Morgunblaðið - 25.08.1993, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 1993
Ráðstafanir Flugleiða vegria erfiðleika í rekstri
Eimi kosturinn er
að fækka flugvélum
SIGURÐUR Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að fyrirtækið eigi
um tvo kosti að velja til að mæta þeirri versnandi rekstrarafkomu
sem fyrirsjáanleg er á þessu ári. Annar kosturinn sé að efla enn
sóknina og ná í þá farþega sem á vantar frá öðrum flugfélögum
erlendis. Hins vegar geti komið til greina að fækka þurfi í flug-
vélaflota félagsins og draga úr framboði. „Fyrri kosturinn er að
sjálfsögðu ákjósanlegri, en við þurfum að skoða allar hliðar máls-
ins sem munu væntanlega skýrast á næstu vikum,“ sagði Sigurður.
Fram að áramótum verður vetr-
aráætlun Flugleiða óbreytt nema
hvað varðar niðurfellingu á flugi til
Gautaborgar og um áramót er áætl-
að að fækka ferðum til Amsterdam.
Sigurður sagði að á næstu vikum
yrði tekin ákvörðun um framhaldið,
þar með talið hvort fyrirsjáanleg
væri fækkun á flugvélum félagsins.
„Á hveiju hausti er farið ofan í
saumana á næstu sumaráætlun.
Nú er enn frekar ástæða til þess
en áður að vega og meta gaumgæfi-
VEÐUR
lega hvað við eigum að vera með
stóra áætlun næsta sumar og hvað
við eigum að vera með margar flug-
vélar í rekstri.“ Grunnáætlun fyrir
næsta sumar er þegar til að sögn
Sigurðar, en endanleg áætlun ligg-
ur væntanlega fyrir í lok septem-
ber. Þá verður einnig gengið frá
rekstraráætlun fyrir næsta ár.
Aðspurður um áhrif vaxandi erf-
iðleika í rekstri á getu félagsins til
að standa undir miklum fjárfesting-
um undanfarinna ára sagði Sigurð-
ur að fjármagnskostnaður Flugleiða
hefði farið lækkandi. „Kostnaður
vegna flugvélakaupa Flugleiða er í
dollurum og til mjög skamms tíma
þannig að vaxtakostnaður er lítill.
Það er því ekki íj'ármagnskostnaður
sem er að íþyngja okkur og
greiðslustaða félagsins hefur verið
góð. Við höfum haidið nokkuð vel
utan um kostnaðinn, en erfiðleik-
arnir felast í nýtingu á flugvélunum
og farþegatekjum."
Sigurður sagði ennfremur að
nýting á flugtíma hverrar vélar
væri ágæt, en hins vegar hefðu
menn orðið fyrir vonbrigðum með
sætanýtingu. í héild voru farþegar
Flugleiða fyrstu sex mánuði þessa
árs 3% færri en gert var ráð fyrir
í áætlunum félagsins og farþega-
tekjur voru 8% lægri.
IDAG kl. 12.00
HeimiW: Veðurstofa íslands
(Byggt ó veðurspá kt. 16.15 í gœr)
VEÐURHORFUR I DAG, 25. AGUST
YFIRLIT: Á sunnanverðu Grænlandshafi er 1.002 mb heldur vaxandi
lægð, sem þokast norðaystur. Suður af landinu er víðáttumikil 1.034
mb hæð.
