Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
Morgunblaðið/Golli
I sól o g sumaryl
FARÞEGAR i síðustu ferð Maxím Gorkíj til Akureyrar í sumar
eru sennilega þeir einu sem geta talist heppnir með veður, svöl
norðanátt og/eða rigning hefur verið hlutskipti flestra farþega
annarra skemmtiferðaskipa. Myndin er tekin um borð í skipinu
í blíðviðrinu í gær.
Síðasta skemmtiferðaskip
sumarsins kom til Akureyrar 1 gær
Skipstjórinn
notaði sólardag-
inn til veiðiferðar
ÞAÐ hefur ekki alltaf viðrað eins vel á áhöfnina á Maxím Gorkíj
og í gær þegar skipið kom í sína fjórðu og síðustu ferð til Akur-
eyrar í sumar. Koma skipsins er jafnframt sú síðasta af 28 kom-
um skemmtiferðaskipa í sumar og minnir á að halla fer að hausti.
Slippstöðin-Oddi
Óskað eftir framlengingu
greiðslustöðvunarinnar
STJÓRN Slippstöðvarinnar-Odda óskaði í gær eftir framlengingu á
greiðslustöðvun fyrirtækisins til þriggja mánaða eftir að þriggja
vikna greiðslustöðvun þess rann út. Urskurður um hvort áframhald-
andi greiðslustöðvun verður veitt verður kveðinn upp á morgun,
fimmtudag. Lánardrottnar fyrirtækisins höfðu möguleika á að bera
fram mótmæli gegn greiðslustöðvuninni, en þau komu ekki fram.
í sól og blíðu lét hluti farþeg-
anna fara vel um sig um borð,
aðrir brugðu sér í stutta göngu-
ferð um bæinn og enn aðrir fóru
í skoðunarferð austur í Þingeyjar-
sýslu, Mývatnshringinn, eða að
Goðafossi og Laufási.
Veitt í Hörgá
Á meðan farþegamir skoðuðu
sig um eða sleiktu sólina um borð
brá skipstjóri Maxím Gorkíj,
Gennadí Ludmilla sér í stutta
veiðiferð með Jóni Baldvin Páls-
syni svæðisstjóra Samskipa í
Hörgá og nokkrum úr áhöfn
skipsins. Hópurinn naut dagsins
á bökkum Hörgár, byijað var á
því að kveikja upp í grillinu og á
meðan verið var að glóðarsteikja
mat var rennt fyrir físk.
Aldrei hafa jafn mörg skemmti-
ferðaskip haft viðkomu á Akur-
eyri og þetta votviðrasama sum-
ar, en komur þeirra voru 28 tals-
ins miðað við 19 árið á undan.
Um borð í þessum skipum hafa
verið um 20 þúsund manns, bæði
farþegar og áhafnir. Tekjur Akur-
eyrarhafnar af skipakomunum
eru um 5 milljónir króna.
Knútur Karlsson, stjórnarformað-
ur Slippstöðvarinnar-Odda, sagði að
nýr framkvæmdastjóri, Guðmundur
Thulinius skipaverkfræðingur, kæmi
til starfa á föstudag, en hann mun
veita stöðinni forstöðu á greiðslu-
stöðvunartímanum, sem væntanlega
rennur út f lok nóvember.
Knútur sagði að unnið yrði af
krafti við að endurskipuleggja fjár-
hag Slipppstöðvarinnar-Odda á
Umferðarfræðsla fyrir 5 og 6 ára
börn stendur nú yfir í grunnskólum
Akureyrarbæjar, búið er að veita
bömum í Bamaskóla Akureyrar,
Síðuskóla og Oddeyrarskóla
fræðslu og í dag og á morgun verð-
ur farið í Lundarskóla og Glerár-
skóla. Farið er yfir mikilvægar
umferðarreglur, börnunum eru
sýndar kvikmyndir sem tengjast
næstu mánuðum og þess vænst að
því yrði lokið fyrir nóvemberlok, en
reyndar væri möguleiki á að fá
greiðslustöðvun framlengda aftur
um þijá mánuði. „Við ætlum ekki
að vera lengur að þessu en þörf kref-
ur,“ sagði Knútur.
