Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 19

Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 19 Nicaragua Skærulið- ar sleppa gíslum E1 Zungano, Nicaragua. Reuter. HÆGRI sinnaðir skæruliðar í Nicaragua, undir stjórn Jose Angels Talavera, fyrrum kontraliða, slepptu í gær tveimur gíslum til viðbótar 20 sem þeir slepptu á sunnudag. Tóku þeir 38 embættismenn og leiðtoga sandinista í gísl- ingu sl. fimmtudag. Mennirnir voru látnir lausir eft- ir að samninganefnd sem skipuð var fulltrúum ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðunnar og Samtaka Ameríkuríkja (OAS) hafði náð samkomulagi þar að lútandi við fulltrúa skæruliða. Skömmu eftir að skæruliðar Talavera, sem gengur undir nafn- inu Sjakalinn, létu 18 gísla lausa í borginni Quilali í norðurhluta landsins á sunnudag slepptu vinstri sinnaðir skæruliðar tveimur gíslum í höfuðborginni Managua. Þeir síðarnefndu hafa Virgilio Gody, varaforseta landsins, og um átta blaðamenn í haldi og létu til skarar skríða þegar pólitískir and- stæðingar þeirra tóku mennina í Quilali. I gær skiptust skæruliðahreyf- ingarnar síðan á að sleppta mönn- um og var vonast til að allir gísl- arnir yrðu látnir lausir í þessari viku. Menn Talavera krefjast þess af Violetu Chamorro forseta að hún setji af þá Humberto Ortega, yfir- mann hersins, og Antonio Lacayo herráðsforingja. Talavera fullyrðir að Ortega og Lacayo noti aðstöðu sína í hernum til að tryggja sandinistum áhrif í landsstjórninni þó að þeir hafi beðið ósigur í for- setakosningunum 1990. ERLENT var handtekinn en skotinn í beinni útsendingu sjónvarpsstöðva áður en lögregla náði að yfirheyra hann. Oswald hentugur morðingi Flestir Bandaríkjamenn álíta að Oswald hafi verið rugludallur en Deryabin taldi að einmitt slíkur maður hefði hentað KGB vel til að drýgja forsetamorðið. „KGB veit vel að flestir morðingjar sögunnar hafa verið menn sem áttu erfitt með að laga sig að aðstæðum og voru ekki í andlegu jafnvægi," seg- ir í skýrslu Deryabins. Hann tekur þó fram að vel geti verið að KGB hafi falið Oswald önnur verkefni í Bandaríkjunum en hann hafi síðan átt frumkvæði að morðinu sjálfur. Deryabin segir að stjórn Níkíta Khrústsjovs í Sovétríkjunum hafi komið vel að láta athygli umheims- ins beinast að Bandaríkjunum og þar með frá vandamálum Sovét- manna. Einnig hafi Sovétleiðtog- arnir talið að bandarískur þrýsting- ur á Sovétríkin myndi minnka þar sem Lyndon B. Johnson varafor- seti, arftaki Kennedys, yrði ekki jafn harðvítugur andstæðingur. Þetta myndi létta Sovétmönnum róðurinn í hugmyndafræðislagnum við Kína. Reuter Sláturtíð í Dhaka ÞESSIR geitahirðar í Dhaka í Bangladesh eru á leið með fénaðinn í sláturhús en miklar rigningar og flóð gera þeim reksturinn eða öllu heldur dráttinn ekki auðveldan. Á nokkrum klukkustundum mældist úrkoman 74 mm og ekkert útlit fyrir uppstyttu í bráð. Miklir öfgar hafa verið í veðurfari víða um heim á þessu sumri, langvarandi þurrkar á einum stað en gífur- leg úrkoma á öðrum. Nu er tvöfaldur l.vinningur Spilaðu með fyrir j l kl.l6ídag Veröm* liaim 70.000.000 kr.?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.