Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
11
miðum og að sögn Stefán Arngríms-
sonar, eins af forsvarsmönnum
Óperusmiðjunnar hefur tónleika-
haldið gengið mjög vel og áhorfenda-
fjöldi farið vaxandi með hveijum
tónleikum. „Undirtektir söngvara
sem við höfum leitað til hafa líka
verið mjög góðar,“ segir Stefán, „og
menn hafa verið mjög tilbúnir að
leggja þessu framtaki lið.“
Stefán er formaður óperudeildar
Félags íslenskra leikara og aðspurð-
ur um stöðu söngvara á íslandi í
dag, segir hann: „Ég verð nú að
segja eins og er, að þótt sönglífíð
hafí glæðst aðeins með tilkomu ís-
lensku Óperunnar, þá finnst mér
tækifærin ekki vera eins mörg og
þau gætu verið.
Á vissu tímabili, fyrir um tíu árum
síðan, var þjálfaður upp ákveðinn
fjöldi söngvara og síðan hefur stefn-
an verið að sækja þá áfram þegar
eitthvað stendur til, í stað þess að
nýta þá krafta sem her hérna heima.
Það er í rauninni ástæðan fyrir
stofnun Óperusmiðjunnar.
Það hafa verið færð að því rök
að þeir sem séu starfandi hér heima
hafí ekki eins mikla reynslu, en þá
spyr maður á móti hversu mikla
reynslu þeir höfðu sem byijuðu fyrir
tíu árum. Það er nú svo að ef raðað
væri í hlutverk eftir skilgreiningu
sem gerð er á raddkarakter, þá
myndu hlutverkin dreifast á fleiri
aðila.
í raun og veru tel ég skipta miklu
máli að Þjóðleikhúsið setji upp óper-
ur á móti söngleikjum sínum, bæði
til að fjölga tækifærunum auk þess
sem ég held að samkeppni sé alltaf
af hinu góða.“
En farið þið ekki í söngnám á
ykkar eigin ábyrgð? Eigið þið ein-
hveija kröfu á leikhúsin eða samfé-
lagið um að skapa ykkur atvinnu?
„Nei, nei. Við eigum enga slíka
kröfu. Hinsvegar er það svo að hér
á landi er greinilega markaður fyrir
fleiri söngvara. Það vantar ekki
tækifærin, það vantar dreifingu."
Er eitthvað sem þið getið gert í
því innan Félags íslenskra leikara?
„Eitt af því sem okkur hefur tek-
ist að koma í gegn, var samningur
við tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins
um útvarpsprógram þar sem ungir
einsöngvarar koma fram, bæði með
Sinfóníuhljómsveit íslands og við
undirleik píanóleikara. Þar á meðal
eru söngvarar sem ekki hafa verið
eins áberandi í sönglífinu og þeir
ættu að vera miðað við hæfileika.
Einnig hef ég bent á það innan
Félags íslenskra leikara, að við tal-
setningu á barnaefni, séu leikarar
nýttir í söngatriði. Það er nær óþekkt
að söngvarar séu ráðnir til að sjá
um töluð atriði. Við gerum ekki þá
kröfu að svo verði í framtíðinni, en
okkur finnst að söngvara ætti að
ráða í söngatriði. Þetta eru bara tvö
dæmi af þeim hugmyndums sem við
erum byijuð að vinna að innan
óperudeildarinnar, rétt til að sýna
að tækifærin eru fyrir hendi, en við
erum með margar fleiri hugmyndir
í pokahorninu."
Xhoro
Vatnsþéttingarefni
- VATNSFÆLUR
-100% ACRYL MÁLNING
- STEYPUVIÐGERÐAREFNI
- GÓLFVIÐGERÐAREFNI
Efni sem standast prófanir
út um allan heim, slðan 1912.
■■
il steinprýði
Stangarhyl 7, síml: 672777.
Gréta Osk Sigrirðardóttir
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
í myndlistinni á sér stað stöðug
togstreita milli efnis og tjáningar,
og myndlistarfólk er sífellt að
velja sér tjáningarform í samræmi
við þau viðfangsefni sem það er
að takast á við á hveijum tíma.
Stundum tekst myndlistarmönn-
um þetta val ekki sem skyldi, og
árangurinn verður léttvægur; í
öðrum tilvikum virðast efni og
efnistök falla vel saman þannig
að til verður ein listræn heild, sem
áhorfandinn nýtur af mikilli
ánægju.
