Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 1993
Vill selja Bandaríkjamönn-
um vistvænt íslenskt kiöt
Útflutningnr gæti hafist á næstu mánuðum
GÓÐUR raögnleiki er fyrir íslendinga að ná fótfestu með kindakjöt
og nautakjöt á Bandaríkjamarkaði. Hvergi annars staðar í heiminum
finnst jafn vistvænt eða „hreint“ kjöt og á Islandi. Þetta segir Mich-
elle Da Via, fjárbóndi frá Vermont í Bandaríkjunum, en hún er
fyrsti og eini aðilinn í Bandaríkjunum, sem hefur fengið löggild-
ingu sem söluaðili vistvæns kjöts. Hún er stödd hér á landi til að
fá íslenska kjötframleiðendur til samstarfs við sig en hennar fram-
leiðsla og innflutningur frá Nýja-Sjálandi annar engan veginn eftir-
spurn eftir hreinu kjöti í Bandaríkjunum. Hún vonar að útflutning-
ur geti hafist á næstu vikum eða mánuðum.
Michelle hefur verið í samstarfi
við Kaupsýsluna hf. sem kannað
hefur möguleika á útflutningi fyr-.
ir hagsmunasamtök bænda. Til
að bandaríska landbúnaðarráðu-
neytið geti vottað' kjötið hreint
þarf að koma til samstarf bænda,
sláturleyfishafa, útflytjenda,
ráðuneytis og kaupenda en að-
stæður hér á landi gefa að mati
Michelle til kynna að megnið af
framleiðslunni gæti fengið þessa
vottun.
íslenskt kjöt vistvænast
Hjá bandaríska landbúnaðar-
ráðuneytinu fæst kjötframleiðsla
vottuð vistvæn ef hvorki lyfjaleif-
ar né hormónaleifar eru í kjötinu.
Michelle segir þessi tvö atriði ein-
kenna íslenskt kjöt en ennfremur
séu hvorki leifar skordýraeiturs-
né illgresiseiturs í því. Hvorki
Nýja-Sjáland né Bandaríkin geti
boðið upp á þannig kjöt.
Miklir möguleikar fyrir
íslenska framleiðslu
„Með því að nota yfirburði
landsins," segir Michelle, „varð-
andi hreint umhverfi og hvernig
kjötið er framleitt án allra gervi-
efna eiga íslendingar góða mögu-
leika á að ná fótfestu á Banda-
ríkjamarkaði.
Þegar ég leitaði að einhverjum
öðrum stað í heiminum, þar sem
ég gæti fengið nógu mikið magn
af mjög hreinu kjöti var ísland
eini staðurinn, sem kom til greina.
Nýja-Sjáland framleiðir í raun
ekki eins hreint kjöt og þeir gefa
sig út fýrir að gera í auglýsingum
sínum. Ég flyt inn kjöt frá Nýja-
Sjálandi en það er aðeins hægt í
takmörkuðu magni; þar get ég
ekki fengið allt það kjöt, sem mig
vantar."
Einstakar aðstæður
„Hér eru einstakar aðstæður.
Morgunblaðið/J úlíus
Selur vistvænt kjöt
BÓNDINN Michelle Da Via er
fyrsti og eini löggilti seljandi
vistvæns kjöts í Bandaríkjun-
um. Hún hefur áhuga á því að
markaðssetja íslenskt nauta-
kjöt og kindakjöt i heimalandi
sínu og kom í þeim tilgangi tU
íslands.
Ég bjóst ekki við því að þetta
yrði svona dásamlegt. Ég hafði
allt öðruvísi hugmynd um landið
áður en ég sá það. Það kemur
mér mjög á óvart hversu allir eru
nátengdir landbúnaðinum. Jafnvel
hér í borginni þarf maður aðeins
að keyra í nokkrar mínútur til að
sjá kindur meðfram veginum. Það
verður að kynna kosti vörunnar,
þeir eru mjög miklir. Það ætti að
vera auðvelt að selja um 100 tonn
nú þegar.“
Dýrar auglýsingar ekki
nauðsynlegar
„Til að selja svona vöru þarf
ekki endilega að kaupa dýrar sjón-
varpsauglýsingar. Það þarf að
kynna vöruna beint, á einfaldan
og áreiðanlegan hátt á staðnum
þar sem hún er keypt. Það skiptir
langmestu máli. Það þarf að hafa
áhrif á neytandann, þar sem hann
ákveður sig fyrir framan kjötborð-
ið. Annar mikill kostur við ís-
lenska kjötið er að það er mjög
magurt miðað við kjötið í Banda-
ríkjunum og fæðan sem lambið
er alið á gefur kjötinu gott bragð.
