Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 21 ANNAISTOKKHOLMI Morgunblaðið/Magnus Torle Samningamenn FYRIR fundinn í gær stilltu ráðherramir sér upp til myndatöku. Frá vinstri: Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra, Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra, Johan Jörgen Holst, norski utanríkisráð- herrann og Jan Henry T. Olsen sjávarútvegsráðherra Noregs. Jón Baldvin Hannibaisson utanríkisráðherra Þjóðernishyggjan hafiní æðra veldi á atkvæðaveiðum JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að staða Norð- manna í viðræðum við Evrópubandalagið og þingkosningarnar, sem framundan séu, hafi ráðið mestu um að svo fór sem fór á viðræðufund- inum í Stokkhólmi, sem lauk án nokkurs samkomulags. Norskir stjórn- málamenn séu að reyna að slá sig til riddara í kosningaslagnum. menn vildu gera varðandi Barents- hafið. Þá bentu íslenzku fulltrúarn- ir á að í samningsdrögunum hefði verið lögð áherzla á að heimaland fískiskipa hefði lögsögu yfir þeim, og að þau veittu leyfi, ef til kæmi, eða takmörkuðu veiðar á grund- velli vísindalegrar ráðgjafar. Þar væri ekki gert ráð fyrir að einstök ríki gætu takmarkað úthafsveiðar annarra ríkja með leyfisveitingum sínum. Ekki gekk heldur saman í þessu máli. Kröfum um kvóta tekið víðsfjarri Þriðja atriðið, sem kom til um- ræðu á fundinum, var krafa íslend- inga um kvóta í Barentshafi. ís- lenzku ráðherrarnir settu hana ekki fram á viðræðufundi sendinefnd- anna í heild sinni, heldur báðu um hliðarfund þar sem aðeins ráðherr- spilltt röfum getað fundið grundvöll til að byggja á þann samning, sem við Jón Bald- vin Hannibalsson urðum sammála um að reyna að ná þegar við hitt- umst í Reykjavík fyrir nokkrum dög- um,“ sagði hann. Holst sagði að lausn mála í Smug- unni hefði getað orðið fordæmi um fyrirkomulag veiða í mörgum öðr- um„Smugum“, á fiskistofnum sem flökkuðu milli lögsögu ríkja og út- hafsins. Norðmenn hefðu lagt mikla áherzlu á að smíða almennan ramma, sem nota mætti í framtíðinni, þegar upp gætu komið mál, sem skiptu enn meira máli varðandi ástand fiskveið- iauðlinda en núverandi deila í Bar- entshafi. Aðspurður hvort upp væri komin alvarleg diplómatísk deila ríkjanna, sagði Holst að málið-hefði verið deilumál frá upphafi. Ekki hefði tek- izt að ná því samkomulagi, sem stefnt hefði verið að. Aðspurður um hvað myndi gerast næst í málinu, sagði Holst að nú færi hvor til síns heima og hugsaði ráð sitt. „Við höf- um sagt það skýrt að við erum alltaf tilbúnir að ræða við íslendinga um þau vandamál, sem upp kunna að koma varðandi fiskveiðar. Vilji menn síðar, og í dálítið meiri fjarlægð frá núverandi deilu, ræða á ný um al- mennar reglur um fiskveiðistjómun, sem Norðmenn og íslendingar ættu að geta verið sammála um, erum við tilbúnir í slíkt.“ arnir fjórir voru staddir. íslendingar vísuðu annars vegar til þess að Grænlendingar, Færeyingar og fleiri þjóðir hefðu fengið veiðiheim- ildir í Barentshafí, og hins vegar að réttarstaða Norðmanna við Sval- barða væri veik. íslendingar hefðu orðið útundan við útdeilingu veiði- heimilda á þessu svæði. Skemmst er frá því að segja að norsku ráðherramir tóku óskum um hlutdeild íslendinga í veiðum í Bar- entshafinu víðsfjarri og sögðu ís- lendinga ekki eiga neitt sögulegt tilkall til slíks. Eftir þetta gekk hvorki né rak á samningafundinum og honum var slitið í styttingi, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Raunar mátti sjá það á samn- ingamönnum beggja ríkja er fund- inum var lokið, að menn höfðu reiðst. Ekki þorskastríð Holst var spurður hvort þorska- stríð væri í uppsiglingu milli Norð- manna og íslendinga. „Ég vil ekki taka mér slík stóryrði i munn. Það er afar leitt að þessi staða skuli hafa komið upp, en ég held að ekki verði neitt stríð úr henni.