
skólaprófi 1927. Eysteinn var starfs-
maður f Stjórnarráði íslands 1927
til 1930 og jafnframt endurskoðandi
fyrir Skattstofu Reykjavíkur og
stundakennari við Samvinnuskól-
ann. Hann var skattstjóri í Reykja-
vík 1930 til 1934 og framkvæmda-
stjóri prentsmiðjunnar Eddu 1943-
1947.
Eysteinn var kosinn á þing fyrir
Suður-Múlasýslu árið 1933 og var
þingmaður sýslunnar og síðar Aust-
urlandskjördæmis til ársins 1974,
nema hvað hann var varaþingmaður
1946-1947. Hann var því alþing-
ismaður í fjóra áratugi. Eysteinn var
fjármálaráðherra frá 1934 til 1939
og síðan viðskiptamálaráðherra til
1943. Hann var menntamálaráð-
herra 1947 til 1949 og fjármálaráð-
herra á ný árin 1950 til 1958. Ey-
steinn var forseti Sameinaðs þings
1971-1974. Hann var formaður
Framsóknarflokksins 1962 til f'968
og formaður þingflokksins 1934 og
1943-69.
Auk þessa gegndi Eysteinn fjölda
trúnaðarstarfa. Hann var meðal
annars formaður stjórnar Sambands
íslenskra samvinnufélaga um tíma,
formaður Þingvallanefndar og for-
maður Náttúruverndarráðs.
Eftirlifandi eiginkona Eysteins er
Sólveig Eyjólfsdóttir. Þau eignuðust
sex börn.