Morgunblaðið - 25.08.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
Rætt um að gjaldið verði
0,25 eða 0,50% af laumim
í UMRÆÐUM innan ríkisstjórnar um þá tillögu heilbrigðisráð-
herra að leggja á skattgreiðendur sérstakt sjúkratryggingagjald
vegna sjúkrahúskostnaðar er nú helst rætt um að gjaldið verði
tekjutengt þannig að það verði reiknað sem ákveðið hlutfall af
launum. Kemur þá tvennt til greina, skv. upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að gjaldið verði annað hvort 0,25% eða 0,50% af heildarlaunum
hvers skattgreiðanda. Hefur ekki fengist endanleg niðurstaða um
hvor prósentan verði fyrir valinu.
Gert er ráð fyrir að launþegar
sem eru undir skattleysismörkum
greiði ekkert gjald. Hugmynd ráð-
herra gengur út á að skattgreiðend-
ur geti óskað eftir að verða undan-
þegnir gjaldtökunni en þurfí þá að
greiða sérstakt innritunargjald ef
þeir leggjast inn á sjúkrahús sem
yrði hærra en tryggingagjaldið. Er
ágreiningur í báðum stjórnarflokk-
unum um þetta atriði.
Sjálfsáhætta
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru taldar sterkar líkur á
að sjúkratryggingagjaldið verði
samþykkt í ríkisstjóm en ágreining-
ur er um útfærslu þess. Þeir sem
eru andsnúnir því fyrirkomulagi að
skattgreiðendum verði í sjálfsvald
sett hvort þeir greiða gjaldið benda
á, að mestar líkur séu á að fólk sem
hafí lítið á milli handanna og þeir
best settu í þjóðfélaginu muni kjósa
öðrum fremur að taka áhættuna af
því að vera ótryggðir. Því geti kom-
ið upp sú staða að láglaunafólki, sem
hafí ekki keypt sér tryggingu vegna
sjúkrahúsvistar, verði synjað um
læknisþjónustuna ef það þarf óvænt
á henni að halda en eigi ekki fyrir
innritunargjaldinu. Auk þess óttast
sumir stjórnarliða að með þessu
fyrirkomulagi sé farið inn á vara-
samar brautir sem kunni að þróast
í átt að fijálsu tryggingakerfí innan
íslenska heilbrigðiskerfísins.
Gert er ráð fyrir að sjúkratrygg-
ingagjaldið verði lagt á strax um
næstu áramót og að það geti skilað
ríkissjóði allt að 500 milljónum
króna ef hærra álagningarhlutfallið,
þ.e. 0,50% af heildarlaunum, verður
ofaná.
Morgunblaðið/Þorkell
Norræna húsið 25 ára
NORRÆNA húsið varð 25 ára í gær og var haldið upp á daginn
með ýmiss konar uppákomum. Þá verður afmælishátíðinni haldið
áfram út vikuna með ýmiss konar dagskrá. Myndin sýnir þegar brugð-
ið var á leik í gær í tilefni afmælisins.
Utgerðarmenn um Stokkhólmsfundinn
Fékk djúp-
sprengju
í trollið
Keflavík.
„ÞETTA er í fjórða sinn sem ég
fæ djúpsprengju á þessu svæði
og ég get sagt að þetta er ekki
sérstaklega skemmtilegt," sagði
Gísli Guðjónsson, skipstjóri á
Eldeyjar-Súlu KE 20, sem í gær-
kvöldi kom til hafnar í Njarðvík
með djúpsprengju sem kom í
trollið út af Garðskaga. Sérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar
tóku á móti togaranum og tóku
sprengjuna í sína vörslu.
Að sögn Gísla var Eldeyjar-Súl-
an að toga á um 60-70 faðma
dýpi um 25 sjómílur norðvestur af
Garðskaga þegar sprengjan kom í
vörpuna. Hún hefði verið á stærð
við um 25 lítra olíutunnu sem hefði
verið illa farin af ryði og reyndar
molnað utan af sprengiefninu. „Við
höfðum samband við Gæsluna og
þeir ráðlögðu okkur að hafa efnið
í sjó og koma með það í land til
eyðingar. Við erum búnir að vera
með þetta um borð í tvo sólar-
hringa og erum ósköp fegnir að
vera lausir við það.“
Sigurður Ásgrímsson, sprengju-
sérfræðingur hjá Landhelgisgæslu,
sagði að sprengjunni yrði eytt með
bruna eða hún sprengd. -BB
350 millj. kr. veitt til greiðsluerfiðleikalána
Yfir 1.000-1.200
fjölskyldum vof-
ir húsnæðismissir
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær að fela félags- og fjármálaráð-
herrum að undirbúa útgáfu nýs flokks húsbréfa að verðmæti 5
milljarðar króna. Þá veitti ríkisstjórnin félagsmálaráðherra heim-
ild til að veita um 350 milljónum kr. til aðstoðar húseigendum
sem lent hafa í greiðsluerfiðleikum vegna langvarandi atvinnu-
leysis, tekjumissis eða veikinda.
Ströng skilyrði
„Hér er ekki um hefðbundnar að-
gerðir vegna greiðsluerfíðleika að
ræða, heldur aðstoð við fámennan
hóp sem á í sérstökum vanda,“ segir
Jóhanna. Að mati Húsnæðisstofnun-
ar er um að ræða 1.000-1.200 hús-
eigendur sem eiga á hættu að missa
húsnæði sitt að óbreyttu. Jóhanna
sagði að aðstoðin yrði bundin ströng-
um skilyrðum. Stór hluti vandans
væri vegna skammtímalána í bönk-
um og sparisjóðum og því ylti árang-
ur á samvinnu milli hins opinbera
og lánastofnana.