Það er ekki hægt á náttúrulegan
hátt í Bandaríkjunum að fá svona
mikinn vöxt hjá lömbum þannig
að þau séu orðin 16 til 20 kg við
fjögurra mánaða aldur. Og banda-
rískur almenningur borgar meira
fyrir náttúrulegt og gott kjöt,“
segir Michelle að lokum.
Hagfræðistofnun Háskólans um skýrslu sem hún vann fyrir Norrænu ráðherranefndina
Gagnrýni á landbúnaðar-
skýrslu ekki á rökum reist
HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla Islands telur, þrátt fyrir gagn-
rýni landbúnaðarráðherra og forsvarsmanna bænda, að meginnið-
urstöður skýrslunnar Landbúnaðarstefnan og hagur heimilanna,
sem stofnunin vann fyrir Norrænu ráðherranefndina, standi
óhaggaðár og að kostnaður neytenda af stuðningi við landbúnað
sé hæstur á Islandi af Norðurlöndunum. Þetta kom fram á frétta-
mannafundi sem Sighvatur Björgvinsson, samstarfsráðherra
Norðurlanda, og fulltrúar Hagfræðistofnunar boðuðu til í gær.
Sighvatur kynnti einnig svar Hagfræðistofnunar við gagnrýni á
skýrsluna á ríkissljórnarfundi í gær.
Landsfundur
Slálfstæóisflokksíns
- málefnastarf
Til þess að undirbúa starf á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins 21 .-24. október nk.
efna málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins
til almennra funda hver um sinn málaflokk.
í kvöld kl. 20.30 verða í Valhöll,
Háaleitisbraut 1,
fundir um eftirtalda málaflokka:
Málefni aldraðra.
Skattamál.
Stjórnskipunarmál.
Vinnumarkaðsmál.
Fundirnir eru öllum opnir.
Skýrsla Hagfræðistofnunar var
kynnt fyrr í þessum mánuði og kom
þá fram gagnrýni á ýmsa þætti
hennar, m.a. um að talnalegar upp-
lýsingar í skýrslunni væru úreltar
þar sem þær hafi byggst á stuðn-
ingi við landbúnað á Islandi á árinu
1988. í svari Hagfræðistofnunar
eru nú birtar upplýsingar um heild-
arstuðning við íslenskan landbúnað
til ársins 1993, sem stofnunin segir
að hafí haldist nær óbreyttur allt
þar til áhrifa búvörusamningsins fer
að gæta á árinu 1993. Búvörusamn-
ingurinn nægi þó ekki til að minnka
stuðning við landbúnað hér á landi
til samræmis við hin Norðurlöndin.
Stuðningur enn mestur á
íslandi
Skv. útreikningi Hagfræðistofn-
unar var heildarstuðningur við land-
búnaðinn 111% af framleiðsluverð-
mæti landbúnaðarvara eða 16,7
milljarðar króna að núvirði árið
1988. Árið 1992 nam stuðningurinn
115% af framleiðsluverðmæti eða
17,2 milljörðum en áætlað er að
talsvert muni draga úr stuðningi
við landbúnað í ár og hann muni
nema um 95% af framleiðsluverð-
mæti, að mati Hagfræðistofnunar.
Á síðasta ári var hlutfallið á öðrum
Norðurlöndum 47% í Danmörku,
68% í Finnlandi, 77% í Noregi og
57% í Svíþjóð.
Þá hafnar Hagfræðistofnun
þeirri skoðun að heimsmarkaðsverð
á landbúnaðarvörum, sem notað er
sem viðmiðun í skýrslunni, sé ekki
til. Þvert á móti séu tölumar um
það fengnar frá OECD sem miði
tölur sínar við staðfest útflutnings-
verð afurða frá útflutningslöndum
landbúnaðarvara og er því að mati
Hagfræðistofnunar um raunveru-
legt markaðsverð að ræða.
Viðurkennt er að við mat á inn-
flutningsvernd sé ekki tekið tillit
til flutningskostnaðar, en Hag-
fræðistofnun bendir á, að skv.
gögnum sem hún hafí fengið frá
innflytjendum gæti sá kostnaður
numið 4-5% af útsöluverði inn-
fluttra landbúnaðarvara. Þetta
breyti nær engu samanburði á milli
landa, þar sem ekki sé heldur tekið
tillit til flutningskostnaðar í gögn-
um fyrir hin Norðurlöndin.