“ Óhagkvæmt að veiða í Smugunni Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra, sagði að væntanlega myndi náttúran sjálf leysa úr því vanda- máli, sem veiðar íslenzku togaranna í Smugunni væru. Það væri einfald- lega ekki hagkvæmt fyrir íslenzku útgerðimar að gera út á þau mið. Norsk skip hefðu aldrei haft mikið þangað að sækja, einkum vegna þess hversu mikið væri þar af smáfiski. „Afstaða íslendinga hefur valdið mér miklum vonbrigðum og ég vona sannarlega að á næsta ári leiti ís- lendingar til okkar á ný og leggi til að við reynum að starfa saman að alþjóðlegum reglum um úthafsveið- ar,“ sagði Olsen og vísaði til þess að úthafsveiðar yrðu ræddar á al- þjóðlegum ráðstefnum í marz og maí á næsta ári. „Við höfðum sögulegt tækifæri til að snúa þessari deilu upp í sameigin- legt átak Norðmanna og Islendinga, sem hefðu getað lagt fyrir ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna tillögur um umferðarreglur á alþjóðlegum haf- svæðum. í staðinn kröfðust íslend- ingar kvóta í Barentshafi og lögðu áherzlu á að heimaríki fiskiskipa hefðu meira yfir þeim að segja en viðkomandi strandríki,“ sagði Olsen. Hann sagði að fyrrnefnda leiðin hefði bæði verið í anda þeirrar stefnu, sem íslendingar hefðu áður fylgt á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna og í takt við hagsmuni Norðmanna. „Þessum viðræðum lauk án árang- urs, þó án þess að stjórnmálasam- bandi væri- slitið,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í samtali við Morgun- blaðið eftir að viðræðufundinum lauk. Er hann var spurður hvort hætta hefði verið á að stjórnmála- samband milli landanna slitnaði, sagði hann: „Undir venjulegum kringumstæðum hefði svo skynsam- legum tillögum og sanngjörnum kröfum ekki verið hafnað með jafn- stórbokkalegum hætti og Norðmenn gerðu.“ EB-viðræður og kosningar orsökin Jón Baldvin sagðist telja skýring- una á stífni Norðmanna á fundinum tvíþætta. „Meginskýringin er að Norðmenn eru nú að semja um aðild sína að Evrópubandalaginu. Erfíð- asta samningssviðið er um fiskveiði- mál og stífustu kröfur EB eru um veiðiheimildir. Með því að segja: „Sjáið þið, við spörkum meira að segja í Islendinga, eru Norðmenn að undirstrika að ekki sé þess að vænta að þeir láti undan síga fyrir Evrópu- bandalaginu. Hin meginafstaðan er kosningamar, sem standa fyrir dyr- um í Noregi. Sá, sem slær sig til riddara, til vamar norskum lands- réttindum, eða þeim rétti sem Noreg- ur hefur tekið sér einhliða á Barents- hafinu, getur -gert sér vonir um að verða norsk þjóðhetja." Kalt tímabil framundan Jón Baldvin sagði að ekkert fram- hald yrði á samskiptum ríkjanna um Barentshafsdeiluna, slíku hefði verið hafnað. Aðspurður hversu alvarlegt málið væri fyrir diplómatísk sam- Aðspurður hvort samkomulag um fiskvernd, sem íslendingar lögðu til, hefði ekki þýtt í raun, miðað við hlut- fall smáfísks í afla úr Smugunni, að íslenzku togararnir hefðu orðið að sigla heim, sagði Þorsteinn að engar formlegar upplýsingar hefðu borizt Islendingum um samsetningu aflans. „Hins vegar gáfu skipstjórarnir sjálf- ir yfirlýsingu um að þeir væru farn- ir út af svæðinu vegna lélegrar veiði og smáfisks. íslenzkir sjómenn eru nú ekki þekktir fyrir að vera að rót- ast í smáfiski, þannig að ég tek þeirra mat gott og gilt.“ Ekki minnsti grundvöllur fyrir framhaldi Þorsteinn sagði að mikið hefði borið á milli á viðræðufundinum allan skipti íslands og Noregs, sagði Jón Baldvin að væntanlega tæki við „kalt tíma- bil“. Deilan hefði komið óvænt upp, án tilverkn- aðar stjórnvalda, og ríkisstjórnir ríkjanna hefðu aðeins brugðizt eftir á við því að íslenzkur tog- arafloti hefði haldið á veiðar í Smug- unni. Hins vegar hefði hún komið upp á versta hugsanlegum tíma, vegna viðræðna Norðmanna við EB og kosninganna. „Svigrúm norskra stjómmálamanna til skynsamlegrar umræðu eða málamiðlunar um gagn- kvæma hagsmuni var því ekkert. Þvert á móti. Þeim er akkur í því á atkvæðaveiðum sínum að hefja þjóð- ernishyggjuna í æðra veldi,“ sagði Jón Baldvin. Norðmenn ganga skyndilega lengra Norðmenn halda því fram að ís- lendingar hafi nú kastað fyrir róða fyrri málflutningi, um rétt strand- ríkja til að hafa stjórn á úthafsveið- um á stofnum, sem ganga um lög- sögu þeirra. „Norðmenn, sem yfír- leitt hafa ekki fylgt íslendingum að málum í málflutningi þeirra fyrir aukinni ábyrgð strandríkja og ann- arra fískveiðiþjóða á grundvelli fís- kverndar, hafa nú allt í einu, vegna aðstæðna í Barentshafinu, dottið