Agæt verkefnastaða
Hann sagði að verkefnastaða fyr-
irtæksins væri þokkaleg um þessar
umferðinni og þá er sögð sagan af
Snuðru og Tuðru. Undanfarin ár
hafa Skipulagsnefnd Akureyrar,
Lögreglan og Umferðarráð staðið í
sameiningu að umferðaifræðslu
fyrir þennan aldurshóp, 6 ára böm
eru að hefja skólagöngu, en þegar
líður að hausti eykst slysahætta
vemlega. Með aukinni fræðslu er
vonast til að úr þeirri hættu dragi.
mundir, m.a. væri verið að vinna við
Gullver frá Seyðisfírði og Tálknfírð-
ing, en þar væri um að ræða árlegt
viðhald. „Það virðist vera ágæt staða
á verkefnum svo langt sem við sjáum
fram í tímann, það verður eitthvað
um verkefni í haust,“ sagði Knútur.
-----------*—♦—«----
TJaldstæðið
Húsabrekka
Minní aðsókn
en í fyrra
vegna veðurs
MINNI aðsókn hefur í sumar ver-
ið að tjaldstæðinu Húsabrekku,
sem er i landi Hallanda gegnt
Akureyri, en var í fyrra, en tjald-
svæðið er nýtt og var opnað í fyr-
rasumar.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir á Húsa-
brekku sagði að veðrið í sumar hefði
ekki verið hvetjandi og setti óneitan-
lega strik í reikninginn hvað varðar
nýtingu á tjaldstæðinu. Nýtingin
væri því í heildina minni en var í
fyrrasumar, fyrsta sumarið sem
tjaldstæði er rekið að Húsabrekku.
Aukning í júní
Þrátt fyrir vætutíð og norðan-
strekking sumarsins varð aukning í
júnímánuði nú miðað við júní í fyrra,
en það segir Sigurbjörg að megi
eflaust rekja til þess hversu nýtt
svæðið var þá og lítið kynnt.
Gistinætur í júlí vom eitthvað
færri en vom í júlí í fyrra, en ágúst-
mánuður er mun lélegri nú en var
og munar eitthvað á milli tvö og
þijú hundmð gistinóttum milli ára.
„Það munar fyrst og fremst um
íslendingana, þeir hafa sárafáir verið
á ferðinni í sumar og alls ekki í tjald-
ferðalögum, en útlendingarnir halda
sínu striki, Meirihluti gestanna hér
hjá okkur í sumar era útlendingar,
en yfírleitt em íslendingar fleiri, það
var að minnsta kosti reynsla okkar
í fyrra,“ sagði Sigurbjörg.
Morgunblaðið/Golli
Hlustað af athygli
ÞAU hlusta greinilega af athygli börnin sem sóttu námskeið í umferð-
arfræðslu í Oddeyrarskólanum í vikunni.
Börnin frædd um umferðina
Hlýnandi veður og nýafstaðinn
stórstraumur hefur glætt lax-
veiðamar og yfirleitt berast al-
veg bærilegar fregnir, hvort
heldur er frá Norðurlandi eða
annars staðar.
Norðurá hangir í efsta
sætinu...
Norðurá hangir enn í efsta sæt-
inu, en rólegheit síðustu vikur hafa
valdið því að aðrar ár hafa dregið
á, sérstaklega þó Laxá í Aðaldal.
í gærdag vom komnir 1.917 laxar
úr ánni. Tvísýnt er talið að áin nái
2.000 löxum í sumar, sem lengi
virtist borðleggjandi. Ekki er lax-
leysi um að kenna, heldur litlu
vatni og kuldatíð. Hollin að undan-
fömu hafa verið að fá 30 til 42
laxa og munaði engu þótt stjóm
SVFR væri við veiðar dagana 17.
til 20. ágúst. Þar fer hópur sem
gjörþekkir ána, en eftirtekjan varð
þó aðeins 42 laxar. Þó er enn lax
að ganga, þannig dró veiðimaður
einn þijá grálúsuga fiska á Kálf-
hylsbroti undir hádegi í gær.