Nú stendur yfir í Galleríi Sæv-
ars Karls í Bankastræti 9 sýning
á verkum myndlistarkonunnar
Grétu Óskar Sigurðardóttur, þar
sem efni og verklag falla afar vel
hvort að öðru. Gréta Ósk stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands, Akademíuna og
List- og handmenntaskólann í
Ósló, en hún útskrifaðist frá MHÍ
1988. Hún hefur áður tekið þátt
í nokkrum samsýningum, síðast á
Óháðu listahátíðinni 1 sumar, en
þetta mun vera fyrsta einkasýning
listakonunnar.
I lítilli sýningarskrá segir Gréta
Ósk, að hugsanimar að baki verk-
unum séu „Væntumþykja til
manneskjunnar einsog hún er;
stundum ofur hátíðleg í amstri
hversdagleikans, stundum í djúp-
um pælingum um tilveruna."
Þessi hlýleiki endurspeglast síðan
í texta sem vísar til saklausra
æskudaga, svo og í titlum verk-
anna, sem umlykja sýninguna, frá
„í mínu mjúka, frú mín góð“ (nr.
1) til „Án míns mjúka, frú mín
góð“ (nr. 10).
Þetta viðhorf kemur ekki síður
fram í útfærslu verkanna sjálfra,
sem falla vel að þessu litla rými.
Hér er um að ræða ætingar í sínk,
þar sem teikningin er unnin á
barnslegan og viðkvæman hátt
með línuteikningu, þannig að
ímyndir fólks og umhverfís verða
einfaldar og sterkar. Árangurinn
er nokkuð gróf og þvinguð mynd-
gerð, sem hentar viðfangsefninu
vel, líkt og ætíð á sér stað í teikn-
ingum barna.
Flestar myndirnar eru samsett-
ar úr nokkrum þrykkum, og í
sumum þeirra má lesa nokkuð
samfellda sögu þeirra mynda, sem
sýna konur af öllu tagi á göngu,
og þar sem textinn endar á
Gréta Ósk Sigurðardóttir
„... frú mín góð“. Þarnaeru kom-
in hin ýmsu stig lífsins, persónu-
gerðar og lögunar, í þeim formum
sem barni er gjarnt á að lesa per-
sónur manna af útlitinu einu sam-
an.
Myndimar „Það er dagurinn i
dag, frú mín góð“ (nr. 2-4) sýna
inn í skemmtilegan og fjölbreytt-
an heim sambýlishúsanna, þar
sem hver einstaklingur, hver fjöl-
skylda og hvert heimili fær sína
sérstöku mynd, allt frá æsku til
elli, frá eldhúsi til leikherbergis
til stofu. Þetta er veröld minninga
barnsins, sem allir halda í. — Fleiri
verk hér tengjast svipuðum við-
fangsefnum, og er úrvinnslan á
þessu öllu einkar vel samræmd.
Á sýningunni eru einnig tvö
pappírsverk, þar sem veitt er frek-
ari innsýn inn í þann myndheim,
sem hér er á ferðinni. Annað verk-
ið stendur á súlu, sem er eins
konar sagnaþraut, því utan á
hana, hring eftir hring, er rituð
saga, þar sem sýningargestir fá
enn frekar notið hinna horfnu
æskudaga.
Það geislar hlý kímni af verkum
Grétu Óskar á sýningunni, sem
má bæði rekja til þeirra ljúfu
minninga sem verkin byggjast á,
sem og þeirrar barnslegu teikn-
ingar, sem listakonan beitir í verk-
unum, og á stóran þátt í að veita
þeim þann innileika, sem hæfír
viðfangsefninu. Það er gömul sál
og kalt hjarta sem fínnur ekki
einhvern vinalegan samhljóm við
æsku sína í þessum verkum, þver-
sniðum tilverunnar frá saklausari
tímum horfinna ára.
Sýningu Grétu Óskar Sigurðar-
dóttur í Galleríi Sævars Karls við
Bankastræti lýkur miðvikudaginn
1. september.
Allt að 70% afsláttur
Mikið úrval af vönduðum útivistarfatnaði og viðleigubúnaði. Skíðasamfestingar, skíðabúnaður
og margt, margt fleira. 25. ágúst - 4. september. Það munar um minna þessa dagana.
Verið velkomin á bílskúrsdagana!
-StAMK FKAMtíK
Póstsendum samdægurs Snorrabraut 60 • Sími 61 20 45 *staðgreitt