Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
ATVINNUAUGIYSINGAR
Starfskraftur óskast
til afgreiðslustarfa í fiskbúð um óákveðinn
tíma.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „F - 3853“, fyrir 30. ágúst.
Innflutningsfyrirtæki
í borginni vill ráða starfskraft, vanan öllum
almennum skrifstofustörfum, til ritarastarfa
strax. Fullt starf.
Tilboð, merkt: „Þ - 7374“, leggist inn á aug-
lýsingadeild Mbl. fyrir fimmtudagskvöld.
Hlutastarf
Heildverslun vill ráða góðan starfskraft með
þekkingu á bókhaldi og tölvum.
Vinnutími frá kl. 9-12 eða 13-17.
Tilboð, merkt: „H - 4736, sendist auglýsinga-
deild Mbl. fyrir fimmtudagskvöld.
IÐNSKÓLINN (REYKJAVÍK
Ræstingafólk
óskast í tímavinnu - hlutastörf.
Tekið er við umsóknum e.h. föstudaginn
27. ágúst og allan mánudaginn 30. ágúst.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Viltu auka tekjurnar?
Óskum eftir dugmiklum aðilum í tímabundna
vinnu á kvöldin. Kjörið fyrir heimavinnandi.
Nánari upplýsingar í síma 812300
milli kl. 9.00 og 16.00.
FROÐI
BÓKA & BLAÐAÚTCÁFA
Ármúla 18,
108 Reykjavík.
Ferðaþjónusta
Laugalandi, Holtum
Óskað er eftir rekstraraðila fyrir Menningar-
miðstöðina á Laugalandi frá 1. júní
til 25. ágúst 1994.
Laugaland í Holtum býður uppá rúmgóða svefnpokaaðstöðu, góða eldhús-
aðstöðu, nýja sundlaug og ágæt tjaldstæði.
Óskað er eftir skriflegum umsóknum ein-
göngu fyrir mánudaginn 6. sept. 1993.
Auglýsingaraðili áskilur sér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar í símum 98-76564 og 98-76540.
Stjórn Menningarmiðstöðvarinnar
Laugalandi.
Húsvörður
Laust er til umsóknar starf húsvarðar í Val-
húsaskóla á Seltjarnarnesi. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi bæjarstarfsmanna.
Upplýsingar um starfið veitir rekstrarstjóri í
síma 612100.
Umsóknir, er geini aldur og fyrri störf, skulu
berast til bæjarskrifstofu Seltjarnarness,
Austurströnd 2.
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi.
Dansskóli
Jóns Péturs og Köru
óskar eftir að ráða danskennara í hlutastarf
svo og aðstoðarmann eða nema.
Upplýsingar í símum 36645 og 685045
í dag milli kl. 12.00-15.00.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
BÆKLUNARLÆKNINGADEILD
Nú er laus staða hjúkrunarfræðings við
bæklunarlækningadeild Landspítalans.
Um er að ræða morgunvaktir og næturvakt-
ir eða fastar næturvaktir og engar helgar.
Á deildinni er einstaklingshæfð hjúkrun. Góð
aðlögun með vönum hjúkrunarfræðingi.
Upplýsingar veitir Sólveig Sverrisdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601405 og Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í símum 601366 og 601300.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
radaug: ysingar
Óska eftir 3ja-5 herb. íbúð
Reglusöm hjón með 2 börn óska eftir 3ja-5
herb. íbúð miðsvæðis í Reykjavík nú þegar.
Skilvísum mánaðargreiðslum heitið.
Upplsýsingar í símum 13141 og 14848 í dag
og næstu daga.
Stærra húsnæði
- makaskipti
Félagasamtök í Reykjavík eru að leita að
stærra húsnæði fyrir sívaxandi starfsemi
sína. Við leitum að:
★ 700-900 fermetra húsnæði, má vera á
tveimur hæðum, en þá með lyftu.
★ Góð bílastæði eru nauðsynleg.
Við erum með skuldlaust 350 fermetra hús-
næði og erum tilbúin að ræða ýmsa möguleika.
Nánari upplýsingar gefur Elín í síma 619360
fyrir hádegi.
Glæsileg íbúð f Grafarvogi
Til sölu vönduð og rúmgóð 96 m2 3ja herb.
íbúð ásamt bílskýli.
Allar innréttingar sérsmíðaðar, parket og flís-
ar á gólfum.
Stórar suð-austur svalir. Gott útsýni.
Lóð og sameign frágengin.
Ákvílandi húsbréf 4,2 milljónir.
Fasteignasalan Kjöreign, sími 685009.
Mjólkurkvóti
Höfum til sölu 50.000 I. mjólkurkvóta.
Tilboðum skal skila til Lögmanna Suðurlandi
fyrir 27. ágúst nk., sem veita frekari upplýs-
ingar. Upplýsingar í síma 98-22988.
Lögmenn Suðurlandi,
Austurvegi 3,
simi 98-22988.
íbúð -
Bjargarstíg 6, Reykjavík
Til sölu 2ja-3ja herb. íbúð í tvíbýlishúsi á
efri hæð. Góð áhvílandi lán. Verð 4.300.000.
Nánari upplýsingar á fasteignasölu
í síma 98-22988.
Lögmenn Suðurlandi,
Austurvegi 3,
sími 98-22988.
Aðalfundur Hjálms hf.t
Flateyri, verður haldinn í mötuneyti Hjálms
hf. þann 7. september kl. 20.30
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Hjálms hf.
Sjðv/0"3
SjÖórOf'O'
Greiðsluáskorun
Gjaldheimtan á Seltjarnarnesi skorar hér
með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil
á gjöldum sem voru álögð 1990, 1991, 1992
og 1993 og féllu í gjalddaga fyrir 15. ágúst
1993 og eru til innheimtu hjá ofangreindu
innheimtuembætti að greiða þau nú þegar
og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetn-
ingu áskorunar þessarar.
Áskorun þessi nærtil neðangreindra gjalda:
Staðgreiðslu opinþerra gjalda, launagreið-
anda, reiknaðs endurgjalds ásamt vanskilafé
álagi og sektum, tekjuskatts- og eignaskatts,
sértaks eignaskatts, sérstaks skatts á versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði, útsvars, gjalds
í framkvæmdasjóð aldraðra, kirkjugarðs-
gjalds, iðnaðarmálagjalds, iðnlánasjóðs-
gjalds, slysatryggingar v/heimilistrygginga,
útflutningsráðsgjalds, aðstöðugjalds, trygg-
ingagjalds staðgreiðsluskylt, lífeyristrygging-
argjalds, slysatryggingargjalds, vinnueftir-
litsgjalds og atvinnuleysisstryggingargjalds.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara
fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna
að liðnum 15 dögum frá birtingu áskorunar
þessarar.
Athygli er vakin á því, að auk óþæginda
hefur fjárnámsgerð í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkis-
sjóð er allt að kr. 10.000 fyrir hverja gerð.
Þinglýsingargjald er kr. 1.000 og stimpilgjald
1,5% af heildarskuldinni auk útlagðs kostn-
aðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til
að gera full skil sem fyrst til að forðast óþæg-
indi og kostnað.
Seltjarnarnesi, 23. ágúst 1993.
Gjaldheimtan á Seltjarnarnesi.