Ráðherra kvaðst hafa ge'rt að til-
lögu sinni að hver lánastofnun til-
nefndi einn fulltrúa í nefnd til þess
að stjóma aðgerðunum. „Það er mik-
ilvægt að ekki sé verið að grípa til
aðgerða í einum banka og vandinn
látinn óáreittur í öðrum,“ segir hún.
Fé það sem veitt verður til aðgerð-
anna er fengið með tvennum hætti.
í lögum um Byggingarsjóð verka-
manna er heimild til þess að fresta
greiðslum tímabundið, en einnig hef-
ur ráðherra heimild í lögum til þess
að stofna sérstaka lánaflokka sem
notaðir verða í þessu skyni.
Verðmæti útgefínna húsbréfa er
um milljarði króna minna en á sama
tíma á síðasta ári, eða 6,6 milljarðar
króna. Frávik frá áætlun er um 3%.
Húsnæðisstofnun gerir ráð fyrir því
að heildarverðmæti bréfa sem seld
verða á árinu verði um 11,5 miiljarð-
ar króna, en heildarsalan á síðasta
ári var 12,3 milljarðar króna.
Ágreiningur um hvort sj úkratry ggingagj aldið eigi að vera valfrjálst
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Lögregla við löndun
DJÚPSPRENGJUNNI var landað á undan öðrum afla Eldeyjar-Súlu
þegar komið var að landi með um 35 tonn eftir 5 daga veiðitúr.
Sprengjuefnasérfræðingar Landhelgisgæslunnar stjórnuðu lönd-
uninni en lögreglumenn í Keflavík tóku við í landi og fluttu sprengj-
una á afskekktan stað til eyðingar.
Dráttar-
vextir
hækka
um 4V2%
DRÁTTARVEXTIR hækka
um mánaðamótin úr 17 i
21V2%, eða um 4V2%. Hækkun
dráttarvaxtanna kemur í kjöl-
far almennrar vaxtahækk-
unar bankanna í byijun mán-
aðarins.
Seðlabankinn ákvarðar drátt-
arvexti um hver mánaðamót og
er þá tekið mið af almennum
útlánsvöxtum banka og spari-
sjóða og 2-6% áiagi bætt við.
Að undanförnu hefur bankinn
ávallt haldið álaginu nálægt lág-
markinu, en þó þannig að drátt-
arvextimir standi á hálfu eða
heilu prósenti. Við ákvörðun
vaxtanna nú kom í ljós að með-
alvextir víxil- og skuldabréfa-
lána höfðu hækkað úr 14,3 í
19,1% frá síðustu vaxtaákvörð-
un. Með því að bæta við rúm-
lega 2% álagi sem reiknast hlut-
fallslega voru dráttarvextimir
ákveðnir 21‘/2%.
Dráttarvextirnir hafa verið
15*/2 til 17% það sem af er þessu
ári og þeir hafa raunar ekki
farið yfír 20% síðan í ársbyijun
1992.
í dag
Lambakiöt
Vill selja vistvænt kjöt til Banda-
ríkjanna 14
Mannréttindabrot_____________
Fangar pyntaðir og myrtir í fanga-
búðum í Suður-Afríku 18
Frammarar gefa ekkert eftir
Unnu Val 3:2 íjöfnum og fjörugum
leik í 1. deild 39
Leiöari______________________
Viðræður við Norðmenn 20
Úr verinu
► Staða þorsksins slæm vegna
ofveiði og veðurfarsbreytinga -
Sejja gaffalbita til Rússlands -
Kvóti allra skipa - Gjöfult ár í
sjávarútvegi á Nýja Sjálandi
Myndasögur
► Vísa - Brandarar - Myndir
ungra listamanna - Fjölbreyttar
þrautir - Leikhomið - Skemmti-
Iegar myndasögur - Pennavinir
- Drátthagi blýanturinn
íslendingar munu
halda áfram veiðum
UTGERÐARMENN tveggja togara sem hafa verið á veiðum í Smug-
unni sögðu í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að viðbrögð Norð-
manna við erindi íslensku ráðherranna væri afleikur og þýddi það eitt
að íslendingar héldu áfram veiðum á þessu hafsvæði.
Eiríkur Ólafsson útgerðarstjóri
Ljósafellsins kvaðst hafa átt von á
þessum viðbrögðum Norðmanna.
„Viðbrögð Norðmanna koma mér
ekki á óvart. Ef afli glæðist ekki þá
er ekki til neins að senda skip þang-
að aftur fyrr en næsta vor og það
eru miklar líkur til þess að við gemm
það,“ sagði Eiríkur.
„Ég hélt að Norðmenn hefðu þá
skynsemi til að bera að ræða málin,“
sagði Sighvatur Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.
„Ég held að það sé nokkuð ljóst að
ef þeir hafna öllum viðræðum muni
menn halda áfram að kanna hvort
þama sé einhvem fisk að hafa. Ég
held að það hafi verið alltof margir
togarar á svæðinu og að færri togar-
ar hefðu getað haft eitthvað upp úr
þessu. Ef Norðmenn vilja ekki ræða
málin verðum við að skoða hvað er
í Smugunni og veiða það sem við
getum veitt þar. Ég held að það sé
verðugt verkefni fyrir okkur útgerð-
armenn að skipuleggja för nokkurra
togara norður eftir af einhverri skvn-
semi.“