Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 7

Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 7 Grímu- klæddur reyndi að ræna Kastaði frá sér ránsfengnum á leiðinni út UNGUR maður klæddur sam- festingi og með svartan næl- onsokk yfir höfði gerði til- raun til ráns í versluninni Tíunni í Kleifarseli síðastliðið föstudagskvöld. Maðurinn, sem vopnaður var rörbút, náði að þrifa tíu þúsund krón- ur úr peningakassa verslun- arinnar. Þegar hann á leið sinni út úr versluninni gerði sér grein fyrir að afgreiðslu- maður hennar reyndi eftirför sá hann að sér og henti ráns- fengnum frá sér. Sá grímu- klæddi hefur ekki enn fundist en málið er í höndum Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Pálmi Pálmason, 16 ára starfsmaður verslunarinnar, segir að grímuklæddi maðurinn hafi komið inn í verslunina rétt eftir lokun hennar klukkan tíu. „Maðurinn hljóp inn um ólæstar dymar og rakleiðis að peninga- kassanum þar sem hann otaði að mér rörbút," útskýrir Pálmi í samtali við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Kristinn Pálmi Pálmason í vinnunni. „Hann krafðist þess að fá pen- ingana en mín fyrstu viðbrögð voru þau að setja hendurnar yfir kassann og koma í veg fyrir að hann kæmist í hann. Því næst greip ég plaststaut og hugðist verja mig með honum.“ Pálmi segir að maðurinn hafi náð að þrífa til sín 10 þúsund krónur í peningum og tekið síð- an á rás út úr versluninni. Pálmi sætti sig ekki við svo búið held- ur hljóp á eftir. „Þegar hann sá að ég ætlaði á eftir honum stoppaði hann og sagði: ókey, ókey. Því næst henti hann pen- ingunum frá sér og var undir- eins rokinn burt.“ Að því er Pálmi best vissi hefur aldrei orðið vart vand- ræða við þessa verslun í Kleif- arselinu. Hann kvaðst ekki geta borið kennsl á manninn, sem falið hafi sig bak við svartan nælonsokkinn. Upplýsinga- og menn- ingarmiðstöð Nýbúa UPPLÝSINGA- og menningarmiðstöð Nýbúa hefur starfsemi sína fimmtudaginn 26. ágúst nk. Miðstöðin er rekin af Iþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur og er hlutverk hennar að þjóna for- eldrum og börnum frá öðrum löndum sem búsett eru hér á Islandi. Miðstöðin er til húsa við Faxa- fen 12 og verður opin tvisvar í viku, á mánudögum frá kl. 17-22 og fimmtudögum frá kl. 10-16.30. Þessir dagar verða not- aðir ýmist til margskonar fræðslu og skemmtunar þar sem foreldrar og börn þeirra geta komið saman og er rík áhersla lögð á góða að- stöðu fyrir böm. Allar nauðsynlegustu upplýs- ingar varðandi búsetu á íslandi verða veittar og mun starfsmaður miðstöðvarinnar, Gyða Björk Hilmarsdóttir, veita leiðsögn. Bókasafn verður á staðnum með fjöibreyttu sniði þar sem eru bæk- ur frá Borgarbókasafninu. Einnig verður komið upp skrá yfir túlka á sem flest tungumál og verður sú skrá aðgengileg fyrir alla, jafnt nýbúa sem og aðra íslendinga. Sófasett frá MANTELLASSI Litir: Dökkbrúnt, Ijósbrúnt og svart. Verð aðeins kr. 230.000 stgr. fyrir 3ja sæta og tvo stóla. VALHÚSGéGN Ármúla 8, símar 812275 og 685375. Koli fluttur út í gámum en skortur innanlands RÚMLEGA 2.500 tonn af óunn- um kola hafa verið flutt út í gám- um á árinu en á sama tíma hefur stundum