SPÁ: Fremur hæg vestan- og suðvestanátt, skýjað suðvestan- og vestan-
lands og einnig á annesjum norðanlands, en bjartviðri t öðrum landshlut-
um.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Suðlæg átt, fremur hæg
víðast hvar. Súld eða rigning víða um landið sunnan- og vestanvert en
þurrt og nokkuð bjart veður norðaustan til. Hiti veröur á bilinu 9 til 17
stig, hlýjast í innsveitum norðaustanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg breytileg átt og skúrir um allt
land. Hiti verður á bilinu 9 til 15 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22. 30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
O & A
Heiöskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
v ^ v
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 íg»r)
Þjóðvegir landsins eru flestir i góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víöa
er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Háiendisvegir eru færir fjallabíium, Gæsavatna-
og Dyngjufjallaleiðir eru ennþá ófærar vegna snjóa, sama er að segja
um Hrafntinnusker.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísL tíma
hítl veður
Akureyri 14 skýjaö
Reykjavík 10 þokumóða
Bergen 18 léttskýjað
Helstnki 12 alskýjaö
Kaupmannahöfn 18 skýjaó
Narssarasuaq 8 súld
Nuuk 4 súld
Osló 17 skýjað
Stokkhólmur 12 rignlng
Þórshöfn 11 rigning
Algarve 25 léttakýjað
Amsterdam 18 skýjað
Barcelona 26 súld
Berltn 18 skýjað
Chicago 20 þokumóöa
Feneyjar 29 þokumóða
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 14 skýjað
Hamborg 15 skúrósíð. kls.
London 16 léttskýjað
LosAngeles 17 þokumóða
Lúxemborg 15 sltýjað
Madrfd 18 skýjað
Malaga 29 skýjað
Mallorca 30 þokumóða
Montreal 19 skúr
NewYork 23 skýjað
Orlando 25 þokumóða
Parf8 18 skýjað
Madelra 24 skýjað
Róm 32 léttskýjað
Vín 16 alskýjað
Washington 22 skýjað
Wlnntpeg 17 léttakýjað
Af
10
cö
j.8
I
l6
*o
§ 4
0
-2
koma Flugleiða '88-'92
Framreiknuð skv. lánskjaravísitölu
I l Meðalverðlag 1992
■I Meðalverðlag hvers árs
53
§1
1988
□
990
□
S8
iri
S
<NÍ
o
3
8I
O
<ó
1991 EU
1992
Eins og sést á þessari töflu hafa verið miklar sveiflur á afkomu Flugleiða sl. fimm ár.
Eftir hagnað árin 1990 og 1991 varð tap á síðasta ári og skv. nýjustu upplýsingum
ur rekstri félagsins gæti svo farið að tapið rúmlega tvöfaldist á þessu ári. Ástæðuna
má öðru fremur rekja til efnahagssamdráttar á Vesturiöndum ásamt harðnandi
samkeppni og lækkunar á fargjöldum. __________
Gengið veltur á einni sætaröð
Sigurður sagði mikilvægt fyrir
rekstur Flugleiða að aukin áhersla
yrði lögð á skipulag verðlagningar
með það fyrir augum að hámarka
það verð sem fengist fyrir hvert
sæti. Félagið væri að selja flugsæti
út um allan heim á ólíku verði og
með betra skipulagi og aukinni
tækni ætti að vera mögulegt að
, auka tekjurnar nokkuð. „Það myndi
t.d. auka tekjur félagins um rúmar
300 milljónir króna ef allt flug okk-
ar gæfi af sér 500 krónum meira
á sæti en nú er. Sama upphæð
næðist ef við gætum selt 3 farmiða
til viðbótar í hveija vél. Það má því
segja að gengi Flugleiða velti á
einni sætaröð," sagði Sigurður, en
eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær gefa nýjustu upplýsingar úr
rekstri Flugleiða til kynna að tap
ársins geti orðið nálægt 380 milljón-
um króna.
stæðisflokksins, sem lögð var fram
í borgarráði, er lagt til að borgar-
stjóm samþykki að stofna hlutafé-
lag, Strætisvagna Reykjavíkur hf.,
sem yfirtaki eignir og rekstur
Strætisvagna Reykjavíkur frá 1.
desember 1993.
Stjórnin lögð niður
Þá segir: „Stjórn Strætisvagna
Reykjavíkur verði lögð niður frá og
með 1. desember 1993, en kjörnir
fulltrúar stjórnarinnar skulu taka
sæti í stjórnarnefnd um almenn-
ingssamgöngur til loka kjörtíma-
bilsins. Framkvæmdastjóri lög-
fræði- og stjórnsýsludeildar skal
leggja tillögu fyrir borgarráð að
samþykkt fyrir stjómarnefnd um
almenningssamgöngur.