fram fyrir okkur og ganga nú lengra, með því að þeir ætla strandríkjunum að hafa einhliða rétt til reglusetning- tímann og sjón- armið ríkjanna aldrei nálgazt. „Það var ekki minnsti grund- völlur fyrir áframhaldandi samtölum," sagði hann. Sjávarútvegs- ráðherra sagðist telja að kosning- arnar, sem stæðu fyrir dyr- um, hlytu að hafa haft einhver áhrif á ósveigjanleika Norðmanna. „Mitt mat er hins vegar það að þessi ákveðna afstaða þeirra byggist á langtímasjónarmiðum um stjórnun á þorskstofninum í Barentshafi og það ar, án samninga við önnur ríki,“ sagði Jón Baldvin. „Þar hafa þeir gert ágreining við okkur - vitlausu megin við okkur - og þess vegna halda þeir því fram að ágreiningur sé uppi um framtíð þjóðaréttarins.r Þeir höfnuðu því þess vegna að setja upp samstarfshóp um þróun hafrétt- arins á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna.“ Gamlar, brezkar forsendur Um kröfu íslendinga um þorsk- kvóta í Barentshafi sagði Jón Bald- vin: „Við óskuðum eftir því að tekn- ar yrðu upp viðræður milli ríkjanna um hugsanlega hlutdeild íslendinga í framtíðarveiðum á Barentshafs- svæðinu. Við settum fram þessa ósk án nokkurra fyrirframskilyrða, fyrst og fremst á tvíþættum forsendum. í fyrsta lagi eru íslendingar eina meiriháttar fískveiðiþjóðin við Norð- ur-Atlantshafíð, sem ber algerlega skarðan hlut frá borði á þessu víð- lenda og auðuga veiðisvæði. Norð- menn, sem hafa tekið sér vald til stjómunar á Barentshafínu, hafa samið við önnur ríki, þar á meðal grannþjóðir okkar Grænlendinga og Færeyinga, um veiðiheimildir. I öðru lagi bentum við á að þjóðréttarlegar forsendur fyrir því valdi, sem Norð- menn hafa tekið sér við útfærslu og stjómun svokallaðs fiskvemdar- svæðis umhverfís Svalbarða, væru hæpnar og nytu ekki allsherjarviður' kenningar. Því væri ástæða til að ræða nánar hlut fiskveiðiþjóðarinnar íslendinga á þéssu svæði, í ljósi þeirra reglna sem þar gilda nú.“ Jón Baldvin sagði að þessu hefðu Norðmenn hafnað og vísað til þeirrar grundvallarforsendu, að íslendingar ættu ekkert sögulegt tilkall til veiða á þessu svæði. „Þeir em þar farnir að taka upp gamlar, brezkar forsend- ur,“ sagði hann. hafi ráðið miklu meim en kosning- arnar, sem em yfirvofandi. En ég geri fastlega ráð fyrir að málið sé viðkvæmara vegna kosningabarátt- unnar.“ Samstarf áfram mikilvægt i Sjávarútvegsráðherra sagði að erfitt væri að segja til um hvaða áhrif þessar málalyktir hefðu á fram- tíðarsamskipti íslands og Noregs. „Það er á það að líta að við eigum margra sameiginlegra hagsmuna að gæta með Norðmönnum. Það er mjög mikilvægt að það góða sam- starf, sem hefur verið milli ríkjanna, geti haldið áfram. Ég minni á þá miklu vinnu, sem við eigum fyrir höndum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um úthafsveiðar. Ég minni einnig á norsk-íslenzka síldarstofn- inn, en þar eru gífurlega miklir hags- munir. Ef hann vex eins og spár gera ráð fyrir, mun hann fara um alþjóðlegt hafsvæði og það ríður á miklu að við náum samkomulagi við Norðmenn um nýtingu á honum. Ég vona því að við getum haldið þessu samstarfi áfram, en það er mjög erfitt að segja til um það hér og n'ú hvort niðurstaðan í dag hefur nei- kvæð áhrif," sagði Þorsteinn. fstöðu íslendinga í deilunni Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra Norðmenn ekki tilbún- ir að ræða vandamálið Afstaða byggð á langtímasj ónarmiðum um verndun stofnsins „VIÐRÆÐURNAR strönduðu fyrst og fremst á því að Norðmenn voru ekki tilbúnir að ræða það vandamál, sem við vorum komnir til að fjalla um, sem er veiðar í Smugunni, sem svo er kölluð,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið eftir að slitnaði upp úr viðræðunum við Norðmenn í gær, „Við lögð- um áherzlu á að ræða, sem fyrsta skref í áframhaldandi samstarfi, samning um fiskvernd og síðan áframhaldandi samstarf á fiskimála- sviðinu, þar á meðal frekari undirbúning fyrir ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um veiðar á úthafinu. Loks vildum við ræða hver gæti verið hlutdeild okkar í Barentshafsveiðum. Ekkert af þessu hlaut hljómgrunn.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.