skort kola til vinnslu hjá fiskverkendum. Kristinn Kristinsson fiskverkandi segir óviðunandi að íslenskum fisk- kaupendum gefist ekki kostur á að bjóða í fisk sem veiðist á fs- landsmiðum. Hann telur brýnt að allur fiskur verði boðinn upp hérlendis en með núverandi fyr- irkomulagi sé samkeppnisstaða íslenskra fiskkaupenda ekki við- unandi. Að sögn Kristins Kristinssonar hjá Pólar-Frost í Hafnarfirði hefur oft skort kola til vinnslu á árinu en stundum verið mikið framboð af honum. Þetta komi sér að sjálfsögðu illa fyrir vinnsluna. Brýnt hagsmunamál Kristinn segir brýnt hagsmuna- mál fiskverkenda, fiskverkunarfóks og allrar þjóðarinnar að allur fiskur verði boðinn upp á fiskmörkuðum hérlendis. Með núverandi fyrir- komulagi fari mikið af fiski óunninn úr landi vegna þess að fiskverkend- um gefist ekki kostur á að bjóða í hann. Kristinn benti á að Félag kaupenda á fiskimörkuðum hefði oft sent frá sér ályktanir um að allur fiskur skuli boðinn upp innanlands. Hann sagði að íslenskir fiskkaup- endur settu sig alls ekki upp á móti því að útlengdingar fengju að bjóða í fískinn á móti þeim en óvið- unandi væri að íslendinum gæfist ekki tækifæri til að bjóða í þann fisk sem veiddist við landið. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmsson- Tíðarfar hefur verið einkar erf- itt í sumar, leiðindabrælur í júlí- mánuði sem að jafnaði er hvað bestur veðurfarslega. Ógæftir í sumar hafa verið meiri en undan- farin ár. Róið hefur verið alla síðustu viku og veðrið verið með besta móti. Þá hafa aflabrögðin verið þokkaleg upp á síðkastið. Það hef- ur verið gott hjá línu- og netabát- unum að undanförnu.'en menn eru ekki ánægðir með færafiskeríið, ar, framkvæmdastjóra Aflamiðlunar LÍÚ, hafa rúmlega 2.500 tonn af slægðum og ísuðum kola verið flutt út í gámum það sem af er árinu. Þessi fiskur er óunninn eftir skiln- ingi kvótalaganna og fellur því á hann 10% kvótaskerðing. það hefur verið slakt í sumar. Fáir aðkomubátar Oft hefur verið meira um að- komubáta hér í Grímsey yfir sum- armánuði, en þeir eru óvenjufáir núna miðað við fyrra sumar. Eflaust spilar veðráttan þar inn í en hún hefur ekki verið sjómönn- um hliðholl í sumar og þá eru flest- ir aðkomubátarnir á færum, en færafiskerí hefur í heildina ekki verið sem best í sumar. HSH Agæt aflabrögð und- anfarið við Grímsey Afli í heildina í sumar ekki sem bestur Grímsey. SJÓMENN í Grímsey réru alla síðustu viku og eru aflabrögðin ágæt hjá netabátunum og þá hefur færafiskeríið einnig verið ágætt, en í heildina hefur fiskerí færabáta ekki verið sem best í sumar. í hádeginu alla virka daga: Mamrétta Grillað ; lambaiæri incð kr>dd- hartötliinu Barbc«iuck|úklingiur mcð laukhringjum' laulakjötsbollui mcð siirsætri . 1 sósu Djúpsteikt ýsiiillök Á mcð hunangs* k sinncpssósu %/!&; l'asta og grammcti Supa dagsins og brauð. Glæsilcgur salatbar A Margrétta er glæsilegt hlaðborð sem við á Aski bjóðum upp á í hádeginu. Þú getur valið úr sex glæsilegum réttum eða fengið þér sitt lítið af hverjum fyrir lilægilega lágt verð: Aðelns 890 kr. - verði þér að góðu! Askur Suðulandsbraut -4. Sími: 38550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.