Laxá sækir á
Laxá í Aðaldal var í gærdag
komin í 1.730 laxa og í vikunni
veiddust 20 og 21 punds fiskar
sama daginn. Er þar enn nokkuð
góð veiði og Norðlendingar treysta
því að „þeirra á“ nái efsta sætinu.
Þverá hæg og hljóð ...
Ólafur Hrútijörð, kokkur í veiði-
húsinu við Þverá, sagði í gærdag
að veiðin næmi nú 1.447 löxum.
Veiðin væri mjög á rólegu nótun-
um, enda mjög lítið vatn og hefði
svo verið svo vikum skipti. Hann
sagði það eina sem valdið gæti
umskiptum vera ærlega veðursf-
arsbreytingu. Hann sagði og að
skiptingin milli Kjarrár og Þverár
væri nokkuð jöfn.
Sigurður Einar Sigurðsson með
20 punda hæng sem hann veiddi
á rauða Frances-túbu í Hleinar-
hyl í Hofsá fyrr í mánuðinum.
Sá stærsti úr Hofsá sem frést
hefur af.
Á uppleið ...
Morgunblaðið náði ekki stað-
festri tölu úr Hofsá í gær, en eftir
góðum heimildum er það þó haft,
að veiðin þar sé mjög nærri 1.400
löxum og óhemja sé af laxi í ánni.
Veitt er eitthvað fram í september
og gæti lokaveiðin orðið mun meiri
ef skilyrði batna. Stærsta lax sum-
arsins veiddi Sigurður E. Sigurðs-
son á flugu í Hleinahyl 6. ágúst
síðastliðinn.
Á uppleið em einnig Grímsá og
Víðidalsá. Grímsá hafði í gær gefíð
1.100 laxa og sagði Guðrún Þor-
steinsdóttir í veiðihúsinu að veiði
hefði farið nokkuð batnandi að
undanfömu og hollin verið að kom-
ast í 50 laxa. „Þetta hefur verið
að rífa sig aðeins upp að undan-
fömu,“ sagði Guðrún. í sama
streng tók bústýran í veiðihúsinu
við Víðidalsá, en þar vom í gær
komnir 1.080 laxar á land. Síðustu
daga hafa. fengist stórir laxar úr
ánni, 23 punda og 21 punds. Þann
stærri veiddi Páll Ingólfsson á
maðk í Harðeyrarstreng.
Hörkuveiði í Korpu ...
„Ég hef séð um veiðivörsluna
síðasta tólf og hálfan daginn og á
því tímabili hafa veiðst 100 laxar
í ánni, alls 350 í sumar, en það
gerir 175 á hvora stöng. Það hlýt-
ur að teljast mjög gott, enda mun
meiri veiði á stöng að meðaltali en
í flestum hinna þekktari áa,“ sagði
Bjami I. Ámason, einn leigutaka
Úlfarsár, eða Korpu, sem rennur
sem kunnugt er innan marka
Reykjavíkur. í fyrra veiddust 507
laxar á tvær stangir í ánni og sú
tala gæti náðst aftur, því mikill lax
kom inn á síðasta straumi. Það er
helst að vatnsleysi hái veiðum, en
samt hefur gengið vel ef menn
hafa farið rétt að ánni á annað
borð. „Það þarf að nota silki-
hanska," sagði Bjami. Hann sagði
enn fremur, að margir hefðu kom-
ið ánægðir úr ánni í sumar, ekki
síst einn sem var á heimleið, lax-
laus, úr Laxá í Aðaldal. Hann
renndi í Korpu í smástund, fékk
tvo laxa og heim fór hann ekki fisk-
laus.
Hér og þar ...
Fregnir herma, að milli 60 og
70 laxar hafí veiðst í Fróða á Snæ-
fellsnesi í sumar. Miðsvæðis í ánni
er laxastigi, rétt ofan svokallaðs
Gijóthyls. Laxinn virðist hafa verið
tregur í stigann og hefur veiðst
aðallega í Gijóthyl og næstu hyljum
fyrir neðan.
Mjög góð veiði hefur verið í Laxá
á Ásum og samkvæmt upplýsing-
um frá Húnsstöðum vom í gærdag
komnir 1.314 laxar á land og enn
góð veiði, 10 til 30 laxar á dag.