Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 i, Jóno., '<29 i/iL fci ók 'ilnafc." Með morgunkaffínu Því miður voru einu við- brögðin sem ég fékk frá þeim sem köstuðu í mig tómötunum Guðmundur! Hver gaf þér leyfi til að fara úr rúminu og leika þér með hlustapípur læknisins? HÖGNI HREKKVlSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Hvers vegna er verið að gera einfaida hluti flókna? Frá Eddu Ársælsdóttur UNDANFARIÐ hafa verið miklar umræður í gangi vegna innheimtu vsk. af erlendum blöðum og tímarit- um, sem fólk fær sent heim til sín með póstinum. Sem kunnugt er aftóku stjómend- ur Pósts og síma að kalla áskrifend- ur á viðkomandi póststöð í hvert sinn sem þeim bærist erlent rit, til að innheimta skattinn. Þess í stað eiga nú starfsmenn póstsins að senda öllum þessum ein- staklingum bréf, þar sem þeim er gefinn kostur á að greina frá árs- áskriftargjaldi viðkomandi rits og að greiða skatt í samræmi við það. Þessi lausn er ekki mikið skárri hinni fyrri. Starfsmönnum póstsins er ætlað að leita uppi þá sem gjöldin skulu greiða og að fylgjast með því, að enginn sleppi og áskrifendur verða að gera sér ferð á pósthús til þess að greiða skattinn. Það eru þijár aðferðir við að greiða áskrift að erlendum blöðum hér á landi: 1. Greitt er með erlendum gíró- seðli, greiðsla fer fram á pósthúsi. 2. Greiðandi fer í banka og kaup- ir ávísun á erlendan gjaldeyri, stflaða á viðkomandi útgáfufyrirtæki. 3. Áskriftin er greidd með greiðslukorti. í öllum þessum tilvikum er ekkert einfaldara en að leggja virðisaukann á upphæðina um leið og hún er greidd. Starfsmenn póstsins leggja hann á umreiknaða greiðslu gíróseð- ilsins, í bankanum bætist hann við það sem greitt er fyrir ávísunina og starfsmenn kortafyrirtækjanna leggja hann við áskriftargjaldið, þeg- ar það hefur verið reiknað út í ís- lenskum krónum. Þessa aðferð mætti taka upp frá og með næstu mánaða- mótum. Þeir sem þegar hafa greitt fyrir áskrift koma þá inn við næstu endurnýjun. Þótt ríkiskassinn verði þar af einhverri upphæð, þá sparast á móti kostnaðurinn við að skrifa öllum áskrifendunum bréf og sumum ítrekunarbréf. Eflaust eru þónokkrir sem fá blöð sín send í gjafaáskrift erlendis frá, þeir hljóta að vera undanþegnir því að greiða þennan skatt, þar sem heimilt er að þiggja gjafir að vissri upphæð erlendis frá, án þess að af þeim séu greiddir tollar og gjöld. EDDA ÁRSÆLSDÓTTIR Hringbraut JM, Hafnarfirði Otrúleg fróðleiksnáma og hjálparhella Frá Ólafi Guðmundssyni: Á SIÐASTA ári eignaðist ég íslensku alfræðiorðabókina. Ég verð að viður- kenna að það var með hálfum huga að lét af því verða. Jafnframt verð ég einnig að viðurkenna að allar efa- semdir um notagildi bókarinnar hafa síðan horfið úr huga mínum sem dögg fyrir sólu, og eftir stendur undr- un og aðdáun yfir því hversu ótrú- lega mikil fróðleiksnáma bókin er. Ég er sannast sagna alltaf að fletta upp í henni. Stundum til þess að fá gleggri upplýsingar um það sem efst er á baugi í fréttum, fá bakgrunninn sem fjölmiðlar hafa ekki tíma né rúm fyrir. Oft til þess að leita grunnupp- lýsinga varðandi ýmislegt þjóðlegt efni sem ég hefí gaman af að kynna mér nánar, sem og alþjóðlegt þegar því er að skipta. Nýjasta dæmið þessu tengt kom til af því að ég og kunningi minn vorum að velta því fyrir okkur hvers vegna deginum var skipt í tólf stund- ir. Taldi annar okkar að það væri tilkomið vegna tylftakerfisins svo- nefnda, en hinn var í vafa um það. Þegar heim kom sló ég fyrst upp í víðfrægri, erlendri alfræðiorðabók en fékk þar alls ekki fullnægjandi svar við þessari spurningu. Það var því með hálfum huga sem ég leitað í Islensku alfrœðiorðabókina, en viti menn, þar kom ég ekki að tómum kofunum. í bókinni segir: „Tylftakerfið: sætistalnakerfi með stofntölu 12. Tylftakerfið var mikið notað fyrr á öldum og hefur þann kost að tala 12 er deilanleg með mörgum tölum (2,3,4,6) sem auð- veldar reikning með brotum. Leifar tylftakerfisins má enn finna í ýmsum mælieiningum, t.d. jafngildir 1 fet 12 þumlungum og stórt hundrað 120. Einnig má nefna skiptingu árs- ins! 12 mánuði og dagsins í 12 stund- ir.