Öllum núverandi starfsmönnum
ið starf hjá hinu nýja hlutafélagi
og skulu atvinnuöryggi þeirra, laun
og launakjör, önnur kjör og rétt-
indi, svo og lífeyrisréttindi, tryggð
með þeim hætti, sem fram kemur
í greinargerð framkvæmdastjóra
lögfræði- og stjómsýsludeildar til
borgarráðs, dags. 27. júlí 1993.“
Fram kemur að við stofnun
hlutafélagsins verði skýrslan
„Reykjavíkurborg — breytingar á
rekstrarformi SVR“, dags. i júní
1993, höfð til hliðsjónar. Tillagan
gerir jafnframt ráð fyrir að borgar-
stjóm feli borgarstjóra að undirrita
stofnsamninginn og samþykktir
Strætisvagna Reykjavíkur hf. fyrir
hönd Reykjavíkurborgar og fram-
kvæmd þeirra ákvarðana, sem af
samþykktinni leiða.
Stefnt að opiiun Fæðingarheimilis næsta ár
Veruleg fjölgiin fæð-
ínga á LandspítaJanum
FÆÐINGAR á Landspítalanum eru 2.076 það sem af er árinu en á
sama tíma í fyrra voru þær 1.869 eða 207 færri. Að sögn Ólafar Ástu
Ólafsdóttur hjúkrunarforstjóra, er útlit fyrir að fæðingar verði vel
vfír 2.000 á árinu en um 200 fæðingar eru að meðaltali á mánuði. Á
síðasta ári voru fæðingar samtals 2.913. Vegna annríkis var Fæðingar-
heimilið opnað á ný í maí og var það opið í sex vikur fyrir sængurkon-
ur. Sagði Ólöf að það væri stefnan að opna heimilið á ný á næsta ári
ef fjárveitingar leyfðu.
„Við sjáum fram á að að heildar-
fæðingartala yfir allt árið verði mun
hærri en hún hefur áður verið," sagði
Ólöf. „Það er ekki hægt að tala um
mismikið álag heldur fjölgar fæðing-
um jafnt og þétt. Hluta skýringar-
innar er að leita til lokunar á Fæð-
ingarheimilinu. Þar voru um 400
fæðingar á ári en þar að auki hefur
fæðingum fjölgað."
Fæðingarheimilið opni
Ólöf sagði að það væri stefna
stjórnamefnda ríkisspítalanna að
opna Fæðingarheimilið á næsta ári
svo framarlega sem fjárlög heimil-
uðu. „Þetta gengur allt eins og er
en það er ekki launungarmál að við
i
\
i
Aukafundur í borgarstjórn Reykjavíkur i
SVR verði hlutafé-
lag* frá 1. desember
Hlutafé félagsins verði 200 milljónir
AUKAFUNDUR hefur verið boðaður í borgarstjórn Reykjavíkur á
morgun, fimmtudag, þar sem fjallað verður um tillögu Sjálfstæðis-
flokksins um að breyta Strætisvögnum Reykjavíkur í hlutafélag 1.
desember næstkomandi. Gert er ráð fyrir að hlutafé verði 200 miHj-
ónir kr., þar af verði hlutur Reykjavíkurborgar 198 milljónir en
Aflavaka Reykjavíkur hf. 2 milljónir. |
í tillögu borgarráðsfulltrúa Sjálf- Strætisvagna Reykjavíkur skal boð-
erum ekki ánægð með þá aðstöðu
sem við höfum. Álagið hefur aukist
gífurlega," sagði hún. „Þetta er ekki
ástand sem við getum sætt okkur
við til frambúðar. Við viljum opna
Fæðingarheimilið á ný vegna hús-
næðisskorts sem er aðal vandamálið.
Húsnæðinu sem við erum í var ekki
ætlað að taka við svona mörgum
fæðingum. Stefnan er sú að geta
boðið konum upp á valkost við fæð-
ingar en það er ekki hægt núna.
Þetta er eina fæðingarþjónustan fyr-
ir allt landið þegar um áhættufæð-
ingar er að ræða. Það er því æski-
legt að konur geti fengið að velja
hvort þær fæði bömin hér eða á
fæðingarheimili."