Tillögur á Norður-
landi vestra
Sveitar-
félögfum
fækki
úr 30 í 5
SVEITARFELOGUM á Norður-
landi vestra verður fækkað úr
30 í fimm ef farið verður að
tillögum umdæmisnefndar
sveitastjórna kjördæmisins,
sem kosið verður um hinn 20.
nóvember. Tillögur nefndar-
innar verða kynntar á ársþingi
Samtaka sveitarsljórna á Norð-
urlandi vestra sem fram fer á
Siglufirði um næstu helgi. Jó-
hanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra verður gestur
þingsins.
Stærsta skrefíð sem stigið yrði
samkvæmt tillögunum er sameining
Skagafjarðar í eitt sveitarfélag, en
þar eru nú tólf hreppar. Þá fækkar
sveitarfélögum í Vestur-Húna-
vatnssýslu úr sjö í eitt. Austur-
Húnavatnssýslu verður skipt í
tvennt, Skaga-, Höfða- og Vindhæl-
ishreppar munu mynda eitt sveitar-
félag en sjö hreppar aðrir Austur-
Húnavatnssýslu mynda annað
sveitarfélag. Ekki er gerð tillaga
um að sameina Siglufjörð öðru
sveitarfélagi.
Sérstaða og sjálfstæði
tilfinningamál
„Það hefur verið góð samvinna
milli sveitarfélaga á þessu svæði
um langt skeið, þannig að breyting
á stjórnsýslu kjördæmisins verður
kannski ekki svo ýkja mikil,“ sagði
Björn Sigurbjömsson formaður
umdæmisnefndar SSNV. Hann
sagði að sérstaða og sjálfstæði
hreppa væri að vísu jafnan mikið
tilfinningamál. Nú færu verkefni
sveitarfélaganna hinsvegar vaxandi
og hlyti það að knýja á um samruna.
Tillögur að sameiningu sveitar-
félaga, sem farið var fram á með
lögum frá Alþingi síðastliðið vor,
hafa aðeins borist frá tveimur kjör-
dæmum, Austurlandi og Norð-
urlandi vestra. Tillögur frá öllum
landshlutum eiga að liggja fyrir 15.
september. Samráðsnefnd um sam-
einingu sveitarfélaga mun gangast
fyrir kynningu á verkefnum sveitar-
félaga á landsvísu fyrir kosningarn-
ar í haust. Umdæmisnefndin í Norð-
urlandi vestra mun einnig kynna
tillögur að sameiningu fyrir kjós-
endum kjördæmisins á næstu vik-
um.
YFIRLYSING
- frá embættismönnum í land-
búnaðarráðuneytinu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing:
í kvöldfréttatíma útvarps 29. júlí
sl. og 5 grein í Morgunblaðinu 31.
júlí sl. var staðhæft að starfsmenn
landbúnaðarráðuneytisins hefðu að
fyrra bragði haft samband við fjóra
tiltekna fjölmiðla og „haft frum-
kvæði að því að dreifa upplýsingum
um meint kjötsmygl utanríkisráð-
herrahjónanna" og með því haft
frumkvæði að umfjöllun flölmiðla um
málið.
Hér er um tilhæfulausan frétta-
flutning að ræða og með undirskrift-
um okkar mótmælum við, allir emb-
ættismenn landbúnaðarráðuneytis-
ins, honum sem röngum. Fréttaflutn-
. ingurinn er í engu samhengi við áður-
nefndan atburð um meint smygl á
hráu kjöti, sem varðar brot á lögum
nr. 25 7. apríl 1993 um dýrasjúk-
dóma og vamir gegn þeim, heldur
virðist til þess ætlaður að gera störf
embættismanna í landbúnaðarráðu-
neytinu tortryggileg. Því verður ekki
unað og til staðfestingar því að þessi
áburður á embættismenn landbúnað-
arráðuneytisins er ósannur, liggja
fyrir skriflegar og munnlegar upplýs-
ingar frá viðkomandi fjölmiðlum.
Reykjavík 23. ágúst 1993,
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofusljóri, Björn Þorláksson,
deildarstjóri, Guðmunda Ög-
mundsdóttir, deildarstjóri, Jóhann
Guðmundsson, deildarstjóri, Jón
Höskuldsson, deildarstjóri, Níels
Ámi Lund, deildarstjóri, Ragn-
heiður Árnadóttir, deildarstjóri,
Sveinbjöm Eyjólfsson, deildar-
stjóri, Sveinbjöm Dagfinnsson,
ráðuneytisstjóri.