Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 13 i f > Athugasemd um ráðningu eftir Björn Bjarnason Það er með hálfum huga, sem ég blanda mér í ritdeilur þeirra Sighvats Björgvinssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar hér á síðum blaðsins. Deilur þessar snúast að öðrum þræði um að hafa það sem sannara reynist. Kjarni þeirra er þó sá að rökræða á hvaða formleg- um forsendum menn eru valdir til opinberra starfa og hárra emb- ætta. I grein í Morgunblaðinu í gær sér Sighvatur Björgvinsson ástæðu til að nefna Geir heitinn Hallgríms- son til sögunnar málstað sínum til styrktar. Hann segir réttilega, að Geir Hallgrímsson, þáverandi for- sætisráðherra, hafí ráðið mig til starfa sem deildarstjóra í forsætis- ráðuneytinu haustið 1974. Síðan bætir Sighvatur við, að Geir hafi jafnframt ráðið mig sem „sér- stakan aðstoðarmann". Samkvæmt stjórnarráðslögun- um sem tóku gildi 1. janúar 1970 var ráðherra heimilað að ráða sér aðstoðarmann, sem hyrfí úr starfí um leið og ráðherrann. Menn voru enn að móta framkvæmd laganna haustið 1974. Geir Hallgrímsson var þeirrar skoðunar, að forsætis- ráðherra ætti ekki að ráða sér aðstoðarmann. Þess vegna eru að mínu mati engar forsendur fyrir því að nefna hann til sögunnar í deilu um það, hvort eðlilegt sé að aðstoðarmenn ráðherra séu ráðnir eða skipaðir til embætta í ráðu- neytum. Ég var ráðinn og síðan skipaður deildarstjóri í forsætis- ráðuneytinu, siðar varð ég skrif- stofustjóri þar. Hugtakið „sérstak- ur aðstoðarmaður" er ekki til í stjómarráðslögunum. Það er fráleitt, að nú tæpum 20 árum síðar skuli þetta embætt- isverk Geirs Hallgrímssonar dregið inn í deilur þeirra Sighvats Björg- vinssonar og Ólafs Ragnars Gríms- sonar, sérstaklega þegar haft er í huga, að Geir vildi ekki ráða sér aðstoðarmann samkvæmt stjórn- arráðslögunum. Höfundur er þingmadur Sjálfstæðisflokksins í Reykjnvík. VINKLAR Á TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI EINKAUMBOÐ &Þ.Þ0RGRIMSS0N&C0 Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 Þú svalar lestrarþörf dagsins Dýralæknar þin g uðu á Hvanneyri AÐALFUNDUR Dýralæknafé- lags Islands var haldinn að ) Hvanneyri 20.-21. ágúst sl. Fjallað var um efnaskiptasjúk- dóma í mjólkurkúm og ónæmis- aðgerðir á sauðfé fyrri daginn. Aðalfyrirlesari var d.r Steinar Waage frá Dýralæknastofnun- inni í Osló, en félagið naut styrks yfirdýralæknisembættis- ins til ferðar hans hingað. Dr. Simon Smith frá Bretlandi fjall- aði um ónæmisaðgeðrir á sauðfé og kom hingað á vegum Hoechst á íslandi. Síðari daginn voru félagsmál á dagskrá. Fjallað var um ýmis mál. Efst á baugi var Norræna dýralæknaþingið saem haldið | verður í Reykjavík 27.-29. júlí á næsta ári. Um undirbúning þings- ins sér nefnd innan félagsins í samstarfi við Ráðstefnur og fundi hf. ~ Fjallað var um dýralæknamál á W Vestíjörðum. Samþykkt var álykt- un þess efnis að fullyrðingu yfir- dýralæknis í fjölmiðlum nýverið að allt hafi verið gert til að fá dýralækni til starfa á Vestfjörðum að ræða og sýningin lætur lítið yfir sér í fyrstu en vinnur fljótlega á við nánari skoðun. Einkum hafði ég ánægju af henni við aðra heim- sókn og staldraði ég mun lengur við hverja mynd. Það kom líka í ljós, að hér er í raun um mjög ólíka listamenn að ræða og það eina sem þeir eiga sameiginlegt er að þeir hafa frábært vald á sömu tækninni. Þeir sækja líka á ólík mið um myndefni og þannig er eins og að hinn nístandi ein- manaleiki og fírring sé ofarlega í huga Deja, en ein mynd af konu- baki er sér á báti, afskaplega vel útfærð og róandi fyrir augað. Það er líkt og það þrengi sér fram hluti konulíkama í viðvarandi og djúp- um draumi. Og þrátt fyrir megin- inntak efnistakanna við gerð myndanna höfða þær svo sterkt til skynfæranna í sínum mildu og djúpu tónum, að maður er fullur aðdáunar. Það er fjölþættari lífsheimspeki í myndum Golinski auk þess sem í þeim er margræður ástþrunginn blær og súrrealismi í bland. Hér tendrast mikill og lífrænn galdur ofurfínni blæbrigða þar sem ókennilegar furðuverur líða um sviðið. Hjá báðum listamönnunum er um hrein, bein og ekta vinnubrögð að ræða, þar sem myndirnar sjálf- ar tala til skoðandans, þrengja sér hvergi fram en búa yfir mikilli nánd og stigmagna væntumþykju eftir því sem skoðandinn þrengir sér dýpra inn í eigindir þeirra. var mótmælt harðlega. Fundurinn taldi að bæta þyrfti starfsaðstæð- ur dýralækna á jaðarsvæðunum til þess að manna héruðin. Fundur- inn taldi ámælisvert að staða far- anddýralæknis væri ekki notuð við slíkar aðstæður eins og nú hafa skapast á Vestfjörðum. Núverandi stjórn Dýralæknafé- lags íslands skipa: Rögnvaldur Ingólfsson, formaður, Ólafur Jóns- son, ritari, Sigurborg Daðadóttir, gjaldkeri og Sigurður Ingi Jó- hannnsson, meðstjórnandi. Það kostar minna \ en þig grunar að hringja til útlanda PÓSTUR OG SÍMI *98 kr.: Verð á 1 mínútu símtali (sjálfvirkt val) til ftaliu á dagtaxta m.vsk. VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Verðið á 1. flokks lambakjöti í hálfum skrokkum lækkar um heil 20%. Fáðu þér ljúffengt lambakjöt í , næstu verslun á j írábæru verði, aðeins 398 krónur kílóið. m *Leiöbeinandi smásöluverö HVERT KILO flf LflfllBAKJÖTI Bestu kaupin í lambakjöti á aðeins398kr./kg. ínœstuverskm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.