“ Þetta er aðeins eitt dæmi af mörg- um. Síðan ég eignaðist alfræðiorða- bókina hefur ungur frændi minn sem stundaði nám í menntaskóla lært að meta hana. Hann leitaði ætíð í bók- ina þegar hann undirbjó ritgerðir og varð því meira undrandi yfir víðfeðmi verksins sem hann kynntist því meir. Okkur íslendingum hættir til að láta helst í okkur heyra þegar við erum óánægð. Mér fannst hins vegar ástæða til þess að koma ánægju minni með þessa alfræðiorðabók á framfæri, því ég hygg að allur þorri manna geri sér ekki grein fyrir hví- líkt hjálpargagn hún getur verið. ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Sævargörðum 20, Seltjamamesi. Víkverji skrifar Viðhorf íslendinga til lífsins hafa oft vakið furðu Víkveija; þau eru oft eins konar öfugmæli við alla skynsemi, jafnvel þótt tungumál okk- ar sé hlaðið málsháttum og orðatil- tækjum sem bera vott um allt ann- að. Setningar eins og „Of seint er að byrgja brunninn þegar bamið er dottið ofan í,“ virðast augljósar og ætti ekki að vera erfitt að fara eftir þeim. xxx En það virðist samt vera lenska hér að byrgja enga bmnna fyrr en einhver böm hafa dottið ofan í þá. Á dögunum birtist frétt um aukaverkanir geðlyfsins Fontex og sagt frá því að í upplýsingum frá aukaverkanamiðstöðinni í Uppsölum í Svíþjóð komi fram að einn sjúkling- ur hafi dáið og 40 fengið talsverðar aukaverkanir af geðlyfínu. Einnig er staðfest að upplýsingarnar séu birtar í föstum dálki yfír aukaverkan- ir lyfja í fréttabréfí lækna sem vænt- anlegt er í byijun september. Auðvitað hefur þetta lyf verið not- að hér á íslandi og það staðfestir aðstoðarlandlæknir í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag. En hann segir jafnframt „að ekkert benti til að lyf- ið hefði þessi alvarlegu áhrif en ef slíkt kæmi (ljós yrði lyfið samstund- is tekið út af lyQaskrá". Víkveiji gat ekki annað en staldr- að við og velt því fyrir sér hvað maðurinn var raunverulega að segja. Þegar staðfestar rannsóknir á virtum stofnunum leiða í ljós skað- semi, blæs maðurinn á það og segir að ekkert bendi til að lyfíð hafi þessi alvarlegu áhrif. Tekur hann ekkert mark á niðurstöðum rannsókna í sínu eigin fagi, eða telur hann sína vík- ingaþjóð ónæma fyrir skrýtlum eins og aukaverkunum? Eða er hann að segja okkur að einhveijir íslendingar þurfí að deyja eða verða alvarlega veikir til að gripið verði til einhverra ráða hér? Er ekki hægt að fylgja öðrum Norðurlandaþjóðum - eða hin- um stóra heimi - í viðbrögðum við þessum upplýsingum? x x x Aðstoðarlandlæknir segir enn- fremur: „Ef sjúklingar eru undir eftirliti lækna er ekkert að óttast" og bætti því við að hér á landi „sé mjög vel fylgst með notkun lyfs- ins m.a. af lyfjaeftirlitinu og lyfja- nefnd". Víkveiji velti því fyrir sér hvort það sé eitthvert séríslenskt fyrirbæri að læknar, lyfjaeftirlit og lyljanefnd fylgist með notkun lyfja. Sveija ekki læknar um allan hinn vestræna heim sama eiðinn? Eða eru íslenskir læknar mun betur gerðir en læknar á til dæmis Norðurlöndum, að huga betur að því hvort, hvenær og hversu mikil lyf sjúklingamir þeirra gleypa? Getur verið að lyf séu þar af leiðandi aldrei misnotuð á ís- landi? Aðstoðarlandlæknir afgreiðir rannsóknina að þessu leyti í niður- lagi fréttarinnar, þegar hann segir: „Það á við um þetta lyf eins og mörg önnur lyf að þau eru hættuleg ef þau eru tekin í of miklu rnagni." Ekki veit Víkverji hvort það þýðir að íslenskir lyfjaneytendur séu betur í stakk búnir en lyfjaneytendur ann- arra þjóða til að vara sig á ofneyslu. Lyfíð er gefíð við þunglyndi og kannski líður íslenskum neytendum þess bara ekki eins illa og erlendum neytendum og því ekki nein hætta á að þeir freistist til að taka inn of stóra skammta. Þykir Víkveija yfir- sýn aðstoðarlandlæknis með ólíkind- um, ef hann getur dregið þá ályktun. XXX A Iupphafi fréttarinnar kemur fram að sannað sé að lyfíð hafi alvar- legar aukaverkanir og geti jafvel leitt til dauða. Hann getur ekki litið á afgreiðslu aðstoðarlandlæknis, sem hann slettir framan í alla þjóðina, öðmvísi en sem ótrúlegt kæmleysi. En auðvitað er ekkert hægt að segja eða gera. Við Islendingar verðum bara að bíða þar til einhver deyr af völdum lyfsins, svo við tökum mark á sænskum rannsóknum og pípa á gullvægar setningar eins og „sælir vom þeir sem sáu ekki, en trúðu þó“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.